Dagur - Tíminn - 22.10.1996, Page 2

Dagur - Tíminn - 22.10.1996, Page 2
2 - Þriðjudagur 22. október 1996 iH'igur-CEhtrám jj F R E T T I R Ríkissaksóknari: Umræðuefni manna í heita pottinum er skandallinn sem varð í lokahófi knattspyrnu- manna í Reykjavík sl. föstudags- kvöld. Það voru Radíusbræður sem héldu uppi bömmernum það kvöld með meintu gríni sínu. Knattspyrnuhetjurnar í sam- kvæminu kunnu greinilega ekki að meta grín grínistanna enda gekk það nánast allt út á að at- ast í Guðjóni Þórðarsyni þjálfara Akraness. Menn kunnu illa að meta framlag skemmtikraftanna ekki síst þar sem eiginkona Guð- jóns og sonur voru í salnum en Guðjón sjálfur var með Bjarna syni sínum í Austurríki að þreifa á hugsanlegum samningum fyrir þann síðarnefnda.. Það þótti því vissara að vísa Radíusþræðrum úr húsi eftir skemmtunina, sumir segja að það hafi verið til að tryggja þeirra eigin öryggi — það mun hafa verið farið að sjóða á ýmsum úti í sal.. Nú er heldur að draga til tíð- inda í forustumálum krat- anna því frést hefur að Jón Bald- vin hyggist boða til blaðamanna- fundar í dag. Kratarnir í pottinum voru farnir að naga neglurnar því þeir fullyrða að ekki einu sinni Bryndís viti fyrir víst hvort Jón ætli að halda áfram í pólitík eða ekki... Minningartónleikarnir um Ingi- mar Eydal þóttu takast von- um framar. í pottinum á Akureyri voru menn sammála um að alit hafi farið fram eins vel og frekast varð á kosið nema eitt. Pottorm- arnir voru allir sammála því að Þorvaldur Halldórsson hafi mis- notað aðstöðuna þegar hann fór að prédika guðs orp - guðs- prédikanir séu ágætar en stund- um eigi þær við og stundum ekki.... Ákærir ritstjóra Alþýðublaðsins Ríkissaksóknari kærir ritstjóra Alþýðublaðs- ins fyrir meintar ærumeiðingar um fangelsismálastjóra. Ríkissaksóknari hefur birt Hrafni Jökulssyni ritstjóra ákæru fyrir ummæli um Haraid Johann- essen fangelsismálastjóra, sem birtust í grein Hrafns í biaðinu þann 9. mars sl. Þau telur saksóknari að séu æru- meiðandi aðdróttun um Har- ald. Málið verður tekið fyrir í Héraðsdómi Reykjavíkur á þriðjudag í næstu viku. í grein Hrafns sem ber yflr- skriftina Ástir í hrútakofa er aðbúnaður fanga á Litla- Hrauni gagnrýndur og hann sagður vera ómannúðlegur sem og ýmsar innanhúsreglur í fangelsinu. Þær leiði ekki til þess að fangar snúi af helvegi glæpa og afbrota, heldur haldi áfram á sömu braut. „Haraldur Johannesson er ekki fangelsis- málastjóri, heldur glæpa- mannaframleiðandi ríkisins," segir í niðurlagi greinarinnar og það eru þau ummæli sem Hrafn er ákærður fyrir. Þessi ummæli telur ríkissak- sóknari stangast á við 234. og 235. grein almennra hegning- arlaga. Þar segir að sá sem hafi yfir ærumeiðandi ummæli geti Harald Johannes- sen fang- elsismála- stjóri. búist við sektum eða varðhaldi. Ákæru sína byggir saksóknari hinsvegar á 242. grein sömu laga þar sem segir að hver sem hafi aðdróttanir eða ærumeið- ingar um opinberan starfs- mann sem tengist starfi hans skuh refsa með sektum eða fangavist í allt að eitt ár. „At- hylgi er vakin á því að heimiidir til áfrýjunar shks dóms eru tak- markaðar, sbr. 150. grein sömu laga,“ segir í fyrirkalli til dóms sem Hrafni Jökulssyni hefur verið birt. í samtali við Dag-Tímann í gær sagði Hrafn að hann teldi sig vera í fullum rétti í þessu máli og frá sínum bæjardyrum séð fjallaði það ekki um per- sónu Haraldar Johannessen. „Þann mann hef ég aldrei hitt. Efni greinar minnar sem fer svo fyrir brjóstið á hinum háu herr- um fjallar um ranga og ómann- úðlega stefnu Fangelsismála- stofnunar, sem ég tel að stuðli að því menn haldi áfram á glæpabrautinni í stað þess að snúa af henni - einsog tilgang- urinn með fangavist ætti að vera. Ég tel mig jafnframt hafa skýlausan rétt til að gagnrýna emættisfærslu og stefnu stofn- unar sem kostuð er af almanna fé,“ segir Hrafn. Hrafn sagði ennfremur að við réttarhöld í Héraðsdómi kæmu án efa upp mörg atriði sem varpa myndu ljósi á em- bættisfærslu, stefnu og störf Fangelsismálastofnunar. Áhugavert væri að að fá eitt- hvað af því fram í dagsljósið. „Að því leyti gætu þetta orðið mjög áhugaverð réttarhöld, en jafnframt geta þau og dómur í þeim orðið prófmái í því hver réttur almennings til að gagn- rýna opinberar stofnanir raun- verulega er,“ sagði ritstjóri Al- þýðublaðsins -sbs. Þroskahjálp Vantar fé í sjóðínn Það vantar 255 milljónir króna á að lögboðnu framlagi sé varið í Fram- kvæmdassjóð fatlaðra miðað við íjárlagafrunivarpið. Sam- kvæmt lögum eiga að renna í sjóðinn um 420 m.kr en í frum- varpinu er gert ráð fyrir 165 milljónum. Þetta kallar fulltrúa- fundur Þorskahjálpar aðför að sjóðnum og mótmæla henni harðlega. Þá vekur fulltrúa- fundurinn athygli á að ekki er gert ráð fyrir nýrri búsetuþjón- ustu í frumvarpinu utan eins meðferðarheimilis fyrir ein- hverf börn og ungmenni. Á sama tíma eru yfir 300 manns á biðlistum. Þá vill fundurinn að fötluð- um sé tryggt ijögurra ára fram- haldsnám að loknum grunn- skóla og skorar á menntamála- ráðherra að tryggja að fyrir- hugað framhaldsnám fatlaðra í Borgarholtsskóla í Grafarvogi heíjist um næstu áramót. Jafnréttisnefnd P&S braut jafnréttislög Póstur og sími braut jafn- réttislög, þegar karl var ráðinn deildastjóri í sölu- deild fyrirtækisins í Kringlunni í Reykjavík, í stað konu sem einnig sótti um. Konan kærði ráðninguna í vor. í áliti kæru- nefndar jafnréttismála segir að ekki verði séð að karlinn hafi verið hæfari en hún til að gegna starfinu. Flestir deildarstjórar hjá P&S séu karlar og með hlið- sjón af því og yfirlýstri stefnu fyrirtækisins í jafnréttismálum, verði að telja að því hafi borið að ráða konuna. Kærunefnd beinir þeim tilmælum til Pósts og síma að fundin verði viðun- andi lausn á málinu. FRÉTTAVIÐTALIÐ Seilst í vasa gmnnskólabama Unnur Halldórsdóttir framkvœmdastjóri Heimilis og skóla Svo viröist sem það sé að fœrast í vöxt að grunnskóla- börn séu látin greiða fyrir ýmsar vettvangsferðir sem farnar eru í tengslum við námið. Heimili og skóli sœtta sig ekki við það og ekki heldur að kennarar séu að klípa af lögbuhdinni kennslu til fundahalda. Jk rru bœjar-og sveitarfélög farin M~4 að láta grunnskólabörn greiða M J fyrir svonefndar vettvangsferð- ir? „Ég hef t.d. fengið hringingu frá for- eldrum á Suðurnesjum þar sem börnin voru send á vegum skólans í rútu í Húsadýragarðinn og þeim gert að borga sig inn. Það er einnig áleitin spurning hvaða stefna það sé af hálfu borgaryfirvalda að láta börnin greiða fyrir vettvangsferðir. Það eru m.a. dæmi um að börn hafa verið send með skóla til að planta einhversstaðar á vegum Yrkjusjóðs og það hefur kostað börnin 500 krónur. Þannig að þetta virðist vera nýtt hjá borginni sem við munum ekki sætta okkur við. Þá veit ég dæmi þess að í Hafnarfirði eru börn látin greiða fyrir rútuferðir í Þjóð- minjasafnið. Það væri því fróðlegt að fá að vita það hvort einhver áherslu- eða stefnubreyting hefur orðið í þessum efnum t.d. hjá borginni um það að vettvangsferðir grunnskólabarna sem farnar eru í tengslum við kennslu, séu ekki hluti af námi barnanna." Hvernig hefur gengið það sem af er skólaárinu að samrœma starfs- daga kennara og halda lögbundnum kennslustundum? „Það sem stingur okkur er að marg- ir vilja krukka í þessa 170 lögbundnu kennsludaga. Við höfum vakið athygli á því að kennarafélög vítt og breitt um landið auglýsa sín haustþing á kennsludögum og þá er kennsla felld niður. Þegar spurt er að því hver hefur veitt leyfi til þess af því að það má eng- inn veita til þess Ieyfi nema skóla- nefndin, þá hef ég t.d. heyrt að þegar kennarar á Suðurlandi héldu sitt þing 2. og 3. september sl. að þeir hefðu sótt um leyfi hjá stjórn skólaskrifstofu Suðurlands. Hún er hinsvegar þjón- ustustofnun og á ekkert með að leyfa þetta. Ég veit jafnframt ekki hvar kennarar á Norðurlandi vestra sóttu um leyfi til að halda sitt þing í október á kennslutíma. En svo getur vel verið að þetta sé allt í lagi og böínin fá sína lögbundnu kennsludaga þegar upp verður staðið þannig að við skulum spyrja að leikslokum." Er þá ástœða til að œtla að það sé víða pottur brotinn í þessum efnum? „Það er allavega ástæða til að halda vöku sinni. Okkur þykir í það minnsta merkilegt ef einhver er að gefa svona leyfi sem ekki má gera það.“ Hvernig hefur tekist til með for- eldraráðin? „Þetta er byrjendavinna og er mikið að eflast. Ég hef t.d. mikið verið á ferð- inni í fyrravetur og núna þar sem Heimili og skóli hafa verið beðin að hjálpa til að koma fólki af stað. Þá er ég nýkomin af fundi í Hólmavík þar sem ég hitti kennara, skólanefndina, stjórn foreldrafélagsins og foreldraráð- ið og síðan var haldinn almennur fundur um kvöldið. Hið sama verður uppá teningnum í ísafjarðarbæ, þang- að sem ég vonast til að komast. Það er hinsvegar alveg greinilegt að það er mikill hugur í mörgum sveitarstjórnum og skólanefndarfólki sem vill virkilega styðja vel við skólann. Það hefur m.a. áhyggjur af þessum erfiðleikum með að ráða kennara en það vill halda í og laða til sín gott fólk og er reyna að finna leiðir til þess. Svo eru líka til þeir staðir þar sem enginn mætir úr bæjar- stjórn eða hreppsnefnd á almenna fundi sem haldnir eru um skólamál," segir Unnur Ilalldórsdóttir fram- kvæmdastjóri hjá Heimili og skóla. -grh

x

Dagur - Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur - Tíminn
https://timarit.is/publication/254

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.