Dagur - Tíminn - 22.10.1996, Page 7
IDagur-'ðlmmm
mmumam
E R L E N D A R F R E T T I R
Þriðjudagur 22. október 1996 - 7
Bandaríkin
Repúblikanar dug-
legri í íjáröflun
Bob Dole getur
huggað sig við það
að kosningasjóður
Repúblikanaflokks-
ins er mun digrari
en sjóður andstæð-
ingsins.
Þrátt fyrir að Bob Dole sé
langt á eftir Clinton for-
seta í öllum skoðanakönn-
unum þá getur Repúblikana-
flokkurinn þó státað af því að
hafa haft betur en Demókratar
í Qáröflim í kosningabaráttunni.
Á síðastliðnum þremur mánuð-
um hefur flokkurinn halað inn
rúmlega 90 milljónum dollara,
sem er um helmingi meira fé en
Demókrötum hefur tekist að
safna á sama tíma.
Frá því kosningabaráttan
hófst fyrir alvöru í desember
1995 hafa safnast 239 milljónir
dollara í kosningasjóði Repú-
blikanaflokksins, og mest eru
það framlög frá einstaklingum
og fyrirtækjum. Demókratar
hafa halað inn 177 milljónum
dollara frá því í ársbyrjun 1995
og það er raunar met út af fyrir
sig því aldrei fyrr hefur þeim
tekist jafn vel upp í Qáröflun-
inni.
Kosningaframlög hafa komið
nokkuð við sögu í kosningabar-
áttunni sjálfri, og bæði Dole og
Clinton hafa lagt áherslu á að
breyta þurfi því fyrirkomulagi
sem tíðkast við ijármögnun
kosningabaráttunnar. Hafa
ásakanir gengið á víxl um að
frambjóðendur séu með óhreint
mjöl í pokahorninu hvað þessi
mál snertir. -gb
Spánn
Undir sorpfjalli
„Nýjung“
Upptrekt útvarpstæki
lausnin fyrir marga
Nútímatækni er
víða ónothæf, og þá
þarf að taka skref
afturábak til að
tæknin geti komið
að notum.
Upptrekt útvarpstæki er
ekki beinlínis sú tækninýj-
ung sem ofaldir neytend-
ur á Vesturlöndum hafa verið að
bíða eftir. En slrkt tæki gæti
engu að síður komið að góðum
notrnn á þeim svæðum á jörð-
inni þar sem ekkert rafmagn er
að fá eða þar sem rafhlöður eru
of dýrar. Umrætt tæki gengur í
u.þ.b. hálftíma í einfu, en þá þarf
að trekkja það upp að nýju, og
tekur það um 25 sekúndur.
Uppfinningamaðurinn Trevor
Baylis á heiðurinn af þessari
„nýjung", og hlaut hann sérstök
hönnunarverðlaun frá BBC nú í
sumar fyrir vikið. Sjálfiu- segist
hann hafa fengið hugmyndina
að tækinu eftir að hafa horft á
sjónvarpsþátt um alnæmi í
Áfríku þar sem bent var á að
fólk fengi ekki þær upplýsingar
rnn alnæmi sem þörf væri á - að
hluta til vegna þess að erfitt er
að komast yfir rafhlöður þar á
slóðum og þær eru þá oftast
mjög dýrar.
Vonast er til þess að nýja tæk-
ið geti víða komið sér vel, ekki
síst þegar neyðarástand kemur
upp. Tækið gæti gegnt mikil-
vægu hlutverki þegar koma þarf
í skyndi boðum til fólks um nátt-
úruhamfarir, eða róa fólk niður
þar sem átök hafa blossað upp.
í Suður-Afríku eru nú fram-
leidd 20 þúsund tæki á mánuði,
og verið er að gera tilraunir með
notkun þess víða í Afriku, og
einnig í Afghanistan og Bosníu-
Hersegóvínu. Á næsta ári ætla
samtökin War Child að dreifa
5.000 útvarpstækjum í Angóla,
og þá verður jafnframt útvarpað
fræðsluþáttum sem fjalla um
sjúkdóma, getnaðarvarnir, nær-
ingu og fleira. -gb
Sorpskriða olli
miklu tjóni í smábæ
á Spáni í síðasta
mánuði. Hvenær
sem er má búast
við nýrri skriðu úr
„sorpfjallinu“ sem
stendur ofan við
bæinn.
Ibúar í hafnarbænum Port-
ino á norðurströnd Spánar
eru ekki öfundsverðir. Ofan
við bæinn stendur um það bil
60 metra hátt „flall" sem er
gert úr sorpi og úrgangi sem
safnað hefur verið þar saman
um 20 ára skeið. Þann 10. sept-
ember síðastliðinn gerðist síðan
það að úr þessu sorpfjalli rann
skriða. Um 100 þúsund tonn af
matarleifum, ónýtum heimilis-
tækjum, dagblöðum, húsgögn-
mn og öðru slíku runnu niður
yfir bæinn og alla leið út í sjó.
52 ára maður, Joaquin Serr-
antes, lét lífið í hamförunum.
Hann grófst undir skriðunni,
sem einnig olli stórtjónf á
mannvirkjum og öðrum verð-
mætum í bænum. Hrein heppni
réði því að ekki létu fleiri lífið.
Björgimarmenn leituðu í
rústunum í fimm daga, en þá
varð þeim ljóst að hættan væri
ekki enn úr sögunni. Enn má
búast við því að allt að hálfri
milljón tonna af úrgangi ryðjist
niður hh'ðina hvenær sem er.
Nýjar sprungur eru þegar farn-
ar að myndast í sorpfjallinu,
sem stendur efst í hlíðinni fyrir
ofan bæinn.
Atvikið varð þó til þess að nú
loks eru yfirvöld farin að átta
sig á því að þetta fyrirkomulag
er ekíd nógu sniðugt. Skurð-
gröfur eru teknar til við að
moka úr haugnum til þess að
minnka hann svolítið. Á rúmri
viku náðu menn að grafa meira
en 50 þúsund tonn í jörðu, en
„það er helmingurinn af því
sem bætist við á einu ári,“ sagði
bæjarstjórinn, Francisco Vazqu-
ez. -gb
Rússland
Kærður fyrir landráð
Alexander Nikitin, fyrrver-
andi yfirmaður í rúss-
neska norðurflotanum,
var handtekinn í febrúar á
þessu ári og upphaflega kærður
fyrir njósnir vegna þess að
hann átti þátt í að semja
skýrslu á vegum norsku um-
hverfisverndarsamtakanna
Bellona um kjarnorkumengun
sem á rætur að rekja til kjarn-
orkukafbáta í norðurflotanum.
Norðurflotinn hefur aðsetur í
borginni Murmansk, en í
skýrslunni er birt yfirlit yfir öll
Umhverfið
Um 1.100 dýrategundir
í útrýmingarhættu
þau slys sem orðið hafa á
kjarnorkuknúnum kafbátum í
rússneska norðurflotanum. Þar
er skýrt frá því að frá 1961
fram til dagsins í dag hafi
a.m.k. 507 manns látið lífið í
slysum sem orðið hafa í kjarn-
orkukafbátum. Alvarlegustu
slysin urðu þar sem eldur
kviknaði um borð í kafbátum,
en þrír rússneskir kjarnorku-
kafbátar hafa sokkið af þeim
sökum.
Nikitin og Bellona-samtökin
halda því fram að upplýsing-
arnar í skýrslunni séu allar
fengnar úr opinbennn heimild-
um, en Nikitin var einn þriggja
starfsmanna samtakanna sem
unnu að því að taka þær sam-
an.
Rússneska leyniþjónustan
hefur haldið því fram að Nikitin
hafi selt upplýsingar til Bellona,
en samtökin segja þann mál-
flutning fáránlegan: Hann var
Alexander Nikltin í fylgd rúss-
neskra lögregluþjóna.
starfsmaður samtakanna og
fékk greidd sín laun samkvæmt
því. Rannsókn á máli hans lauk
þann 30. september sl. og hefur
hann nú verið kærður fyrir
landráð vegna njósna og fyrir
að brjóta lög um uppljóstrun
ríkisleyndarmála, ásamt að
hafa notað nafnskírteini sitt frá
hernum með ólöglegum hætti til
þess að fá aðgang að upplýsing-
um. -gb
Asama tíma og mannkynið
vex næstum stjórnlaust
eru hátt í 1.100 dýrateg-
undir í heiminum í útrýmingar-
hættu. Þar af eru meira en 900
í alvarlegri hættu að deyja út
innan fremur fárra ára, sam-
kvæmt nýrri alþjóðaskýrslu. Af
þeim dýrum sem hvað mest er
ógnað má nefna Síberíutígur,
sem er stærstur allra tígrisdýra,
sjaldgæfur páfagaukur í Brasil-
íu og marsvín í Mexíkóflóa.
Rannsóknir um heim allan
hafa leitt í ljós að um fjórðung-
ur allra spendýra er í misjafn-
lega mikilli útrýmingarhættu og
um 11% állra fugla. Enn meiri
hætta vofir þó yfir ferskvatns-
fiskum, skriðdýrum og pöddum.
Það eru mengun, eyðfiegging
á heimkynnum dýranna, full-
komnari veiðitæki og síðast en
ekki síst veiðiþjófnaður sem
ógnar tilveru dýrategundanna.
Þannig eru veiðþjófar, sem
freistað er með háum verðtil-
boðum fyrir nashyrningshorn,
nú komnir vel á veg með að út-
rýma asíska nashyrningnum.
Stofninn hefur minnkað um
20% á aðeins fimm árum og
áætlað er að aðeins um 2 þús-
und dýr séu nú eftir í heiminum
af þessari tegund.
Plöntur jarðarinnar eru líka í
ámóta hættu. Kringum 13%
allra þekktra plöntutegunda
eru nú áhtnar í útrýmingar-
hættu.
Útrýming dýra og plantna er
samt síður en svo nýtilkomin.
Talið er að heimurinn sé nú
1.265 dýra- og jurtategundum
fátækari heldur en fyrir 400 ár-
um.
Gróin hverfisverslun
til sölu
Gott tækifæri fyrir duglegt fólk.
Nánari upplýsingar aSeins
á skrifstofunni.
FASTEIGNA & f)
SKIPASALA ZxKZ
NORÐURLANDSIf
Sími 461 1500 - Fax 461 2844
Pétur Jósefsson, sölustjóri
Benedikt Olafsson hdl.