Dagur - Tíminn - 22.10.1996, Síða 11
ÍDagur-'ÍUmrttm
Þriðjudagur 22. október 1996 -11
KNATTSPYRNAN
Meistaramir niðurlægðir
Newcastle náði fram
hefndum gegn Man.
Utd. með 5:0 sigri
Tvöfaldir meistarar Manc-
hester United voru niður-
lægðir á St. James Park á
sunnudag. Leikmenn Newcastle
rúlluðu meisturunum upp og
skutust upp á topp deildarinnar
með 5:0 sigri. Petta er stærsta
tap United í 12 ár og þar á bæ
verða menn að huga alvarlega
að varnarleiknum ef liðið ætlar
að blanda sér baráttuna um
meistaratitilinn í ár.
Leikir þessara liða á síðasta
tímabili gerðu útslagið og
tryggðu United meistaratitilinn
og í leiknum um Góðgerðar-
skjöldinn í ágúst sigraði United
4:0 en nú náði Newcastle fram
hefndum. Newcastle hefur verið
ÚRVALSDEILD
Úrslit
Newcastle-Man. Utd............5:0
(Peacock 12, Ginola 30, Ferdinand
63, Shearer 75, Albert 83)
Arsenal-Coventry .............0:0
Aston Villa-Leeds ............2:0
(Yorke 58, Johnson 65)
Chelsea-Wimbledon ............2:4
(Minto 9, Vialli víti 84) (Earle 4, Ardl-
ey 16, Gayle 64, Ekoku 78)
Middlesbrough-Tottenham . .. .0:3
(Sheringham 21,90, Fox 23)
Nottm. Forest-Derby .........1:1
(Saunders 2) (Dailly 58)
Sheff. Wed.-Blackburn ........1:1
(Booth 3) (Bohinen 74)
Southampton-Sunderland .......3:0
(Dodd 38, Le Tissier víti 53, Shipperl-
ey 89)
West Ham-Leicester ...........1:0
(Moncur 78)
Staðan
Newcastle .... : p.l0 8 0 2 20:10 24
Arsenal .........10 6 3 1 19: 8 21
Wimbledon .......10 70 3 20:11 21
Liverpool ........2 1 1$: 7 20
Man. Utd.........10 5 4 1 19:11 19 '
Chelsea ........ 104*4 2 16:15 16 ■'
Aston Villa......10 4 3-3 13:10 15
Tottenham........10 4 2 4 10: 8 14
Sheff.Wed........10 4 2 4 12:1614
Everton .9 3 3 3 10:11 12
Middlesbr. ......10 3 3 4 16:18 12
Derby ...........10 2 5 3 9:12 11
Westilam ........10 3 2 5 9:14 11
Leicester .......10 3 2 5 7:13 11
Sunderland ......10 2 4 4 8:11 10
Leeds ...........10 3 1 6 8:15 10
Southampton ....10 2 3 5 14:13 9
Nottm. Forest ...10 15 4 10:17 8
Coventry ........10 1 4 5 4:14 7
Blackburn .......10 0 4 6 6:14 4
1. DEILD
Urslit
Tranmere-QPR .........
Bradford-Barnsley .. .
Charlton-Bolton .....
Crystal Palace-Swindon
Grimsby-West Brom . .
Huddersfield-Southend
Ipswich-Portsmouth . .
Man. City-Norwic ....
Stoke-Sheff. Utd.....
Wolves-Port Vale . ■ . ,
Staðan
Bolton ..........13 9 3 131:17 30
Norwicb • .......13 8 3 2 20: 9 27
Barnsley ........12 64 2 19:12 22
C. Palace ........13 5 6 2 26:12 21
Wolves...........146 3 518:14 21
Sheff. Utd.......11 6 2 3 23:12 20
Swindon ....:. .13 6 2 5 20:14 20
QPR ...... . . .14 5 54 18:18 20
Tranmere ..... .14 5 4 5 18:17 19
Stoke ......• ■. - .12 5 4 3 17:20 19
Huddersfield ... .12 5’3 4 17:18 18
Oxford .........13 4 4)5 13:'9.16.'/
Man. City;... .-. ... .1-2.5 1 6 13:16 16..
Birmingham ... .11 4 4 3 12:10 16
PortValé . . ! . .14 3 7 4 11:16 16
Ipswich ■..... . .13 3 6 4 18:18 15
WestBrom .....12 3 6 3 15:16 15
Reading ......! .13 4 3 6 15:23 15 '
Portsmouth ......14 4' 3 7 14:20 15
Southend ........14 3 6 5 13:23 15
Grimsby......, . .14 3 4 7 16:26 13
Bradford . ......14 3 3 811:22 12' '
Charlton ........l l 3 2 '6 10:16 11
Oldhain .........14 1 4 9 13:23 7
.2:3
.2:2
.3:3
.1:2
.1:1
.0:0
.1:1
. ,:1
.0:4
.0:1
lan Wright er kominn í vandræði á ný. Hann nefbraut Steve Ogrizovic í leik
Arsenal og Coventry með fólskulegu broti.
gagnrýnt fyrir varnarleikinn en
nú vörðust þeir viturlega á með-
an United-vörnin var hriplek.
Heimaliðið var 2:0 yfir í leikhléi
og United lagði allt í söknina í
upphafi þess síðari en Newcastle
hélt út og nýtti sínar sóknir til að
bæta við mörkum. Mótlætið fór í
skapið á Eric Cantona og hann
var heppinn að sleppa við rauða
spjaldið fyrir ljótt brot á Peter
Beardsley en dómarinn sá ekk-
ert athugavert.
Þetta var stærsta tap United
síðan liðið tapaði með sama
markamun fyrir Everton í októ-
ber 1984 og Alex Ferguson sagði
þetta vera verstu úrslit á 22 ára
ferli hans sem framkvæmda-
stjóra. Þetta var sjöundi sigur
Newcastle í úrvalsdeildinni í röð
og fyrsti sigur hðsins á United í
deildakeppni í níu ár. Ef Newc-
astle sigrar um næstu helgi getur
liðið jafnað met United, sem
mest hefur unnið átta leiki í röð í
úrvalsdeildinni. Wimbledon get-
ur einnig jafnað það met, gegn
Middlesbrough.
„Þetta var einn af þessum
leikjum þar sem úrslitin gefa
ekki til kynna hversu mikið við
lögðum í leikinn. Við fengum
nokkur mjög góð færi í seinni
hálfleik en nýttum þau ekki og
okkur var refsað fyrir hver ein-
ustu mistök sem við gerðum,"
sagði Ferguson, stjóri United. Al-
an Shearer var öllu glaðlegri í
leikslok. „Þetta var sæt hefnd
eftir að þeir niðurlægðu okkur í
leiknum um Góðgerðarskjöldinn.
f dag niðurlægðum við þá og það
eru ekki mörg hð sem hafa gert
það á síðustu fimm árum,“ sagði
Alan Shearer.
Wright í vanda
Arsenal fór á toppinn á laugar-
dag á markahlutfalli þrátt fyrir
að gera markalaust jafntefli við
Coventry. Þetta var fyrsti heima-
leikur liðsins undir stjórn Arsene
Wenger og jafnframt í fyrsta sinn
í ijögur ár sem Arsenal náði
toppsætinu. Steve Ogrizovic var
hetja Coventry og bjargaði hvað
eftir annað en hann var borinn
af leikvelli nefbrotinn undir lok
leiksins eftir samstuð við Ian
Wright, sem virtist sparka vilj-
andi framan í markvörðinn. „Við
vitum báðir hvað gerðist. Þetta
var viljaverk. Ég hef nefbrotnað
sex eða sjö sinnum og hef aldrei
gert veður út af því vegna þess
að þetta hefur alltaf verið slys.
En þetta var ekkert slys. Hann
kom með hnéð í andlitið á mér
þegar boltinn var ekki nærri,“
sagði Ogrizovic, en Wright held-
ur fram sakleysi sínu. „Það voru
myndavélar þarna og þær munu
sanna sakleysi mitt,“ sagði
David Ginola átti stórleik með
Newcastle gegn Man. Utd. og
skoraði glæsiiegt mark. Hér fagnar
hann með John Beresford.
Wright kokhraustur í leikslok en
reyndar hafði hann rangt fyrir
sér þar sem myndir sýndu að
árás hans á Ogrizovic var fólsku-
leg og óþörf. Wright mætir fyrir
aganefnd í vikunni, ekki fyrir
þetta brot heldur fyrir að kalla
David Pleat, stjóra Wednesday,
„öfugugga" á dögunum.
Wimbledon
óstöðvandi
Wimbledon gefur ekkert eftir og
vinnur hvern leikinn af öðrum.
Liðið heimsótti Chelsea og náði í
öll þrjú stigin með enn einum
stórsigrinum, 4:2. Wimbledon
hefur nú skorað 20 mörk í síð-
ustu 7 leikjum og eigandi liðsins
sagði eftir leikinn að hann sætti
sig ekki við svona stórsigra, þar
sem hann hefði ekki efni á að
borga svona mörgum leikmönn-
um bónus fyrir að skora. Krafta-
karlarnir í Wimbledon lögðu
meira í leikinn en stjörnurnar í
liði Chelsea og sigurinn var
sanngjarn. Ruud Gullit setti sjálf-
an sig í sóknina í seinni hálfleik
þó svo vörn liðsins vantaði frek-
ar hjálp. Gullit skoraði reyndar í
leiknum en markið var dæmt af
vegna rangstöðu. Fyrirliði Chels-
ea, Dennis Wise, mátti sætta sig
við sæti á bekknum gegn sínum
gömlu félögum en kom þó inná
undir lokin.
í kennslustund
Middlesbrough virðist vera að
falla í sama farið og á síðasta
tímabili þegar liðið tapaði
hverjum leiknum af öðrum eftir
góða byrjun á mótinu. Fabrizio
Ravanelli, markahrókurinn hjá
Boro, hefur kvartað yfir hversu
lélegir varnarmenn séu í liðinu
og leikurinn gegn Tottenham
rökstuddi mál hans. Tottenham
sigraði 3:0 og Bryan Robson,
stjóri Boro, sagði að sínir menn
hefðu verið teknir í kennslu-
stund. Boro byrjaði vel og Junin-
ho skoraði strax á 3. mínútu en
markið var dæmt af vegna rang-
stöðu. Sóknarleikur liðsins var
líflegur en um leið og Tottenham
náði að sækja kom veikleiki Boro
í ljós. Teddy Sheringham fór illa
með varnarmenn Boro og sigur-
inn var sannfærandi.
Leeds lélegt
Serbinn Sasa Curcic var maður-
inn á bakvið sigur Aston Villa á
Leeds. Villa hafði ekki unnið í
sjö leikjum í röð en Leeds veitti
liðinu litla mótspyrnu. Liðin
mætast aftur annað kvöld á El-
land Road í Coca-Cola bikarn-
um og Leeds þarf að laga ýmis-
legt ef liðið ætlar að eiga mögu-
leika á sigri. „Þetta var lélegasti
leikur liðsins síðan ég tók við
því,“ sagði George Graham,
stjóri Leeds, í leikslok. Brian
Little, stjóri Villa, tók Sayo Mi-
losevic út úr liði sínu og hann
fékk ekki einu sinni sæti meðal
varamanna. Framtíð hans hjá
Villa er óljós, sérstaklega ef
Tommy Johnson heldur áfram
að leika eins og hann gerði
gegn Leeds.
BLAK • 1. deild karla
Óvænt en sanngjamt hjá KA
Fyrsta deild karla á ís-
landsmótinu í blaki hófst
um síðustu helgi með
óvæntum úrslitum. KA sem
hafnaði í neðsta sæti deildar-
innar í fyrra lagði íslands-
meistara Þróttar að velli 3:1 á
Akureyri og Þróttur Neskaup-
stað lagði ÍS. Báðir leikirnir
fóru fram á föstudagskvöldið.
„Það var mjög góð barátta
hjá liðinu og liðsandinn var til
fyrirmyndar. Þegar slíkt fer
saman má reikna, með góðum
úrslitum. Flestir ; reikna með
okkur í botnbaráttunni en við
ætlum okkur ekki að vera þar í
vetur. Við byrjuðum að æfa í
júní og höfum aldrei byrjað svo
snemma, enda eru leikmenn í
góðu formi,“ sagði Pétur Ólafs-
son, annar þjálfari KA-liðsins
eftir sigurinn gegn Þrótti.
Meistararnir unnu í fyrstu
hrinunni 8:15, en eftir það
voru það heimamenn sem réðu
ferðinni og unnu tvær næstu
hrinur 15:8. Þróttarar höfðu
betur framan af Ijórðu hrin-
unni, höfðu yfir 8:10 en KA
skoraði síðustu sjö stigin og
sigraði því í síðustu hrinunni
15:10. KA-menn eru því þegar
búnir að fagna einum sigri, en
liðið sigraði aðeins í einum
deildarleik í fyrra.
Frábær leikur búlgarska
uppspilarans Apostol réði
miklu um lyktir leiks Stúdenta
og Þróttar Neskaupstað. Apo-
stol setti upp ófá færin fyrir
Austíjarðaliðið og lágvörn liðs-
ins var sterk og það lagði
grunninn að 3:0 sigri, 15:5,
15:13 og ,15:13. Þróttarar unnu
síðan Stjörnuna 3:0 í leik lið-
anna í Garðabænum á sunnu-
daginn og hafa farið mjög vel
af stað.
Tveir leikir verða um næstu
helgi. KA leikur þá gegn ÍS og
Þrótti í Reykjavik.
Frá leik KA og Þróttar Reykjavík.
Mynd: JHF