Dagur - Tíminn - 22.10.1996, Blaðsíða 12
ÍD^tgur-CErmttttt
Þriðjudagur 22. október 1996
Hörður
Þórðarson
veðurfrœðingur
Reykjavík
Mið Fim Fös Lau mm
5-
0-
-5-
NA3 SA2 V2 NNA 4 A2
NA3 SSV3 N3 N3
Stykkishólmur
!? Mið Fim Fös Lau mm
10 -f ---- f—- »i -M5
5NA 4 ANA 4 NV3 NNA 7 SA 3^
NAS SSV3 NNA6 NNA4
Bolungarvík
!9 Mið Fim Fös Lau mm
10-|------ -------- ------- --------f-15
NA 4 NNA 5 NNA 6 NNA 6 SSA 3
NA 5 NA 3 NNA 5 NNA 3
Blönduós
°c Mið Fim Fös Lau mm
10 ---------- ---------- ---------- ----------1-15
NA 2 A2 N1 N3 NNV1
ANA 2 SSV1 NNA3 N2
Akureyri
ANA 3 SA3 V2 N4 NV3
ANA 3 S 2 N3 NNV3
Egiisstaðir
A3 SA3 SV3 NNV4 NV4
SSA4 SSV3 NV3 NV 4
Kirkjubæjarklaustur
9 Mið Fim Fös Lau mm
ANA3 S 2 V2 N2 NNV 2
SA3 SV3 VNV3 NNV 3
Stórhöfði
°g Mið Fim Fös Lau mm
5-
0-
u
-10
5
ANA6 SV 3 VNV3 N5 NNA2
A3 SV3 vsv 3 N3
á innimálningu
gljástig 10
1 lítri
4 lítrar 1996 H|
10 lítrar 4990
Þúsundir lita í boði
□
KAUPLAND
KAUPANGI
Sími 462 3565 • Fax 461 1829
Línuritin sýna Qögurra
daga veðurhorfur á
hverjum stað. Línan sýnir
hitastig, súluritið 12 tíma
úrkomu en vindáttir og
vindstig eru tilgreind fyr-
ir neðan.
Norðaustan kaldi á Vestfjörðum en
annars fremur hæg suðaustlæg átt.
Um landið sunnan og vestanvert
verða skúrir en skýjað með köflum
norðaustan til. Undir kvöld fer að
rigna með vaxandi austanátt á
Suðausturlandi. Hiti verður á
bilinu 3 til 10 stig, hlýjast um
landið austanvert. Búist er við
hlýju veðri fram á föstudag en á
laugardaginn verða sennilega él og
vægt frost á Norðurlandi.
KÖRFUKNATTLEIKUR
Herbert i atvinnumennsku
IR-ingurinn Herbert Arnarson er hættur að
leika með liði sínu og er á leið í atvinnu-
mennsku til Hollands. Þar mun hann leika
með fyrstudeildarliðinu Donar. Herbert tjáði Degi
- Tímanum að Donar liðið væri gott lið og stefnan
væri sett á íjögurraliðaúrslitin í hollensku deild-
inni í vor. Um ástæður þess að hann færi nú sagði
Herbert að margir af lykilmönnum liðsins væru
meiddir og forráðamenn félagsins því farið á
stúfana að leita að nýjum leikmönnum. Þeir
hefðu haft samband við sig í gegnum umboðs-
mann Guðmundar Bragasonar og Teits Örlygs-
sonar.
Herbert sem verið hefur einn af burðarstólp-
um ÍR og landsliðsins frá því hann kom til lands-
ins frá Bandaríkjunum fylgir því í fótspor fyrr-
nefndra félaga sinna úr landsliðinu, þeirra Guð-
mundar og Teits og verður þriðji íslenski atvinnu-
maðurinn í Evrópu í vetur. Segja má að nú séu ís-
lenskir körfuboltamenn loksins komnir á kort at-
vinnumennskunnar aftur síðan Pétur Guðmunds-
son lék með LA Lakers í NBA deildinni forðum.
gþö.
Herbert Arnarson í baráttu við
Þórsarann Fred Williams
Mynd: gb
KNATTSPYRNA
Heimir
tHÚ?
Svo gæti farið að Heimir
Guðjónsson Ieiki ekki með
KR á næsta keppnistíma-
bili. Hann er eini leiionaður fé-
lagsins sem ekki hefur undirrit-
að samning um áframhaldandi
veru í vesturbænum.
Samkvæmt áreiðanlegum
heimildum hafa Skagamenn
sett sig í samband við KR- ing-
inn og reynt að fá hann til að
ganga til liðs við ÍA. Heimir er
tvímælalaust einhver besti leik-
maður landsins í dag og því er
það hverju liði styrkur að fá
hann í sínar raðir. Að sama
skapi er það mikil blóðtaka fyr-
ir KR að missa Heimi úr her-
búðum sínum og fljótt á litið
eru það ekki margir leikmenn
hérlendis sem gætu fyllt það
skarð sem Heimir skildi eftir,
yfirgæfi hann vesturbæjarveld-
ið.
Ekki náðist í Heimi til að
bera þessa frétt undir hann,
þar sem hann er staddur er-
lendis. gþö
GOLF • Alþjóðlegt mót
ðm Ævar sigraði
Orn Ævar Hjartarson, kylf-
ingur úr Golfklúbbi Suð-
urnesja, gerði sér lítið
fyrir og sigraði á sterku alþjóð-
legu unglingamóti sem haldið
var í Frakklandi og lauk á
föstudaginn. Örn Ævar spilaði
hringina fjóra á 284 höggum,
en franskur spilari í öðru sæti
með 287 högg. Örn Ævar lék
hringina á 72, 69, 74 og 69
höggum, en mótið var leikið á
tveimur völlum. Kylfingar fengu
ágætis veður síðari tvo keppnis-
dagana, eftir úrhellisrigningu
fyrstu dagana.
Þrír aðrir íslendingar tóku
þátt í mótinu. Birgir Haraldsson
úr GA hafnaði í 12.-13. sæti af
49 keppendum á 305 höggum,
Þorkell Snorri Sigurðsson úr GR
lék á 310 höggum og Pétur Sig-
urðsson úr GR á 330 höggum.
Skagamenn
genguút
íslands- og bikarmeistarar
ÍA yfirgáfu salinn á lokahófi
1. deildarleikmanna í knatt-
spyrnu sem haldið var á
Ilótel íslandi sl. föstudags-
kvöld. Radíusbræður
skemmtu í hófinu og beindu
skotum sínum að Skaga-
mönnum, sem þótti nóg um
og yfirgáfu salinn. Eggert
Magnússon, formaður KSÍ,
bað Skagamenn afsökunar á
skemmtiatriðunum og fékk
Skagamenn til að koma aft-
ur í salinn.
Koumeev
enn meiddur
Rússneski leikmaðurinn Al-
exander Kourtneev, sem
leikið hefur með KA-liðinu í
blaki, mun að öllum líkind-
um ekki leika með liðinu
fyrr en eftir áramótin.
Kourtneev hefur átt við þrá-
lát meiðsl í hné að stríða og
fyrr í þessum mánuði gekkst
hann undir minni háttar að-
gerð á sjúkrahúsi, þar sem
fjarlægt var brjósk úr lið-
þófa.
Elsbestur
/ holukeppni
Ernie Els frá Suður Afríku
tryggði sér þriðja heims-
meistaratitilinn í holukeppni
í röð á sunnudaginn þegar
hann lagði Vijay Singh frá
Fiji að velli í úrslitum. Mótið
var samkvæmt venju haldið
á Wenthworth vellinum í
Englandi. Els er fyrsti kylf-
ingurinn til að sigra á mót-
inu þrjú ár í röð, en Spán-
verjinn Seve Ballesteros
sigraði á mótinu fjórum
sinnum á fimm ára tímabili.
HANDBOLTI • Dregiö í Evrópumótunum í dag
Þrjú ísiensk íið i pottinum
Dregið verður í 2. umferð
á Evrópumótunum í
handknattleik um hádeg-
isbilið í dag, en þrjú xslensk lið
eru í pottinum, en sextán lið
eru eftir í pottinum í mótunum
Qórum.
Stjarnan mátti þola eins
marks tap gegn Hirschmann frá
Hollandi f síðari leik liðanna í
EHF-keppmnni, sem háður var
ytra á laugardaginn. Stjarnan
náði um tíma sex marka for-
skoti í leiknum, en átti í miklum
vandræðum í sóknarleiknum á
lokakaflanum og mátti síðan
þola tap 17:16. Stjörnumenn
unnu með fjögurra marka mun
í fyrri leiknum.
Haukar mættu Martve frá
Georgíu í Borgakeppninni í
tveimur leikjum í Hafnarfirði og
reyndist þar um ójafna leiki að
ræða, Haukarnir unnu fyrri
leikinn með tuttugu marka
mun, 36:16 og þanh síðari
35:20.
Valsmenn mættu andstæð-
ingum sínum, Donetsk frá
Úkraníu í tveimur leikjum í
Þýskalandi um helgina og
máttu þola tap í báðum leikjun-
um, 19:20 og 16:29.
Þriðja íslenska liðið áfram er
KA, sem sló svissneska liðið
Amiticia út í Evrópukeppni bik-
arhafa.