Dagur - Tíminn - 25.10.1996, Side 1

Dagur - Tíminn - 25.10.1996, Side 1
Rjúpnaskytturnar Geysilegur kostnaður Starfsmenn Pósts og síma fundu bíl rjúpna- skyttnanna með þvf að mlða út GSM-sfma sem var f bifreiðinni. Rjúpnaskytturnar, sem sakn- að var síðan í fyrrakvöld, komu fram á bóndabæ við gamla Sel- vogsveginn á 4. tímanum í gær. Þeir voru líkamlega vel á sig komnir og þörfnuðust ekki læknisaðstoðar þrátt fyrir að hafa verið í hrakningum í tæp- an sólarhring. Talið er að um 300 manns hafi leitað að skytt- unum og er kostnaður gífurleg- ur að mati hjálparsveitarmanns hjá Landsbjörg. Mennirnir villtust í fyrra- kvöld í mikilli þoku og vissu ekki hvar þeir voru fyrr en þeir sáu vörðu á gömlum slóða sem vísaði þeim leið til byggða. Laust fyrir miðnætti höfðu að- standendur samband við lög- regluna og leituðu menn á um 15 björgunarsveitarbflum í fyrrinótt. í gær var leitarsvæðið stækkað auk þess sem notast var við þyrlu Landhelgisgæsl- unnar. Um hádegið tókst svo Pósti og síma að miða út bfl rjúpnaskyttnanna út frá GSM- síma sem var í bifreiðinni og er það í fyrsta skipti sem þessi tækni er notuð hérlendis svo vitað sé. „Þetta er mjög athygl- isvert. Með því að hringja í sún- ann og nota síðan sérstaka tækni var hægt að miða út jepp- ann með eins kflómetra ná- kvæmni," segir Ingimundur Guðmundsson hjá Landsbjörg. Nokkrum tímum síðar komu svo mennirnir til byggða. Ingimundur sagði að það yrði fundur eftir helgi og fram að því væri ekki hægt að segja fyrir um kostnað eða umfang leitarinnar með nákvæmni. „Það er alveg ljóst að kostnað- urinn er geysilegur en annars er aldrei hugsað út í það,“ sagði Ingimundur. Sjá einnig bls 3. BÞ Heimtir úr helju Bræðurnir Arnþór t.v. og Guðlaug- ur Pálssynir voru þreyttir en sælir í gær þegar þeir komust til byggða, en þeirra hafði verið leitað í um 16 klukkustundir eftir að þeir viiltust á rjúpnaveiðum á Bláfjallasvæðinu. A innfelldu myndinni er bifreiðin sem bræðurnir notuðu til fararinn- ar en Póstur og sími miðaði út bíl- inn með því að hringja í GSM-síma sem var í bílnum. BÞ/Myndir BG og S Reykjavík Börnín voru bundin Innanlandsflug 800 m.kr. flugstöð við Nauthólsvík s gær var samþykkt í samgönguráðuneytinu að stefna að byggingu nýrrar flugstöðvar við Nauthólsvík, sem þjóna myndi öllu flugi til og frá Reykjavík. Kostnaðar- áætlun gerir ráð fyrir að hún muni kosta um 800 milljónir króna. Staðsetningin er sam- kvæmt skipulagi Reykjavíkur- borgar og er stefnt að því að ekki verði byrjað á fram- kvæmdinni síðar en endurbæt- ur heíjast við Reykjavíkurflug- völl, væntanlega öðru hvoru megin við aldamótaárið. Jón Birgir Jónsson, ráðu- neytisstjóri í samgönguráðu- neytinu, segir að í umræðunni sé að stofna fyrirtæki svipað og gert var í kringum Hvalfjarðar- göngin. Fjárfestar nytu síðan tekna af starfseminni. BÞ Foreldrar kæra dag- mömmu til Dagvistar barna í Reykjavík. Dagmamma í Smáíbúða- hverfi í Reykjavík var í gær kærð til Dagvistar barna fyrir vanrækslu í starfi. Konan er sökuð um að hafa bundið börnin niður langtímum saman og látið hjá líða að sinna þeim eins og lög og reglur gera ráð fyrir. Hjónin sem kæra segja að óeðlileg deyfð hafi ríkt hjá börnunum Qórum sem kon- an átti að sinna, einkum þegar ekki viðraði til útivistar. „Konan mín fór óvænt um miðjan dag til dagmömmunnar einn daginn. Hún hringdi dyra- bjöllunni og gekk síðan beint inn og hitti dagmömmuna sem kom á móti henni og spurði með nokkrum þjósti hvað hún vildi. Konan mín sagðist vera að sækja drenginn okkar. Þá sagð- ist dagmamman ekki hleypa henni inn, stóð í dyrunum að eldhúsinu og rétti út hendurnar þannig að konan kæmist ekki inn í eldhúsið. Konan mín varð reið og ýtti henni frá og spurði hvað þetta ætti að þýða. Þá kemur hún að börnunum fjór- um - öll voru þau bundin niður, tvö x kerrum og tvö í stólum," sagði faðir 2 ára drengs sem var í vistun hjá dagmóðurinni. Þarna upphófst rifrildi. Dag- mamman sagði að hún væri að fara að gefa börnunum að borða. Faðirinn segir að það hafi reyndar ekki passað, enda klukkan orðin hálfþrjú, börnin nývöknuð, enginn matur sýni- legur, ekkert drykkjarhæft og engin leikföng. „Börnin þarna voru alltaf af- skaplega dauf, við tókum eftir því hjá syni okkar að hann tók ekki almennilega við sér fyrr en eftir svona hálftíma eftir að við komxim heim, hann er kraft- mikill strákur og mikill leikur í honum,“ sagði faðirinn. Það tók hálftíma þras að ná barninu út frá dagmömmunni, sem sagðist vera góð við börnin og krafðist skýringa á því hvers vegna móðirin vildi taka barnið úr dagvistinni. Önnur dagvist fékkst, og segir faðirinn að allt yfirbragð drengsins hafi breyst um leið, hann farinn að leika sér og allur hinn hressasti. Hjónin höfðu vakið athygli Dagvistar barna á ástandinu í þrígang en ekkert var aðhafst af þeirra hálfu. Þau höfðu áður orðið vör við að börrnn voru bundin niður inni á heimflinu og telja að það hafi verið gert langtím- um saman. Einu siimi komu þau að barninu sínu bundnu niður í kerru úti við dyr. Steininn tók síðan úr þegar móðirin sá drenginn bund- inn niður í eldhúsinu, eftir að dagmamman hafði lofað að láta af slíku. Dagmóðirin sem um er rætt hefur starfað í 20 ár. Dagmæð- ur Reykjavíkur eru um 220 talsins og starfa samkvæmt ströngum kröfum Dagvistar barna og undir eftirliti Dagvist- arinnar. Sjá einnig bls.3. -JBP Það tók hálftíma þras að ná barninu út frá dag- mömmunni, sem sagðist vera góð við börnin. Lífið í landinu Uppskríft að góðu hjóna- bandi Bls. 6 Biskups- stofa á berangrí

x

Dagur - Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur - Tíminn
https://timarit.is/publication/254

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.