Dagur - Tíminn - 16.11.1996, Blaðsíða 8
Laugardagur 16. nóvember 1996 - VIII
MINNINGARGREINAR
Jonas Sigurgeirsson
Jónas Sigurgeirsson var
fæddur að Helluvaði í Mý-
vatnssveit hinn 4. desem-
ber 1901. Hann lést á Sjúkra-
húsi Húsavíkur hinn 18. þessa
mánaðar. Foreldrar hans
voru: Sigurgeir Jónsson,
bóndi, Helluvaði, fæddur 21.
aprfl 1876, dáinn 2. mars
1951, og Sólveig Sigurðardótt-
ir, fædd 30. mars 1871, dáin 8.
desember 1964. Jónas kvænt-
ist 20. júh' 1929 Hólmfríði ís-
feldsdóttur frá Kálfaströnd í
Mývatnssveit sem fædd var 16.
júlí 1907, dáin 22. ágúst 1996.
Þau hjón bjuggu allan sinn bú-
skap á Helluvaði og þar var
heimili þeirra til dauðadags.
Börn þeirra eru: 1) Þórhild-
ur Arnfríður, fædd 1. júní
1930. Maður hennar: Guð-
mundur Kristinn Gunnarsson,
fæddur 30 ágúst 1930 og eru
þau búsett á Akureyri. Dætur
þeirra: Kristín Hólmfríður,
fædd 21. september 1954 og
Elín Gunnhildur, fædd 21. nóv-
ember 1959. 2) Elín Inga,
fædd 29. október 1934. Maður
hennar Jón Aðalsteinn Jóns-
son, fæddur 9. janúar 1925 og
er heimili þeirra að Laugum í
Suður-Þingejjarsýslu. Synir
þeirra: Hinrik Már, fæddur 29.
nóvember 1967 og Friðrik Þór,
fæddur 4. nóvember 1972.
Dóttir Elínar Ingu með Reyni
Jónassyni: Bryndís Arna
Reynisdóttir, fædd 19 septem-
ber 1961.
3) Sólveig Guðrún, fædd 2.
júní 1938. Maður hennar: Þor-
kell Pétursson, fæddur 17. maí
1936, dáinn 20. maí 1996.
Heimili þeirra hefur verið á
Húsavík í rúma tvo áratugi.
Börn þeirra: Hólmfríður, fædd
1. júh' 1958, Regína, fædd 16.
september 1959 og Jónas,
fæddur 28. október 1961. 4)
Sigurgeir Jónasson, fæddur
22. október 1946, heima á
Helluvaði. 5) Ingólfur ísfeld,
fæddur 3. aprfl 1948. Eigin-
kona hans Anna Dóra Snæ-
björnsdóttir, fædd 3. október
1952 og búa þau á Helluvaði.
Börn þeirra. Brynja, fædd 3.
maí 1970, Snæbjörn Ingi,
fæddur 7. apríl 1974, Halldór,
fæddur 17. júlí 1978, Sólveig,
fædd 28. janúar 1985 og
Jónas Þór, fæddur 9. júní 1987.
Útför hans verður gerð í dag,
26. október, kl 14 frá Skútu-
staðakirkju.
Hverjum manni, sem lifir langa
ævi og býr til hinsta dags á ætt-
arleifð sinni og fæðingarstað,
hlýtur að vera það mikill ham-
ingjuauki að lifa í sátt við sam-
ferðamenn sína og umhveríl.
Þegar ég vil minnast tengdaföð-
ur míns með nokkrum orðum
og lít yfir æviferil hans, finnst
mér þetta vera eitt af því sem
honum hlotnaðist flestum
mönnum fremur. Eins og fram
kemur hér að ofan var hann
fæddur Mývetningur og forfeð-
ur hans og mæður í næstu ætt-
liði ólu þar einnig aldur sinn.
Hlutskipti hans varð einnig að
að eyða ævi sinni í Mývatns-
sveit, búa þar búi sínu og taka
jafnframt virkan þátt í fjöl-
breyttu félags- og menningarlífi
sem í meira en heila öld hefur
verið aðalsmerki sveitarinnar.
Hann varð þriðji ættliðurinn
sem sat jörðina Helluvað, á
undan honum faðir hans Sigur-
geir, en hann tók við af sínum
föður, Jóni Hinrikssyni, skáldi.
og nafnkunnum manni. Ilann
kom á barnsaldri í Mývatns-
sveit, byggði upp nýbýli, Stöng,
á heiðinni vestan sveitarinnar
þar sem enn er búið góðu búi,
var þríkvæntur en missti tvær
fyrri konur sínar. Á miðjum
aldri gafst honum kostur á að
búa að Hólum í Eyjafirði en
undi ekki þrengslum Eyjafjarð-
ardalsins, kaus heldur víðáttur
Mývatnssveitar og heiðanna og
öræfanna umhverfis hana. Þá
flutti hann að Helluvaði 1878
og átti þar heima til dánardæg-
urs 1921. Afkomendur hans
mynda stóran ættboga og eru
þar á meðal þjóðkunnir ein-
staklingar. Sem dæmi þar um
má nefna þá bræður Jónas og
Jón Múla Árnasyni, Helgu Jóns-
dóttur, stjórnarformann Lands-
virkjunar og Jón Stefánsson,
organista Langholtssafnaðar.
Mörgum þessara ættmenna er
gefinn áhugi á söng og tónlist
og hæfileikar á því sviði auk
þess er fólk þar margt vel
íþróttum búið.
Þótt Helluvað sé í alfaraleið
með hringveginn við túnfótinn,
er jörðin í raun heiðarbýli þar
sem land hennar liggur allt á
Mývatnsheiði. Segja má að lýs-
ing hennar komi fram í stuttu
máli í þessum orðum úr Jarða-
bók Árna og Páls: “Engjar
öngvar, nema nokkuð litlar í
sömu hólmum í Laxá, sem hún
spillir með landbroti og sands-
áburði. Úthagarnir góðir og
miklir.” Áður en ræktun á nú-
tímavísu kom til sögunnar var
heyskapur torsóttur og sein-
tekinn. í vorharðindum varð
því oft tvísýn barátta að bjarga
bústofni heimilisins. í tímarit-
inu “Heima er best,” júmhefti
1987, er viðtal við Jónas þar
sem hann lýsir því greinargóð-
an hátt hvernig slflct gekk til á
nafntoguðu harðindavori 1916.
í síðasta samtalinu sem við
hjónin áttum við hann á sjúkra-
húsinu, nokkrum dögum fyrir
andlát hans, lýsti hann því
glögglega hvernig hann, dreng-
urinn 9 ára að aldri, lagði föð-
ur sínum lið við samskonar að-
stæður á hörðu vori 1910. Mér
finnst atvikið glöggt dæmi þess
hversu hann hélt skírri hugsun
og traustu minni til hins síðasta
og um þá lífsbaráttu sem hann
ólst upp við. í áðurnefndu tíma-
ritsviðtali kemur fram að þeir
erfiðleikar sem lýst hefur verið
hafi orðið honum hvatning til
að búa sig undir að rækta tún
og tryggja heyöflun með því að
fara til náms á Bændaskólanum
á Hvanneyri. Þar var hann tvo
vetur, 1920 - 1921 og 1921 -
1922. Samgöngur voru þá með
þeim hætti að haustið 1920 fór
hann gangandi frá Akureyri til
Hvanneyrar og vorið eftir heim
með sama hætti og þeim útúr-
dúr að koma við á Hólum í
Hjaltadal. Skólastjóri var þá
Halldór Vilhjálmsson og hann
minntist hans sem mikilhæfs
stjórnanda er var fullur áhuga
að nemendur hefðu sem mest
út úr skólavist sinni. Sagt er að
á námstíma Jónasar að Hvann-
eyri hafi danskur maður komið
þar að leikfimikennslu. Honum
hafi þótt hæfileikar Jónasar á
því sviði svo ótvíræðir að hann
bóndi, Helluvaði
hafi stungið upp á því að hann
færi til Danmerkur í nám sem
íþróttakennari. Ekki varð af
því, Jónas fylgdi eftir þeirri fyr-
irætlan að búa sig undir bónda-
starf í heimasveit sinni. Þar
tóku við ýmis verkefni sem auð-
veldara var sinna fyrir þann
sem óbundinn var af búi og
börnum. Má þar til nefna fjár-
geymslu á Austurfjöllum.
Þangað tíðkaðist að reka geldfé
að vorlagi, jafnvel um mánað-
armót mars-apríl, til að létta á
fóðrum heima fyrir og losa hús-
pláss til nota á sauðburði. Féð
nýtti sér nýgræðing sem kom
snemma upp í mellöndum eða
uppgrónum hraunum. Nauð-
synlegt var talið að gæslumenn
fylgdu hjörðunum því hætta var
á að kindur færust í krapablám
og hópnum varð að halda til
haga á ákveðnum svæðum.
Annað verkefni voru eftirleitir
síðla hausts um hina víðáttu-
miklu afrétti Mývetninga, eink-
um Austurfjöll. Jónas valdist til
þeirra starfa sem ungur maður,
léttfær til gangs og þá þegar
kunnugur leitarsvæðunum þar
sem hann fór í sínar fyrstu
göngin sem drengur innan við
fermingu. Útbúnaður þessara
manna, sem lögðu að baki leið-
ir er mældust jafnvel í hund-
ruðum kílómetra, mundi nú
þykja harla frumstæður og að-
stæður aðrar sem þeim voru
búnar. Þannig áttu Jónas og fé-
lagi hans sér eitt sinn náttstað í
Eyvindarkofa í Herðubreiðar-
lindum. Ferðamenn, sem nú
skoða hreysið og heyra um
þetta tilvik, trúa því vart að
tveir fullvaxnir menn hafi getað
komið sér þar fyrir.
Enn skaf nefnt að Jónas
stundaði plægingar í sveitinni,
ferðaðist milli bæja með hesta
og plóg og braut land fyrir
bændur. Slíkt var algengur
háttur á að þoka áleiðis ræktun
túna áður en vélvæðing seinni
tíma kom til sögunnar.
Hinn 20. júlí 1929 gekk hann
að eiga Hólmfríði ísfeldsdóttur
sem var elst fjögurra barna
hjónanna ísfelds Einarssonar,
bónda á Kálfaströnd í Mývatns-
sveit og Elínar Helgu Halldórs-
dóttur, konu hans. Útlit var fyr-
ir að ungu hjónin mundu leita
sér búsetu utan sveitarinnar en
Sigurgeir, faðir Jónasar, gekkst
fyrir því að þau fengu hluta
Helluvaðs til ábúðar. Þar varð
síðan heimili þeirra til æviloka
og stóð það eins og hjónaband
þeirra í 67 ár. 1930 var ráðist í
tvær stórar framkvæmdir, byggt
steinsteypt íbúðarhús og heim-
ilisrafstöð við ána sem streymir
í túnfætinum. Að því stóðu auk
ungu hjónanna, systkini Jónas-
ar og foreldrar hans. Húsið
sem enn stendur, orðið gamalt
og lúið, þætti enn í dag rúm-
gott fyrir eina fjölskyldu. Ekki
var þó svo að þau hjónin og
börn þeirra væru einu íbúarn-
ir. Þar var einnig um áratuga-
skeið heimili Sigríðar, systur
Jónasar, og Gísla Árnasonar,
eiginmanns hennar og fjögurra
barna þeirra. Þau Gísli og Sig-
ríður eru nú bæði látin en voru
á sínum hluta jarðarinnar til
æviloka sambýlisfólk Jónasar
og Hólmfríðar. Gömlu hjónin,
Sigurgeir og Sólveig áttu þar
samastað uns yfir lauk og með
þeim hélt heimili Guðrún, elsta
dóttir þeirra. Þriðja systirin,
Anna, og eiginmaður hennar,
Þórður Friðbjarnarson húsa-
smiður, áttu þar einnig heimili
í nokkur ár um og fyrir 1940.
Enn skal nefnt að Árni, sonur
Gísla og Sigríðar, og eiginkona
hans, ída Þorgeirsdóttir, bjuggu
þar árin 1950 - 1954. Þröng-
býli þætti þetta nú á dögum en
hefur án efa stuðlað að sterkum
fjölskyldutengslum og sam-
kennd sem áberandi er meðal
afkomenda þeirra Jónasar og
Hólmfríðar.
Helluvað mun aldrei hafa
talist til góðbýla í Mývatnssveit
og meðan ræktun og véltækni
nútímans var ekki komin til
sögunnar útheimti það ómælt
erfiði að sjá þar tveimur eða
þremur fjölskyldum farborða.
Sérstaklega var heyskapur
tímafrekur og erfiður þar sem
sækja varð á dreifða sfægju-
bletti víðsvegar um heiðina í
landi jarðarinnar. í samræmi
við það sem segir hér fyrr í
sambandi við skólavist Jónasar
á Hvanneyri sá hann mætavel
þá möguleika er ný véltækni
færði bændum landsins við
styrjaldarlok. Þegar árið 1946
keypti hann heimilisdráttarvél,
fvrstur bænda í Mývatnssveit.
Á sama tíma tóku bændur þar í
sveit og Reykjadal höndum
saman á Ræktunarsambandinu
Smára. í slóð jarðvinnslutækja
þess breiddust ný tún bænda út
yfir mýrar og móa á næstu
árum. Átti það ekki hvað síst
við á Helluvaði enda ræktunar-
skilyrði góð í þurru mólendi
heiðarinnar. Árangurinn varð
sá að í áðurnefndu tímaritsvið-
tali tekur Jónas svo til orða að
hið eina sem hann geti montað
sig af sé að verða fyrstur bænda
í Mývatnssveit til að taka allan
heyskap af ræktuðu landi. Hvað
heyöflun varðar lá hans hlutur
heldur ekki eftir að hagnýta
þær tækninýjungar sem fram
komu. Nú á síðustu árum þegar
kúabú er fyrir löngu aflagt og
kvóti hefur skert fjárstofn má
segja að við hagstæð skilyrði
taki heyskapur ekki mikið fleiri
daga en mánuði áður með
gömlu lagi.
Annar þáttur búskaparins
sem færði þeim hjónum stundir
erfiðis og andvöku var umönn-
un lambfjár á sauðburði. Kom
þar til bæði hin þingeyska hefð
að láta fé bera á húsi og fylgjast
með því dag og nótt og að auki
sú staðreynd að Sigurgeir, faðir
Jónasar var einn kunnasti ljár-
ræktarmaður landsins. Hafði
hann frá ungum aldri stundað
kynbætur á fjárstofni sínum og
Jónas hélt því starfi ótrauður
áfram. Slíkur kynbættur íjár-
stofn er vafalítið viðkvæmari
fyrir því ef eitthvað fer úrskeið-
is við burð ánna og grundvöllur
kynbótastarfs er að skrásett séu
foreldri hvers einstaklings í
hjörðinni. Hlutur Hólmfríðar í
þessu efni var ekki öllu minni
því að sérgrein hennar var að
liðsinna þeim ám sem áttu í
erfiðleikum með burð. Fyrir
slíkan íjárræktarmann sem
Jónas var það áreiðanlega erf-
ið lífsreynsla þegar hann, kom-
inn yfir áttrætt, varð að sæta
niðurskurði á bústofninum
vegna riðuveiki. Því áfalli tók
hann með þeirri karlmennsku
og rósemi sem honum var lag-
in.
Jónas sóttist ekki eftir veg-
tyllum eða trúnaðarstörfum en
engu að síður komu nokkur í
hans hlut. í samræmi við það
sem áður segir, kom nær af
sjálfu sér að hann var um ára-
tuga skeið formaður Fjárrækt-
arfélags Mývatnssveitar. Rót-
gróinn áhugi margra mý-
vetnskra bænda á þessu sviði sá
til þess að starfi því fylgdu
nokkur umsvif. Mest mæddi þó
á honum þegar fram fóru fjár-
skipti í sveitinni allri vegna
mæðiveiki 1945. Þá voru ekki
allir bændur sáttir við að sjá á
eftir bústofni súium á blóðvöll-
inn.
Sigurgeir, faðir hans, var um
langan aldur formaður sóknar-
nefndar Skútustaðakirkju og
kom nær af sjálfu sér að emb-
ættið gekk í arf til sonarins.
Fyrr en það varð hafði hann
tekið við reikningshaldi kirkj-
unnar og sinnti hann hvoru
tveggja fram á elhár. Fyrst rætt
er um Skútustaðakirkju verður
að geta þátttöku hans í
kirkjukór hennar. Þar söng
hann í 70 ár, seinast þá jólum
1987 við skírn sonarsonar og
nafna.
Enn er ótalið það sem senni-
lega var umsvifamest af slíkum
aukastörfum hans, að annast
rekstur Sparisjóðs Mývetninga í
35 ár. Sjóðurinn var stofnaður
1945 og þótt annar maður
muni hafa átt hugmyndina að
því var Jónasi þegar í upphafi
falin stjórn hans, umsjón með
útlánum og reikningshald. Af-
greiðsla var á heimili þeirra
hjóna og kom þá af sjálfu sér að
margir áttu erindi í Helluvað.
Ekki var það helst á þeim tíma
dags sem nú er afgreiðslutími
peningastofnana heldur um
kvöld og helgar. Sérstaklega er
börnum þeirra hjóna það minn-
isstætt hve gamlaársdagur gat
verið ónæðissamur því að
margir þurftu að ganga frá sín-
um málum um áramót. Bættist
ös sú ofan á annríki bóndans í
fjárhúsum vegna yfirstandandi
fengitíðar. Húsmóðirin fór ekki
heldur varhluta af hinni dag-
legu gestakomu því að sjálfsagt
þótti að bjóða sérhverjum góð-
gerðir og setjast niður með
þeim sem þiggja vildu.
Einn þáttur í fari Jónasar
sem skylt er að minnast var
hjálpsemi hans við þá sveitunga
sína sem af einhverjum ástæð-
um áttu í erfiðleikum með hey-
skap. Efalaust hefur hann átt
auðvelt með að setja sig í spor
þeirra er horfðu fram á vetur
með skertan lieyfeng og að öðr-