Dagur - Tíminn - 14.12.1996, Síða 5
Hagur-mmtmn
Laugardagur 14. desember 1996 -17
Áheyrileg meðferð
Kristins Sigmunds-
sonar á tónlist
Schubert’s
Kristinn Sigmundsson bassbar-
ítón og Jónas Ingimundarson
píanóleikari gleðja fyrir kom-
andi jól unnendur tónlistar eftir
Franz Schubert með útgáfu á
geisladiski á „Vetrarferðinni"
með tónlist Schubert’s við ljóða-
flokk eftir Wilhelm Miiller.
Lagaflokkurinn íjallar um ung-
an mann sem hefur verið svik-
inn í tryggðum og er í flakandi
Móðurhlut-
verkið
Bókaútgáfan Setberg hefur gef-
ið út bókina Nú er ég orðin
mamma. Hún fjallar um líkama
og sál konunnar eftir fæðingu
barns. Útgáfu hennar annaðist
Guðrún Björg Sigurðardóttir
yflrljósmóðir á kvennadeild
Landspítalans.
Hér er að finna ýmis góð ráð
sem varða fyrstu dagana, vik-
urnar og mánuðina eftir fæð-
ingu barns, - hkama og sál kon-
unnar: um fyrstu mjólkurgjöf-
ina, svefn og svefnleysi, eðlilega
þyngd, kynlíf eftir fæðingu
barns, fylgikvilla, geðrænar
sveiflur, um mat og drykk og
hreyfingu og hvernig þú kemst
aftur í fyrra form.
Verðið er 2.750 krónur.
Leit og
fundarlaun
Fyrsta skáldsaga Péturs Guð-
jónssonar er að koma í bóka-
búðir, en gert er ráð fyrir að
hún verði gefin út snemma
næsta árs á 3 öðrum tungumál-
um: Á ensku (en bókin er skrif-
uð á því máli), spænsku og
frönsku. Heiti bókarinnar á ís-
lensku er Leitað að guði ...
einskonar skáldsaga.
Söguhetja bókarinnar er fer-
tugur New Yorkbúi sem „á allt
en á samt ekkert. Því ákveður
hann að leita tilgangs í tilveru
sinni. Leit hans að einhverri -
festu og fyllingu flytur hann
heimsálfanna á milli þltr sem
hann kynnist helstu trúar:
brögðum heims, lendir í marg-
víslegum ævintýrum og kynnist
mjög sérstökum ferðafélögum. .
Að lokum finnur hann það sem
hann er að leita að og vel það.“
Þessi skáldsaga er mjög sér-
stök fyrir það að hún gerir les-
andann oft að söguhetjunni
sjálfri, þannig að hann upplifir
það sem söguhetja bókarinnar
verður fyrir. M.ö.o., leitandi les-
andi gæti jafnvel sjálfur fundið
það sem hann sjálfur er að leita
að. Því hafa sumir sagt að
menn verði ekki þeir sömu eftir
lestur bókarinnar.
Bókin er þýdd af Eyvindi Er-
lendssyni. Eyvindur hefur áður
þýtt bók eftir Pétur, Að lifa er
list, sem kom út árið 1991.
MENNING O G LISTIR
Vetrarferðin
sárum. Ef dýpra er skyggnst er
þetta saga þess sem tilveran í
sinni hefðbundnu mynd hefur
brugðist og knúið út í óvissuna.
Kristinn Sigmundsson er
vaxandi bassbarftón, er ekki
lengur bara góður heldur hrein
unun að hlusta á hann, þar er
sannur listamaður á ferð. Krist-
inn er líka skemmtilegt mót-
vægi við alla þá góðu íslensku
tenórsöngvara, sem hafa verið
ófeimnir við að láta rödd sína
hljóma undanfarin misseri. Eitt
þekktasta ljóðið á geisladiskin-
um er Linditréð, „Der Linden-
baum“, og er meðferð Kristins
slík að það hríslast hrifningar-
hrollur niður eftir bakinu. Lög
eins og Morgunstormur, „Der
sturmische Morgen" og Kjarkur
„Mut“ eru mjög kreíjandi fyrir
þessa rödd en það leysir söngv-
arinn með „elegans" fagmanns-
ins.
Geisladiskinum fylgir vand-
aður bæklingur með kynningu á
flytjendum og ljóðaflokknum,
auk þess sem allur flokkurinn
er birtur á þýsku og í íslenskri
þýðingu Þorsteins Gylfasonar.
Útgefandi er Mál & menning.
GeirA. Guðsteinsson.
FRAMSOKNARFLOKKURINN
1916-1996
Framsóknarflokkurinn þakkar landsmönnum
farsælt samstarf í 80 ár og væntir þess að
leiðir liggi saman til framtíðar.
Gleðilega hátíð
Framsóknarflokkurinn