Dagur - Tíminn - 14.12.1996, Side 16
28 - Laugardagur 14. desember 1996
Jbgur-Œrarám
Kommglegur jólaimdirbúningur
Díana þykir mjög samviskusöm við jólagjafakaup.
BÚBBA segir ykkur nú frá
jólaundirbúningi bresku
konungsfjölskyldunnar.
Þar sem jólainnkaupin ná
bráðum hámarki þá ætla
ég nú að segja ykkur frá
jólaundirbúningi konunglegra í
Bretlandi.
Meðlimir konungsfjölskyld-
unnar líta á það verkefni sem
eins konar hernaðaraðgerð
sem þeir sinna allt árið um
kring. Auk ættingja og vina þarf
að kaupa gjafir handa starfs-
mönnunum og þeir eru ekki fá-
ir.
Búðin heim
í höll
Elísabet drottn-
ing gefur u.þ.b.
50 nánum ætt-
ingjum jólagjöf,
yfir eitt þúsund
starfsmönnum,
auk vina og (jar-
skyldra ættingja.
Drottningin fer
ekki í búðir til
að versla, búð-
irnar koma til
hennar. Hinum
ijölbreyttasta varningi, með
verðmiðum, er þá komið fyrir á
sérstökum borðum í „Hvítu
stássstofunni" í Buckingham-
höll. Drottningin tekur nokkur
kvöld í það að velja í rólegheit-
um það sem hentar hverjum og
einum. Rétt er að geta þess að
Elísabet, sem talin er ríkasta
kona veraldar, stillir jólagjöfum
sínum mjög í hóf. Dæmi: Hún
gefur ættingjum sínum hita-
brúsa, garðyrkjuhanska og
jafnvel áttavita! Pessi sérviska
stingur mjög í stúf við íburðar-
miklar gjafir konungsíjölskyld-
unnar á síðustu öld. Þá þótti til
dæmis sjálfsagt að gefa Fa-
bergé skartgripi.
Sérviskuleg
samhaldssemi
Að fara í búðir og versla meðal
almennings er ekki heldur auð-
velt fyr-
ir aðra meðlimi konungsfjöl-
skyldunnar. Bæklingar frá stór-
verslununum koma því að
miklu gagni og einkaritarar
panta símleiðis það sem verður
fyrir valinu. Díana prinsessa
vill helst kaupa gjafirnar sjálf
og hefur yfirleitt lokið því verk-
efni í október.
Þessa sérviskulegu sam-
haldssemi drottningarinnar
hafa fleiri meðlimir fjölskyld-
unnar tileinkað sér. Anna prins-
essa er með augun opin allan
ársins hring þegar útsölur eru
annars vegar m.a. á hesta-
mannamótum. Hún hikar ekki
við að gefa ættingjum sínum
sultukrukku eða sinnepskrús í
jólagjöf.
Þessi sérviska kom Díönu
víst mjög á óvart í
upphafi hjú-
skapar hennar
og Karls. Á
fyrstu jólunum
með konungs-
fjölskyldunni
hafði hún vandað
valið á kasmír-
peysum og rán-
dýru postulíni og
kom þetta öðrum
meðlimum í opna
skjöldu.
Drottningarmóðir-
Drottningarmóðirin gefur
Charbonnei & Walker
súkkulaði í neyð þegar
hún finnur enga aðra gjöf
í póstlistunum.
in fer aldrei í búðir að versla.
Hún flettir vörulistum í rúminu,
ef hún finnur ekkert viðeigandi
þá grípur hún til þess ráðs að
gefa dökkt súkkulaði frá Char-
bonnel & Walker, sem er henn-
ar uppáhald.
Drottingin, Karl prins, Díana
og fleiri í fjölskyldunni fá aðstoð
við að pakka inn gjöfunum en
Anna prinsessa pakkar sínum
gjöfum inn sjálf.
Jólakort frá Karli Bretaprinsi árið 1978.
Anna prinsessa er alltaf með augun opin fyrir ódýrum jólagjöf-
um.
dvelur saman í Sandringham-
kastala yfir hátíðarnar og legg-
ur Elísabet mikla áherslu á að
allir mæti.
Mér þykir dálítið merkilegt
að breska konungsfjölskyldan
opnar jólapakkana á aðfanga-
dagskvöld en það er í samræmi
við hefð sem Alexandra drottn-
ing Játvarðar VI. innleiddi frá
heimalandi sínu Danmörku.
Jólagjöfunum er raðað á lang-
borð sem klætt er hvítum dam-
ask dúkum. Hver fjölskyldu-
meðlimur hefur sitt svæði þar
sem hans gjafir eru. Svæðið er
merkt með nafni viðkomandi
og silkiborðar eru notaðir til að
greina á milli svæðanna. Fyrst-
ar koma gjafir drottingar, þá
Filipusar og síðan koll af kolli.
Á jóladag er
morgunverður
stundvíslega klukk-
an m'u. Þar er nú
ekki slappað af á
náttfötunum fram
eftir degi því að allir
verða að vera vel til
hafðir áður en
haldið er til kirkju.
Á meðan konungs-
fjölskyldan er í
kirkju eru kokkarnir
önnum kafnir við að
útbúa reyktan kal-
kún með tilheyrandi
meðlæti. Á jóladag
er flutt ræða drottn-
ingar í sjónvarpi og
ég ætla að leyfa mér
að lokum að vitna í
orð Elísabetar eitt
árið en þá sagði
hún: „Börn okkar og barnabörn
eiga það skilið af okkur að við
sýnum þeim gott fordæmi og
hegðum okkur í samræmi við
það sem við ætlumst til af
þeim.“ Minnumst þessa við
jólaundirbúninginn!
Fyrsti þáttur
undirbúningsins er að velja
mynd í jólakortið. Oft er þetta
mynd sem tekin er við hátíðleg
tækifæri það árið. Stundum er
pöntuð sérstök mynd og er þá
uppstillingin oft frjálslegri.
Lítill kassi er alltaf
með í för
Frá því í lok október fram í
byrjun desember fara meðlimir
konungsfjölskyldunnar allra
sinna ferða með lítinn kassa
fullan af jólakortum sem þarf
að undirrita. Og það er eins
gott að slá ekki slöku við. Karl
bretaprins vill gjarnan setja
stutta persónulega kveðju í sín
kort og er því heldur lengur en
aðrir að ganga frá sínum kort-
um. Þrátt fyrir að jólakortaver-
tíðin sé talsverð fyrirhöfn fyrir
konungsfjölskylduna þá gera
meðlimir hennar þetta með
glöðu geði, vitandi það að
margir fagna því að fá kort
með konunglegu innsigli.
Margrét drottingarsystir er
sú eina í fjölskyldunni sem ekki
sendir jólakort því henni finnst
það einfaldlega tilgangslaust.
Þeir sem koma henni til varnar
í þessu sambandi segja að hún
haldi glæsilegustu jólaboðin og
þá í Kensingtonhöll.
Fjölskylduhátíð í
Sandringham
Jólin eru mikil fjölskylduhátið
hjá Elísabetu drottningu og fjöl-
skyldu hennar. Fjölskyldan
Jólakortavertíðin er
ekkert smámál
En Eh'sabet drottning og Qöl-
skylda hennar þurfa ekki bara
að huga að jólagjöfunum. Til
dæmis sendir drottingin Qölda
jólakorta. Það er litið á það
sem sjálfsagðan hlut að hún
sendi kort til helstu meðlima í
ríkisstjórnum
breska samveldis-
ins, til leiðandi
manna í breska
hernum, yfir-
manna góðgerðar-
stofnana, iðnjöfra,
annarra þjóðhöfð-
ingja og meðlima
annarra konungs-
fjölskyldna. Á jóla-
kortalista þeirra
Elísabetar og Filip-
usar eru nokkur
þúsund nöfn og
það tekur nokkrar
vikur og ítarlega
skipulagningu að
koma öllum kort-
unum í póst á rétt-
um tíma.