Dagur - Tíminn - 28.12.1996, Blaðsíða 2
2 - Laugardagur 28. desember 1996
jBagur-®mmm
Gamlársdagur mengað-
asti dagur ársins
Gamlársdagur skar sig al-
gerlega út í mengunar-
mælingum á köfnunar-
efnisildum í Reykjavík, sam-
kvæmt niðurstöðum í skýrslu
Heilbrigðiseftirlits borgarinnar
um mengunarfar í andrúmslofti
A gamlársdag 1994 fór loftmengun af völdum
köfnunarefnistvíildis 18 sinnum yfir viðmiðun-
armörkin, mest 226%. Ails fór loftmengun
109 sinnum yfir viðmiðunarmörk á árinu.
borgarinnar á árinu 1994.
Þannig að hollusta af flugeldum
og brennum er í öfugu hlutfaUi
við augnayndið.
Mælingar fóru fram á 8 stöð-
um í borginni, samtals í rösk-
lega 8.300 klukkustundir. Loft-
Tryggðu þér skattaafslátt og
greiðslukjör með einu símtali
Einstaklingur sem kaupir hlutabréf
fyiir 130 þúsund krónur getur lækkað skattana um
allt að 44 þúsund krónur.
Upphæðin er tvöföld fyrir hjón eða 260 þúsund
krónur og 88 þúsund krónur.
■KA UPÞING
NORÐURLANDS HF
Kaupvangsstræti 4, 600 Akureyri.
mengun fór alls 109 sinnum yf-
ir viðmiðunarmörk á árinu.
Lang oftast var þar um kolildi
að ræða, eða í 89 skipti yflr
klukkustundar viðmiðunar-
mörk, þá 2 mánuði sem það var
mælt. Fimmtungur þeirra til-
feUa var á gamlársdag sem áð-
ur segir.
Kolildi fór fjórum sinnum yf-
ir 8 klukkust. viðmiðunarmörk
þegar stUlur voru í borginni;
tvisvar í Austurstræti (14. jan.)
og fimm sinnum við gatnamót
Miklubrautar og Kringlumýrar-
brautar (15.—17. nóv.) Á öðrum
tímum mældist b'til mengun af
kolildi.
Ósón fór 4 sinnum btillega
yfir mörkin, í janúar og febrúar
og síðan í tvígang í desember.
Svifrik fór tvisvar á árinu lít-
illega yfir viðmiðunarmörkin, í
annað skiptið í mars og hitt í
nóvember.
Brennisteinstvíildi fór aldrei
hærra en í 58% af viðmiðunar-
mörkunum. Var það í maí og
talið stafa af malbikunarfram-
kvæmdum.
Vegna kvartana íbúa við
Miklubraut um mikla loftmeng-
un frá umferðinni fóru meng-
unarmælingar fram neðarlega
við götuna bæði í febrúar og
síðan aftur í júní og júlí. Mæli-
gildin fóru aldrei yfir viðmiðun-
armörkin og voru m.a.s. tiltölu-
lega fág við gatnamót Mikfu-
brautar og Engihlíðar.
Fátækt og
kvíði
Guðríður Ólafsdóttir, fram-
kvæmdastjóri Félags eldri
borgara, segir að félags-
menn séu mjög kvíðnir yfir
rekstrarstöðu sjúkrahúsa vegna
afgreiðslu fjárlaga. Þar fyrir ut-
an hefur það mikil áhrif á af-
komu þeirra þegar afnumin var
tenging á milli bóta og launa-
hækkana.
„Það kemur sér mjög illa ef
lífeyrir heldur ekki verðgildi
sínu miðað við almennar launa-
breytingar. Það sést bara á fá-
tæktinni í landinu. Lífeyrisþeg-
ar hafa æ ofan í æ orðið fyrir
skerðingu, eða frá árinu 1992,“
segir Guðríður Ólafsdóttir. -grh