Dagur - Tíminn - 28.12.1996, Side 15
Í3agur-®mmm
Laugardagur 28. desember 1996 -15
Anna F.
Gunnarsdóttir
skrifar um tísku
A
Idag er bærinn fullur af falleg-
um sparifatnaði og er mikið
um dýrðir. Kjólarnir eru úr fal-
legu satíni, silki, hrásilki, prjóna-
silki og ílaueli. Þessi efni eru öll
mjög góð og gefa glæsilegt útlit.
Kjólarnir voru einfaldir, stuttir,
síðir og aðskornir. „Prinsessu"-
kjólar eru einnig ríkjandi. Mikið
var um palliettur, glimmer og
glansefni. Hefðbundnir ríkjandi
kokkteillitir eru dökkir og djúpir,
s.s. silfur, gull, vínrautt, svart,
kóngablátt, grænt og fjólublátt.
Kjólarnir eru ermalausir eða með
innsettar ermar. Einnig eru háls-
máhn mjög fjölbreytt.
Þegar kjóll er valinn, þurfum
við að gera okkur grein fyrir
stærðinni okkar, brjóstmáli, fóta-
lögun, handleggjum og hálsi.
Nokkrar leiðbeiningar
um hálsmál og ermainn-
setningar á kjólum
Ef við erum með langan
háls, er best að klæðast flík sem er
með hálsmál sem er upp við háls-
inn. Annars verðum við eins og
gíraffar á hlið. En stuttur háls
kallar á flegið hálsmál. Þessi leng-
ing sem myndast á hálsinn er
mjög nauðsynleg til þess að við
fáum tígulegt útlit. Við svera hand-
leggi þarf að velja síðar eða
kvartermar á kjólinn. Ef handlegg-
ir eru grannir eða eðhlegir, má
kjóllinn vera ermalaus eða með
stuttum ermum.
Sídd kjóla
Sídd kjóla þarf að vera í sam-
ræmi við útUt leggja og ekki má
láta kjólinn enda við versta part-
inn á fótunum. Ef kálfinn er sver,
er gott að velja síddina þannig að
hún skeri grennstu línuna á kálf-
anum. Passa þarf að það sjáist í
fæturna ef pilsið er þannig snið-
ið. Ef pilsið er of sítt, þannig
að Utlö af tótunum sést,
getur heUdarútUtið farið úr
skorðum. Neðri hluti kjóls
ætti ekki að vera víðari en
sem nemur breidd axl-
anna, nema þú sért
þeim mun stærri.
Því víðari sem
kjóllinn er,
þeim mun
minni Iítum við
út fyrir að
vera. Ef við
erum smá-
vaxnar,
er gott
að
vera í sokkabuxum og skóm í
sama Ut. Ef fótleggur er of breiður,
er best að velja mattar og dökkar
sokkabuxur. Fótleggur sem er
grannur þarf ljósar og glansandi
sokkabuxur.
Val á aðskornum eða
beinum kjólum
KjóU sem er aðskorinn leggur
áherslu á mittið. Konur sem eru
með gott mitti, en breiðar mjaðm-
ir, rass og læri, ættu að velja sér
kjól sem tekinn er inn í mittið, t.d.
kápukjól eða tvískiptan kjól. Ef
viðkomandi persóna er mittislaus,
er gott að velja sér kjól sem er
með beinu sniði. Gott er að
taka hann í sundur um
mjaðmalínu. Veldu kjól
sem fela eða draga at-
hyglina frá þínum
slæmu þáttum og
beina henni að þeim
góðu. Kjólar saman-
standa af efri og neðri
hluta, þannig að þegar
kjóU er valinn þarf að
huga að báðum hlutum
samtímis. Munið að lín-
ur draga aUtaf að sér at-
hygli og passið að sam-
ræmi sé á miUi kjóls og yfir-
flíkur. Það er mikið úrval tU af
sparifatnaði og vona ég að
þessi lesning hjálpi ykkur til að
íinna ykkar stíl fyrir gamlárs-
og nýj.trskvöldið. Passið, þegar
þið vei ið kjólinn, að hann passi
við persoiiuieika ykkar og að
ykkur h'ði vel í honum.
Hvað er það mikilvæg-
asta í lífi hverrar konu?
Er það útlitið?
Það er líklega rétt staðhæfing
að útlit skiptir flestar konur
einna mestu máli í gegnum
fífið. Almennt hugsa konur
mikið um útlitið og þjálfa með
sjálfri sér frá unga aldri sinn
eigin smekk og stíl. Þó hefur
það komið fyrir flest okkar að
kaupa flík sem okkur fannst
virkilega falleg í versluninni,
en þegar hún hefur verið not-
uð í eitt til tvö skipti höfur*i
við skipt um skoðun og hætt-
um að líka flíkin. Yfirleitt eru
skýringarnar einfaldar á
þessari hegðun okkar. Nokkr-
ar ástæður má nefna:
• Liturinn á flíkinni er falleg-
ur, en fer okkur illa án
þess að við gerum okkur
grein fyrir því strax.
• Sniðið hentar ekki okkar
hkamsvexti.
• Smáatriði sem draga at-
hygli að slæmum þáttum
líkama okkar.
Allar þessar ástæður
eiga það sameiginlegt að
við áttum okkur ekki á
hvers vegna okkur líkar
ekki flíkin eftir nokkra
daga. Yfirleitt eru þetta
atriði sem auðvelt er að
læra með því að fara í
námskeið í litgreiningu
og fatastíl. Þessi nám-
skeið eru sérsniðin fyrir
hvern og einn og geta
sparað okkur peninga og
forðað okkur frá því að
kaupa ranga flík.
Sigurborg Kr.
Hannesdóttir
skrifar
frá Egilsslöðum
Blessað
árið
Síðustu dagar ársins.
Áramót og tími til að
staldra við, lfta yfir far-
inn veg og strengja heit og
setja sér markmið fyrir nýtt
ár. Þegar þú lítur yfir árið
sem er að
líða, gerirðu það þá í sátt?
Ertu sátt(ur) við hvernig þú
hefur varið kröftum þínum á
árinu? Ertu sátt(ur) við sam-
skipti þín við vini, vanda-
menn, vinnufélaga og aðra
þá sem orðið hafa á vegi þín-
um? Ertu sátt(ur) við hvernig
þú hefur nært sjálfa(n) þig?
Hefurðu vaxið og þroskast,
eða finnst þér þú standa á
sama stað? Svona spurningar
og margar fleiri leita gjarnan
á hugann við áramót. Stund-
um finnum við fyrir eftirsjá
vegna einhvers sem við hefð-
um viljað gera öðruvísi.
Vegna einhvers sem við vild-
um gera og ætluðum að gera,
en gerðum ekki. Vegna
stunda þegar við “hefðum
getað vakað lengur, og verið
betri hvort við annað”.
En eftirsjá er tilfinning
sem rífur þig niður og hún er
ekki gott vegarnesti inn í nýtt
ár. Nei, við fáum ekki breytt
því sem er liðið. Þess í stað
getur þú litið yfir farinn veg
og blessað. Blessað atvik,
fólk og samskipti. Og ef það
er eitthvað sem þú ert ekki
fyllilega sátt(ur) við, er mikil-
vægt að fyrirgefa. Með þessu
ertu að breyta neikvæðum
hugsunum og tilfinningum
yfir á jákvætt form. Nei-
kvæðni vill sitja svo miklu
lengur í okkur, bæði andlega
og líkamlega. Með því að
blessa og fyrirgefa eignastu
innistæðu fyrir betri líðan og
bættri heilsu.
En hvað þá með það
ánægjulega sem við höfum
upplifað á árinu? Það skaltu
þakka. Þannig stækkarðu
þær jákvæðu tilfinningar og
innistæðan eykst enn.
Notaðu þá aðferð sem þér
hentar, til að fara yfir árið,
blessa, þakka og fyrirgefa. Ef
til vill finnst þér best að
hugsa í gegnum árið og af-
greiða hvert atvik og persón-
ur jafn óðum. Þú getur líka
skrifað niður, minnisstæða
atburði, eða fólk og skrifað
hinu megin á blaðið hvort þú
blessar, fyrirgefur eða þakk-
ar. Fyrir hvert ogeitt atriði
getur verið gott að loka aug-
unum og anda djúpt. Þá get-
ur þú líka prófað að sjá fyrir
þér gullið ljós, sem baðar at-
vikið eða fólkið sem um ræð-
ir.
Síðast en ekki síst skaltu
svo blessa þig. Þakka þér og
fyrirgefa þér. Eins og þú vær-
ir að þakka sjálfri/sjálfum
þér fyrir samfylgdina í gegn-
um árið, með öllu sem það
færði þér. Og þú gengur inn í
nýtt ár, heil(l) og sæl(l), laus
við allan farangur úr fortíð-
inni og tilbúin(n) til að taka
fagnandi á móti því sem árið
1997 ber í skauti sér.
Gleðilegt ár!
Rafvirkjar
Óskum eftir að ráða nú þegar rafvirkja til starfa.
Um er að ræða starf við uppsetningu á öryggisbúnaði.
Umsóknarfrestur er til og með 10. janúar 1997.
Umsóknareyðublöð fást hjá Securitas
Tryggvabraut 10, frá kl. 10-12.
rrn
SECURITAS
Til viðskiptavina
Efnaverksmiðjunnar Sjafnar hf.
Lager fyrirtækisins að Austursíðu 2 verður lokað-
ur mánudaginn 30. desember 1996 og fimmtu-
daginn 2. janúar 1997.
Gleðileg jól.
Efnaverksmiðjan
Sjöfn hf.