Dagblaðið Vísir - DV - 08.12.1981, Blaðsíða 3
Konur á
Hótel
Vík
Samtökin, sem nú vinna að kvenna-
framboði í Reykjavík, hafa fengið
Hótel Vík við Austurvöll til afnota.
Að sögn þeirra kvenna, sem unnu
nú um helgina við að koma húsnæðinu
í nothæfara ásand, ríkir mikil ánægja
með húsið, það er mjög hentugt og
býður upp á ótal möguleika.
Fyrirhugað er að hafa þarna „opið
hús” til kynningar starfseminni, ýmist
með fastri dagskrá eða frjálsum
umræðum. í bígerð er að koma upp
barnagæzlu og leik- og föndursvæði til
þess að öll fjölskyldan geti lagt leið sína
áhyggjulaust í húsið. Eins og fyrr var
getið, hófu konurnar strax að koma
húsnæðinu í be'tra horf nú um
síðustu helgi og var verið að þvo og
mála sleitulaust. Enn er þó mikið verk
framundan og ættu allir þeir, sem
áhuga hafa á kvennframboðinu að
leggja lið eftir beztu getu. Að sögn
þeirra, sem voru við vinnu, þegar
blaðamann bar að garði, vantar ekki
aðeins sjálfboðaliða, heldur einnig;
innanstokksmuni, málningu o. m. fl.
Unnið verður í Hótel Vík eftir kl. 16
alla daga á næstunni og „hingað eru
aliir velkomnir” var sagt að lokum.
-MS.
Franskur lúxus
Fimm manna, framhjóladrifinn,
fimm gíra, vél 1600 cc, elektrónísk
digitalklukka, barnalæsingar á hurð-
um, útvarp, litað gler, rafmagnsrúð-
ur og vökvastýri.
Alft þetta fyrir ca kr. 164.946,-
á götuna
og til afgreiðslu NÚÞEGAR
Ifökull hf.
ÁRMÚLA 36, Símar 84366 - 84491
DAGBLAÐID& VÍSIR. ÞRIÐJUDAGUR 8. DESEMBER 1981.
Harpa hf. í miklum byggingaframkvæmdum
Reisir fimm
hæða stórhýsi
— á horni Hverfisgötu og Snorrabrautar
Málningaverksmiðjan Harpa hf.,
stendur í miklum bygginga-
framkvæmdum um þessar mundir. Er
fyrirhugað að reisa stórhýsi á horni
Hverfisgötu og Snorrabrautar. Verður
byggingin fimm hæðir, 800 fermetra að
stærð.
Magnús Helgason, framkvæmda-
stjóri Hörpu hf. sagði í viðtali við DV,
að verksmiðjanhefði fengið byggingar-
leyfi fyrir mánuði. Væri nú búið að
grafa grunninn og mótauppsláttur
hafinn.
Aðspurður um hvort verksmiðjan
hygðist nýta allt húsnæðið undir eigin
starfsemi, sagði Magnús að svo yrði
ekki í byrjun. Sölu- og skrifstofustarf-
semi yrði fiutt um leið og byggingin
yrði tilbúin, en verksmiðjan þyrfti ekki
á öllu húsnæðinu að halda strax. Stærð
þess hefði verið ráðin með framtíðar-
þarfir í huga.
Magnús kvaðst ekki vilja nefna
neinar tölur i sambandivið bygginga-
kostnað. „Við lifum á svo miklum
verðbólgutimum, að það þjónar engum
tilgangi að nena neinar tölur,” sagði
hann.
Áætlað er, að ljúka við byggingu
stórhýsisins í apríl 1983, en það er
byggingarfélagið Ós hf., sem hefur
framkvæmdirnar með höndum.
-JSS.
1982-GLS
Tannlæknastofa innréttuð
í Heilsugæzlustöð Dalvíkur
Unnið er við að innrétta aðstöðu
fyrir tannlækni í nýrri heilsugæzlustöð
á Dalvík.Er reiknaðmeð að því verki
Ijúki í byrjun næsta árs. Meginhluti
heilsugæzlustöðvarinnar var tekinn í
notkun fyrir um það bil ári, en þar eru
lækningastofur til húsa. Auk
tannlæknastofunnar er eftir að innrétta
þjálfunaraðstöðu. Tannlæknir á Dalvik
er Rúnar Lund og hefur hann verið á
Dalvík allt síðan 1974. Hafa því
Dalvíkingar ekki átt í þeim erfiðleikum
við að útvega sér tannlæknaþjónustu,
sem mörg smærri bæjarfélög hafa
þurftað glimavið.
-GS/Akureyri.
Stöðu-
mæla-
sektin
í 30-kall
Litlu, snotru, grænu miðarnir sem
æpa stundum á okkur um stöðumæla-
sekt, hækka í verðgildi eins og annað.
Frá og með áramótunum verða þessar
sektir hækkaðar úr tuttugu í þrjátíu
krónur.
Og fleira hækkar. Afnot af
bílastæðinu við Tollstöðvarhúsið sem
kosta það sama hvort heldur stanzað er
stutt eða lengi . verða hækkuð úr fimm
krónum í sjö.
Stöðumælagjöld verða óbreytt, að
minnsta kosti fyrsta kastið.
-JB.
VK) TELJUM
að notaðir
VOLVO
bflar
séu betri
en nýir bflar
af ódýrari
gerðum
VOLVO 245 GL ÁRG. '79
ekinn 60 þús., beinsk. kr. 130.000,-
VOLVO 245 GL ÁRG. '77
ekinn 62 þús., sjálfsk. kr. 110.000,-
VOLVO 244 DL ÁRG.' 81
ekinn ll þús., beinsk. kr. 140.000,-
VOLVO 244 GL ÁRG. '80
ekinn 28 þús., sjálfsk. kr. 160.000,-
VOLVO 244 GL ÁRG. '80
ekinn 34 þús., beinsk. kr. 148.000,-
VOLVO 244 DL ÁRG. '80
ekinn 21 þús., beinsk. kr. 125.000,-
VOLVO 244 GL ÁRG. '79
ekinn 45 þús., beinsk. kr. 120.000,-
; VOLVO 244DLÁRG.' 78
ekinn 43 þús., beinsk. kr. 105.000,-
35200
VELTIR
SUÐURLANDSBRAUT16