Dagblaðið Vísir - DV - 08.12.1981, Síða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 08.12.1981, Síða 4
DAGBLAÐIÐ & VÍSIR. ÞRIÐJUDAGUR 8. DESEMBER 1981. 4 Óður maður gekk berserksgang í gærmorgun jp HEFUR MARGOFT HOTAD SAM- BÝUSFÓLKISÍHU LÍFLÁTl í gærmorgun gerðist sá atburður, að maður einn gekk berserksgang í hús- næði Félagsmálastofnunar að Grjóta- götu 14b. Reif hann í sundur allar símalínur, svo húsið varð símasam- bandslaust. Þá brauzt hann inn til sam- býlismanns síns, og braut m.a. nýtt út- varpstæki. Síðast en ekki síst hótaði hann íbúum hússins lífláti, kærðu þeir til lögreglunnar. Maðurinn, sem um er að ræða hefur búið þarna á annað ár. Auk hans búa i herbergjum í kjallara tveir menn. Annar þeirra er hjartasjúklingur, 70% öryrki, 68 ára að aldri. Hefur hann ekki sízt orðið fyrir barðinu á sambýlis manninum, jafnvel hlotið barsmíðar og misþyrmingar. í fyrra dvaldi gamli maðurinn til dæmis á Borgar- spítalanum vegna áverka, meðal annars beinbrota, sem sambýlis- maðurinn hafði veitt honum. Þá hefur gamli maðurinn orðið fyrir umtals- verðu tjóni af þeim sökum. Tvisvar hefur sambýlismaðurinn brotið út- varpstæki fyrir honum, hið síðara í gær. Aðrir íbúar hússins hafa ekki farið varhluta af sambýlinu við manninn. Hann hefur i æðisköstum brotið salernið, skorið á leiðslur í þvottavél í kjallara, gert tilraun til að brjótast inn til húsvarðarins sem er kona og býr á efrihæðinni, brotið upp skál á salerni og ruglað heitavatnskerfinu í húsinu og svo mætti áfram telja. Siðast en ekki sizt hefur hann ítrekað hótað ibúum hússins lifláti, segi þeir til hans. Hefur lögreglan oft verið kvödd til vegnat þessa. Húsvörðurinn hefur margoft reynt að kvarta til Félagsmálastofnunar, en ajltaf án árangurs. í gær þótti þó keyra um þverbak og fékkst loforð frá stofn- uninni um að flytja manninn. Það hafði hins vegar ekki verið gert, þegar þetta var skrifað. ÞJÓFURINN MED UÓSU AUGNA- Maðurinn gekk berserksgang i ibúðinni i gærmorgun, braut og bramlaði og hafði i hótunum. Hér sýnir einn ibúa hússins brotið salerni íbúðarinnar. BRÝRNAR FUNDINN Sáttafundur hjá BHM Krafa um 25% heildar- hækkun og afturvirkni til 1. nóvember VEIZTU UM EIN- HVERN SEM MISST HEFUR UÓS HÁR AF AUGNABRÚN? - þá petiróu huguntega veitt upplýsingar sem kitt g»tu tfl þess að naóist í hnakkadnunl>tð áMUþMfmi Vrátu i»n einhvcf n eóu emhverjn irekiturmn. Okumaður i* ■em (et«u5 hjta Ur, bufsanleu I hmumlKptti hotöu báSrr ikolfcS •ndfct eSa brjöttUur. renu I trararfcSuna og brotiS hanu Of oku- hvorttvettja. st. >1. (Oaludapkvðld- maðurmn auk UotlrS þaS eSa aSfaranöit Uufnrda«s’ S* rvo harkalrca i HýriS aS (aS brotnaSi KttirSu aS leaa iíram þvi hu«<anleil M fundrnt I broUnm rúSunm hkr er aA þú «etir bjfclpsS Ul nS aS finna fiyknr. Ilkle»asi hfcr ur au«nabrún bDnþjSfa o««oruþauljSa. Sl. fouludagskvotd >ar nefrulc«a ieppinn et lOlu.erl skemmdur Wilya-bfarjujeppa HofaS frfc Alk IjSlUS lcndsr t enandanum Hrfaneis 35 I Reykjavft Ihn kl. 3 finnist þjofarnir tfcki. GeOr þú veill nSfaranOtl lnu«arda«s fannsi easbvo^r sem lesn «jrtu jepputn klemlur upp viS liðsaUaur fc U þrá aB þjOfanúr fyndud. rrur þú mðu viS BBales«u loflksSa fc aS tnúa þtr lil IO«re«lunnar i Rrykja fatSmn. út aS LofilesSahOiefi Sézt vik. (Ugamfc jeppam ytSt liklqast hafSt til fjOfurta manna hlaupa frfc ifcaffa«a þakkUiur nrSstt I hnakka- jeppnnum. drambiS fc þetm n slórskemml haf a Aí ummerhjum mfctii rfcSa aS jeppannhans þjOfarnir hðfSu slnsast estih.aS viS -KMtl. Mya* AbyrtSU. Þjófarnir, sem stálu Willys-jeppa og klessukeyrðu hann á Ijósastaur við Bílaleigu Loftleiða um fyrri helgi, eru fundnir. Hafði lögreglan hendur i hári þeirra sl. laugardag, tveim dögum eftir að DV hafði skýrt frá ráninu. Þjófarnir reyndust vera þrír ungir piltar, 16og 17 ára gamlir. Ekki er talið að fjárhagslegur ávinningur hafi vakað fyrir þeim með þvi að taka jeppann í óleyfi, heldur frek.ir einhvers konar skemmtifýsn, en þess má geia, að Bakkus mun hafa vcrið með í för. Rúnar Sigurðsson yfirlögregluþjónn sagaði i samtali við DV að eflaust hefði frétt blaðsins hjálpað eitthvað til við að finna piltana. Einn þeirra hefði reynzt hafa meiðzt á brjóstkassa og annar verið með áverka á augabrún. Það er líklega sá sem átti Ijósu augnahárin sem fundust í brotinni bílrúðunni. -KMU. <c Frétt DV sem birtisl sl. fimmtudag. Þjófarnir fundust tveim dögum síðar. ,,Okkar heildarkrafa er að ná fram, annað hvort með grunnkaupshækkunum eða öðrum uppbótum, þeim kaupmætti sem var í árslok 1977, en það jafngildir 25% hækkunum,” sagði Guðríður Þor- steinsdóttir, framkvæmdastjóri Bandalags háskólamanna, í samtali við DV, en fyrsti sáttafundur í kjara- deilu þeirra var hjá ríkissáttasemjara tgær. BHM sagði sínum aðalkjara- samningi upp frá síðustu mánaða- mótum, en gildistími hans var til 1. marz næstkomandi. „Við gerum kröfu um 4,25% grunnkaupshækkun við endur- skoðun aðalkjarasamningsins og gildistöku frá 1. nóvember sl. Þetta 1% sem við förum fram á umfram ASÍ, metum við til jafns við lág- launauppbæturnar sem þeir sömdu um. Helztu kröfur aðrar lúta að starfsaldurshækkunum og þá sér- staklega til i^anda þeim sem nú eru í lægstu flokkunum,” sagði Guðríður. Aðrar kröfur sem BHM hefur á blaði eru meðal annars sex mánaða fæðingarorlof, afnám laugardaga úr orlofi og frí vegna veikinda barna. Guðríðyr sagði að ekki kæmi til greina að semja til skamms tíma þar sem lögbundinn gildistími aðalkjara- samninga BHM væri tvö ár. -JB. Svarthöfði Svarthöfði Svarthöfði Svarthöfði Ríkisfjölmiðlar ala af sér video Videó-nefndin hefur skilaö áliti og mun einhverjum þykja sem nefndin hafi ekki tekiö nógu skýra afstöðu meö höfundðrrétti og móti einkarétti ríkisfjölmiðla. Hún virðist hafa viljað fara bil beggja og m.a. freistaö þess að setja ekki stjórnvöld í þann vanda að þurfa að gera óvinsælar ráðslafanir. Upplýsinga nefndarinnar um það hernig þelta er i öðrum lönduhi, væri hægt að afla með öðrum hælti. Að vísu óskar nefndin þess að fólk fari að lögum og virði þau rétlindi, sem lög ákveða, en um leiö er biessað yfir ríkisfjöl- miölunum, sem eru raunar upphafið að þeim ófarnaði, þegar þúsundir manna taka sig til og brjóta lögin. Vitað er að ríkisfjölmiðlar hafa hiaðið á sig fólki, sem mundi illa vera lækt í fjölmiölum annars staðar, bæði innanlands og utan. Laun þessa fólks er ekki í neinu samræmi við þýðingu þess starfs sem það vinnur, og þess vegna fara margir út í þetta af hugsjónaástæðum og með það fyrir augum að hafa „æskileg” áhrif á það sem flutt er i útvarpi og sjónvarpi. Þegar svo kemur þar í messunni, að nauðsynlegt er orðið að vara við video vegna þess að þar er að stórum hluta farið götuna utan laga og rétt- ar, heyrist fljóll hverjir það eru, sem telja sig missa mest glatist einokunar- aðstaða ríkisfjöimiðla. Hugsjónar- fólkið, sem þar hefur sest að virðisl þannig eiga sér ákveðna talsmenn og þarf engan að undra það. Hefði l.d. sjónvarp verið rekið af krafti og efnis aflað, sem almenning varðar enda er þetta almenningstæki en ekki sin- fónisk hljómsveit, væri varla um stórfellt vandamál að ræða vegna almennra lagabrota I skemmtana- iðnaðinum. Video-nefndin virðist taka að hluta undir við sjónarmið hug- sjónafólksins á rikisfjölmiðlunum, i stað þess að álykta sem svo, að upp- haf ófarnaðarins sé þar að finna og video-málið muni jafna sig að mestu, verði útvarp og sjónvarp gefið frjálst, þótt það hljóti ætíð að vera háð leyfum. Það er alveg Ijóst, að stjórnendur ríkisfjölmiðla ætla að þráast við enn um sinn, þangaö (il videoþjófnaðurinn er orðinn svo al- mennur að ekkert verður hægt að gera nema lögleiða hann. Þeir munu halda í einkaréttinn meðan skipið er aö sökkva undir þeim — úr leiöindum. Þannig verður hug- sjónafólkinu og talsmönnum þess utan ríkisfjölmiðla veitlur frestur enn um sinn, en á meðan video-væðist landið frá Höfn í Hornafiröi til Skagastrandar. Hinir stjórnmálasinnuöu ríkis- fjölmiðlamenn með hreinleikann í hjarlanu og samvisku heimsins á herðunum munu halda áfram að lenda í „þýðingarvillum”, eins og Jón Baldvin Hannibalsson hcfur upplýst. Þær eru þó smámunir hjá öllu þvi billega tilstandi sem þessi hugsjönahópur hefur uppi bæði í sjónvarpi og útvarpi og einkennist af því sem kallað er háleit stefnumótun á fréttastofu. Stofnun sem byggir á einkarétti þarf aðeins að svara skætingi, þegar á hana er deill, og hún hefur einnig sína eigin stefnumótun til að byggja á, sem er einskonar sveitamanna- og prjóna- frollu-kommúnismi. Við video-fólk er ástæða til að segja þetta: Þið brjótið þýðingar- mikil undirstöðulög, þegar þið sjáið myndbandasýningar sem dreift erum margar íbúðir í einu. Myndbönd eru gefin út til nota á einum stað í einu, eins og t.d hljómplata. Annað er hreinn þjófnaður, sem sæmilegt fólk á ekki að gerasl nautar að. í Vestur- Þýskalandi, svo dæmi sé tekið, eru myndbönd seld við sæmilegu bókar- verði og fólk eignast myndbandasöfn eins og bókasöfn. Með þeim hætti fá framleiðendur sínar greiöslur. Hitt getur ekki j>enj>ir til lengdar, nema þá kannski a Islandi, að þúsundir manna sjái t.d. kvikmynd án þess að greiða fyrir nema sem svarar einu leigugjaldi. Svarthöfði.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.