Dagblaðið Vísir - DV - 08.12.1981, Page 5

Dagblaðið Vísir - DV - 08.12.1981, Page 5
DAGBLAÐIÐ & VÍSIR. ÞRIÐJUDAGUR 8. DESEMBER 1981. 5 DV-mynd: Friðþjófur. Sigurveig á staðnum þar sem skurðurinn var. Góð þjónusta á Selfossi Á Selfossi búa 3400 manns. Félagsstarfsemi er mikil og flest félög starfa að líknar- og menningarmálum og tala verkin þar um. Verzlanir á Selfossi éru um 30 að mér er sagt enda verzlunarþjónusta eins og bezt verður á kosið. Kaupfélag Árnesinga tók nýlega í notkun nýtt og flott verzlunarhús. Þar þarf fólk ekki að opna dyrnar heldur opnast þær sjálfkrafa þegar fólk nálgst þær. Er að þessu mikið hagræði, þegar fólk heldur á pokum og ýmsum bögglum. Fjórir bankar eru hér og stutt á milli þeirra. Spurði ég ung hjón sem nýlega heimsóttu okkur hjónin, hvort þetta væri ekki fullmikið. Þau sögðu að þetta væri þvert á móti bráðnauðsynlegt og bað ég þau að nefna dæmi því sönnunar. Þau sögðust vera nýbúin að byggja sér einbýlishús og fengu auðvitað banka- lán. Þegar að því kom að vixillinn í fyrsta bankanum féll, gátu þau ekki alveg staðið í skilum. Þá var farið næsta banka og fengið lán fyrir því sem á vantaði og svona koll af kolli. Svoleiðis gátu þau staðið í skilum bæði við bankana og smiðina sem byggðu fyrir þau húsið. -Regina. SLYSAGILDRA Á LAUGAVEGI Hún Sigurveig Guðmundsdóttir, 10 ára gömul Kópavogsmær, átti sér einskis ills von, er hún labbaði niður Laugaveg sl. þriðjudag. En samt fór það nú svo að hún handleggsbrotnaði þennan dag. Á gangstétt á horni Klapparstígs og Laugavegs, við veitingahúsið Kirnuna, var þennan þriðjudag skurður, sem starfsmenn Pósts og síma höfðu grafið. Tvær trébrýr höfðu verið lagðar yfir skurðinn, hlið við hlið. Þær voru hins vegar ekki fastar saman. Til að komast leiðar sinnar þurftu gangandi vegfar- endur að fara yfir aðra hvora brúna. ,,Ég var búin að stíga á aðra brúna og ætlaði að stíga yfir á hina. Þá kom fullorðinn maður og steig á hina brúna en þá færðist brúin til,” sagði Sigur- veig í samtali við DV. Brúin færðist semsagt til i sömu mund og Sigurveig hugðist stíga á hana. Hún steig því í tómt, féll harkalega fram fyrir sig, handleggs- brotnaði og marðist auk þess nokkuðá lærum. Þessi fullorðni maður hjálpaði henni og hringdi á sjúkrabil. Faðir Sigurveigar er hins vegar óhress með hvernig aðstæður voru þarna á þessari fjölförnu leið. Víst er að margir geta verið honum sammála. Hægur vandi ætti að vera að ganga svo frá hlutunum að saklausir borgarar þurfi ekki að falla í slysa- gildrur. Og allra sízt á gangstétt á Laugavegi. -KMU. NÝTT Á ÍSLANDI YFIR 20 TEG. AF STÁLBÍLUM FRÁ AMERÍKU LEIKFANGAHÚSK) SKÚLAVORÐUSTÍG 10. - SfM1 14806. Ljósin í lagi - lundin góð Slík áhrif hafa rétt stillt Ijós í umferóinni. mÉUMFERÐAR Uráð VANITY FAIR Sloppur, Utir: rautt, ryOrautt, dökkbiátt, vínrautt. Stœrðir: MogL, Kr. 512,85. Náttkjóll Utir: dökkblátt, ferskjulitur. Stnrðir: S, M, L. Kr. 259,75. Undirkjóll PÓSTSENDUM * SÍM113577 / MIÐ BÆJAR MARKADIJ RINN 'VANITY FAIR

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.