Dagblaðið Vísir - DV - 08.12.1981, Qupperneq 7
DAGBLAÐIÐ & VÍSIR. ÞRIÐJUDAGUR 8. DESEMBER 1981.
Lesendur
Lesendur
Lesendur
Lesendur
litvarpsdagskráin:
Full af úrkynjuðu skallapoppi
4913—1038 skrifar:
Nýlega gekk vetrardagskrá út-
varpsins í gildi. Vægt til orða tekið er
dagskráin hnefahögg í andlit tónlist-
arunnenda af Bítlakynslóðinni. Út-
varpsdagskráin er fyllt af alls konar
dagskrárliðum sem byggjast upp á
úrkynjuðustu tegund skallapopps.
Strax á sunnudögum er byrjað með
skallapoppþátt sem heitir
Regnboginn (Fáránlegt nafn þegar
tillit er tekið til þess að skallapopp
þáttarins er algjörlega einlitt). Síðan
koma allir hinir dagarnir i röð með
2ja-3ja klukkutíma langar
skallapoppsyrpur. Kl. 22.00 á
mánudögum og þriðjudögum er
skallapoppið einnig spilað auk þess
sem danslögin eru ekkert annað en
skallapoppþáttur svo og tónleikarnir
kl. 18.00 alla daga vikunnar.
En það er ekki einungis að í öllum
þessum skallapoppsyrpum sé einlitt
skallapopp keyrt á fullu heldur eru
sömu lögin endurtekin trekk í trekk.
Það er Shakin’ Stevens spiiaður aftur
og aftur og aftur og mörgum sinnum
aftur. Það eru Elo spilaðir aftur og
aftur og aftur og mörgum sinnum
aftur. Síðan þegar hlustendur fá að
velja sér óskalög í Lögum unga
fólksins, Á frivaktinni o.s.frv. þá
þekkja hlustendurnir ekkert annað en
lögin með Shakin’ Stevens og Elo. Og
þá skipta þeir á milli sín kveðjunum
með lögum Shakin Stevens og Elo. Þar
nteð eru skallapopparar útvarpsins
komnir með afsökun fyrir að spila
Shakin’ Stevens og Elo aftur og aftur
og mörgum sinnum aftur. Því þessi
lög eru svo vinsæl um þessar mundir,
segja þeir. Á sama tíma er tónlist-
arþátturinn Áfangar skertur stórlega.
Þetta er eini dægurmúsíkþáttur út-
varpsins sem spilar lög með öðrum en
Shakin’ Stevens og Elo. Sú er einmitt
ástæðan fyrir því að honum er nú ýtt
út í kuldar.ii. Jú, fólkið vill nefnilega
baras Shakir.'Stevens og Elo, segja
ráðamenn.
Um kennara kennaranna:
„Oft hafa mér leiðst erlendar slettur þeirra”
J.G., nemandi
íslands, skrifar:
í Kennaraháskóla
4913—1038 er búinn að fá sig
fullsaddan af Shakin Stevens, sem
þessi mynd er af, að Eio ógleymdum,
og telur útvarpsdagskrána um of
helgaða skallapoppi.
Ég má til með að kvarta undan
meðferð kennara minna á íslenzku
máli. Of hafa mér leiðzt erlendar
slettur þeirra, samtvinnaðar okkar
ástkæra ylhýra máli, en út fyrir allan
þjófabálk tók fimmtudagsmorguninn
14. nóv. Þá fór fram i skólanum
fyrirlestur og kvikmyndasýning um
efnið Kvikmynd og sagan.
Síðan fóru fram umræður um efni
kvikmyndarinnar og var einn
kennarinn iðnastur við að koma fram
fyrirspurnum til fyrirlesarans.
Ég ætla ekki að tíunda einstök orð
eða orðasambönd i málfari hans en
erlenda málskrúðið sem hann skreytti
svo listavel við íslenzkuna var hreint
ofboðslegt. Ég held að kennarar
okkar ættu í verki að sýna meiri á-
byrgð í meðferð tungunnar og vera
þannig æskileg fyrirmynd.
Þá vil ég kvarta undan þeim
annars ágætu nemendum skólans
sem reykja. Tillitssemi við þá sem
sleppa vilja undan reykingastybbunni
er ekki til. Alls staðar er reykt; á
göngunum, i matsalnum, í setu-
stofunni og jafnvel í sjálfum kennslu-
stofunum. Heilsa þeirra sem ekki
reykja getur ekki talizt eitthvert
einkamál reykingamanna.
Vinsamlegast takið ykkur til og
reykið í anddyri eða utandyra.
interRent
car rental
Bílaleiga Akureyrar
Akureyri: Tryggvabr. 14 - S. 21715, 23515
Reykjavík: Skeifan 9 - S. 31615, 86915
Mesta úrvalið, besta þjónustan
Við útvegum yður afslátt
á bílaleigubílum erlendis
VERÐLAUNAGRIPIR
OG FÉLAGSMERKI
Fyrir allar tegundir iþrótta. bikar-
ar. styttur. verðlaunapeningar ;
— Framleiðum félagsmerki
dtL.
Magnús E. Baldvinsson
Laugavag. 8 - Raykiaviti - Sími 22804
cp '9* v’®-
eíib
TÖSKUHUSIÐ
Laugavegi73
Sími15755
Nei takk ...
ég er ábílnum
»IX
FERÐAR
fiikvnning
TIL AUGLÝSENDA
Vegna aukins álags á auglýsingadeild
og í prentsmiðju, eru auglýsendur beðnir að panta auglýsingar oo
skila handritum og filmum fyrr en áður varf a.m.k. fyrst um sinn:
VEGIMA MÁNUDAGS
skil á föstudegi fyrir kl. 12.00
skil á föstudegi fyrir kl. 17.00
skil á mánudegi fyrir kl. 17.00
skil á þriðjudegi fyrir k/. 17.00.
skil á miðvikudegi fyrir kl. 17.00.
skii á fimmtudegi fyrir ki. 17.00
skii á mánudegi fyrir kl. 17.00
ATH. Aukaiitir geta verið í öllum blöðum nema á mánudegi.
VEGNA ÞRIÐJUDAGS
VEGNA MIÐVIKUDAGS
VEGNA FIMMTUDAGS
VEGNA FÖSTUDAGS
VEGNA HELGARBLAÐS I
VEGNA HELGARBLAÐS II
9 Fyrst um sinn verður einungis hægt að prenta fjórlitaauglýsingar
í Helgarblaði II (skil í síðasta lagi mánudaga kl. 17.00).
0 Tekið er á móti öllum stærri auglýsingum í Síðumúla 8, og sím-
inn þar er 27022.
Opið mánudaga — föstudaga frá kl. 9—17.30.
Q SMÁ-auglýsingadeild Dagblaðsins & Vísis
er í Þverholti 11 og síminn er 27022.
Opið: mánudaga — föstudaga kl. 9—22
® Laugardaga kl. 9 — 14 Sunnudaga kl. 14 — 22
Q SMÁ-auglýsingaþjónustan er opin
mánudaga — föstudaga kl. 12—22. Laugardaga kl. 9 — 14.
0 SMÁ-auglýsingamyndir eru teknar í Þverholti 11 kl. 11—15
mánudaga til föstudaga.
Myndir eru alls ekki teknar um helgar.
BIAÐID