Dagblaðið Vísir - DV - 08.12.1981, Síða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 08.12.1981, Síða 8
8 DAGBLAÐIÐ & VÍSIR. ÞRIÐJUDAGUR 8. DESEMBER 1981. Útlönd Útlönd Útlönd Útlönd Sorpiðsafnast fNewYork 40 þúsund smálestir af úrgangi og rusli hafa hrannazt upp á strætum New York eftir vikulangt verkfall öskukallanna. Ruslapok- um hefur verið hlaðið í tveggja metra háa hauga fyrir utan verzlanir og matsölur. Waldorf-Astoríahótelið hefur gripið til þess að koma sínu rusli fyrir uppi á þaki en borgaryfirvöld hafa látið fjarlægja rusl sem þykir hættulegt heilsu fólks. Um 200 öskukallar eru í verkfallinu, en 400 einkafyrirtæki standa að sorphreinsuninni í New York. Geimfarar heiðraðir Reagan Bandaríkjaforseti heiðraði í gær geimfarana tvo sem flugu geimskutlunni í síðasta májiuði. Joe Engle og Richard Truly hlutu DS-heiðurspeninga sem forsetinn afhenti þeim við hátíðlega athöfn í Hvíta húsinu. — Geimfararnir gáfu forsetanum silf- urminnispening um flug þeirra. Lloydsbætirfyrir NatalieWood Metro-Goldwyn-Mayer, kvik- myndafélagið sem vann að gerð myndarinnar „Brainstorm”, þegar aðalleikkonan í myndinni, Natalie Wood, drukknaði í síðustu viku, mun gera kröfu til bóta hjá Lloyds- tryggingarfélaginu í London. Kvikmyndin mun hafa verið tryggð hjá Lloyds fyrir 10 milljónir dollara. Stjórnarkreppa íBelgíu Baudouin, Belgíukonungur, hefur falið Wilfried Martens, fyrrum forsætisráðherra í stjórn kristilegra sósíalista, að reyna myndun nýrrar ríkisstjórnar. Martens er þriðji stjórmnála- maðurinn sem konungur felut stjórnarmyndun eftir þingkosning- arnar 8. nóvember. — Hann var forsætisráðherra 5 samsteypu- stjórna, sem sátu frá því 1979 og til april í ár. Drápu skólastelpur Sovézka hernámsliðið i Afganistan drap fimm skólastúlkur og særði tólf alvarlega þegar nemendur í skóla í Mazar Sharif (við sovézku landamærin) fóru í mótmælagöngu gegn boðum um að klæðast vestrænum fatnaði. Telpurnar höfðu hrópað slagorð eins og ,,Lifi Islam” og,,Allah er mikill”, eftir því sem llóttamenn frá Afganistan segja við komuna til Pakistan. SmiR UBYA UM LÍF REAGANS? Reagan Bandaríkjaforseti segir, að fyrir liggi sannanir fyrir því að Muammar Gaddafi, leiðtogi Líbýu, hafi sigað manndrápurum á hann og fleiri háttsetta embættismenn Banda- ríkjastjórnar. Á fundi með blaðamönnum í gær var Reagan spurður hvað hann vildi segja um þau ummæli Gaddafis að Reagan væri „vitlaus, lyginn og barnalegur”, þegar hann héldi því fram, að Líbýa hefði sett flugumenn til höfuðs honum. ,,Ég mundi ekki trúa orði af því sem hann segir ef ég væri þið,” sagði Reagan. „Við höfum sannanir, og hann veit það.” Lengra var ekki farið út í þá sálma og ekki skýrt frekar hverjar þessar sannanir væru. Forsetinn kvaðst ekki hafa tekið neinar ákvarðanir um sem taldir eru hafa komið til Banda- ríkjanna fyrir rúmri viku. Bandarísk blöð héldu því fram í gær að 'eyniþjónustan hefði upplýsingar um tíu manna sveit flugumanna sem sett hefði verið á laggirnar til þess að ráða Reagan eða nánustu ráðgjafa hans af dögum. Á listanum yfir þá sem Gaddafi er sagður vilja feiga eru m.a. Alexander Haig utanríkisráðherra og Caspar Weinberger varnarmálaráð- herra. Öryggisvarzla hefur verið efld um forsetann og helztu ráðherra hans. Haig utanrikisráðherra er meðal þeirra sem þurfa að vera varir um sig á meðan morðsveitin leikur lausum hala. hugsanlegar refsiaðgerðir gegn Libýu, eins og bann við olíukaupum þaðan. Alríkislögreglan, FBI, leitar nú dyrum og dyngjum að flugunönnunum, M Reagan segist hafa sannanir fyrir tilræðisáætlunum Gaddafis. 13 FL0KKAR MED USTA í RÆNDU LÍBÝUVÉL YFIR ÍTALÍU Tveir skothvellir heyrðust um borð í libýsku farþegavélinni sem ræningjar neyddu til þess að fljúga frá Beirútflug- velli í morgun en ekki er vitað hvert þeir stefna henni. 45 farþegar eru um borð í vélinni á valdi ræningjanna sem tóku við stjórn- inni þegar þotan var stödd yfir Ítalíu í gær, á leið frá Zurich til Tripóli. Neyddu þeir flugstjórann til þess að fljúga til Líbanon. Þeir leyfðu barnshafandi konu og tveim börnum að yfirgefa vélina meðan hún beið I fimm klukkustundir í Beirút. Einn talsmanna herskárra Shiite- múslima sagði Reuterfréttastofunni að ræningjarnir krefðust þess að múhameðstrúarprestur, sem hvarf í Líbýu fyrir rúmum þrem árum, yrði Iátinn laus. Síðast sást i morgun til farþegavélar- innar þar sem hún var stödd yfir Aþenu en henni var neitað um lendingarleyfi þar. DÖNSKU K0SN- INGUNUM Danir ganga til þingkosninga i dag en ekki er búizt við róttækum breytingum á hlutföllum flokkanna. Gert er ráð fyrir að sósíaldemókratar tapi mestu fylgi en verði samt sem áður stærsti þingflokkurinn. Er ekki séð fyrir að vinstri eða hægri flokkar nái meirihluta og eins liklegt að Danir búi áfram við minnihlutastjórn. Þetta eru sjöttu þingkosningar Dana á tíu árum en til þeirra var boðað að þessu sinni þegar efnahagsstefna stjórnar Anker Jörgensens forsætisráð- herra og sósíaldemókrata var felld í vetur. Efnahagsamálin eru aðalkosninga- málið en Danir búa við mikla verð- bólgu, eilífan óhagstæðan viðskipta- jöfnuð, 105 milljarða d. króna skuld við útlönd og 9% atvinnuleysi. 13 stjórnmálaflokkar bjóða fram lista til kosninganna og hefur hver sína eigin patentlausn á reiðum höndum við efnahagsvanda þjóðarinnar. Herða róður gegn Einingu Ræðubrot, slltin úr samhengi, voru spiluð 1 útvarpi og sjónvarpi í allan gærdag. Spiia hljóðupptökur með ræðubrotum Walesa og fleiri af lokuðum fundum Pólskir ráðamenn hafa hrundið af stað heiftúðugri áróðursherferð gegn Einingu, hinum óháðu verkalýðssam- tökum, og halda þeir þvi fram að sam- tökin stefni að eyðileggingu kommún- istarikisins. í allan gærdag hömruðu úvarp og sjónvarp á útdráttum úr ræðum Walesa, leiðtoga Einingar, og ýmissa félaga hans sem efuðust um tilgang þess að eiga frekari viðræður við kommúnista. í aðalfréttum sjónvarpsins í gær- kvöldi voru sýndar myndir af Pólverj- um við dagsins annir, á meðan rödd Waiesa heyrðist lýsa komandi árekstrum og segja að hann hefði aldrei treyst kommúnistum. Þessi ræðubrot munu hafa verið tekin upp á lokuðum fundi forystu- manna Einingar í Radom í síðustu viku. Segja höfundur þeirra að til- vitnanirnar séu allar slitnar úr sam- hengi. í Moskvu segir Tass-fréttastofan, að ástandið í Póllandi hafi fariö versnandi síðustu daga, og heldur því fram Eining stefni að því að komast til valda og brjóta niður stjórnskipulag Póllands. Pólskir fjölmiðlar hafa eftir Walesa að hann hafi sagt á fundinum í Radom: „Árekstur er óhjákvæmilegur. Þeir hafa gefið okkur langt nef frá upp- hafi.” — Heyrðist segulupptaka þar sem Walesa heyrðist segja að það hefði verið skyssa hjá sér að fylgja hóf- semdarstefnu. Fréttaskýrandi sjónvarpsins sagði: „Nú vitum við að yfirlýsingar Einingar um að vilja ekki ná völdum voru aðeins til að dyljast.” í annan stað skýrir pólska frétta- stofan PAP frá því að Marian Jurczyk, leiðtogi Einingar í hafnar- bænum Szczecin, hafi verið ákærður fyrir róg gegn ríkinu en hann hefði kallað pólska kommúnista svikara.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.