Dagblaðið Vísir - DV - 08.12.1981, Síða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 08.12.1981, Síða 10
10 DAGBLAÐIÐ & VÍSIR. ÞRIÐJUDAGUR 8. DESEMBER 1981. IMauðungaruppboð sem auglýst var í 72., 75. og 77. tbl. Lögbirtingablaðs 1981 á hluta í Vatnsstíg 3, þingl. eign Eiríks Ketilssonar, fer fram eftir kröfu Gjald- heimtunnar í Reykjavik á eigninni sjálfri fimmtudag 10. desember 1981 kæl. 14.45. Borgarfógetaembættið i Reykjavík. Nauðungaruppboð sem auglýst var i 72., 75. og 77. tbl. Lögbirtingablaðs 1981 á Túngötu 8, þingl. cign Hendriks Berndsen o. fl., fer fram cftir kröfu Gjaldheimtunnar í Reykjavik á eigninni sjálfri fimmtudag 10. desember 1981 kl. 13.45. Borgarfógetaembættið í Reykjavík. Nauðungaruppboð sem auglýst var í 72., 75. og 77. tbl. Lögbirtingablaðs 1981 á hluta í Tómasarhaga 19, þingl. eign Halldóru Helgadóttur, fer fram eftir kröfu Ævars Guðmundssonar hdl. á eigninni sjálfri fimmtudag 10. desember 1981 kl. 14.15. Borgarfógetaembættið í Reykjavík. Nauðungaruppboð annað og síðasta á hluta í Laugavegi 141, talinni eign Björns Arnórssonar fer fram eftir kröfu Veðdeildar Landsbankans og Gjaldheimtunnar i Reykjavík á eigninni sjálfri fimmtudag 10. desember 1981 kl. 15.30. Borgarfógetaembættið í Reykjavík. Nauðungaruppboð annað og síðasta á hluta í Holtsgötu 31, þingl. eign Kristjáns Guðmunds- sonar, fer fram eftir kröfu Arnars G. Hinrikssonar hdl., og Landsbanka íslands á eigninni sjálfri fimmtudag 10. desember 1981 kl. 16.15. Borgarfógetaembættið í Reykjavík. KVIKMYNDAMARKAÐURINN VIDEO TÆHI. . FILUUR SKÓLAVÖRÐUSTÍG 19 (KLAPPARSTÍGSMEGIN) SÍM115480 Hannyrðaverzlunin Jgf j Opnað miðvikudaginn 9. desember að Drápuhlíð 1. Úrval af hannyrðavörum, einnig plötulopi. Hannyrðaverzlunin Jafi, Drápuhlíð 1 Stimplagerö Félagsprentsmiöjunnar hf Spítalastíg 10 - Sími 11640 Urval af bílaáklæðum (coverum) Sendum i póstkröfu Altikabúðin Hverfisgötu 72 S 22677 Útlönd Útlönd Útlönd Kosningarí Danmörku: Hver á að stjórna? Stóru vandamálin hafa horfið ískugga persónulegra árása stjórnmálamanna hvers á annan ogkjósendur virðastáhugalitlirum úrslitin Danir ganga að kjörborðinu í dag. Kosningabaráttan hefur talsvert mót- azt af þeirri staðreynd að hinn al- menni danski kjósandi er þreyttur á tíðum kosningum í landinu og telur litlu skipta hver úrslitin verða. Þetta hefur orðið til þess að frambjóðend- urnir hafa gripið til örþrifaráða til að ná eyrum kjósenda, tónninn í kosn- ingabaráttunni er grófari en áður hef- ur þekkzt. Þannig lætur forsætisráð- herra landsins, Anker Jörgensen, sig ekki muna um að stimpla andstæð- inga sem heimska og hættulega. Á þremur kosningafundum á Jót- landi i sl. viku gaf forsætisráðherr- ann tóninn með því að segja að Mog- ens Glistrup og Framfaraflokkur hans leiddu hugi manna aftur til fjórða áratugarins í Þýzkalandi, upp- gangstíma nasismans. Þetta þótti flestum of langt gengið, flestir borg- aralegu flokkanna gagnrýndu um- mæli forsætisráðherra en Glistrup sjálfur lét sér hins vegar ekki bregða og sagði aðeins að forsætisráðherr- ann væri treggáfaður. Jörgensen svaraði því síðan með því að segja að Glistrup væri hrein- asti þrjótur. Þannig hafa skotin geng- ið á víxl. Þegar Anker Jörgensen rauf þing vegna þess að honum tókst ekki að fá meirihluta fyrir því í þinginu að tryggingarfélög, bankar og lifeyris- sjóðir yrðu skyldaðir til að lána gegn vöxtum til atvinnuveganna þá gaf hann jafnframt til kynna að þetta yrði hið stóra mál kosninganna. Sú hefur þó ekki orðið raunin á. önnur mál, sem voru fyrirfram talin skipta minna máli, hafa orðið til að beina athyglinni frá þessu stórmáli. Kristjanía í brennidepli Eitt þessara mála er Kristjaníumál- ið. Að undanförnu hafa kröfur Svía og Norðmanna um að danska ríkis- stjórnin láti loka frírikinu Kristjaníu gerzt sífellt háværari og það hefur orðið til þess að málið hefur dregizt inn í kosningabaráttuna. íhaldsflokkurinn hefur einkum orðið til þess að taka undir gagnrýni Svía og Norðmanna um að Kristjanía sé miðstöð fíkniefnaverzlunar á Norðurlöndum og að fríríkið sé dönsku þjóðfélagi til háborinnar skammar. Borgaralegu flokkarnir hafa krafizt þess að staðnum verði lokað og hafa lýst því yfir að ef þeir sigri í kosningunum muni þeir þegar í stað framkvæma þetta markmið sitt. Jörgensen forsætisráðherra hef- ur hins vegar lýst því yfir að hann og flokkur hans hafi ekki uppi nein áform um að láta loka staðnum þótt þeir viðurkenni nauðsyn þess að hreinsa þar til og sporna gegn fíkni- efna- og eiturlyfjaverzlun. „Önnur lönd skulu ekki ákveða hvort við höfum Kristjaníu eða ekki,” hefur forsætisráðherra sagt. „Viðskulum heldurekki blandaokk- ur i stefnu Svíþjóðar í kjarnorkumál- um, Svíar eiga sjálfir að ákveða hvort þeir loka kjarnorkuverinu í Barse- báck eða ekki.” Síðara atriðið nefndi Jörgensen vafalaust í þeim tilgangi að koma í veg fyrir að vinstri flokkarnir geri Barsebáck að stóru máli í kosninga- baráttunni. Kannanir spá Jörgensen miklu fylgistapi Það eru sem sé ýmis mál þessarar tegundar sem sett hafa svip sinn á kosningabaráttuna, en ekkert eitt mál hefur náð því að geta kallazt aðalmál kosninganna. Kjósendur vita að fjárhagur þjóðarinnar er bág- borinn og atvinnuleysi mikið, en um- ræða um þessi stóru vandamál þjóð- arinnar hefur horfið í skuggann fyrir per.sónulegum árásum stjórnmála- mannanna hvers á annan.. Áhugi kjósenda fyrir því hver komi til að mynda næstu ríkisstjórn sýnist lika í lágmarki. Hvort sem það verður hægri eða vinstri, ríkisstjórn- arskipti eða ekki, það mun ekki leiða til neinna markverðra breytinga á dönskum efnahag. Sú er skoðun stórs hluta dönsku kjósendanna. Margt bendir þó til þess að ný.rík- isstjórn kunni að taka við eftir kosn- ingar. Samkvæmt skoðanakönnun- um mun Anker Jörgensen og Jafnað- armannaflokkur hans tapa miklu fylgi. Kannanir benda til að jafnaðar- menn tapi 78% fylgi og allt að 14 þingsætum. Slíkum spádómum tekur Jörgen- sen með jafnaðargeði enda er stór. hluti stuðningsmanna hans á þeirri skoðun að flokkur hans hafi aðeins gott af því að fara i stjórnarandstöðu um hríð. Þar við bætist að Jörgensen hefur ekki mikla trú á skoðana- könnunum. „Við jafnaðarmenn erurri ekki óvanir því að fá slæma útreið í skoðanakönnunum rétt fyrir kosn- ingar,” segir hann. „Fyrir kosning- arnar 1979 var okkur spáð 32% fylgi en við fengum 38%. Nú er okkur ým- ist spáð 33% eða 31%. Kannski fáum við 39%. Henning Christophersen, leiðtogi Vinstri flokksins, og Anker Jörgensen forsætis ráðherra. (§3) Gunnlaugur A. Jónsson skrifarfráLundi: Poul Schlúter, formaður Ihaldsflokksins. íhaldsmenn segjast aftur á móti trúaðir á niðurstöður kannananna, enda yrðu þeir sigurvegarar kosning- anna ef úrslit kosninganna yrðu á sama veg og þar. Vandi borgaraflokkanna Poul Schliiter, formaður íhalds- flokksins, fer heldur ekki dult með bjartsýni sína á því að borgaraleg rík- isstjórn hafi tekið við völdum fyrir jól. En þó svo færi að íhaldsmenn bættu við sig miklu fylgi, eins og kannanir benda til, þá er vandi borg- araflokkanna ekki úr sögunni. Gömlu borgaralegu flokkarnir koma tæpast til með að geta myndað ríkis- stjórn án þátttöku Framfaraflokks Mogens Glistrup og þykir það ckki fýsilegur kostur. Þar við bætist að Poul Schlúter og Henning Christophersen, fyrrum ut- anríkisráðherra og leiðtogi Vinstri- flokksins, vilja báðir sitja í forsæti þeirrar ríkisstjórnar og óttazt er að hvorugur þeirra geti unnt hinum að setjast í stól forsætisráðherra. Ef ríkisstjórnarskipti eiga að verða möguleg verða litlu flokkarnir á hægri vængnum einnig að vera með í dæminu. Það vita þeir og eru þegar teknir að setja fram kröfur. Hætt er því við að myndun ríkisstjórnar geti- reynzt erfið að loknum kosningum. GAJ/JÞ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.