Dagblaðið Vísir - DV - 08.12.1981, Blaðsíða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 08.12.1981, Blaðsíða 11
DAGBLAÐIÐ&VÍSIR. ÞRIÐJUDAGUR 8. DESEMBER 1981. II Mannlíf Mannlíf Mannlíf Mannlíf RotschieM barón og frú: Ekki á fíæöiskerí stödd þrátt fyrir þjóönýt- ingu. Frakkar eru öfund- sjúkir Meðal þeirra fyrirtækja sem Mitter- rand Frakklandsforseti hefur ákveðið að láta þjóðnýta erRotschieidbankinn í París, sem rekinn hefur verið af hinni þekktu og auðuguRotschieldí jölskyldu í 164 ár. Fjölskyldan er að vonuni mjög óhress með þessa ákvörðun og segir talsmaður hennar, Guy de Rotschield barón, að þetta sé í annað skipti sem rikið reyni að eyðileggja ævistarf hans. — Rotschieldfjölskyldan er búin að fá nóg af því að starfa i Frakklandi, segir hann. — Og það er ekki bara vegna nýju sttjórnarinnar heldur einnig vegna þess sem dæmigerðast er í fari landsmanna minna, öfund. Rotschield barón hyggst svara þjóð- nýtingunni með því að flytja úr landi með allt sitt hafurtaks, sem hvorki er fátt né smátt, þar sem hann er einn auðugasti maður landsins., Lotte Lenya látin Nýlega lézt í New Yorkborg leik- og söngkonan Lotte Lenya, 83 ára að aldri. Lotte Lenya varð þekkt á þriðja ára- tugnum fyrir túlkun sína á hlutverkum í leikritum Bertolts Brechts og náði hún heimsfrægð er kvikmynd var gerð eftir Ótrúleg frjósemi kúh verskrar móöur Kínversk stjórnvöld reyna aö berjast móti offjölgun í landinu með því að hvetja fólk til að eiga ekki meira en tvö börn. En ekki láta allir þegnar alþýðulýðveldisins það sér að kenningu verða. Að minnsta kosti ekki kona nokkur í Hei- iongjiang-fylki. Hún er orðin fimmtíu ogfimm ára gömul og ófrísk rétt einu sinni. Áður hefur hún átt sex sinn- urri þríbura, fjórtán sinnum tvíbura og þrettán sinnum bara svona eitt venjulegt barn. Þetta lásum við i norsku blaði, en seljum það ekki dýrar en við keyptum. Lotte Lenys: Þóttí frábœr Brecht- lelkkona. handriti Breachts aðTúskildingsóper- unni. Hún giftist tónskáldinu sem samdi lögin í Túskildingsóperunni, Kurt Weill, og flúðu þau saman frá Þýzka- landi undan nasismanum. Settust þau fyrst að í París en síðar í New York. Kurt Weill lézt árið 1950 en Lotte Lenya lék eftir það í mörgum eftir- minnilegum kvikmyndum, eins og t.d. Cabaret og From Russia with love. Sl. föstudagskvöld sýndi íslenzka sión- varpið leikrit Tennessee Williams, Vor j| Róm, þar sem Lotte Lenya fór m’eð hlutverk greifafrúar. VORUM AÐ TAKA UPP HANDUNNIN INDVERSK TEPPI Opið í öllum deildum: mánud,- miðvikud. 9-18, fimmtud. 9—20, föstud. 9-22 Jón Loftsson hf. __________________ og laugard. 9—16. Hringbraut 121 Simi 10600 JIB I E □ C D J JJ I LDLúCi ** «* m k i ** w •.* i * i k TEPPADEILD Þaö varheitti Evrópu og þvi eöiilegt að fólk vœri lóttklætt igöngunni. Friðarganganf81 sem rammi fyrir franska klámmynd Friðargangan 1981, sem vakti heimsathygli sl. sumar, hefur nú tekið á sig óvæntan blæ sem rammi fyrir franska klámmynd, Unaðssemdir í tjaldbúðum. Sýn- ir upphaf myndarinnar göngu- fólkið halda innreið sína í París með Búddamunka í fararbroddi. Annars eru aðalsöguhetjurnar frönsk hjónaleysi sem taka þátt i byrjun göngunnar, íklædd bað- fötum af smæstu gerð og með bakpoka. En ósköp leiðist þeim gangan. Hópurinn slær upp tjaldbúðum og sýnir það atriði raunverulegt göngufólk önnum kafið við að elda mat og undir- búa sigfyrir nóttina. Göngufólkið móða, frönsku hjónaleysin, bæta sér upp leið- indi dagsins með hugmyndarík- um kynmökum í tjaldi sínu. Daginn eftir ákveða þau að hætta þátttöku í göngunn, og halda áfram upp á eigin spýtur. Eftir það kemur gangan lítið við sögu og sver myndin sig í ætt við venjulegar klámmyndir. Frönsku kvikmyndatöku- mennirnir höfðu notfœrt sér sumarhitann í Evrópu og mynd- að friðargöngufólk léttklætt með aðdráttarlinsum. Lögðuþeir sérstaka áherzlu á að ná mynd- um af norrænum fegurðardís- um. Þátttakendur eru að vonum mjög óánægðir með þessa mis- notkun á friðargöngunni en ekki er talið að unnt sé að banna sýn- ingar á myndinni. Þetta tillegg friðargöngunnar til klámmyndaiðnaðarins upp- götvaðist ekki fyrr en myndin var sýnd í París. Var norskur stúdent á meðal sýningargesta og varð heldur betur undrandi er hann þekkti marga landa sína á meðal „leikenda". Lamparog gjafavörur ímiklu úrvafí Opið afía iaugardaga tiljóla Sendum í póstkröfu RAFBÚÐ VESTURBÆJAR SÓLVALLAGÖTU 27. - SÍM112470.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.