Dagblaðið Vísir - DV - 08.12.1981, Page 17

Dagblaðið Vísir - DV - 08.12.1981, Page 17
DAGBLAÐIÐ& VÍSIR. ÞRIÐJUDAGUR 8. DESEMBER 1981. 17 Nýjar bækur Nýjar bækur Nýjar bækur Hann hlaut að deyja Ný bók eftir Francis Clifford. Hörpuútgáfan á Akranesi sendir nú frá sér nýja bók eftir Francis Clifford og er það 14. bókin sem út kemur á ís- lensku eftir hann. Breskur kaupsýslumaður, Simon Loader, er að dauða kominn úr lungna- krabba. Hann yfirgefur fjölskyldu, vini og atvinnu og sest að á friðsælli eyju við strönd Spánar. Þar verða á vegi hans: launmorðingi, vændiskona, nautabani, nunna, prestur og mis- heppnaður lögregluforingi. Leiðir þessa sundurleita hóps þræðast saman með dularfullum hætti, uns kemur að örlagastundinni. „...Tveir þjóðvarðliðar birtust skyndilega í ljósgeislanum með riffla um axlir... Loader fann stingandi verk í brjóstinu. . . Skot sundraði framrúð- unni. Hendur hans hrukku af stýrinu. Bíllinn rann út af veginum. Loader var klesstur milli stýrisins, og hurðarinnar. Höfuðið hékk aftur, augun voru opin, varirnar hreyfðust ekki... „Enginn höfundur lýsir eins vel og Clifford samspili haturs og ótta, samúð og mannlegum tilfinningum... Mögnuð sp>ennubók... Stórkostleg.” — London Spectator. „Efnið tekur mann heljartökum.” — The Scotsman.” „Hraði og spenna frá fyrstu til síð- ustu blaðsíðu.” — The Times Literary Supplement. Bókin er 188 bls. Skúli Jensson þýddi bókina. Hún er prentuð og bund- in i Prentverki Akraness hf. Njósnanetið Ný bók eftir Gavin Lyall Komin er út hjá Hörpuútgáfunni á Akranesi ný bók eftir enska metsölu- höfundinn Gavin Lyall. Bókin heitir Njósnanetið og kom fyrst út í Bretlandi haustið 1980. Þetta er nútíma njósna- saga. Breska leyniþjónustan, CIA- njósnarar og KGB-menn eru á fullri ferð. Umsagnir um bókina: „Frábær njósnasaga.” — The Times „Ein af þeim allra bestu.” — Daly Telegraph. „Hjá Lyall er allt á fullri ferð.” — Punch. „Höfundurinn kann þá list að halda lesandanum i spennu.” — Daily Tele- graph. „Kaldrifjaðir njósnarar... vel smurðar skammbyssur.”— Evening Standard. Gissur Ó. Erlingsson þýddi bókina, sem er 204 bls. Hún er prentuð og bund- in í Prentverki Akraness hf. Prisma teiknaði kápuna. Sjómannsævi endurminningar Karvels ögmundssonar Bókaútgáfan örn og Örlygur hf. hef- ur gefið út bókina Sjómannsævi — endurminningar Karvels Ögmundsson- ar skipstjóra og útgerðarmanns, skráð- ar af honum sjálfum. Karvel Ögmunds- son er löngu landsþekktur maður, afla- sæll skipstjóri og dugmikill útgerðar- maður sem markað hefur spor sín I sögu sjávarútvegsins á íslandi. Hann er fæddur og uppalinn á Snæfellsnesi við kjör og kringumstæður sem eru svo ólíkar því sem fólk býr við í dag, að í raun tilheyrir saga bernsku hans og æsku fornöldinni til. í bók sinni segir Karvel frá hinni hörðu lífsbaráttu í æsku sinni, þar sem hver dagur var bar- átta fyrir því að hafa I sig og á, en samt sem áður undi fólk vel við sitt og not- aði stopular tómstundir sínar til margs- konar menningarstarfsemi, sem ekki var hvað síst fólgin í því að hinir eldri og reyndari miðluðu hinum yngri af reynslu sinni og þekkingu og sögðu þeim sögur liðins tíma. Karvel Ögmundsson hefur haft opinn hug og hann hefur gott minni, þannig að þær sögur og sagnir sem hann heyrði í bernsku komast óbrenglaðar til skila i bók hans, og að þeim er mikill fengur. Bókin Sjómannsævi er sett, umbrot- in, filmuunnin og prentuð í Prentstofu G. Benediktssonar, en bundin hjá Arn- arfelli hf. Kápa bókarinnar er unnin af Sigurþór Jakobssyni, og byggir hann ma. á mynd eftir Áka Gránz af hinu forna Brekknauppsátri á Snæfellsnesi. ERUN6POULSEN Tákn ásiarinnar Tákn ástarinnar eftir Erling Poulsen Hörpuútgáfan á Akranesi hefur sent frá sér nýja bók eftir danska rithöfund- inn Erling Poulsen. Bókin heitir Tákn ástarinnar og er 6. bókin i flokknum „Rauðu Ástarsögurnar”. Ást, spenna og leyndardómar ein- kenna sögur hins vinsæla danska höf- undar Erling Poulsen. Tákn ástarinnar er 200 bls. Skúli Jensson þýddi. Prent- verk Akraness hf. hefur annast prentun og bókband. Flýgur fiskisaga eftir Hrafn Gunnlaugsson Hrafn Gunnlaugsson hefur sent frá sér nýja bók — smásagnasafn sem hann nefnir Flýgur fiskisaga. Er þetta fimmta bókin sem út kemur frá hendi höfundarins. Smásögumar í bókinni eru tólf að tölu misjafnlega langar. í kynn- ingu bókarinnar segir m.a.: „Flýgur fiskisaga sver sig um margt í ætt við fyrri verk höfundarins, bæði fyrri skáldskap hans og kvikmyndir. Efniviðurinn er oftast hversdagslegur veruleiki, sem höfundur blæs lifi í með sínu sérkennilega hugntyndaflugi og skopskyni, stundum sannkölluðum gálgahúmor. Flýgur fiskisaga er pappírskilja 210 bls. að stærð. Bókin er unnin i ísafold- arprentsmiðju og útgefandi er Al- menna bókafélagið. Kaupmenn — Kaupfélög GLÆSILEGT ÚRVAL SPÁNSKRA LEIKFANGA ÆF ÆT UR STALI Á MJÖG HAGSTÆÐU VERÐI Línustýrður lögreglubíll með sírenu o.fl., 38 x 16,5 x20,5cm. Útsöluverð ca 395,- Ingvar Helgason Vbnarlandi iSogamýri 6 simi 33560 Varahlutaverslurv Rauöageröi Simar: 84510 & 84511 Línustýrður sjúkrabill m/sjúkrabörum o.fL, 38x16,5x21,5. Útsöluverð ca 579,- Fjarstýrður Mercedes, fjórhjóladrrfinn, m/ljós- um, 53 x25x26, cm. Útsö/uverð ca 1.285,- Línustýrð lest með sírenu o.fl.,56,5x39x9 cm. Útsöluverð ca 380,- Línustýrður SOS-hjálparbíll m/björgunarbáti, 38 x 16,5x21,5. Útsöluverð ca 579,- < Stórkostleg eldhús með öllum heimilis- tækjum, 65x37x29,5 cm. Útsöluverð ca 479,-

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.