Dagblaðið Vísir - DV - 08.12.1981, Síða 36

Dagblaðið Vísir - DV - 08.12.1981, Síða 36
íslenzkir eiturlyfjasjúklingar f Danmörku eru færri en talið var: HLBÚNIR AD TAKA FÓLKK) í MEÐFERÐ —segir Ólaf ur Ólafsson landlæknir „Við höfum enga staðfesta tölu um fjölda íslenzkra fikniefnasjúkl- inga í Danmörku en það er ljóst að þær sögusagnir sem gengið hafa um tugi eða hundruð manna eru ímyndun. Sumir hafa nefnt töluna tíu’ en það er engan veginn staðfestur fjöldi,” sagði Ólafur Ólafsson land- læknir i samtali við DV í morgun, en á vegum embættis hans hefur undan- farið farið fram könnun á þessum málum. Að sögn Ólafs er þétta liður í stærri athugun sem verið er að gera, að ósk forsætisráðherra, á fíkni- efnaneyzlu hér á landi og á skýrsla um málið að vera tilbúin öðru hvorum megin við áramótin. Er ljóst nú þegar að hún kemur til með að kalla á aðgerðir vegna þessara mála en ekki vildi Ólafur tjá sig um hverjar þær gætu orðið. „Þetta fólk sem verið er að tala um I Danmörku eru heróinneytendur og aðrir sem leiðzt hafa út í þyngri efni, vandamál sem við höfum ekki þurft að fást við hér ennþá. En ég tel það víst ef hópurinn er ekki stærri en þetta þá séum við tilbúnir til að taka við fólkinu og veita því þá meðferð sem til þarf á okkar geðsjúkrahúsum, Kleppi og Vífilsstöðum,” sagði Ólafur. Ekki vildi hann kannast við að Danir væru farnir að vísa þessu fólki gagngert úr landi nema þeim sem fengið hefðu á sig dóma og verið sendir heim samkvæmt læknisráði. Könnun landlæknisembættisins er unnin af Sigmundi Sigfússyni geð- lækni og Hauki Ólafssyni félags- fræðingi en þeir hafa leitað upplýs- inga og samráðs við dönsk félags- og heilbrigðisyfirvöld, auk þeirra íslenzku aðila sem hafa haft með þessi mál að gera í Kaupmannahöfn. -JB. Stúlkan komin til meðvitundar Unga stúlkan, sem varð fyrir likams- árásinni í Þverholti á föstudagskvöld er komin til meðvitundar. Líðan hennar er sæmileg eftir atvikum, samkvæmt upplýsingum, sem DV fékk á gjör- gæzludeild Borgarspítalans í morgun. Þórir Oddsson, vararannsóknarlög- reglustjóri rikisins, sagði i morgun að greiðlega gengi að yfirheyra árásar- manninn, Hallgrím Inga Hallgrímsson. Þórir vildi ekki tjá sig um andlegt ástand árásarmannsins, sagði það hlut- verk geðlækna. Á myndinni eru skúr- arnir við Þverholt þar sem stúlkan fannst aðfaranótt laugardags. Á inn- felldu myndinni er árásarmaðurinn, Hallgrimur Ingi Hallgrímsson, 28 ára gamall. Hann á lögheimili að Þverholti 18e. Árásarmálið í Þverholti: DV-mynd S/Innfellda myndin Mbl. Til ítarlegrar umræðu í útvarpslaganefnd: neiri en Ríkisútvarpið fái rétt til útvarps —verði ákveðnum skilyrðum fullnægt „Þetta er afar flókið mál og mikl- ar umræður hafa orðið í útvapslaga- nefnd hvort veita skuli öðrum aðilum en Rikisútvarpinu leyfi til útvarps- reksturs. Það hefur ennþá engin niðurstaða orðið varðandi þetta at- riði, en mikið verið um það fjallað,” sagði Markús Á. Einarsson, for- maður útvarpslaganefndar, sem menntamálaráðherra skipaði, er DV ræddi við hann í morgun. Markús skilaði stuttri yfirlits- skýrslu fvrir hönd nefndarinnar um störf hennar til menntamálaráðherra um sl. helgi og kemur þar m.a. fram að hún hefur komið saman 8 sinnum, en enn er geysimikið verk óunnið. Eins og kom fram hjá Markúsi hefur mikill tími hjá nefndinni farið í frum- umræður um rétt til útvarps. í yfirlitsskýrslu nefndarinnar segir m.a.: ,,í öðru lagi er til umræðu í út- varpslaganefnd að fleirum en Ríkis- útvarpinu verði veittur réttur til út-i varps að uppfylltum ákveðnum skil- yrðum.” Markús sagði að mikið væri enn óunnið en ljóst væri að nefndin myndistarfaötullegaáfram. -SSv. Srfálst, úháð dagblað ÞRIÐJUDAGUR 8. DES. 1981. SamningamáHn: Tíðirfundir en litlar fréttir Lítið þokast í samkomulagsátt hjá þeim félögum sem eftir eiga að semja. Fundur í deilu mjólkurfræðinga hefur verið boðaður klukkan tvö í dag hjá ríkissáttasemjara, en mjólkurfræðing- ar hafa boðað verkfall frá og með 14. des. Sjómenn koma til sáttasemjara klukkan 10 í fyrramálið og klukkan fjögur á morgun er boðaður fundur í deilu BHM og ríkisins. Viðræðunefndir BSRB og ríkisins hittast í dag og verður það annar fundur þeirra um samninga en deilu þeirra hefur enn ekki verið vísað til sáttasemjara. -KS. Nístingskaltáfram: Kufdinn kemur beint f rá norður- pólnum Ekkert útlit er fyrir að veður breytist mikið til batnaðar á næstu dögum. Bú- ast veðurfræðingar við kulda fram að helgi, ef ekki lengur. Guðmundur Hafsteinsson veður- fræðingur sagði í viðtali við DV í morgun, að þessi mikli kuldi stafaði af hvassri norðanátt. Bærist loftið beint frá norðurpólnum og suður með strönd Grænlands. Það væri því yfir ís alla leiðina til íslands, en næði aldrei í hlýjan sjó til að volgna svolítið. Sagðist Guðmundur óttast að kalt yrði í veðri fram að helgi, að minnsta kosti. Dagurinn í dag og á morgun yrðu trúlega hinir köldustu á þeim tíma, en engan veginn væri séð fyrir endann á norðanáttinni. -JSS. Loki Sagt er að fangar á Litla Hrauni sóu látnir horfa á sjónvarpið á hverju kvöldi og ku það vera liður í refs- ingunni. Iskalt Seven hressir betur.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.