Dagblaðið Vísir - DV - 19.12.1981, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 19.12.1981, Blaðsíða 2
2 DV — HELGARBLAÐIÐ — LAUGARDAGUR 19. DESEMBER 1981. Háskóla- kennarar búnirað fá þak yf ir höfuðið! Kennarar við Háskóla íslands hafa nú fengið þak yfir höfuðið fyrir mötu- neyti í hádeginu, tómstundastarf á kvöldin og ekki síst Háskólaklúbbinn, sem í rauninni varð til með þessari að- stöðu. Er þetta í fyrsta sinn sem há- skólakennararnir hafa samastað til þess að stinga saman nefjum í sínum hópi. Þeir kalla þessa aðstöðu Skólabæ, eftir samnefndu timburhúsi. Skólabær háskólakennara er í húsinu Suðurgötu 26, á miðhæð, en hinn eiginlegi Skóla- bær er lítið hús ofar í brekkunni. Bæði þessi hús fékk Háskólinn að gjöf fyrir nokkrum árum frá hjónunum Margréti og Jóni Ólafssyni hæstaréttarlög- manni. Margrét er nú látin, en Jón býr á efstu hæðinni í Suðurgötu 26. Skólabærinn á miðhæðinni hefur nú verið innréttaður til þeirra nota, sem áður er getið. Þar geta kennarar fengið léttar, heitar máltiðir í hádeginu, en ekki komast þó að nema 20—30 kenn- arar í hverju hádegi. Fastir kennarar við Háskóla íslands eru á hinn bóginn ná- lægt 180 talsins og stundakennarar eru nokkuð hundruð. „SÖNGVARAR ERU ALLTAF UNGIR" — Söngplata með Jóhanni Konráðssyni og Krisfni Þorsfeinssyni komin á markaðinn „Söngmenn eru alltaf ungir i anda, þeir eldast aldrei, þeir bara deyja,” sagði söngvarinn okkar þjóðkunni, Jóhann Konráðsson, á blaðamanna- fundi, þar sem kynnt var hljómplata hans og Kristins Þorsteinssonar, sem Tónaútgáfan á Akureyri hefur gefið út. Þeir léku á alls oddi á fundinum, Kristinn og Jóhann, og létu það ekkert á sig fá, þótt þeir eigi sam- eiginlega hátt í 140 ár að baki. Létu þeir sig ekki muna um að taka lagið fyrir blaðamenn og Kristinn lék undir. Á A-hlið plötunnar syngja Jóhann og Kristinn 9 lög við undirleik Guð- rúnar píanóleikara, dóttur Kristins. „Þessi lög voru tekin upp í Ríkisút- varpinu 1964, á meðan við vorum syðra á söngferðalagi með Geysi. Við notuðum tímann á meðan beðið var eftir ferð til Selfoss,” sagði Jóhann. „Við æfðum þessi lög hér heima og nutum til þess aðstoðar Guðrúnar dóttur minnar. Sungum við þessi lög á skemmtunum víðsvegar um Norðurland, bæði fyrir og eftir suðurferðina,” sagði Kristinn þegar hann minntist liðins tíma. „Ég sagði við Kristin: Nú notum við tímann og förum niður á Skúlagötu og syngjum fyrir útvarpið. Ertu vitlaus strákur, svaraði Kristinn, en við fórum nú samt,” sagði Jóhann og hló við, um leið og hann klappaði kumpánlega á öxlina á Kristni. Lögin sem Jóhann og Kristinn syngja hafa sum hver áður komið út á plötu, sem ekki hefur verið fáanleg undanfarin ár. Má þeirra á meðal nefna „Upp á himins bláum boga”, sem er titillag plötunnar og „Hrislan og lækurinn”, sem bæöi nutu og njóta enn mikilla vinsælda. Upplýsti Jóhann það á fundinum, að eitt sinn hefði hann sungið þetta ljúfa lag Inga T. Lárussonar við lækjarniðinn hjá hrislunni á græna balanum þar sem Páll Ólafsson kvað ljóðið forðum. Var Jóhann þá á ferð í Hallorms- staðarskógi til að syngja á skemmtun í Atlavík. ÁB-hlið plötunnar eru einsöngslög með Jóhanni. Eru það gamlar upp- tökur, þær elstu allt frá 1947. Tóngæðin eru ekki þau sömu og nú er. Þá var segulbandið ekki komið til, en þess í stað var söngur tekinn upp á þar til gerðar lakkplötur og allar að- stæður voru frumstæðar. „Hljóð- neminn stóð eins og djásn á miðju gólfi. Síðan prófuðu þeir sig áfram með hversu langt frá honum kæmi bezt út að ég stæði. Þegar það var fundið var sett hvítt strik á gólfið við tærnar á mér. Þar varð ég að gjöra svo vei að standa eins og negldur ogj mátti ekki líta til hliðanna á meðan á WöO IO MIKIÐ ÚRVAL, VERÐ OG TÆKI VIÐ ALLRA HÆFI ÁRMÚLA 38 (Selmúla meginl 105 REYKJAVÍK SÍMAR: 31133 83177 PÓSTHÓLF 1366 Mögulegt er að halda þarna fámenna fundi og sinna tómstundastörfum að kvöldinu, til dæmis að tefla og spila. Þá er Félag háskólakennara með opið hús síðdegis á fimmtudögum og föstu- dögum fyrir félagsmenn og gesti, og er þar kominn Háskólaklúbburinn. í þessum Skólabæ er einnig ætlunin að taka á móti gestum Háskólans við ýmis tækifæri. Nýjar innréttingar eru vandaðar. Húsgögn eru í bland gömul og ný. Má nefna birkistóla úr hátíðasal Háskól- ans, sem gerðir hafa verið upp og eru í einu herberginu. í annað herbergi er kominn einn af leðurstólunum úr búi Einars Benediktssonar skálds og er búið að gera þann stól upp. Þar koma önnur leðurhúsgögn úr bú: Einars, sem Háskólinn á, þegar lokið verður við að gera þau upp. Loks er að nefna að Listasafn Háskólans lánar myndir á veggina. Skólabær í Suðurgötu 26 var opn- aður í siðasta mánuði og ríkir ánægja með hann í röðum háskólakennaranna, þótt þeim finnist að vísu drjúgur spöl- urinn í hádegismatinn, að minnsta kosti í norðangarranum. Nafnið á hinum eiginlega Skólabæ er til komið vegna þess að næsta hús fyrir ofan hann var á sínum tíma Hólavalla- skóli. -herb. upptöku stóð,” sagði Jóhann, þegar hann rifjaði upp aðfarirnar, þegar söngur hans var fyrst numinn á hljómplötu. Þessar lakkplötur voru síðan spil- aðar aftur og aftur í Ríkisútvarpið, en þegar segulbandið kom til sögunn- ar var efnið fært af plötunum yfir á spólur. Nú er búið að koma söng Jóhanns af þessum böndum yfir á hljómplötu á ný. Jóhann var spurður hvernig það hafi borið til, að hann fórí fyrstu upptökurnar 1947. „Ég var nýkominn af sjónum þegar þetta var og byrjaður að syngja með Karlakór Akureyrar. Hafði ég notið tilsagnar hjá Sigurði Birkis, þeim elskulega og ágæta manni, sem opnaði mikið fyrir mér. 1947 fór ég suður með sr'. Pétri Sigurgeirssyni, núverandi biskupi, til að syngja þar á æskulýðssamkomum. Þórarinn Guðmundsson spilaði undir hjá mér á þessum samkomum. Að lokinni einni þeirra sagði hann við mig. „Nú fer ég með þig niður í útvarp strákur.” Er maðurinn orðinn vit- laus, hugsaði ég með mér, en undir niðri hafði ég náttúrlega gaman af þessu og fór í upptöku. í útvarpshús- inu kynntist ég mörgum ágætum drengjum, sem síðar reyndust mér vel,” sagði Jóhann. Fritz Weisshappel leikur undir hjá Jóhanni í þeim 8 íslenzku einsöngs- lögum, sem hann syngur á plötunni. Má þeirra á meðal nefna „Ætti ég hörpu” og „Vor” eftir Pétur Sig- urðsson og „Dísa” eftir Þórarin Guðmundsson. GS/Akureyri. ÞAU FARA VEL í HENDI ... Á sambyggðu útvarps- og segulbandstœkin frá JM.JL W W JTTL Suðurgata 26 er virðulegt þriggja hœð hús á horni Suðurgötu og Kirkjugarðsstlgs, við Gamla Kirkjugarðinn. Ofar i brekkunni, á bak við, er hinn eiginlegi Skóiabœr og þar ofar var Hólavallaskóli. Einn úr hópi háskólakennara, Gisli Jónsson prófessor, settist i leðurstól Einars Ben. fyrir okkur Eisismenn. Stól- arnir nœr voru áður í hátiðasal Háskóians. Þegar við Visismenn litum við I Skóla- bœnum í Suðurgötu 26 voru kennararað tínast að matarborði I hádeginu. Kunn andlit komin. (Visismyndir: GVA.) Krístinn og Jóhann tóku lagið fyrír blaðamenn ftWvoÖ440 ö880 A.iv''* CS<>b0

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.