Dagblaðið Vísir - DV - 19.12.1981, Page 3

Dagblaðið Vísir - DV - 19.12.1981, Page 3
DV — HELGARBLAÐIÐ — LAUGARDAGUR 19. DESEMBER 1981. 3 ; Wjm /' Nýkomin frá London og Miami þar sem hún var þátttakandi íkeppninni Miss World: VfÐ FÓRUM EKKERT NEMAÍFYLGD ÖRYGGISVARÐA segir Ásdís Eva Hannesdóttir sem nú er far'rn til Marokkó þar sem hún tekurþátt í Miss Nation „Þessi ferð veitti mér bæði þroska og reynslu og eins og allar stúlkur segja sem tekið hafa þátt í keppnum erlendis, þá ættu allar þær sem á annað borð eiga þess kost að fara i slíka keppni,” sagði Ásdís Eva Hannesdóttir sem nýlega er komin heim eftir þriggja vikna dvöl i London og á Miami sem fulltrúi íslands í keppninni Miss World. „Ég fór til London 20. október og var þar í þrjá daga.Við vorum þrjátíu stúlkur og gátum ráðstafað tíma ókkar þessa daga í London að vild. Þann 23. október héldum við síðan til Miami þar sem við vorum í níu daga. Tveir úr dómnefndinni voru með okkur um tima á Miami en annars gerðum við ekkert þar annað en að borða, sofa og sóla okkur. Það má því segja að dvölin þar hafi verið hvíld fyrir okkur. Það var ekki fyrr en við komum til London aftur sem við hittum dómara keppninnar og æfingar hófust. Annars var ekkert strangt prógramm. Við ferð- uðumst um London, skoðuðum söfn og merkilega staði. Allt tóku þátt í þessari keppni 67 stúlkur og var alveg sérstakt hve öryggis okkar var gætt. Til dæmis fórum við ekki út í sundlaug á Miami án þess að vörður fylgdist með okkur. Þannig gerðu forráðamenn keppninnar sér grein fyrir að allt gæti gerzt, en hægt væri að koma í veg fyrir það — sem gert var. Á Miami bjuggum við á lúxus hóteli og höfðum sér hluta hótelsins algjör- lega fyrir okkur. Enginn fékk að koma nálægt þeim hluta nema hann gæti sannað með skilríkjum að hann ætti erindi. Þessir sex dagar á Miami voru ósköp rólegir, einu sinni var haldið fyrir okkur kokkteilboð og ein sjón^ varpsupptaka var gerð. Það er mjög sérstök reynsla að vera allt í einu einn með svona fjölda fólks sem maður hefur aldrei fyrr séð. í raun myndast sérkennilegt samband og það sem mér kom mest á óvart var hve þess- ar stúlkur voru allar venjulegar. Úrslitakeppnin sjálf fór fram í Royal Albert Hall i London og áhorf- endur voru sex þúsund manns. Það sem kom ntér dálítið á óvart sjálft úrslita- kvöldið var að í 15 efstu sætunum voru aðeins þrjár stúlkur frá Evrópu. I efstu sætunum vorú stúlkur frá Suður- Ameriku og Ameriku og það var eins og dómnefndin væri alveg á þeirri línu. Ég var svolítið hissa á þessu, þvi einmitt stúlkur frá þessum löndum lögðu meiri tíma en evrópskar stúlkur í fatnað og „make up”. Þær voru eins og maður segir meiri „glamour”. — Hvað finnst þér eftirminnilegast? „Miss World keppnin er haldin ár hvert til styrktar fötluðum börnum. Áður en keppnin sjálf hófst fórum við í heimsókn til fatlaðra barna, gáfum þeim gjafir og héldum með þeim jóla- ball. Gleðin og einlægnin sem kom fram kom hjá þessu fólki var alveg sér- stök og mér meira virði en sú gleði sem ríkti á úrslitakvöldinu,” sagði Ásdís Eva. Hún hefur ekki alveg lagt fegurðar- samkeppnir á hilluna, því á laugardag hélt hún til Marokko og verður þar fulltrúi Íslands í keppninni Miss Nation. „Þetta er gömul keppni sem um árabil hefur legið niðri. Nú á að endurvekja hana og var Einari Jóns- syni boðið að senda stúlku. Hann bað mig um að fara og ég verð að viður- kenna að ég er að deyja úr spenningi. Ég hef aldrei fyrr komiö á þessar slóðir,” sagði Ásdís Eva. Hún er 23ja ára gömul, starfar hjá Frjálsu framtaki í auglýsingadeild ásamt fleiru en í fyrravetur nam hún viðskiptafræöi I Háskóla íslands. ,,Ég geymdi mér námið í vetur vegna þess- ara ferðalaga en er staðráðin í að hald þvi áfram næsta vetur. í tómstundum sýnir Ásdís Eva með Módel 79 og við spyrjum I lokin: Ef hún ætti þess kost að starfa við sýningarstörf erlendis, hvað gerði hún þá? „Ef ég fengi gott tilboð sem mér fyndist áhugavert þá myndi ég örugg- lega fara út og prófa,” sagði Ásdís Eva Hannesdóttir, sem nú dvelst I Marokkó. Kynningartilboð iNIIKKO NP-800 PLÖTUSPILARI • Quarts hraðalæsing • Hraðafínstilling • Alsjálfvirkur • Léttarmur • Stýringar fyrir utan lok • Fínstillimöguleikar arms • Góð einangrun frá umhverfi NA-300 MAGNARI • 2 x 30 vött RMS 20-20.000 Hz 8ohm • Tengimöguleikar fyrir plötuspilara, 2 segulbönd, útvarp, sjónvarp + video, 4 hátalara • Háþróuð mögnunarrás NT-500L ÚTVARP • 3 bylgjur, FM/LW/AM • Mjög skýr stereómóttaka á FM bylgju • Leiðbeiningarljós fyrir nákvæma innstillingu ND-300 SEGULBAND • Léttir snertitakkar fyrir stýringu • Gert fyrir allar tegundir kassettna, Normal, FeCr. Cr02, Metal • Vægisstilling fyrir upptöku • Dolby suðhreinsikerfi • Ljósmælar fyrir stillingu upptökustyrks NIKKO NP-800 ................................... 3.250,00 NIKKO NA-300.................................... 1.980,00 NIKKO NT-500 ................................... 2.575,00 NIKKO ND-300. ................................. 3.270,00 11.075,00 Staðgr. afsl. 776,00 Staðgr. verð 10.299,00 Allt settið Professional BETA-20 FORMAGNARI • Innbyggður formagnari fyrir MC-pickup • Viðnámsveljari fyrir plötuspilarainngang • Hámarksbjögun 0,004% (mm phono) • Suðhlutfall 86 db (MM phono) • „ultra low noise FET inngangsrás" EQ-20 TÓNSTILLIR • 2x10 tiðnibönd • + — 12 db styrkbreytimöguleikar • Inngangs-styrkstillir • Tengimöguleikar og valrofi fyrir segulband ALFA-220 KRAFTMAGNARI • 2 x 120 vöttRMS 20-20.000 Hz8ohm • „DC servo non switching kraftmögnun" • Hámarksbjögun 0.008% • Suðhlutfall 115 db NIKKO BETA-20 2.650.00 NOKKO EQ-20 2.560.00 NIKKO ALPHA—220 5.175.00 Staðgreiðsluafsl. 10.385.00 727.00 Staðgreiðsluverð 9.658.00 STERK) TRYGGVAGÖTU - SÍMI 19630 -ELA.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.