Dagblaðið Vísir - DV - 19.12.1981, Qupperneq 5

Dagblaðið Vísir - DV - 19.12.1981, Qupperneq 5
DV — HELGARBLAÐIÐ — LAUGARDAGUR 19. DESEMBER 1981. 5 brögð, gerði ég þau hörmulegustu mis- tök, sem mér hafa orðið á. Ég trylltist og öskraði: ,,Ef þú tekur heróín, vil ég aldrei hafa neitt saman við þig að sælda. Þá máttu fara til fjandans fyrir mér og ég vil aldrei sjá þig framar. Að svo mæltu rauk ég beint út á dansgólf- ið. Ég hafði farið bandvitlaust að. Ég hefði umfram allt ekki átt að haga mér eins og sirkus-fífl, heldur tala við hann í rólegheitum, strax og við værum orð- in ein, því að þá hlustaði hann á það sem ég sagði. Helst af öllu hefði ég heldur ekki átt að skilja hann eftir ein- an, því að hann var þegar þrælvímað- ur, þegar hann var að tala við skvísuna. Aðeins tveim til þrem tímum síðar sagði mér einhver, að Detlef hefði verið að enda við að sprauta sig ásamt besta vini sínum. Þeir höfðu ekki einu sinni byrjað á að sniffa, heldur undir eins tekið sprautuna. Ég sá Detlef síðar um nóttina. Hann brosti til mín eins og úr fjarska og virt- ist mjög hamingjusamur. Hann hafði ekki einu sinni lengur neina þörf fyrir að tala við mig. Ég fór heldur ekki til hans. Þetta var enn ömurlegri nótt en þegar ég missti Adda. Detlef var horf- inn inn í annan heim, sem ég tilheyrði ekki. í einu vetfangi, vegna einnar ein- ustu sprautu áttum við ekkert sameig- inlegt lengur. Ég hélt áfram að stunda Soundið. Brátt hafði Detlef eignast nýja vin- konu. Hún hét Angi og var ljót og kuldaleg. Ég fann þó að ekkert var á milli þeirra, því að Detlef talaði eigin- lega aldrei við hana. En hún var heró- ínisti eins og hann var orðinn. Oft kom Detlef til mín, en var mér framandleg- ur. Oftast þurfti hann þá á einhverjum smápeningum að halda. Hann var þá að skrapa sér saman fyrir sprautu, og ef ég átti peninga, þá gaf ég honum eitt- hvað smávegis. Sunnudagsmorgnarnir, þegar ég sneri heim, voru mjög dapurlegir. Ég dróst örmagna á brautarstöðina og hugsaði: „Hvers konar viðurstyggð er þetta ailt saman?” Ég gerði mér enga grein fyrir neinu lengur. Ég vissi ekki til Lögregluherferð á járnbrautarstöðinni við Dýragarðinn, „Bahnhof Zoo”, þeim stað er börnin í bókinni eru kennd við. hvers ég var að fara í Soundið, hvers vegna ég pumpaði í mig deyfily fjum, en ég vissi heldur ekki, hvað annað ég gat gert, ég vissi yfirleitt ekkert. Hassið gaf mér ekki mikið lengur. Þegar ég var steind af dópi, einangraðist ég og gat ekki talað við neinn. En einhvern veg- inn varð ég þó að hafa samneyti við aðra, fyrst ég hafði ekki Detlef lengur. Svo að ég tók stöðugt meira af pillum. Einn laugardaginn þegar ég átti pen- ing og nóg var af pillum á markaðnum, fór ég yfir markið. Þar sem ég var venju fremur dauf : dáikinn, skolaði ég niður 2 captagon, 3 ephedrin, ásamt tveim koffein-töflum. Þegar mér fannst ég orðin alltof æst og upprifin gleypti ég mandrax og einhvern helling af valium í viðbót. Ég veit ekki hvernig ég komst heim það kvöld. Á leiðinni frá brautarstöð- inni heim til mín hrundi ég saman. Ég skreið að tröppum fyrir framan verslun eina, og þar dró ég mig saman í kút. En einhvern veginn hóf ég mig upp á lapp- irnar og stefndi á næsta punkt tii að styðja mig, frá Ijósastaur að næsta tré og aftur að næsta ljósastaur og þannig koll af kolli. Þetta var endalaus leið og ég hugsaði, að ef mér tækist ekki að komast heim, þá myndi ég deyja. Verstur var verkurinn í brjóstinu. Það var eins og einhver væri að bora í hjart- að á mér með sverði. Um morguninn, sem var mánudag- ur, tókst mömmu ekki að vekja mig og þegar hún kom úr vinnunni um kvöld- ið, Iá ég enn hreyfingarlaus í rúminu. Hún neyddi ofan í mig hunangi. Fyrst á þriðjudagseftirmiðdaginn gat ég staðið á fótunum. Ég sagði mömmu, að ég væri með flensu og kransæðakrampa. Ég sagði henni líka að aðrar stelpur í mínum bekk hefðu fengið svona krans- æðakrampa, og læknar hefðu sagt að það væru eðlileg einkenni á gelgju- skeiðinu og stafaði af of örum vexti. Fg vildi ekki undir nokkrum kringum- stæðum, að mamma færi að sækja lækni, því að ég óttaðist, að hann fyndi út hvað að mér gengi. Mamma sótti heldur engan lækni. Hún virtist alltaf gerasig ánægða með skýringar mínar. Glæsilegar jólagjaf ir í f skódeild okkar voru að koma hinir glæsilegu SIMONA SKÓR FRÁ ÍTALÍU Glæsilegustu skór er hér hafa sézt á markaðinum, númer 36 Daglega koma fram nýjar gerðir af KVENSKÓM í númer 37 1/2 frá Austurríki og Þýzkalandi. Geysilegt úrval af KULDA- STÍGVÉLUM í númer 37 1/2 HLÝ OG FALLEG STÍGVÉL Á GÓÐU VERÐI Jólagjöfin í ár er tvímælalaust TÖLVUSEÐLAVESKIN vinsælu 3 GERÐIR 3 LITIR PRESIDENT SKRIFBORÐSMÖPPURNAR úr þykku mjúku skinni TÖLVA FYLGIR HVERRI MÖPPU Einstök jólagjöf Geysilegt úrval af SEÐLAVESKJUM, SEÐLABUDDUM og BUDDUVESKJUM VANDAÐAR JÓLAGJAFIR Á GÓÐU VERÐI Gott verð — glæsilegt úrval Góð þjónusta Póstsendum um land allt Við fáum enn nokkrar sendingar af töskum frá LADY F (merki) fyrir jólin GLÆSILEGUSTU OG VÖNDUÐUSTU TÖSKURNAR Á MARKAÐINUM GLÆSILEG JÓLAGJÖF PÖKKUM TÖSKUNUM í JÓLAPAPPÍR EF ÞÉR ÓSKIÐ NÝ SENDING AF ÍTÖLSKUM KVENTÖSKUM ÚRVAL AF ÞVÍ BEZTA SEM FRAMLEITT ER Á ÍTALÍU ENN- FREMUR MIKIÐ ÚRVAL AF ÍTÖLSKUM KVÖLD- TÖSKUM GLÆSILEGAR TÖSKUR Á GÓÐU VERÐI ÓTTIZT EKKI VETRARKULDANN LEÐUR- HANZKAR FYRIR KONUR OG KARLMENN Mjög glæsilegt úrval PRJÓNAHANZKAR í VETRAR- KULDANUM, PRJÓNAHANZKAR FYRIR BÖRN OG UNGLINGA

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.