Dagblaðið Vísir - DV - 19.12.1981, Page 9

Dagblaðið Vísir - DV - 19.12.1981, Page 9
9 JÓNDAlSr \m Spellvirki Kr. 197.60 Ný skáldsaga eftir Jón Dan. Raunsönn, spennandi, um eitt af brýnustu vandamálum samtimans. Unglingur við erfiðar' aðstæður og misrétti beittur lendir í hræðilegum vanda þegar hann missir stjórn á sjálfum sér á örlagastund — og fremur spellvirki. En hvaðer til ráða? DV — HELGARBLAÐIÐ — LAUGARDAGUR 19. DESEMBER 1981. Almenna Austurstræti 18, sími 25544. Skemmuvegi 36, Kópavogi, sími 73055. LögregkisQörí á stríðsárunum Kr. 345,80 Rekur minningar Agnars Kofoed-Hansens um Etríðsárin og jafnframt sögu lögreglunnar í Reykja ík, erfiðasta tímabilið. , tökin er framhald minningabókarinnar Á brattann I979. Hún hefst með Þýskalandsdvöl Agnars sum- arið 1939, þegar veldi nasistanna stóð sem hæsl. Agnar var þar I boði sjáffs Himmlers til að búa sig undir lögreglustjórastarfið. Eftir að Agnar hafði verið lögreglustjóri í nokkra mánuöi er landið her> numiö, og vandamálin hrannast upp. Árekstrar við herstjórnina út af lögbrotum hermanna; átök við hermennina sjálfa, oft vopnaða; vandamál út at vændi stúlkubarna I herbúðunum, og þannig mætti lengi telja. Þarverpr hvítur öm Kr. 234,65 Ný skáldsaga eftir Guðmund Hagalin. Fjörleg frásögn, snilldarleg samtöl og umfram allt kimni eru einkenni þessarar bókar. Hagalín bætir enn við þann fjölskrúðuga persónugrúa sem hann er búinn að lýsa á 60 ára ritferli. Hér er það Hregg- viður sóknarnefndarformaður, kona hans Arnkatla og skozki presturinn sem risa upp af blaðsíðunum í fullu fjöri, og auk þess margar aukapersónur. Sagan gerist á stríðsárunum, fólkið er farið að hugsa nokkuð nútimalega. SVEND OITO S. Risafiskurínn wo _ Kr. 59,30 eftir Svend Otto S. Svend Otto S. er i hópi kunnustu teiknara og barna- bókahöfunda á Norðurlöndum. Hann er orðinn vel þekktur hér af bókunum Mads og Milalik og Helgi fer í göngur. I þetta sinn snýr Svend Otto S. sér að Færeyjum. Sagan Risafiskurinn fjallar um tvo drengi sem lenda i ævintýrum bæði á sjó óg landi. Kr. 185,25 Skáldsaga eftir nýjan höfund, Gisla Þór Gunnars- son. Sagan fjallar um jafnaldra höfundarins, unglinga, fyrst hér á lslandi og siðan vestur i Bandaríkjunum, Islenskur drengur dvelst nokkra afdrifaríka mánuði vestur i Bandarikjunum. Hann kynnist mörgum unglingum, sem hver hefur sin sérkenni og sín vandamál. Einn þeirra er Maria. Hún vill allra vandræði leysa og á þó sjálf við margt að striða. Haustijóó Kr. 284,05 Ný Ijóðabók eftir Kristmann Guðmundsson. í til- efni af átttæðisafmæli Kristmanns Guðmundsson- ar gefur Almenna bókafélagið út nýja Ijóðabók eftir hann. Nefnist hún Haustljóð og er gefin út i 300 eintökum sem öll eru tölusett. Haustljóð eru alls 42 að tölu um margs konar efni og i margs konar formi — allt frá lausavisum til prósaljóða. Don Kíkóti Kr. 247,00 eftir Cervantes komin út á islensku i þýðingu Guó- bergs Bergssonar. Don Kikóti er eins og kunnugt er einn af dýrgripum heimsbókmenntanna — sagan um vindmylluridd- arann sem gerði sér heim bókanna að veruleika og lagði út í sina riddaraleiöangra á hinu ágæta reið- hrossi Rosinant ásamt hestasveininum Sansjó Pansa til þess að frelsa smælingja úr nauðum, — leita sinnar ástmeyjar og eyjarinnar fyrirheitnu. Fimmtán gírar áfram Kr. 271,70 Saga af Pétri á Hallgilsstöðum og öðrum brautryðj- endum eftir Indriða G. Þorsteinsson. Það var á þeim árum, þegar bilstjórarnir voru hálf- gerðar þjóðhetjur, gengu með svartar gljáskyggnis- húfur með gylltum borða og hölluðu þeim glanna- lega út í hægri vangann. En þrátt fyrir sjálfsöryggi á ytra borði áttu þeir verstu trúnaðarmál við bila sina búna lélegum teinabremsum, harla viösjár- verðum á mjóum og snarbröttum malarvegum og vegleysum. Tveggja bakka veður Kr. 179,00 Ný Ijóðabók eftir Matthías Johannessen. Litrík, fjölbreytt og fögur. Matthias ber hátt i hópi íslenskra Ijóðskálda. Þó hefur hann aldrei verið betri en nú. Risafiskurinn Gísí Þcx Gunnarsson KÆRLEIKSBLÓMID Kæríeiksblómið Flýgur fiskisaga Kr. 185,25 eftir Hrafn Gunnlaugsson. „Flýgur nskisaga” sver sig um margt í ætt við fyrri verk höfundarins, bæði fyrri skákiskap hans og kvik- myndir. Efníviðurinn er oftast hversdagslegur veru- leiki, sem höfundur blæs lífi í meðsínu sérkennilega hugmyndaflugi og skopskyni, stundum sannköll- uðum gálgahúmor. SKRIFAÐÍ SKYIN A JÓHANNESR SNORRASON 31 nýtt sönglag eftir Atla Heimi Sveinsson komin út á nótum hjá Almenna bókafélaginu. Höfundur annaðist sjálfur nótna- og textaritun, káputeikningu o.fl. öll eru þessi lög samin við islenska texta eftir kunna og ókunna höfunda. Bókin skiptist i fjóra kaíla sem nefnast: I. Barna- gælur, 2. Nútímaljóð, 3. Gamansögur, 4. Aukalög. Skrífað í skýin Kr. 296,40 Æsku- og flugsaga Jóhannesar R. Snorrasonar flugstjóra, rituð af honum sjálfum. Jóhannes R. Snorrason býður okkur fram i flugstjórnarklefa. Og það er ekki einn flugstjórnarklefi, heldur margir, og .við fljúgum ýmist í sólskini eða kolsvörtum skýjum og illviðrum. Nú er flugtæknin háþróuð, en í upphafi flugferils Jóhannesar var hún það ekki. Þá var flugið ævintýri likast. ÓLAFUR THORS MATTHIAS JOHANNESSEN Úlafur Thors Kr. 592,80 d Ljóðakorn Kr. 123,50 blkiqiA yeouR „Hinn pólitíski sjarmör” i minningu margra, ekki siður andstæðinga en samherja, og ýmsir töldu hann snallasta stjórnmálaforingjann á Norður- löndum um sina daga. Hann var mjög ákveðinn og harður baráttumaður þegar þvl var að skipta, og samtímis dáður langt út fyrir raðir eigin flokks og átti nána vini í hópi þeirra sem hann þurfti mestvið að kljást. Ólafur Thors var i forustusveit islenskra stjórnmála þann aldarþriðjung sem viðburðarikast- ur hefur orðið í íslandssögunni. Bókin byggir mjög á heimildum frá honum sjálfum, þ.e. einkabréfum og minnisblöðum hans sjálfs og hefur fasst af þvi komiö fyrir almenningsjónir. föSgyö--JÓHANNES HELGl LÖGREGLUSTJÓRI Á STRÍÐSÁRUNUM MJNNINGAR AGNARJ KOfOED-IiANSEfiS SÉRHVER ÞJÓÐ HEFUR ÞÁ STJÓRN SEM HÚN VERÐSKULDAR.; SÁSEM GETUR FRAMKVÆMIR SÁ SEM EKKERT GETUR.KENNIR.*^ Krístallar Kr. 284,05 Filvitnanir og fleyg orð i samantekt séra Gunnars Árnasonar. Kristallar — tilvitnanir og fleyg orð er safn snjallyrða og frægra ummæla frá ýmsum timum og viðsvegar að úr heiminum. Bókina munu sumir vilja lesa í einni lotu. Aðrir munu vilja nota hana sem uppflettirit og er efninu þanníg sk/pað að hún er hentug til þerira nota. LJÓÐ HANDA HINUM (XI ÞESSUM SNEINBJORN l. BALDVINSSON Ljóðhanda hinum og þessum Kr. 1353,85 eftir Sveinbjörn I. Baldvinsson. Sveinbjörn er sérstætt skáld, yrkisefni hans fjöl- breytt, Ijóðin hnitmiöuð og allt tekið föstum tökum. Þessi Ijóð eru ort bæði hérlendis og erlendis, fjalla um það sem fyrir augun ber, en eru siður en svo nein naflaskoðun. Yfirbragð þeirra er fjörlegt og um þau hríslast glitrandi klmni. Náttúra íslands Kr. 345,80 er heildarlýsing á náttúru landsins. Hún fjallar um myndun landsins og jarðfræði þess, jaröeldasvæði á nútíma, jarðhita, hagnýt jarðeTni i landinu, veður- far, vatnsorku, jarðveg landsins og gróður, dýralif á landi og lifið i sjónum. Höfundar ritsinseru eftirfarandi visindamenn: Bjarni Helgason, jarðvegsfræðingur, Eyþór Einarsson, grasafræöingur, Freysteinn Sigurðsson, jarðfræðingur, Guðmundur Kjartansson, jarðfræðingur, Helgi Björnsson, jöklafræðingur, Hlynur Sigtryggsson, veðurfræðingur, Ingimar Óskarsson, grasafræðingur, Ingvar Hallgrimsson, fiskifræðingur, Ingvi Þorsteinsson, náttúrfræðingur, Jón Eyþórsson, veðurfraíðingur, Jón Jónsson, jarðfræðingur, Leifur Á. Símonarson, jarðfræðirtgur, Sigurður Steinþórsson, jaröfræöingur, Sigurður Þórarinsson, jarðfræðingur. Sigurjón Rist, vatnamælingamaöur, Sveinbjörn Björnsson, eölisfræðingur, Tómas Tryggyason.jarðfræðingur, Trausti EinarsSon, jarðeðlisfræðingur, Unnsteinn Stefánsson, haffræðingur. Fyrsta útgáfa Náttúru Islands kom út fyrir 20 árum. Siðan hefur fjölmargt gerst i þessum fræðum og nýjar rannsóknir leitt nýja vitneskju i Ijós. Af þeim ástæðum er þessi önnur útgáfa bókar- innar mjög breytt og aukin frá fyrri útgáfu, og hafa sumir höfundar skrifað ritgerðir sínar að nýju, aðrir bætt við fyrri ritgerðir, og auk þess eru hér nýjar rit gerðir um efni, sem ekki var fjallað um í fyrri útgáf- unni, svo sem flekakenninguna, jarðskjálfta á ís- landi og eyðingu gróðurs og endurheimt. Fæst hjá næsta bóksala

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.