Dagblaðið Vísir - DV - 19.12.1981, Qupperneq 10
DV — HELGARBLAÐIÐ — LAUGARDAGUR 19. DESEMBER 1981.
rrÞaö er margsannaö má! að nautgripk, tem settír erutMekHs ofungir, fæöa yfírieitt afsór mjög smá og iéleg afkvæmi..
Þau voru ólík svörin og ráðlegging-
arnar sem gefin voru ungum og
saklausum um kynferðismál á
Viktoriutímabilinu. Það var ekkert verið
að skafa utan af hlutunum eða velta
þeim fyrir sér. „Einu sinni i viku er yfrið
nóg”, var móttó þess tíma.
Hér á eftir fara nokkrar spurningar og
svör sem út komu á prenti i lok nítjándu
aldarinnar og áttu að fræða fólk um allt
sem lyti að mismun kynjanna og
kynferðismálum.
Sp. Dóttir mín er farin að velta þvífyrir
sér hvernig börnin verða til.
Hvernig á ég að útskýra það fyrir
henni?
Sv. Leitaðu til náttúrunnar. Sagan um
býflugurnar og blómin ætti að leiða
hana í allan sannleika.
Sp. Hvernig má þekkja að karl og konu?
Sv. Stærðarmunur er óbrigðull. Konan
erminni en karlinn.
Sp. Er líka munur á viðbeininu?
Sv. Já, reyndar. Viðbeinið er styttra á
konunni. Þess vegna getur hún til
dæmis ekki hent bolta af eins mikilli
nákvæmni og karlmaðurinn.
Sp. Eru taugar og veftr konunnar einnig
frábrugðnir?
Sv. Mjög svo. Vefijykarlmannsins hafa
mun.. meiri tilhneigingu til að
breytast en hjá konunni. Kona er
að allri gerð mun hæglátari og ró-
legri en karlmaður.
Sp. Ber það ekki augljóst vitni um
föllun kvenna að heili þeirra skuli
vera léttari en karlmanna?
Sv. Á þvi leikur enginn vafi.
Rannsóknir hafa leitt í Ijós að
heilinn kemur konunni að litium
notum í samanburði við
karlmanninn.
Sp. Er þá konan ekki algjörlega háð
karlmanninum, bceði andlega og
líkamlega?
Sv. Um þetta munu víst flestir vera
sammála. Yfirburðir karlmannsins
eru slíkir miðað við vanmátt
konunnar, að þessu verður aldrei
breytt, þrátt fyrir tilraunir einhvers
í þá átt.
Sp. Er hœgt að skýra muninn á aðdrátt-
arafi karla og kvenna.
Sv. Það er mjög einfalt mál Konur
virka að visuniut meira aðlaðandi .1
yngri árum en persónulegir töfrar
þeirra fölna mjög fljótt. Karimenn
aftur á móti halda sínum töfrum á
öllum aldursskeiðum. Ef konan nyti
ekki þess lagalega öryggis, sem
hjónabandið veitir, hefði þetta
sennilega þær afleiðingar að fæstar
gætu haldiö t karla sína til lengdar.
Sp. Dœtur mínar eru mjög hrifnar aj
lestri alls kyns ástarlýsinga og
rómana. Getur þetta fýtt fyrir
líkamlegum þroska þeirra?
Sv. Þvi miður, já. Slíkur lestur æsir upp
viðkvæmustu líffæri stúlkna og
veldur því að þær taka út
kynþroska mun fyrr en ella!
Sp. Ættu þœr stúlkur sem óska eftir að
gifta sig, að sleppa allri menntun og
þeim áhrifum sem henni fylgia? Og
œttu þœr sem krækja sér i þekkingu
að láta allar hugleiðingar um hjóna-
band lönd og leið?
Sv. Almennt svar við báðum þessum
spurningum er já. Þær stúlkur sem
eðlilegar eru og vilja giftast ættu að
foröast allt bókagrúsk og minnast
þess að móðurhlutverkið er hið
*' irfju Clf¥ | y usn 'IKUi SNI rn ELIb
\ \ Viðhorf til kynlffs og mismunar kynjanna hafa gjörbylst á einni öld
Sp. En yngra fólk, stafar því líka hœtta
afþessu?
Sv. Já. Fyrir um fjörutíu árum var vitað
um dreng sem hreinlega sturlaðist
vegna verknaðar síns og hefur verið
á geðveikrahæli siðan.
Sp. En eru ekki hendurnar skapaðar til
að nota þær?
Sv. Jú, en þetta er hæpin röksemd. Án
handanna gæti víst enginn farið i
stríð, drepið mann eða spillt sínum
eigin likama. Það er þó engin
afsökun.
Sp. Ég hef freistast til holdlegra maka
við konuna sem ég œtlaði að
kvænast. Er mérstætt á að halda á-
fram með þær áætlanir?
Sv. Nei, engan veginn.Hverniggeturðu
ætlast til eftir slíkt athæfi að konan
geti virt þig og elskað, manninn sem
dró hana á tálar. Jafnvel þó þú
hyggist kvænast henni. Og hvernig
ætlar þú að nokkrum árum liðnum
að horfast í augu við börnin ykkar,
þú sem spjallaðir móður þeirra, blá-
saklausa. Einnig er hæpið að ætlast
til að konan yrði þér trú, eftir að þú
sjálfur hefur leitt hana á glapstigu.
Sp. Unnusta mín vill endilega að við
giftumst strax, þó við séum bæði
mjög ung. Getur það ekki haft
alvariegar afeiðingar fyrir
væntanleg börn okkar?
Sv. Jú, þaðer margsannað mál til dæmis
að nautgripir sem settir eru til eldis
of ungir, fæða yfirleitt af sér mjög
smá og léleg afkvæmi. Nákvæm-
lega það sama á við mannfólkið.
Sp. Er það rétt að konur geti ekki notið
kynlífs?
Sv. 1 flestum tilfellum er það, já, þær
eru einfaldlega ekki skapaðar með
slíkt fyrir augum.
Sp. Ég óltast mjög að konan sem ég
œtla að kvænast vilji ekki eignast
börn, heldur líti aðeins á hjóna-
bandið sem löglega blessun yfr
holdlegt samband okkar. Er slíkt
forsvaranlegt?
Sp. Nei, þú átt þá kröfu á hendur konu
þinni að hún beri þér börn, elski
þau og annist. Því miður er það æ*
algengara að konur vilji hvítþvo
vergirni sína með hjónabandi, en
ungur maður sem er í slíkum hug-
leiðingum ætti ekki að taka þetta í
mál.
Sp. Valda tvíbreið rúm ekki óþarfa álagi
á taugarnar?
Sv. Jú, læknar hafa sýnt fram á að fólk
sem sefur í sama rúmi er mun æst-
ara kynferðislega og nær ekki að
hvílast sem skyldi. Ekkert rúm er
því nógu stórt fyrir 2 manneskjur.
Sp. Það virðist virka mjög örvandi á
konuna mína aö sofa uppi í rúmi
hjá mér, en að sama skapi dregur
það úr öllum krafti hjá mér. Hvað á
égaðgera?
Sv. Fáðu þér annað rúm strax. Það er
mjög algengt að annar aðilinn þoli
ekki það álag sem sameiginlegri
rekkju fylgir og hreinlega ofgeri
þrótti sínum.
æðsta hér i heimi. Hinar aftur á
móti sem velja skólagöngu verða
hreinlega að sætta sig við þessa
andlegu fötlun sina og taka út
hegninguna sjálfviljugar.
Sp. Getur sjálfsfróun komið niður á
konum síðar á ævinni?
Sv. Svo sannarlega. Eitt dæmi get ég
nefnt um mjög vel gefna og
ráðvanda konu, sem hreinlega dó af
völdum þess. Sjálfsfróun var orðin
svo mikill vani hjá henni aö hún
hafði algjörlega misst vald á sjálfri
sér. Að lokum gafst heilinn upp
undan þessu mikla taugaálagi.
Sp. Er forsvaranlegt að konur haf
frumkvæðið l kynlífl?
Sv. Þessi hugmynd er blátt áfram
hræðileg. Konan á aldrei að láta
langanir sínar í Ijós að fyrra bragði,
heldur bíða þess að karlmaðurinn
segi til.