Dagblaðið Vísir - DV - 19.12.1981, Side 12
12
DV — HELGARBLAÐIÐ — LAUGARDAGUR 19. DESEMBER 1981.
Ekki er annað sýnna en hljómplötur verði í býsna mörgum
jólapökkum um þessi jól, enda hefur verð á hljómplötum
sjaldan eða aldrei hin síðari ár verið jafnhagstætt. Úrvalið af
plötum er geysilcgt og myndi æra óstöðugan á augabragði að
telja upp alla þá titla sem á boðstólum eru í verslunum; skipta
þeir jafnvel þúsundum. Margir eiga erfitt með að velja plötur
til jólagjafa og er það mæta vel skiljanlegt, smekkur fólks er
jú ákaflega mismunandi og þó ýmsir telji popp hugtak yfir
dægurtónlistina í dag og þar af leiðandi sé heiglum meira að
segja hent að velja plötu i pakka poppunnandans er slíkt firra
hin mesta. Popptónlistin er svo fjölskrúðug að val á plötum
fyrir þann sem kýs að hlusta á popp i góðu tómi getur einmitt
verið fjarska erfitt. Til þess að að veita örlitla hjálp velur
Helgarpoppið í dag nokkrar bitastæðar plötur fyrir poppunn-
endur eftir þvi hvaða stefnur innan poppsins það aðhyllist.
Tekið skal skýrt fram til að fyrirbyggja ailan misskilning að
plöturnar sem nefndar verða eru aðeins brot af því besta að
dómi undirritaðs, auk þess sem minnið kann að svikja oft og
liggja þá góðar plötur utangarðs, en við því er ekkert að gera.
Við skiptum plötunum i eftirtalda hópa: milt rokk (soft-
rock), bárujárnsrokk (hard-rokk), nýrómantískt rokk
(futuristic), kántrirokk, fönk- og soul, nýbylgjurokk, rokka-
billírokk, ska- og reggae, jólarokk og óflokksbundið rokk.
Engir mjúkir pakkar
Milt rokk
eruanrh
eru báðar með „BEST OF” plölur á
jólamarkaðinum. Hér má loks bæta
við plötuni „MICHAEl.
SCHENKER GROHP” með
samnefndri hljómsveit.
nteð betri íslenzkum plötimhin
(soft-rock)
Þetta er auðvitað einkar teygjan-
legt hugtak og margar plötur sem
geta flokkast undir þetta heiti. Ég kýs
að nefna fyrst einhverja bestu isl.
plötuna sem út hefur komið síðustu
ár, TASS, Jóhanns Helgasonar.
Platan er tekin upp i Bandaríkjunum
með fulltingi Jakobs Magnússonar
og koma margir kunnir hljóðfæra-
leikarar við sögu, auk þess sem Jói er
aldeilis í essinu sínu og útkoman eftir
þvi. Plata Gunnars Þórðarsonar,
HIMINN & JÖRD, c-r milt rokk eins
og það gerist hugljúfast, vandaðar
útsetningar, góður söngur og gríp-
andi laglinur einkenna plötuna.
Aðrar íslenskar plötur sem rétt þykir
að geta hér eru MANNSPIL Guð-
mundar Árnasonar, plata fyrir vísna-
vini og þá sem unna baiiöðum og
tærum hljóm, og LITLI MEXÍKAN-
INN hennar Kötlu Maríu, sem ungir
poppunnendur munu margir kjósa
sér um þessi jól. Af útlendum plötum
er nóg að taka.
GREATEST HITS með Qtteen er
góður gripur, svo og BEST OF
BLONDIE með samnefndri hljóm-
sveit, en báðar þessar sveitir hafa
verið firna vinsælar um árabil.
Nefna má og plðturnar LAW AND
ORDER nteð Lindsey Buckingham
úr Fleetwood Mae, BELLA DONNA
með söngkonunni Stevie Nicks úr
sömu hljómsveit, TATTOO YOU
með gömlu kempunum í Rolling
Stones, THE INNOCENT á6e nteð
Dan Fogelberg, PIRATES hennar
Rickie Lee .lones, hljómleikaplölu
Bill Joels, SONG IN THE ATTIC”
EAST SIDE STORY með bresku^
hljómsveilinni Squeeze og LIVING
EYES, nýjuslu afurð Gibb-bræðr-
anna í Bce Gees.
Bárujárnsrokk
(Hard-rokk)
Bárujárnsrokkið, eða gaddavirs-
rokk eins og aðrir nefna það,
hefur verið á mikilli uppleið siðustu
misserin. íslendingar eiga nú tvær
nafntogaðar hljómsveitir sem leika
bárujárnsrokk, Start og Egó fyrr-
nefnda hljómsveitin hefur gefið úl
: breiðskífuna „. . EN HUN SNYST
NÚ SAMT” og hún er nefnd hér
; fyrst enda þarfaþing i plötusafni
' bárujámsrokkarans. Ein skærasta
f hljómsveit í þessum flokki er AC/DC
!og nýja platan hennar heitir „FÓR
THOSE ABOUT TO ROCK” og
ætti að vera komin í búðir fyrir jól.
„ESCAPE” með Journey kom út í
haust og hefur verið við topp banda-i
ríska listans síðan og sömu sögu er aði
segj af „4” fjórðu plötu Foreigner.'
Saxon hljómsvietin breska er
nýkomin út með plötuna „DENIM
& LKATHER” og Rainbow og Rush
Nýrómantískt
rokk (fururist)
Engin stefna i dægurtónlist hefur
aukið fylgi sitt jafnmikið og
nýrómantíska rokkið eða tölvupopp-
ið. Lítið hefur verið farið inn á þessar
brautir hér heima enn sem komið er,
þó fiktar Jóhann Helgason við
þennan stíl i laginu „Take Your
Time”. Af útlendum hljómsveitum
ber einna hæst í tölvupoppi OMD og
plötu hennar „ARCHITECTURE &
MORALITY". Einnig er vert að
vekja athygli á poppaðri nýróman-
tískri ...jómsveit, Human League, og
plötu hennar „DARE”. Þá er
nýkomin plata frá hljómsveilinni
Japan, „TIN DRUM” og safnplata
frá sömu hljómsveit, einkar áheyrileg
„ASSEMBLAGE”. Einn af
forsprökkum hjá „futuristum” er
Gary Numan og síðasta plata hans
kom út fyrir skömmu og kallast
„DANCE”. Annar frumkvöðull er
John Fox og er auðvelt að mæla
með plötu hans „THE GARDEN”
fyrir áhugasama nýrómantikkera.
Loks má geta plötunnar „FOR FUT-
URE REFFERENTS” með
Dramatis.
Kántrírokk
Margir Islendingar hafa verið
hrifnir af sveitasöngvum sem flestir
hafa átt rætur sínar að rekja til
Bandaríkjanna. Kántrítónlist er ekki
sérstaklega áberandi í dægurtónlist-
inni i dag, en ef vilji er fyrir því að
gefa góða kántríplötu er valið auðvelt
fyrir þessi jól, því plata Elvis Cost-
ello, „ALMOST BLUE”, getur ekki
talist annað en góður kostur. Willie
Nelson hefur gefið út plötuna
„GREATEST HITS ^ND SOME
THAT WILL BE”, titill sem skýrir
sig sjálfur og þarf ekki fleiri orð um
hana. Unga kántrísöngkonan Juice
Newton kemur glettilega á óvart með
fyrstu plötu sinni „JUICE” og Eddie
Rabbits platan síðasta „STEP BY
STEP” er hentug fyrir þá sem kjósa
poppað kántrirokk. Loks má geta
safnplötunnar „COUNTRY SUN-
DOWN” sem þykir standa öðrum
slíkum gripum framar.
Fönkog souli
Fönktónlistinni verðu trauðla lýst
í fáum orðuni, en allir kannast við
Mezzoforte og þá eru menn nokkru
nær um heitið. Nýjasta breiðskífa
Mezzoforte „ÞVÍLÍKT OG ANNAÐ
EINS” er einkar vönduð og ljóðræn
plata tekin upp í Lundúnum nýverið
og má hiklaust fullyrða að strákarnir
ungu i Mezzoforte haft ekki í annan
tíma verið betri. Útlendar fönk- og
soulplötur eru mýmargar, önnur
plata bresku piltanna í Linx, „GO
AHEAD”, er glettilega góð og
nýjasta breiðskífa Earth, Wind &
Fire „RAISE” hefur fengið mjög
góða dóma. Aðrar kunnar
hljómsveitir á þessum buxum eru t.d.
Kool & the Gang með nýju plötuna
„SOMETHING SPECIAL” og
Commodores með plötuna ,,1N THE
POCKET”. „PRIVATE EYES”
plata bandaríska dúettsins Daryl Hall
& John Oates gæti einnig flokkast
undir fönk og þá er aðeins ógetið
plötunnar „CRAZY FOR YOU” frá
djassistanum Earl Klugh.
Nýbylgjurokk
Þetta er nú vandræðaorð raunar
og ólikar tónlistarstefnur flokkast
hér undir. Af íslenskum
nýbylgjuplötum kemur nýja Þeys
platan mér fyrst i hug,
MJÖTVIÐUR MÆR sem er önnur
breiðskífa hljómsveitarinnar og sýnir
í raun hvers hún er megnug.
Purrksplatan nýja flokkast hér líka,
enda erfitt að finna annan bás
hentugri fyrir hana, — platan heitir
EKKI ENN og hljómsveitin fullu
nafni Purrkur Pillnikk. Grýlurnar,
fyrsta raunverulega rokkhljómsveitin
sem eingöngu er skipuð stúlkum,
sendi um daginn frá sér fjögurra laga
plötu sem heitir GRÝLURNAR og
ekki er langt um liðið frá því svana-
söngur Utangarðsmanna kom á
breiðskífunni í UPPHAFI SKYLDI
ENDINN SKOÐA. Sólóplata Bubba
Morthens PLÁGAN er svo auðvitað
í fullu gildi. Af útlendum nýbylgju-
hljómsveitum nefni ég fyrst Ádam
og maurana og glænýja plötu þeirra,
„PRINCE CHARMING,,, sér-
kennileg en grípandi tónlist eins og
vinsældir Adams í Bretlandi segja
nokkuð til um. Police gaf út fyrir
skömmu eina af eftirminnilegri
plötum ársins, „GHOST IN THE
MACHINE”. Pretenders er i miklu
uppáhaldi hjá mér og platan
„PRETENDERS II” vísiterar
plötuspilarann reglulega og ekki má
gleyma Au Pairs og plötunni
„PLAYING WITH A DIFFERENT
SEX” einni af betri plötum þessa
árs.
Rokkabillírokk
Rokkabillítónlist hefur fengið
nýja vængi síðustu misserin með
Stebba hristingi og öðrum ungum
mönnum, sem sækja efnivið sinn
aftur til Presley-áranna þegar rokkið
og hillbillítónlist gengu í eina sæng.
Shakin’ Stevens er eldklár á sínu
sviði, um það vitnar „SHAKY” ein
mest selda útlenda platan á þessu ári
hér heima. Stray Cats hinir banda-
rísku gefa Stebba lítið eftir og spáný
breiðskífa Flækingskattanna
„GONNA BALL” er rumpufrísk.
Og Matchbox láta gamanið hreint
ekki kárna eins og þeir vita sem séð
hafa þessa sprellfjörugu pilta í
Broadway undanfarið, nýjasta plata
þeirra heitir „FLYING COL-
OURS”.
Ska og Reggae
Eins og þessar tvær tónlistar-
stefnur hafa verið áberandi siðustu
tvö árin vekur það óneitanlega
nokkra athygli hversu fáar plötur í
þessum flokki eru á boðstólum fyrir
þessi jól. Margar helstu ska-hljóm-
sveitir Breta hafa snúið upp tánum,
en Madness er enn fislétt og
fönguleg, nýjasta plata hennar „7”
er ótvírætt besta plata Madness til
þessa. Bad Manners leikur líka ska-
tónlist af miklu fjöri í plötunni
„GOSH IT’ S” og í reggaetónlist er
matarmesti bitinn örugglega nýja
breiðskífa UB40 „PRESENT ARMS
IN DUB”.
Jólarokk
Allmarga íslenskar plötur hafa
komið út fyrir þessi jól með söngvum
sem tengjast jólahátíðinni. Má meðal
annars nefna plötu Fóstbræðra MEÐ
HELGUM HLJÓM, jólasöngva
Jóhanns Helgasonar á plötunni
Nálgast lífsglöð jóla læti, Við jóla-
tréð, plötu Gunnars Þórðarsonar og
fleiri, og Jólaboð, plötu frá Hauki
Morthens. Kántrísöngvararnir
Kenny Rogers og Anne Murray hafa
sent frá sér sinn hvora jólaplötuna og
Bruce Springsteen hefur einnig áamt
fjölmörgunt öðrum kunnum
rokkurum sent frásér jólaplötu.
Óflokksbundið rokk
Mýmargt í rokktónlist verður ekki
flokkað með góðu móti í einn
ákveðinn bás. í þeim „flokki” er
tilaðmynda tónlist Friðryks á
plötunni FRIÐRYK sem út kom fyrir
skemmstu. Hér má einnig nefna
plötu Grahams Smith, MEÐ
TÖFRABOGA þar sem nafntoguð
íslensk dægurlög fá afbragðs
meðferð hjá þessum snjalla
fiðluleikara. Enn er ógetið sólóplötu
Björgvins Gíslasonar, GLETTUR
auk ótölulegs fjölda af allra handa
safnplötum.
-Gsal.
Gunnar Þórðarson — „Himinn & Jörð” hefurfengið afburða-
góðar viðtökur.