Dagblaðið Vísir - DV - 19.12.1981, Page 15

Dagblaðið Vísir - DV - 19.12.1981, Page 15
DV — HELGARBLAÐIÐ — LAUGARDAGUR 19. DESEMBER 1981. Sérstæð ástamál Sérstæð ástamál 15 érstæð ástamál Þessar myndk aru sagðar vara úr svokallaðrí „blárrí" kvik- mynd, an sfíkar naðanjarðarkvikmyndir hóklu oft á tíðum fíf- inu í allslausum smástímum í Holtywood á meðan baðið var eftír stóra tækifærinu. Marilyn á að hafa/eikið íþassari mynd Winters á mynd af vísindamanninum en á hana hafði hann ritað: „Með ást, virðingu og kærum þökkum fyrir allt.” Hjónasængin Fyrsti elskhuginn sem Marilyn gat valið sér sjálf var iþróttastjarnan Joe DiMaggio. Hann var hin dæmigerða bandaríska hetja, frægastur leikmaður þjóðaríþróttar Ameríkana, kýlubolt-' ans. Hann hafði rétt sagt skilið við íþróttina 37 ára gamall en var enn upp á sitt besta og saman voru þau glæsilegt par. Ekki mátti á milli sjá hvort var vinsælla með amerísku þjóðinni. Nú virtist allt ætla að ganga Marilyn í haginn. Meira að segja birting gamall- ar nektarmyndar sem Marilyn hafði setið fyrir á og birtist á dagatali á árum áður jók heldur vinsældir hennar en hitt. Marilyn var í sjöunda himni. Allt hafði ræst sem hana hafði dreymt um. Hún var fræg, dáð, rik, elskuð og ham- ingjusamlega gift. En þvi miður gegndi ekki sama máli um eiginmanninn. Hann hafði skömm á Hollywood. Hat- aði kyntáknsímynd konu sinnar. Hann var af gamla skólanum og vildi hafa Sína konu sjálfur. Stolt hans sem hús- bóndans á heimilinu var sært og hafði hann allt á hornum sér. Hann jafnvel ofsótti samstarfsfólk Marilyn og flæmdi það frá henni. Sér í lagi virtist leiklistarkennari Marilyn fara í taug- arnar á DiMaggio. Kennarinn Natasha Lytess borgaði fyrir sig með því að lýsa yfir í heyranda hljóði að Marilyn geðj- aðist betur að sínum eigin kynsystrum en einhverjum íþróttatörfum. Það leið ekki á löngu þar til ljóst var að eitthvað yrði að láta undan. Hjónabandið brast. í síðustu örvæntingarfullri tilraun til þess að fá Marilyn til að falla frá skiln- aðarkröfunni. fékk DiMaggio vin sinn Frank Sinatra til þess að fara með sér og ryðjast inn í íbúð leiklistarkennar- ans þegar þær Marilyn voru þar saman. Á þann hátt hugðist hann kúga Marilyn til áframhaldandi sambúðar við sig en fletta ella ofan af ástarsambandi hennar við Natöshu. Hvort um raun- verulegt ástarsamband var að ræða á mögru órunum um 1946. milli kvennanna fæst aldrei upplýst þvi Sinatra og DiMaggio brutust inn í ranga íbúð. Marilyn var nú farið að leiðast hlut- verk heimsku kynæsandi ljóskunnar. Hún vildi að aðdáendur hennar gerðu sér grein fyrir og viðurkenndu að hún hefði fleira til að bera en lostafullan likama. Um þessar mundir fluttist hún frá Hollywood til austurstrandarinnár. Þar endurnýjaði hún kynni sín við leikrita- skáldið Arthur Miller. Hann hafði ekki farið dult með aðdáun sína á Marilyn og loksins fannst henni hún hafa fundið mann sem hefði áhuga á henni sjálfri en ekki aðeins likama hennar. Ekki spillti það fyrir að Arthur Miller var jafnþekktur og virtur meðal bandarískra menningarvita og DiMaggio var í íþróttaheiminum. Þau giftust árið 1956. Meðal almennings voru þau kölluð gyðjan og gáfnaljósið. Hér fylgir lýsing einkaþernu Marilyn frá þessum hjúskaparárum hennar og virðist sú ekki hafa verið par hrifín af stjörnunni. Á milli þess. sem Marilyn sótti leiklistartíma og heimsótti sál- fræðinginn sinn lá hún yfirleitt alein í risastóru svefnherbergi sínu sötrandi kampavín, blaðrandi í símann, eða þá að hún hlustaði á plötur með Frank Sinatra á meðan hún dáðist að nöktum líkama sínum í einhverjum af hinum mörgu speglum sem í herberginu voru. Henni þótti líka gaman að glenna sig framan í mynd sem hún átti af Joe DiMaggio í fullri líkamsstærð innan á einni af skáphurðunum í herberginu. Venjulegar umgengnisvenjur voru ekki í hávegum hafðar. Marilyn var sífellt að ropa og leysa vind og lét sig engu skipta þótt til heyrðist. Hún baðaði sig eins sjaldan og hún gat mögulega komist upp með, en gerði sér þá fyrir- höfn að lýsa á sér kviðhárin. „Ég vil vera ljóska innst sem yst,” er eftir henni haft. Af þessu litunarstandi fékk hún igerð í kynfærin æ ofan í æ. Engan átti hún undirfatnaðinn. Hún nærðist í rúminu og þurrkaði sér jafnt um hendur sem annars staðar á sængurföt- unum. Aldrei fékk þernan að skipta um sængurfatnað eftir að þau hjónin höfðu haft samfarir. „Mig langar til þess að liggja í þessu allan daginn,” var :Marilyn vön að segja. Þó svo Marilyn væri sæl með sig og bónda sinn í upp- hafi fór nú að halla undan fæti. Hún missti fóstur tvisvar, þrátt fyrir að hafa gengist undir erfiða skurðaðgerð til þess að fá þar bót á. Þunglyndi sótti á hana í kjölfar fósturmissisins. Síðustu kvikmyndir sínar lék hún undir miklu álagi. Þær voru einnig mjög dýrar í framleiðslu því Marilyn var alltaf of sein eða jafnvel fjarverandi þegar mynda átti. Hún átti í sífellt meiri örugleikum við að fá fullan svefn og hóf að taka mikið magn svefn- og ann- arra lyfja. Oftar en einu sinni var það Miller sem forðaði henni frá því að taka inn of stóran skammt af lyfjum og forðaði henni þannig frá bráðum bana. Eftir að þau höfðu unnið saman að gerð myndarinnar The Misfits skildu hjónin, sama dag og Kennedy tók við forsetaembættinu. Aðrir rakkjunautar Marilyn var nú orðin 35 ára og skelfdist tilhugsunina um að verða gömul. öryggisleysið sótti að henni á nýjan leik og leit hennar að einhverju eða einhverjum sem gæti sannfært hana um að hún væri enn elskuð og dáð varð æ tryllingslegri. Hún átti ást- arævintýri með franska leikaranum Yves Montand sem frægt varð og það var sem heimurinn hryndi þegar hann lýsti því opinberlega að það hvarflaði ekki að honum að skilja við konu sína Simone Signoret fyrir Marilyn. í kjöl- far þessa ástarævintýris kom síðan fjöldi elskhuga. Þar á meðal var leikar- inn og kvikmyndastjarnan Frank Sinatra. Þeirra samfarir voru með slíkum ágætum að Marilyn var farin að láta sig dreyma um hjónaband. Þá kynnti Sinatra hana fyrir Kennedyfjöl- skyldunni. „Hvernig litist ykkur á mig sem for- setafrú,” sagði Marilyn eitt sinn í vina- hópi. Þá stóð hún í ástarsambandi við John F. Kennedy. Hún keypti sér hús í Los Angeles. „Það er í alla staði betra en að þurf að hanga í einhverju hótel- herbergi og bíða þess að hans heilag- leika Kennedy þóknist að láta sjá sig. Við gerum hvort öðru gott og ég er holl fyrir bakið á honum,” sagði hún einu sinni. „Hann liggur á því og ég á honum.” Kennedy þótti gaman að káfa á henni og kreista í fjölmenni en brá þó heldur betur í brún þegar hann eitt sinn renndi hendinni upp undir pilsfald hennar og komst að því að hún var ekki í neinum nærfötum. Samband þeirra þróaðist svo að Kennedy sá sér ekki annað fært en losa sig við Marilyn. Hún var farin að hringja í hann í tíma og ótíma og hafði þann ósið að skjóta upp kollinum þar sem hennar var síst von. Eins og í 45 ára afmæli forsetans þegar hún birtist allt í einu í miðri veislu og stal senunni með því að syngja „Hann á afmæli i dag”. Kennedy varð skelfingu lostinn vegna þess umtals sem samband þeirra gæti leitt af sér og sá að við svo búið mátti ekki standa. Hann losaði sig við hana á þann hátt að koma henni yfir á bróður sinn Róbert. Sama kvöldið og þau voru kynnt hvort fyrir öðru áttu þau sam- farir í bíl fyrir utan hús eitt sem Kennedyarnir voru með gleðskap í. Enn á ný dreymdi Marilyn um hjóna- barid en þegar hún færði það í tal var Bobby fljótur að sparka henni. Þá hót- aði Marilyn að, kalla saman blaða- mannafund og fletta ofan af þessu helv. . . Kennedypakki. í kjölfar þess fannst hún látin í rúmi sínu eftir að hafa tekið of mikið magn svefnlyfja. Morð eða sjálfsmorð? Lengi lék grunur á að hún hefði verið myrt og leikur jafnvel enn. Að öllum líkindum er þó sjálfsmorðskenningin líklegri. Elskhugarnir vörpuðu henni frá sér hver af öðrum. Kvikmyndaframleið- andinn rak hana frá hálfnaðri mynd (vegna lélegrar mætingar) og vina- hópurinn þynntist stöðugt. Svo virtist sem enginn vildi neitt með hana hafa að gera. Marilyn sá fram á að aldurinn færðist yfir hana. Vinsældir hennar myndu dvína og hún yrði ein og yfir- gefin. Auðveldasta undankomuleiðin var sjálfsmorð á meðan að hún væri enn elskuð og dáð af einhverjum. Því virðist svo sem að Marilyn Monroe, konan sem allir þráðu að elska, hafi dáið af því að enginn elskaði hana. Nýjar vörur frá ‘GDIb Clinvm’ nýkomnar Munið okkar vinsœlu gjafakort sem gilda í öllum deildum OPIÐ DEILDUM KL 10 i KVÖLD NÝJAR VÖRUR I ÖLLUM DEILDUM MATVÖRUR FATNAÐUR HÚSGÖGN BYGGINGAVÖRUR TEPPI RAFTÆKI RAFLJÓS REIÐHJÓL Ótrúlega hagstæðir greiðsluskilmálar á flestum vöruflokkum. Allt niður í 20% útborg- un og lánstími allt að 9 mánuðum. JIB Jóla sveinamir verða í JL-húsinu frá kl. 3—4 í dag Jpn Loftsson hf. HHngbraut 121 Simi 10600

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.