Dagblaðið Vísir - DV - 19.12.1981, Síða 25

Dagblaðið Vísir - DV - 19.12.1981, Síða 25
DV — HELGA@*AÐIÐ — LAUGARDAGUR 19. DESEMBER 1981. Bráðum koma blessuð jólin, ein> og skrattinn úr sauðarleggnum. Ég hef aldrei getað skilið fylliiega hvaða þörf sé á öllum þessum gjafaskiptum, matarveislum, krossferðum presta í blaðagreinum, auglýsingaherferðum og fleiru, þótt ekki sé talað um heilagt þrugl um furðufugla svo sem Jesúm, jólasveina og stjórnmála- menn. Til hvers er þetta allt saman? Jólavertíðin kemur yfir mig eins og köld vatnsgusa, hún virðist alltaf vera of snemma á ferðinni. Og svo loks, þegar menn hafa skipst á gjöf- um og borðin svigna undan krásum, er það vinsælt ádeiluefni manna á milii að spyrja hver hafi eiginlega verið tilgangurinn með þessu öllu, hver hafi hleypt öllu þessu af stað? Var það íhaldssemi gamla fólksins eða samsæri kaupmannanna? Og af hverju fer sumt fólk að hópast i kirkju sem virðist skinheilagt á öðrum tímum árs? Eru jólin hámark skinhelginnar og hræsninnar og yfir- borðsmennskunnar, eða eitthvað meira? En loks er eins og það renni einhver friðsæll höfgi á mann þegar fram kemur að nýári, og maður finnur að öllu óðagotinu og fuminu og fjaðrafokinu hefur þrátt fyrir allt tekist að endurvekja í hjarta manns hlýhug gagnvart gömlu lyginni um fæðingu Krists. Og maður verður var við að hlý bræðrabönd hafa myndast undir niðri, sem ná ekki aðeins til vina og vandamanna, heldur jafnvel til stríðandi kaupmanna, íslendinga allra og sveltandi fólksins í vanþró- uðu löndunum. Og manni finnst að þessi hugarfarsbreyting hefði ekki mátt vera neitt seinna á ferðinni, annars hefði skammdegisþunglyndið látið lífsbaráttuna okkar breytast í borgarastríð, þegar menn einangruð- ust frá náunga sínum í myrkrinu. Krossför klerkastóttarinnar Það eru margar hliðar á þessari furðuhátíð sem spekúlera má í yfir jólaglögginni, svo sem að fleiri ágætismenn en Jesús Jósefsson eru sagðir fæddir þá t.d. Maó formaður. Og ekki gleyma menn þá að forn- íslendingar, sem og aðrir ókristilegir heiðingjar, fundu einnig þörf hjá sér til að láta borðin svigna undir kræsingum, þegar sólin var sem lægst álofti. Það er eins og jólin veki fyrst og fremst umtal um trú. Er það kannski vegna þess að prestastéttin, sem hefur obba atvinnu sinnar af kristilegum tyllidögum, hefur gert jólin að einum af aðalkrossferðatímum sínum inn i hugi sóknarlambanna? Og skiptir það raunverulega máli til að menn fái notið jólanna, hvort menn trúi á guðdómleika Jesús Krists eða á eilíft líf? Eða er það bara náunga- kærleikurinn sem er nauðsynlegur? Ég held að svarið sé að ef menn hefðu nægan náungakærleik, nægi- lega mikið traust á sjálfum sér og öðrum, þá þyrftum við eiki áróður klerkastéttarinnar við á jólunum. En þegar menn taka að veikjast í trú sinni á sjálfan sig og samlanda sína, þá er gott að njóta stuðnings presta- stéttarinnar, sem færa okkur stuðn- ing úr annarri átt. Það er mikill styrkur að þeir skuli gera þetta fyrir okkur nokkrum sinn- um á ári, og eru þeir skattgreiðendum því sennilega betri fjárfesting en jóla- gjafirnar sjálfar. Vaxandi gjá milli al- mennings og prasta Það er vel hversu litið fer fyrir heil- agri vandlætingu af hálfu presta í blaða- og útvarpspistlum sínum, því það sýnir að þeir skilja að djúpt bil er komið á milli upplýsts almennings annars vegar og hefðbundins kreddu- fasts kristindóms hins vegar: Fólk nú til dags fer sjaldan í kirkju, nema á tyllidögum, og þegar það fer að ótt- ast ellina og dauðann. Flestir virðast trúa fyrst og fremst á sjálfa sig og náungann; kirkjan og hennar kreddur eru álfka gleymdar og islend- ingasagnasafnið skrautbundna uppi í bókahillunni. Svo var þó ekki um síðustu alda- Rabbad yfir jólaglögginni Huröaskellir ogStúfurlitli mót. Þá fóru menn flestir til messu vikulega og vissu því álíka mikið um Biblíuna og við mundum vita um íslendingasögurnar ef við færum í vikulegan fyrirlestur um þær. Nú kunna hins vegar fæstir trúarjátning- una. Þess vegna hlýtur mörgum trú- ræknum manni að finnast að all- flestir Íslendingar séu ekki kristnir. Villuráfandi sauflur Ég rak sjálfan mig á þetta bil milli trúaðra og okkar hinna, og ég held að mín reynsla sé dæmigerð fyrir margan Íslending. Ég vil þvi rekja nokkur persónuleg dæmi um trúmál. Ég var kristnaður án mins sam- þykkis eða vitundar, þegar ég var aðeins nokkurra mánaða gamall. Þegar ég fermdist lærði ég Faðirvorið og fleira og tókst að trúa flestu af því sem presturinn kenndi til fermingar, enda var ég allur af vilja gerður til að þóknast hinum full- orðnu. Þó fannst mér ekki að ég myndi geta drukkið messuvínið, að því mér virtist það of lygilegt að vínið gæti táknað blóð Krists. Ég kom þeim mótmælum því á framfæri, og presturinn svaraði því aðeins sem svo: „Það er allt í lagi, lagsi, þetta sýnir bara að þú hefur hugsað um málið, og það er ærið nóg.' ’ Ég hélst því formlega I Þjóðkirkj- unni, þótt ég drykki ekki messuvínið. Ári síðar var ég hættur að hugsa um trú, enda þá fyrst farinn að hugsa sjálfstætt eftir að fermingu lauk. Mun svo vera um flesta. Ég hafnaði öllum kristnikreddum sem ólíklegum af því þær virtust ekki vera í neinu samhengi við skólanámsefnið. Auk þess hafði ég enga innri trúarþörf þótt ég væri hugsjónamaður mikill. í menntaskóla fann ég til vissrar öfundar 1 garð þeirra sem virtust hafa dýpri sannfæringar en ég um til- veruna, hvort heldur sem það voru eftir Tryggva V. Líndal marxistar eða einhverjir trúarhópar. Mér varð ljóst að það er eins með að vera trúhneigður eins og að vera list- hneigður; maður er meiri andans maður fyrir vikið. Síðan komu háskólaárin, erlendis. Ég lærði mannfræði, sem er fag sem er eins andstætt trúarkreddum og hugsast getur. Ég gat því ekki sætt mig við neitt nema mannlegu hliðina i trúarbrögðum fólks sem ég kynntist þá, svo sem kaþólikkum, hindúum og múhameðstrúarmönnum. Helst gat ég fellt mig við Stóuspeki Róm- verja, sem fjallaði mestmegnis um skyldur embættismannsins við sjálf- an sig og aðra í þessu lffi. Það var ekki fyrr en að loknu háskólanámi að mig fór að langa til að trúa á framhaldslíf. Þegar viljinn var nú einu sinni fyrir hendi, þá reyndist mér unnt að finna átyllu fyrir trú á æðri máttarvöld og fram- haldslif. Mér sýnist að þegar maður er á annað borð orðinn trúhneigður, þá geti hann farið að trúa næstum hverju sem hann vill, með tímanum. Sem betur fer tekur sllk hugarfars-| breyting þó langan tíma fyrir mig sem1, flesta. Mér hefur verið tjáð af fleiri en einum íslenskum guðfræðinema, að ég geti ekki talist trúaður i þeirra augum, þar eð ég trúi ekki sérstak- lega á Krist o.fl. Samkvæmt þeirrá mati væri flest ungt fólk hérlendis ókristið, og þvi einnig ótrúað. Mestu máli held ég þó að skipti, að menn trúi á einhverja æðri forsjón, og að sú trú sé fær um að endurvekja jákvæða afstöðu manna til lífsins þegar illagengur. Persónuleg leit að svari Nú hef ég drepið á hlutverk trúar- innar á jólunum og vaxandi trúleysi íslendinga. Hvað trúleysi snertir má reyndar segja að fólk á Vesturlönd- um sé almennt að verða fráhverfara hefðbundinni trú. En stærstu vanda- mál lífs og dauða leysast ekki, nema þá ef til vill með trú, svo fólk leitar enn til hennar, þótt í breyttri mynd sé. Til dæmis er stærsta spurning lífsins kannski staðreyndin um dauð- ann. Hvernig á að fylla upp í það ginnungagap? Flestar þjóðir leysa þann vanda með því að trúa á fram- haldslíf. Það nútímafólk sem getur það ekki reynir að gleyma sér í tiltrú á menn og málefni samtímans, fortíðar eða framtíðar. Slíkt gengur því mis- vel, enda eru menn misjaínlega úrræðagóðir við að finna persónulegt svar við þeirri eyðileggingu sem nútímatækni og vísindi hafa valdið á hinum hefðbundna trúarheimi okkar. „Æ horfir gjöf til gjalda" Hvernig mundi mannfræðingur skýra það fyrirbæri sem jólin eru? í fyrsta lagi er hér um að ræða eina af hinum árvissu samkomum þjóð- félagsins, þar sem böndin við helstu hefðir þjóðfélagsins eru treyst. Og meginhefðirnar eru þær sömu bæði innan og utan fjölskyldunnar; þær felast í þeim böndum sem við köllum stundum bróðurlegan kærleik. Þessi bönd þarf að treysta við og við, og á jólunum gerist það þannig, að fjöl- skyldu- og vinahópar koma saman og skiptast á gjöfum. Þannig er fólki komið í þakkarskuld hvert við annað og verður að halda friðinn í bili. Prestar og stjórnmálamenn stuðla enn fremur að samheldni stærri hópa með hátíðarboðskap sínum í fjöl- miðlum landsins. Jólasveinasamsœrið Það má eiginlega segja að eins og ég hef lýst jólunum séu þau ekki ólík öðrum hátíðum. Þó má nefna að þessi hátíð hefur orðið burðarás í afkomu kaupmannastéttar Vestur- landa síðustu hálfa öldina. Þeir hafa gengið á lagið og ýtt undir síaukin gjafakaup almennings eftir því sem framfarir hafa orðið í auðsæld og tækni. Skemmtilegt dæmi um slíkt er þróun jólasveinsins. Hann byrjaði sem hinn hollenski Sankti Nikulás, sem var verndardýrlingur barna. Hollenskir kaupmenn fluttu dýrkun hans með sér til Bandaríkjanna sem síðar urðu, á 17. öld. Á millistríðs- árum okkar aldar breyttu auglýsinga- menn jólavertíðarinnar í Bandaríkj- unum honum úr þjóðsagnapersónu sem hafði líkst eitthvað hinum litlu og horuðu islensku jólasveinum, í stóran og feitan mann sem er ekkert nema gjafmiidin og fjárausturinn, með heljarstóran gjafasekk og margra hreindýrsaflaflutningasleða. Hlýtur nú að vera ólíkt skemmtilegra fyrir íslensk börn að hvísla óskum sínum 1 eyra jólasveinsins nýja en að verða fyrir hrekkjum hinna al- íslensku Jólasveina bænda- menningarinnar. Því miður daufheyrist jólasveinn- inn við bænum fullorðinna, sem fá ekki meir en þeir gefa, nema síður sé. Og það er ekki séð fram á hnignun á ofurveldi jólasveinsins nýja fyrr en auðvaldsskipulag Vesturlanda fellur til grunna, eða að börn hætta að verða til. Gleðileg jól!

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.