Dagblaðið Vísir - DV - 19.12.1981, Side 32
g T — -1.A.I— -„ dnl • •-
Paöeral taf happdraetti að
kaupa notaöan bíl,
en viö bjóðum aöeins stóra
vinningayÖLVÓ!
>.71
7. flokki
1.:
360.000-
675 000.-
1,309.500.-
SS
Það getur verið bæði betra og hagstæð-
ara að aka um í notuðum vönduðum bil
en ódýrum nýjum. Meðalaldur Volvo-
bifreiða er 19,3 ár. Þess vegna er notað-
ur Volvo ekki síður framtíðarbíll en flestir
nýjir bílar annarra tegunda.
Volvobifreiðarnar eru hannaðar til þess
að endast.
Volvoeigendur, sem endurnýja á 2ja ára
fresti, eru því ekki að forðast bilanir og
óöryggi, heldur eru þeir að fjárfesta.
Því segjum við: Volvo er stóri vinningur-
inn. Það er dregið daglega á ölium bíla-
sölum landsins, - en við bjóðum aðeins
stóra vinninga!
Volvosalurinn Suðurlandsbraut 16
VELTIR HF
ÓNAUÐSYNLEGIR
FROÐLEIKSMOLAR
um andstyggilegan hlut
... að dýrasta sprengjuárás
sem um getur fór fram árið
1296 á Indlandi. Það ár réðist
Allah-uddin-Khilji inn í lnd-
land og settist um Delhi. Inni í
borginni fór að skorta vatn og
mat, utan hennar gekk á
vopnabirgðirnar. Allah-uddin-
Khilji sá fram á að brátt færi
að vanta grjót í slöngvi-byss-
urnar. Hvað átti til bragðs að
taka? Allah fékk hugmynd:
Hann notaði 50 kg gullpoka I
staðinn. Herir hans slöngvuðu
gullinu yfir borgarmúrana og
sigurinn var í þeirra höndum.
Eftir uppgjöf borgarinnar hirti
Allah gullið sitt upp af götun-
um. ... að Ágúst hinn sterki,
kongur af Póllandi, sem uppi
var á árunum 1670—1733
feðraði 355 börn og aðeins eitt
þeirra var skilgetið.
... að hermannafót voru
upp fundin af Lúðvík 14. árið
1668, en þangað til höfðu sér-
stakir einkennisbúningar ekki
tíðkast hjá herjum. Lúðvík
ákvað að klœða hermenn sína
auðkennilegum fotum til þess
að konurnar œttu auðveldar
með að aðgreina þá frá
óbreyttum borgurum!
... að fyrsti stríðsfrétta-
ritarinn hét G. W. Kendall og
var bandarískur. Hann skrif-
aði fréttir af mexíkanska stríð-
inu 1846—7) og sendi þær á
hestum til dagblaðsins síns I
New Orleans. Blaðið var
oftast búið að fá fréttirnar á
undan hermálaráðuneytinu í
Washington.
... að stærsti her heimsins
er sá kínverski og sá minnsti er
í San Marino, hann er ellefu
manns. En elsti þjóðarher
heimsins mun vera sá í Sviss og
rekur sögu sína aftur til 14.
aldar.
... Dunkirk er nafn sem all-
ir kannast við úr heims-
styrjöldinni síðari. En Dunkirk
hafði áður komið við sögu
stríðandi landa. Þ. 28. júní
1658 skipti bœrinn þrisvar um
þjóðerni — um morguninn til-
heyrði hann Spáni, um mið-
degið hertóku Frakkar hann
og um kvöldið höfðu Englend-
ingar náð Dunkirk á sitt vald.
... að œðsta heiðursmerki
fyrir frækilega framgöngu í
hernaði m.a. I Frakklandi er
Legion of Honor, stofnuð af
Napoleon árið 1802. Fyrsta
konan sem hlaut þessa orðu
hét Angelique Brulon og var
uppi 1771—1859. Hún var
hermaður og tók þátt í sjö
styrjöldum, stórum og smáum.
Hún var einnig sjö barna
móðir. Síðustu árum œvi sinn-
ar eyddi hún á heimili fyrir
gamlar stríðshetjur.
... að það eru ekki nema 40
ár síðan bandaríski herinn var
aðeins sá 16. stœrsti í heimin-
um.
... að nákvœmlega helm-
ingur flugflota konunglega
flughersins í Laos eyðilagðist
árið 1965 þegar vélbyssa fór í
gang fyrir slysni. Fimm flug-
vélar reyndust enn nothœfar
þegar yfir lauk!
... að árið 1802 var búið til
sérstakt embætti í bænum Rye
á suðurströnd Englands. Verk-
efni embœttismannsins var að
hafa augun með skipaferðum
og vara við innrás Napoleons.
Embættið gekk í etfðir í sömu
fjölskyldunni og sá síðasti, sem
leit eftir óvinaskipum Napóle-
ons var Chummy Barton.
Hann lést árið 1944, 123 árum
síðar en Napoleon. Borgarráð
ákvað þá að fella embœttið
niður.
Jólagjöf sem
gleöur
FARSEÐLAR
UM
ALLAN HEIM
tAUSTURSTRÆTI 17, REYKJAVÍK,
SÍMAR 20100 — 26611.
KAUPVANGSSTRÆTI 4, AKUREYRI,
SÍMAR 96-22911.