Dagblaðið Vísir - DV - 20.01.1982, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 20.01.1982, Blaðsíða 10
10 DAGBLAÐIÐ & VÍSIR. MIÐVIKUDAGUR 20. JANÚAR 1982. Útlönd Útlönd ' Útlönd Útlönd Pekingstjómin ætlar að hreinsa tíl i skrifstofubákninu sem einangrunarstefna hefur verið efst í hugum manna, er erlent fjár- magn álitið vera af hinu illa og nánast dregið í dilk með landsölu eða föður- landssvikum og óþjóðhollustu að gæla við hugmyndir um að nýta slíkt. Fyrir fáum árum hefði hver sá Kín- verji sem lagði til að þegin væru erlend lán verið fangelsaður. Nýlega sagði Wang Binggioan, fjármálaráðherra stjórnarinnar við japanska embættismenn að skuldir Kína við útlönd hlypu nú á 4,7 milljörðum dollara (en voru um 3,4 milljarðar við árslok 1980). Zhao sagði alþýðuþinginu að hin erlendu lán mundu fyrst og fremsl renna til uppbyggingar orkuvirkjana og samgöngumála. Einnig mundi út- flutningsiðnaður sem getur aflað er- lends gjaldeyris fljótt njóta forgangs að hinu erlenda fjármagni og erlendri tæknihjálp. Gaf Zhao til kynna að rikisstjórnin mundi leyfa fleiri erlend lán til þeirra. Snúið baki við gamalli Maó-kenningu Hann réðst um leið að gamalli Maó-kenningu sem áður var mjög höfð til grundvallar í Kína. ,,Við verðum i eitt skipti fyrir öll að hætta að hugsa um að vera sjálfum okkur nógir,” hamraði hann inn og fullyrti, að aukin utanríkisverzlun mundi efla sjálfsöryggi Kínverja fremur en hitt. fínnsku forsetakosningamar Zhao Ziyang, forsætisráðherra Kína, hefur stigið á stokk og strengt þess heit að hreinsa til í hinu marg- fræga skrifstofubákni Kina. Hefur hann lagt nafn sitt og orðstir að veði til þess að skapa grundvöll fyrir hæg- fara hagvöxt í framtíðinni. Ziyang stendur þó frammi fyrir ýmsum ljón- um á veginum. Með Deng að bakhjarli Versta ljóninu ruddi þó úr vegi sá maðurinn sem tilefndi Zhao i forsæt- isráðherraembættið. Hinn 77 ára gamli Deng Ziaoping hefur leitt þessa fjölmennustu þjóð heims burt frá maóismanum og bundið hendur hinna róttækustu á vinstrivængnum. Markaði hann brautina til meiri hag- ræðingar og tæknivæðingar og opn- aði „vesturglugga” Kína. Hitt sýnist svo undir hinum sjálfs- örugga Zhao komið að sýna fram á að hófsamari kommúnismi þeirra Dengs geti leitt til þeirrar hagsældar, sem tryggi að aldrei aftur verði snúið til maóismans. — Zhao er 15 árunt yngri en Deng og líklegastur til að taka hans sess sem æðstráðandi í Kína þegar frá líður. Hægur hagvöxtur í langri ræðu sem Zhao flutti ný- lega á kínverska alþýðuþinginu gerði hann grein fyrir framtíðaráætlunum1 Pekingstjórnarinnar. Er þar ekki tjaldað til einnar nætur, heldur horft allt frant til aldamótanna í efnahags- Zhao sagði að upp úr 1985 ætti hagvöxturinn að örvast og fram til 1990 vaxa ár frá ári. Síðan talaði hann um nýja uppgangstíma á síðasta áratug aldarinnar. Hagræðing í skrifstofu- bákninu í hagskýrslu sinni hét Zhao því að nú yrði látið skara skríða til hagræð- ingar i skrifstofubákninu. Það er al- mennt álit að þrátt fyrir yfirlýsta stefnu Dengs og félaga í þá veru hafi sú þróun gengið mjög hægt. Árang- urinn hefur látið á sér standa. Zhao sagði að spillt hefðu fyrir „endalaus- ar hártoganir fram og til baka og orðaskak um leið og breytingar hefði orðið að gera í mörgum áhrifa- stöðum.” — Sagði Zhao alþýðuþing- inu að meira en mál væri komið til þess að snúa sér að framkvæmdum og hætta málæðinu. Hann mundi beita sér fyrir því að skera niður yfir- bygginguna, draga úr of miklu mannahaldi, leggja niður ráðuneyti og víkja þeim frá sem ekki þyrðu að taka ákvarðanir í þá átt. Erlend lán Forsætisráðherrann vék einnig að öðru máli sem er jafnvel enn við- kvæmara talinu um yfirmannaskipti. Það eru áætlair hans um erlendar lántökur. í Kina eins og viðar þar Hinir átta frambjóðendur flokkanna tíu. Frá vinstri talið: Mauno Koivisto, Harri Holkeri, Johannes Virolainen, Kalevi Kivistö, Jan-Magnus Jansson, Raino Westerholm, Veikko Vennamo og Helvi Sipilá. Flest virðist nú benda til þess að finnska þjóðin sé búin að kjósa sér sósíalista í forsetastól, í fyrsta sinn í sögu Finnlands. Mauno Kovisto.for- sætisráðherra og forseta í forföllum Kekkonens, hefur tekist að fá 146 kjörmenn af 301, sem síðan munu endanlega kjósa forseta þ. 26. þ.m. Frambjóðandi vinstri sósíalista og kommúnista fékk 32 kjörmenn kjörna, en langflestir þeirra munu styðja Koivisto í 2. umferð forseta- kosninganna. Þessi mikli sigur Mauno Koivisto bendir einnig til þess að Finnland sé i annað sinn búið að fá forseta til langs tíma, 18—24 ár, en Koivisto er 58 ára að aldri. (Kekkonen sem var forseti í 25 ár, fékk ekki nema 89 kiörmenn í 1. skiptið, 1956 þá 56 ára að aldri.) Afdrifaríkust eru þó þessi úrslit fvru Miðflokkinn, sem frá stríðslokum 1944 hefur verið nánast einráður við mótun utanríkisstefnu landsins, að mestu undir forystu fráfarandi for- seta, Urho Kekkonen. Frambjóðanda Miðflokksins og fyrrum formanns flokksins, núver- andi forseta finnska þingsins, Johannes Virolainen, tókst ekki að fá kjörna flciri en rétt rúmlega 50 kjör- menn. og Hægrifiokkurinn, sem' bauð fram fyrrum formann sinn, Harri Holkeri, náði tæpum 60 kjör- mönnum og fór fram úr Miðflokkn- um. Allar likur eru á að áframhald verði um sinn á samstarfi Miðflokks- ins og vinstriflokkanna, en ríkis- stjórnin mun biðjast lausnar 1. febrú-> Borgþór S. Kjærnested skrifar um finnsku kosningarnar - ar, en það er hefð er íýr forseti tekur . við völdum. Koivisto á þá utn tvennt að velja, hann getur falið forsætisráðherraem- bætti sitt nýjum manni og síðan beðið aðra ráðherra að sitja áfram, ef til vill með einhverjum smábreyting- um, eða leyst upp þingið og boðað til nýrra kosninga. Þess er ekki að vænta að nokkrar meiriháttar breytingar verði á stefnu Finnlands í utanríkismálum. Afstaða Finnlands til stórveldanna er nú þegar fastmót-ð og nýtur stuðnings um ‘7af hundraði kjós- enda, svo á þeun vetivangi mun Koi- visto ekki þurfa annað en feta í fót- spor fyrirrennara síns og ég spái því að innan skamms muni verða farið ríkjum Suður-Ameríku né á stríðið i Víetnam á sínum tíma. Um tima var Ensio Siilasvuo yfir- maður alls herafla SÞ fyrir botni Miðjarðarhafas, en það er af mörgum fréttaskýrendum talið hæpið að hershöfðingi frá landi mjög einhliða, höllu undir Sovétríkin hefði notið trausts deiluaðila, ísraels- manna og Egypta. í kosningabaráttunni bentu vinstri- menn á að samskipti Finnlands við þróunarlöndin hafi verið vanrækt af Kekkonen og væru því sem næst ein- göngu i höndum embættismanna utanríkisráðuneytisins. Finnsk fyrirtæki hafa á undan- förnum árum verið að auka umsvif sín í Afríku og í Arabalöndunum og bent hefur verið á að Finnland taki æ oftar beina afstöðu með iðnrikjum Vesturlanda, oft gegn hagsmunum þróunarríkjanna, á alþjóðavettvangi. Vinstri menn töluðu um að þessu þyrfti að breyta ef sósíalisti næði kjöri, en forsetinn ber alla ábyrgð á utanríkisstefnu landsins. Koivisto munaftur á móti geta setl persónulegan svip sinn á afstöðu Finnlands til þróunarlandanna þegar fram í sækir. Borgþór S. Kjærnested þróuninni. Zhao og félagar gera ráð fyrir hægum hagvexti fram til ársins 1985, á meðan komið verði betra skipulagi á efnahagsmálin og þeim sniðinn nýr stakkur. 1982 er ætlað að hagvöxturinn muni nema um 4% (í stað 3% á síðasta ári, eftir opinber- um fréttum frá Kína að dæma). að tala um Paasikivi-Kekkonen- Koivisto-stefnuna, sennilega skamm- stafað PKK-línan. Oft er talað um hið sérstæða sam- band Finnlands og Sovétríkjanna og að Finnar t.d. hafi ekki deilt á ástand mála í Póllandi né veru Sovétmanna í Afganistan. Minna má á að Finnar hafa heldur aldrei deilt á ástand mála í ýmsum Zhao Ziyang, forsætisráðherra Kfna, og Ifklegasti arftaki Dengs Ziaoping, heitir þvf að taka efnahagslffið sterkum tökum. Dr. Urko Kekkonen var 56 ára að aldri, þegar hann var valinn forseti 1956 með aðeins 89 kjörmenn á bak við sig, en hann var forseti í 25 ár.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.