Dagblaðið Vísir - DV - 20.01.1982, Blaðsíða 35

Dagblaðið Vísir - DV - 20.01.1982, Blaðsíða 35
DAGBLAÐIÐ& VfSIR. MIÐVIKUDAGUR 20. JANÚAR 1982. Sjónvarp GETRAIININ Gerizt áskrifendur Síminn er 27022 Isuzu-bíllinn dreginn út 27. janúar NÝÁRSTÓNLEIKAR FRÁ VÍN - sjónvarp kl. 21,00: Sænskur myndaflokkur hefur göngu sína næsta miðvikudag Það hefur verið hefðbundið hjá sjónvarpinu í nokkur ár að sýna upptöku frá nýárstónleikum Fílharmoníusveitar Vinarborgar. Þessi upptaka verður sýnd í sjónvarpinu í kvöld kl. 21,00 á tima þeim sent Dallas var áður. Leikin verður léttklassisslsk tónlist undir stjórn Lorin Maezel. í tónleikunum taka einnig þátt Vínar- drengjakórinn og ballettflokkur Rikis- óperunnarl Vín. Nokkuð hefur borið á því að hringt hefur verið til dagskrársiðunnar og kvartað yfir að Dallas skuli vera á enda. Hjá Elínborgu Stefánsdóttur fengum við þær upplýsingar að næsta miðvikudag hæfi göngu sina nýr sænskur framhaldsmyndaflokkur I stað Dallas. Sá myndaflokkur er i sex þáttum og nefnist Fimm dagar i deserti- ber. Segir hann frá ráni á Nóbelsverð- launahafa. Útvarpsráð hefur ekki tekið ákvörðun um hvort fleiri Dallas-þættir verða keyptir. Valda þar mestu við- brögð fólks. Er þá um að gera að kvarta við lesendadálk blaðsins . Þess má geta í leiðinni að þegar BBC hafði lokið fyrsta hluta Dallas-þátt- anna og ekki var séð að fleiri þættir yrðu keyptir ætlaði allt vitlaust að verða. Símhringingar dundu á sjón- varpsstöðina og lesendadálkar blað- anna fylltust.Úr varð að fleiri Dalias- þættir voru keyptir og Bretar fengu að fylgjast með morðtilræðinu á J.R.ELA. -ekkiákveðið Þau skötuhjú, Sue Ellen og J.R. Margar spurningar eru ofarlega á baugi varðandi þau hjón eftir að siðasti Dallas-þitturinn var sýndur. Hvort viö fáum að fylgjast með þeim áfram verða viðbrögð fólks að skera úr um. Annars er það liklega videoið. B0LLA, B0LLA — útvarp kl. 20,40: „GAMAN AÐ VINNA VIÐ ÞESSA ÞÆTTI” — segir Eðvarð Ingólf sson, annar umsjónarmaður þáttarins „Mér finnst mjög gaman að vinna 'við gerð þessara þátta enda kynnist maður mörgu fólki,” sagði Eðvarð ingólfsson, annar umsjónarmanna þáttarins Bolla, bolla, sem er á dagskrá útvarpsins I kvöld kl. 20.40. Eðvarð sagði að fyrir hvern þátt bærist fjöldinn allur af bréfum frá unglingum. ,,Mér Finnst samt vanta meira af frumsömdum sögum og pistl- um,” sagði hann. ,,En við höldum áfram að hvetja krakkana.” í þættinum i kvöld verða þrjú mál ofarlega á baugi. Í fyrsta lagi er að öll- um likindum viðtal við þann merka mann, Bubba Morthens um tónlistina og lífið almennt. „Við höfum haft þann sið að ræða við einhvern tónlist- armann í hverjum þætti.Á.ður höfum við rætt við Hclgu Möller, Gunnar Þórðarson og Pétur Kristjánsson. Krakkarnir hafa mikið óskað eftir Björgvin en hann verður í einhverjum af næstu þáttum,” sagði Eðvarð. Þá sagði hann að ( kvöld yrði byrjað aðnýju með framhaldssögu. ,,Við vor- um með framhaldssögu, mjög svo rómantiska og skemmtilega fyrir jólin. Nú höfum við ákveðið að byrja nýja og siðan eiga hlustendur að skálda áfram. Þetta var mjög vinsælt efni fyrir jóiin og krakkarnir hafa talsvert óskað eftir að sagan yrði tekin upp aftur. Við höfum einnig ákveðið að taka fyrir þema í hverjum þætti og byrjum á því .i kvöld að ræða um hjónaband og barneignir. Við fáum álit nokkurra krakka á þeim málum. i næstu þáttum höfum við hugsað okkur að taka fyrir áfengismál og sniff, en mikið hefur borið á þvi meðal unglinga.og ýmislegt fleira fróðlegt. í framhald! af snjffinu get ég nefnt dæmi, að í Háskólablói fundust 25 gasbrúsar eftir eina bíósýn- ingu. Þrjú af toppnum hefur verið fastur liður hjá okkur og verður áfram. Við hringjum I grunnskóla um allt land og óskum eftir að valin verði þrjú vinsæl- ustu lögin á staðnum. Þau lög eru síðan leikin I þættinum. Að öllum likindum verður það grunnskólinn I Bolungarvík sem velur lög fyrir þáttinn í kvöld,” sagði Eðvarð. Hann var þá spurður um nafnið á þættinum sem kemur kannski einhverj- um spánskt fyrir sjónir. ,,í upphafi höfðum við hugsað okkur nafnið Bóla. Við veltum þessu lengi fyrir okkur en ákváðum siðan nafnið Bolla. Nú er annar unglingaþáttur i útvarpinu með nafninu Bóla svo við breyttum nafninu í Bolla, bolla vegna þess hve lítill hljóð- munur er á þessum tveimur nöfnum þegar þau eru lesin i útvarpi.” Eðvarð Ingólfsson ætti að vera ungl- ingunum góðkunnur. Hann er ritstjóri unglingablaðsins Sextán auk þess sem hann hefur skrifað tvær unglingabæk- ur. Fyrsta bók hans kom út fyrir jólin 1980, í gegnum bernskumúrinn, og nú fyrir jólin kom út bókin Hnefaréttur. Þá er Eðvarð nú að ljúka við framhald fyrstu bókar sinnar svo hann hefur í nógu að snúast. Umsjónarmaður auk hans er Sólveig Halldórsdóttir. Hún starfar sem gjald- keri hjá Flugmálastjórn en er menntuð leikkona. Meðal þess sem hún hefur nýlega sést I er Útlaginn þar sem hún fór með hlutverk Guðríðar ambáttar. -ELA 35 Veðrið Veðurspá dagsins Allhvasst verður um allt land. Búast má við éljaveðri á öllu Vesturlandi. Sunnanlands verður frostlaust en vlðast slydda þegar llður á daginn. Norðan og austan- lands og á norðanverðum Aust- fjörðum verða él. Að öðru leyti verður aðgerðalltið veður. Kl. 6 I morgun var á Akureyri al- skýjað —6, Bergen þokumóða —5, Kaupmannahöfn þokumóða —3, Osló þokumóða —13, Reykjavlk léttskýjað 3, Stokkhólmur þoku- móða —4, Þórshöfn þoka 6. Veðrið hér og þar Kl. 18 i gær: Aþena léttskýjað 15, Berlin þokumóða —6, Chicago al- skýjað —12, Feneyjar þoka —2, Frankfurt mistur —7, Nuuk skýjað — 1, London mistur —8, Luxem- borg skýjað —8, Las Palmas skýjað 12, Mallorka léttskýjað 18, Montreal léttskýjað —23, Paris heiðrikt —2, Róm alskýjað 10, Malaga alskýjað —9, Vln alskýjað ,—9, Winnipeg heiðrikt —27. Gengið GengÍMkráning NR: 5 - 20. JANÚAR 1982 KL. 09.15 manna Einingkl. 12.00 ' Keup . Sele gjaideyrir 1 Bendarikjadollar 9,413 9,439 10,382 1 Sterlingspund 17,767 17,816 19,597 1 Kenededollar 7,877 7,898 8,687 11 Oönsk króna 1,2516 1,2551 1,3806 1 Norsk króna 1,8014 1,6058 1,7663 ;1 Ssensk króne 1,6715 1,6761 1,8437 1 Hnnsktmerk 2,1340 2,1399 2,3538 1 Frenskur franki 1,6097 1,8142 1,7756 1 Belg. frenkl 0,2403 0,2409 0,2649 !l Svissn. frenki 5,0792 5,0932 5,6025 i1 Hollenzk florina 3,7361 3,7464 4,1210 l1 V.-þýxkt merk 4,0953 4,1066 4,5172 1 Itötsk Ifre 0,00765 0,00767 0,00843 |1 Austurr. Sch. 0,5841 0,5857 0,6442 Í1 Portug. Escudo 0,1409 0,1412 0,1553 il Spénskur peseti 0,0954 0,0957 0,1052 1 Jepenskt yen 0,04176 0,04186 0,04804 1 Irsktound 14,449 14,489 15,937 8DR (sérstök 10,8673 10,8973 dréttarréttlndl) 01109 Stmsveri vegns gengisskréninger 22190.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.