Dagblaðið Vísir - DV - 20.01.1982, Blaðsíða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 20.01.1982, Blaðsíða 13
hjálst, áháð daghlað Útgáfufélag: Frjáls fjölmifllun hf. StjórnarformaAur og útgáfustjóri: Sveinn R. EyjóHsson. Framkvœmdastjóri og útgáfustjóri: Hörflur Einarsson. Ritatjórar: Jónaa Kristjánsson og Ellert B. Schram. Aðstoðarritstjóri: Haukur Helgason. Fréttastjóri: Sœmundur Guflvinsson. Auglýsingastjórar: Páll Stefánsson og Ingótfur P. Steinsson. N 1 Ritsljórn: Síflumúla 12—14. Auglýsingar: Síðumúla 8. Áfgreiflsla, áskriftir, smáauglýsingar, skrifstofa:' Þverholti 11. Sfmi 27022. Shni ritstjórnar 86611. Setning, umbrot, mynda- og plötugerfl: Hilmir hf., Síðumúla 12. Prentun: Árvakur hf., Sketfunni 10. * ^Áskríftarvorfl á mánuöi 100 kr. Verfl í lausasölu 7 kr. Helgarblafl 10 kr. Forganga ístað sporgöngu Aðþrengdar iðngreinar eru í vaxandi mæli að reyna að koma því á framfæri, að tryggja beri innlendri framleiðslu forskot umfram erlenda keppinauta. Málmiðnaðurinn er nýjasta og alls ekki eina dæmið um þessa viðleitni. Rökstyðja má, að skylda beri útboðsaðila til að taka innlendu tilboði, ef mismunur þess og erlends fer ekki fram úr einhverju ákveðnu marki. Menn greinir hins vegar á um, hversu breiður þessi munur megi vera. Einnig má rökstyðja, að vernda beri innlenda fram- leiðslu fyrir erlendum undirboðum, einkum ef þau stefna að því að vinna markaðinn, ryðja keppinautum úr vegi og hækka síðan verðið í skjóli síðar fenginnar einokunar. Um leið er þessi verndarhugsun afar hættuleg. Enda er þegar farið að brydda á því hugarfari, að betra sé að vernda vinnu í gamalli og ofsetinni atvinnugrein heldur en að starfsfólk í henni missi atvinnu sina. Aðgerðir, sem byggjast á þessari hugsun, leiða til dulbúins atvinnuleysis um leið og þær draga úr straumi fólks og fjármagns til þeirra atvinnugreina, sem hafa á hverjum tíma mestan vaxtarbrodd, mestan arð og mesta framlegð til þjóðarhags. Við sjáum slíkar aðgerðir hvarvetna i nágranna- löndunum. Þar eru veittir aðlögunarstyrkir, vaxta- eftirgjafir, útflutningsstyrkir, þjálfunarstyrkir, flutn- ingastyrkir, jöfnunarstyrkir og fjárfestingarstyrkir. Slíkar aðgerðir sjáum við líka hér i hinum hefð- bundna landbúnaði. Við verjum meira en tíunda hluta sameiginlegra ríkisútgjalda til að halda uppi úreltum atvinnuvegi og hindra krafta hans í að beinast að öðrum verkefnum. í Noregi er ekki aðeins landbúnaðinum haldið úti á þennan hátt, heldur einnig sjávarútvegi. Hið opinbera greiðir sem svarar öllum launum í sjávarútvegi. Þar eru það olíulindirnar, sem standa undir kostnaði við byggðastefnu. í Svíþjóð, Bretlandi og víðar halda skattgreiðendur uppi ýmsum greinum málmiðnaðar, einkum þar sem samkeppni er orðin of mikil, svo sem í skipasmíðum. Margar fleiri greinar ramba á brún náðarfaðms hins opinbera. Þjóðir þessara landa hafa það sér til afsökunar, að atvinnuleysi er þar mikið og vaxandi, víða komið í eða upp fyrir lOfr/o. Þar er því fremur ólíklegt, að starfsfólk hallærisgreina geti fengið vinnu við arðbær störf. Um leið búa þessar þjóðir sér til vítahring. Með kjarkleysi og óhóflega félagslegri hugsun hafa þær veikt hag sinn og samkeppnisaðstöðu gagnvart öðrum, sem óhræddari hafa verið við hreyfiaflið í atvinnulíf- inu. Bezt sett væri sú þjóð, er hefði ráð á að draga úr starfsemi sinni á öllum þeim sviðum, sem leggja til of- framleiðslu á heimsmarkað. Er hefði sem kaupandi ráð á að nota sér undirboð og meðgjafir, sem fylgja of- framleiðslu hinna. Slik þjóð hefði ráð á að hasla sér jafnan völl í vaxtar- greinum, í nýjungum, — yfirleitt í greinum, þar sem verðlag á heimsmarkaði stjórnast meira af seljendum en kaupendum. Slík þjóð væri í senn djörf og raunsæ. Utan verkfalla er ekki atvinnuleysi á íslandi. Sú sér- staða gefur okkur betri færi en öðrum á að loka eyrum fyrir beiðnum um styrki og verndun og opna augun fyrir nauðsyn þess að búa í haginn fyrir hið nýja og óþekkta. Jónas Kristjánsson. DAGBLAÐIÐ& VÍSIR. MIÐVIKUDAGUR 20. JANÚAR 1982. DAGBLAÐIÐ & VÍSIR. MIÐVIKUDAGUR 20. JANÚAR 1982. VINSTRIVILLA (VERSLUNARÆÐ REYKJAVtKUR Allir Reykvíkingar vita, og sjálf- sagt flestir landsmenn, að Lauga- vegur er langstærsta verslunargata höfuðborgar okkar, og raunar lands- ins alls, og þeir eru ábyggilega ekki margir sem hafa ekki sótt þjónustu á Laugaveginn. Um þessa mestu versl- unargötu okkar streyma þúsundir ef ekki tugþúsundir manna daglega. Helsti ferðamáti okkar í dag er akstur í bifreiðum, einkabifreiðum, sem næstum hvert heimili hefuraðgang að. Þetta farartæki hefur af ákveðn- um þjóðfélagshópi verið lítillækkað og uppnefnt „blikkbelja”, og ef þessir aðilar hafa haft möguleika á, þá hefur blessuð „blikkbeljan” verið höfð útundan, eins og hún væri einskis nýt. Þrátt fyrir það er trú mín sú að þessi hópur noti sér, ekki síður en aðrir, þá þjónustu og þægindi sem bifreiðin býður upp á, enda er hún einn þarfasti þjónn okkar, og okkur raunar ómissandi, eins og mætti færa mörg rök fyrir. Höfuðborg okkar hefur nú um skeið verið stjórnað af fyrrnefndum þjóðfélagshópi sem fyrirlítur einka- bifreiðina. Þessi hópur hefur annað einkenni, hann telur allan einka- rekstur og viðskipti af hinu illa. Forustumenn borgarinnar hafa verið með alvarlegan áróður t.d. gegn versluninni. Þetta er vert að hafa í huga þegar litið er á aðgerðir fyrr- nefndra forustumanna um fækkun KjalEarinn Skúli G. Jóhannesson bílastæða i slagæð verslunarinnar, Laugavegi. Vel rekin verslun er ekki eingöngu hagur kaupmannsins heldur líka við- skiptavinarins og raunar þjóðarinnar allrar, þetta hefur sannast í gegn um aldirnar. Samkeppni skapar aðhald og bætta þjónustu, viðskiptavinir verslana og annarra þjónustufyrir- tækja nota í æ ríkara mæli bifreiðina til að flytja sig á milli staða til að vega og meta verð og gæði, en þetta skilja ekki allir. Þessa dagana á að höggva á og minnka þá möguleika sem fólk hefur til að notfæra sér bílinn, með því að fækka bílastæðum við Laugaveginn, mestu verslunar- og þjónustugötu landsins. Öll bílastæði á milli Klapparstígs og Smiðjustígs skulu lögð niður, þetta er liður í því að leggja niður öll bílastæði við Lauga- veginn. En af hverju var byrjað á þessum kafla Laugavegar en ekki ofar? Er þessi kafli einhver „flöskuháls”? Þessar og ótal margar fleiri spurning- ar vakna en verða ekki lagðar fram hér að sinni. En þessar fram- kvæmdir verða ekki gerðar eingöngu í óþökk við þá sem eru með atvinnu- rekstur við Laugaveginn heldur einn- ig við þær tugþúsundir manna sem þurfa að leita þjónustu við þessa götu. Fækkun bílastæða er gerð undir því yfirskini að Strætisvagnar Reykjavíkur þurfi að komast niður Laugaveginn á meiri hraða en hingað til, en aksturstimi SVR-vagnanna frá gatnamótum Klapparstígs að Smiðju- stíg er um það bil 15 til 30 sekúndur, segi og skrifa 15-30 sek. Á þessari leið er ekkert sem á að tefja þá, nema óvænt slys hendi eins og alls staðar getur gerst. Ég og aðrir vegfarendur hljótum að fara fram á það við borgaryfirvöld og lögreglu að þau íhugi i alvöru á hvað miklum hraða þau telji að SVR eigi að aka á þessari götu þar sem umferð gangandi er hvað mest, án þess að alvarleg slysahætta skapist. Fækkun þessara bílastæða á Lauga- veginum sem samþykkt hefur verið tel ég að skipti SVR-vagnana engu máli í reynd og auki ekki ferðahraða þeirra til muna. En þessar aðgerðir sýna algjört tillitsleysi af hálfu borg- aryfirvalda við þá sem eru með at- vinnurekstur á Laugaveginum og þeirra sem njóta þjónustu þar. Sjálfsagt hafa yfirvöld ekki hugsað út i það að algjört stöðvunarbann verður á þessum kafla Laugavegar- ins, og hvorki hægt að sækja farþega á bíl né setja hann út. Sá þáttur svik- inna loforða borgarstjórnar um bíla- stæði í miðborginni skal látinn óræddur hér, en oft er skammt öfg- anna á milli í framkvæmdum for- ys'.umanna borgarinnar og skal nefnd ákvörðunin um bílastæði á gangstétt Skólavörðustígs, sem þeir þó sýndu manndóm til að afturkalla. Ég á þá von fyrir hönd þess fjölda sem um Laugaveginn fer að yfirvöld afturkalli þessa ákvörðun sína um fækkun bílastæða en reyni frekar að auka' bílastæðin við þessa miklu verslunargötu, öllum til þæginda og hagsbóta. Vel rekin og blómleg fyrir- tæki eru hagur okkar allra, ekki síst borgarinnar. Hlúum að borginni. Skúli G. Jóhannesson. verslunarmaður. ^ „Fækkun bílastæða er gerð með það að yfirskini að Strætisvagnar Reykjavíkur þurfi að komast niður Laugaveginn á meiri hraða en hingað til, en aksturstími SVR-vagn- *■ anna frá gatnamótum Klapparstígs að Smiðju- stíg er um það bil 15—30 sekúndur, segi og skrifa 15—30 sekúndur,” segir Skúli G. Jóhannesson í grein sinni. ÞÚSUND GAMLAR A DAG ALLAN ÁRSINS HRING Á fundi, sem haldinn var sl. haust á vegum Framsóknarflokksins í Reykjavík, varaði sá, sem þetta skrif- ar, forystumenn flokksins í borgar- málum við of mikilli skattagleði. Benti ég á, að fasteignagjöld og út- svör væru þegar orðin of há á Reyk- vikingum og rétt væri að snúa blað- inu við og stelna að lækkun þessara gjalda. Þessi viðvörunarorð voru að engu höfð. Og kaldur veruleikinn hefur birzt Reykvíkingum með póstinum síðustu daga í formi tilkynninga um himinhá fasteignagjöld, sem íbúða- eigendur í höfuðborginni stynja nú undan, ekki sízt þeir, sem á efri ár eru komnir og litlar tekjur hafa. Til marks um það, hve fasteigna- gjöld eru orðin há í Reykjavík, má á það benda, að af meðalstórri 3ja her- bergja ibúð i Breiðholtshverfi þarf að greiða u.þ.b. 3.600 krónur. Það þýðir með öðrum orðum, að hvern einasta dag ársins þarf að greiða eitt þúsund krónur gamlar af ekki stærri íbúð í fasteignagjöld. Forréttindi nágrannabæjanna Þetta gerist á sama tima og flest nágrannasveitarfélögin halda þessum gjöldum niðri, en með því hefur skapazt alvarlegt misrétti á höfuð- borgarsvæðinu, ekki sizt vegna þess, Kjallarinn Alfreð Þorsteinsson að útsvarsálagningin er einnig lægri í þessum nágrannabæjum. Það má því með sanni segja, að það séu orðin forréttindi að búa utan borgarmark- anna, ef Kópavogur er undanskilinn. Það á sér auðvitað sínar skýringar hvers vegna nágrannabæirnir geta boðið íbúum sínum lægri fasteigna- gjöld og útsvör, og er óþarfi að tiunda það. En í stuttu máli byggist það á því tvennu, að annars vegar er minna um framkvæmdir og þjónustu á þessum stöðum en í Reykjavík, og hins vegar, að þessi þjónusta er sótt A „Þessi viðvörunarorö voru að engu höfð. ^ Og kaldur veruleikinn hefur birzt Reyk- víkingum með póstinum síðustu daga í formi tilkynninga um himinhá fasteignagjöld sem íbúðaeigendur í höfuðborginni stynja nú und- an, ekki sízt þeir, sem á efri ár eru komnir og litlar tekjur hafa,” segir Alfreð Þorsteinsson meðal annars í grein sinni. til Reykjavikur fyrir öeðlilega lágt gjald. Það má þvi segja, að Reykvík- ingar standi undir forréttindum ná- grannanna, þ.á m. gamla fólkið, sem býr i sínu eigin húsnæði og veit ekki með hvaða ráðum það á að greiða fasteignagjöld sin, eins og nú er komið. Lögverndaður glæpur En burtséð frá þessu ranglæti, þá felst aðalranglætið í fasteignagjöld- unum sjálfum og þeim hugsunar- hætti óprúttinna stjórnmálamanna að notfæra sér fasteignir fólks til tekjuöflunar í jafnríkum mæli og nú er gert. Mér liggur við að segja, að gagnvart íslendingum séu jafnhá fasteignagjöld og nú eru almennt inn- heimt, lögverndaður glæpur. Hann stríðir á móti eðli fólks, sem vill búa i eigin húsnæði og hefur m.a. litið á það sem vígi og öryggi elliáranna. Þessa hugsun er nú búið að brjóta niður. Það er orðin martröð fyrir eldra fólk, ekki sízt hér í Reykjavik, að eiga sitt eigið húsnæði. Og fyrir yngra fólk eru þessar staðreyndir ekki til þess fallnar að auka sjálfs- bjargarviðleitni, því að fyrir hana er refsað. En glæpsamlega há fasteignagiöld koma við fleiri en íbúða- og húseig- endur. Þeim er velt yfir á leigjendur i formi hærri leigu. Blaðinu verði snúið við Þeir eru vissulega sjóndaprir og heyrnarsljóir ráðamenn Reykjavikur- borgar, ef þeir láta eins og ekkert sé. Ef einhver dugur væri í þeim ættu þeir að snúa sér að því að fá leiðrétt- ingu mála sinna gagnvart nágranna- bæjunum. í beinu framhaldi af því ættu þeir að lækka fasteignagjöld og útsvör á Reykvíkingum til samræmis við það, sem gerist í nágrannabæjun- um. Og í framhaldi af því á Reykja- vík siðan að hafa forystu um það að beita lágum álögum varðandi fast- eignagjöld og útsvör. Það er ekki stjórnmálalist að skattpina umbjóð- endur sína eins og stjörnendur Reykjavíkurborgar gera nú. Alfreð Þorsteinsson. 13 , RAUNIR UTLENDINGS Ég er 28 ára gamall kennari og þó að ég sé einnig lausráðinn blaða- maður legg ég það ekki í vana minn að skrifa ritstjóra dagblaðs og kvarta yfir ástandi heimsmála (eða verði á kaffi ef um það er að ræða). En nauðsyn brýtur lög og i ljósi nýlegrar reynslu sá ég mig tilneyddan að setj- ast niður og skrifa nokkrar línur. Ég held að þessi orð mín séu í fullu gildi; hver veit nema einhverjum finnist þessi pistill áhugaverður. Ég er ísraelskur ríkisborgari, fæddur í Tékkóslóvakíu og hef búið í nær hálfri tylft landa. Fyrir rúmu ári kvæntist ég íslenskri stúlku en áður höfðum við búið saman í nokkur ár. Það var ætlun okkar að kona min eignaðist okkar fyrsta barn í Reykja- vík og þvi komum við til íslands fyrr á árinu til að dvelja hér um tima. Að sjálfsögðu bjóst ég við því að geta fengið einhverja vinnu, helst við ensku- eða tónlistarkennslu, eða þá það starf sem byðist. Ég geri mér grein fyrir þeirri staðreynd að við lifum á síðari hluta 20. aldar og aðat- vinnu er ekki auðvelt að fá. Ég var því reiðubúinn að taka nær hverri þokkalegri vinnu sem í boði væri. Mikil var því undrun mín er ég hóf hina furðulegu glímu mína við is- lenska „kerfið”. í fyrsta lagi virðast lögin um inn- flytjendur vera ákaflega óljós og fáir virðast geta áttað sig á því hver staða mín í íslensku samfélagi raunverulega er. Þegar ég kom fyrst til Kefiavikur- flugvallar tók á móti mér starfs- maður vegabréfaskoðunar og ég sagði honum að ég væri giftur ís- lenskri stúlku. Þá brosti hann út að eyrurn og bauð mig velkominn til landsins. Enginn sagði mér að eftir þrjá mánuði ætti ég að biðja um framlengingu á dvalarleyfi mínu. Þegar öllu er á botninn hvolft þá er ég giftur íslenskum ríkisborgara og búsettur í Reykjavik þó að ég sé raun- verulega útlendingur. í mínu heima- landi þurfa íbúar ekki að tilkynna sig til lögreglunnar á þriggja mánaða fresti. Áhersla skal lögð á að ég er ekki ferðamaður. Þegar ég hafði verið búsettur á íslandi í fjóra Kjallarinn Jiri Grosman Ég varð þrumulostinn. Ég reyndi að útskýra fyrir manninum að ég væri ekki ferðamaður, ég byggi í Reykja- vik, að kona mín og nýfædd dóttir væru íslendingar, en án nokkurs árangurs. Skýring þeirra var sú að ég kynni ekki íslensku og það gæti þvi komið sér illa ef einhver ætlaði að kvarta og ég skildi ekki orð, þetta kæmist t blöðin, hvilik hneisa o.s.frv..... í stuttu máli sagt, ég taldist annars flokks fyrirbæri: það yrði að þola mig en mér yrði ekki hjálpað. Nú virðist mér að kunnátta einhvers i íslensku skipti ekki máli nema hún hindri að viðkomandi geti rækt starf sitt af fullri kostgæfni. Vart væri hægt að búastvið þvi að sölumaður eða ritari sem ekki hefði nema takmarkaða þekkingu á tungu- málinu stæði sig i stykkinu. Á hinn bóginn fæ ég ómögulega séð hvers vegna póstburðarmaður, sem aðal- lega þarf að þekkja húsnúmer og geta borið poka sinn, þarf að vera fijúg- andi fær i íslensku. Kannski svo hann geti bölvað hundunum sem sífellt eiga að vera að glefsa í buxna- skálmar póstburðarmanna? Og þó, það getur varla verið þvi hundahald er ekki leyft í Reykjavik. í ísrael gæti eiginkona mín farið i A „Það þarf þegar í stað að endurskoða lög ^ íýðveldisins um innflytjendur, auk þess sem draga þarf úr fordómum og auka sveigjan- leika ríkisstofnana á borð við Póst og síma. Víst get ég verið skrítinn útlendingur en ég er enginn blábjáni,” segir Jiri Grosman í grein sinni. mánuði þurfti ég að skreppa til London i fimm daga og þegar ég kom aftur til Keflavíkur báðu starfsmenn vegabréfaskoðunar mig hjartanlega velkominn til baka. Eins og fyrri daginn var ekki minnst á við mig um að sækja um framlengingu eftir þriggja mánaða dvöl í landinu. í viðtali við lögregluna (útlendinga- eftirlitið) seinna sagði ég þeim alla sólarsöguna en þá krafðist ég þess að fá að vita rétt minn og stöðu. Það viðtal eitt sér myndi nægja í langa grein en ég læt það kyrrt liggja að svo stöddu. Allt frá því ég kom til islands i sumar hefur mér verið ljóst að það er enginn hægðarleikur að fá vinnu. Er ég hafði reynt i tvo mánuði fór ég að halda að það væri nær ómögulegl. En samt gafst ég ekki upp vegna þess að mér fannst ég ekki vera misrétti beittur sem útlendingur (þetta ljóta orð skýtur aftur upp kollinum). Fyrir tveimur mánuðum hélt ég loksins að leit minni að vinnu væri lokið. Ég fór i viðtal á pósthús í vesturbænum í þeirri von að gerast póstburðar- maður. Verksvið mitt virtist vera einfalt: Á morgnana átti ég að sortera póstinn og síðan bera hann út seinna um daginn. Maðurinn sem ræddi við mig vissi að íslenskukunnátta mín er takmörkuð en að ég gæti lesið á bréf, skrifað og gengið jafnvel og hver annar. Ég fór því heini glaður i bragði með nær örugga vissu um starfið. Mér til mikilla vonbrigða var mér síðan tilkynnt daginn eft>r (af einhverjum hærra settum i píramíd- anum) að þetta ríkisfyrirtæki (Póstur og sími) hefði það fyrir grundvallar- reglu að ráða ekki útlendinga í vinnu. innanríkismálaráðuneytið og fram- vísað þar giftingarvottorði sinu. Þá fengi hún sérstakan stimpil i vegabréf sitt og hefði þar með rétt til að búa og vinna í landinu. Þyrfti hún hvorki að tilkynna sig til lögreglunnar né sækja um frantlengingu dvalarieyfis og | slyppi við að sækja um sérstakt at- vinnuleyfi. Henni væri frjálst að fara út á vinnumarkaðinn og sækja unt hvaða vinnu sem hún teldi sig ráða við. Ég á erfitt með að imynda mér að henni yrði neitað um vinnu við póstútburð, svo framarlega sem hún væri læs á heimilisföng (sem hún er). Hún myndi ekki vera talin svo mikill útlendingur að rikisvaldið teldi sig vera að færa stórkostlega fórn við hverja smáfyrirgreiðslu. ísland er (að mati auðmjúks út- lendings) stórkostlegt land. Það er frjálslegt, óspillt, ungt og býr yfir miklum krafli. Þrátt fyrir vandamál sín hefur það rnarga kosti fram yfir fjölda annarra Evrópulanda. En við lifum á tímum örra samskipta og fljótra flutninga og ísland er ekki lengur algjörlega einangruð eyjörð einhvers staðar í Norður-Atlantshaf- inu. Það þarf þegar i stað að endur- skoða lög lýðveldisins um innflytj- endur, auk þess sem draga þarf úr fordómum og auka sveigjanleika rikisstofnana á borð við Póst og síma. Víst get ég verið skrítinn út- lendingur en ég er enginn blábjáni. Ég er ekki mjög gamall og í stað þess að hanga yfir sjálfunt mér um ókomna mánuði er ég fús til að leggja mitt af mörkum. Hvers vegna ekki að leyfa mér það? Desember 1981. Jiri Grosman, MA.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.