Dagblaðið Vísir - DV - 20.01.1982, Page 15

Dagblaðið Vísir - DV - 20.01.1982, Page 15
DAGBLAÐIÐ & VÍSIR. MIÐVIKUDAGUR 20. JANÚAR 1982. 15 Menning Menning Menning Aðláta hnefana ráða Eflvarfl Ingólfsson: Hnefaróttur. Reykjavik, Æskan, 1981. Haustið 1980 gaf Bókaútgáfa Æsk- unnar út bókina Gegnum bernskumúr- inn eftir ungan Snæfelling, Eðvarð Ingólfsson. Sú bók vakti talsvert mikla og að mínu áliti verðskuldaða athygli. Talsverð blaðaskrif urðu um hana og sýndist mönnum sitt hvað um gæði bókarinnar, en bókin er ein athyglis- verðasla frumsmíð ungs rithöfundar sem skrifar fyrir börn og unglinga sem fram hefur komið nú um skeið. Þess vegna vakti útkoma annarrar bókar Bókmenntir Sigurður Helgason Eðvarðs forvitni er hún kom á markað fyrir siðustu jól. Sú bók heitir Hnefaréttur og er mjög ólík fyrri bókinni. Hún fjallar um sam- skipti stráka og fullorðins manns í smá- þorpi einhvers staðar úti á landi. Mað- urinn sem heitir Sigmundur á í sifelld- um erjum við strákana í þorpinu og þeir gera sitt af hverju til að gera hon- um gramt í geði. Söguþráðurinn er svipaður og í öðrum hliðstæðum bók- um. Reynt er að gera hlutina spennandi og strákarnir komast stundum í hann krappan. „Æ, œ, magnyl, ó. “ Ég verð að segja að því miður hef- ur Eðvarð Ingólfssyni ekki tekistnægi- lega vel upp við samningu þessarar bókar. Ég hyggst hér á eftir færa fyrir því nokkur rök. í fyrsta lagi er hug- myndaflug hans oft á tíðum full líflegt, a.m.k. fyrir minn smekk. Sumt af þvi sem gerist er svo langt í frá að vera í samræmi við raunveruleikann að furðulegt verður að teljast. Persónurn- ar eru staðlaðar sögupersónur í sögum af þessu tagi. Foringinn er augljóslega greindur strákur sem hefur ráð undir rifi hverju og veit alltaf hvernig hann á að bregðast við þeim aðstæðum sem upp koma. Þá er hálfgerður furðufugl, sem höfundur kýs að kalla Heimsspek- inginn. Og loks ber að nefna Nonna, sem virðist vera venjulegastur þeirra fé- laga og í dálitlu samræmi við það hvernig strák^r eru oftast nær. Þessir þrir mynda „klíkuna” sem er félags- skapur sem fæst við þau mál sem upp koma á hverjum tíma. Þetta minnir mig mikið á sögumynstur í sögum Enid Blyton og eru áhrifin svo augljós að ekki er hægt að komast hjá að verða var við þau. Þar eru hópar sem geta varla gengið hundrað metra án þess að eiga við einhver stórmál að stríða. Sá er þó munurinn að strákarnir i „Hnefa- rétti” eru ekki að fást við afbrota- menn, heldur eiga þeir í stríði við einn þorpsbúa eins og fyrr segir. Málið á sögunni er mjög ólikt þvi sem strákar og krakkar tala almennt. Það nálgast að vera uppskrúfað og virkar kjánalegt á lesendur. Kostur sögunnar er raunverulega það sem að baki hennar býr. Þ.e.a.s. að nrenn eigi ekki að láta hnefaréttinn ráða heldur að leysa vandamálin eins og menn án ofbeldis og æsings. Og það kemur fram að réttarvitund barna og unglinga er oft mikil og ekki auðvelt að hafa áhrif á hana. Ég held að greinilegt sé að Eðvarð sé að einhverju leyti að færa sitt uppeldis- umhverfi inn í söguna. Ég leyfi mér að halda fram þeirri skoðun minni hér, að Eðvarð Ingólfs- son hafi gert mistök með því að láta þessa bók koma út. Við skoðun á bók- unum tveimur kemur í ljós að Gegn- um bernskumúrinn er skrifuð seinna en Hnefaréttur og því er Hnefaréttur mun viðvaningslegri að allri gerð en fyrri bókin. En það leynir sér ekki á þeirri sem siðar var skrifuð að Eðvarð Ing- ólfsson getur vel samið sögur. Og ég leyfi mér að vona að hann haldi áfram og reyni að gera betur. Sigurður Helgason. Brandenburgarkonsertar Fjórir Crondenburqar, nr. 1,4,5 og 6 ( flutn-ngi Knmmersveitar. Stjóm<intíi: Gilbort Levine. Konsnrtmeistari: Guflný Guflmundsdóttir. Venjulega þykir töluvert í ráðist að leika fleiri en einn Brandenburgar- konsertanna á einum og sömu tón- leikunum, hvað þá heldur að leika þá fjóra í einu. Hver Brandenburgar- konsertanna fyrir sig er annars svo magnað verk og sjálfstæðir eru þeir i eðli sínu að engu skiptir þótt þeir séu slitnir úr samhengi. Þeir eru hrein- ustu perlur hver og einn. Það liggja því oftast tvær ástæður, önnur hvor eða báðar eftir atvikum, að baki þess að leika þá alla, eða velflesta í einni runu. Þær eru annað hvort fræði- legar, til kynningar á konsertunum eða þá af metnaði, til að sýna getu góðrar hljómsveitar og snilld ein- leikara. Að öðrum kosti eiga þeir sjaldnast erindi til tónleikagesta allir í einni bunu. Og kröfur gerir meistari Bach til flytjenda þessarrra úrvalsaf- kvæma sinna eins og reyndar allra verka sem hann samdi. Ekki verður annað sagt en að hljómsveitarliniir, allir hafi staðið sig með hinni mestu prýði - þeir léku raunar af snilld. En þótt mér þætti leikurinn góður var ég hreint ekki dús við stílinn. í fyrsta lagi var eins og verið væri að heyja um það keppni Tónlist Eyjólfur Melsted hversu hratt mætti komast í gegnum allt heila kraðakið. Hljóðfæra- leikararnir eiga lof skilið fyrir að komast hjá því að leika flausturslega á ölllum sprettinum. í öðru lagi var flutningurinn ofhlaðinn róman- tiskum blæ, sem á ekkert skylt við barokmúsík. Fleiri aðfinnslur mætti tína til, en þær eru flestar nátengdar hinum tveimur fyrstu og ekki vert að lengja halann. Verði menn fyrir þvi að heyra músik baroktimans, og aðra gamla músik, leikna á upprunaleg hljóð- færi, eða hljóðfæri smíðuð eftir hin- um gömlu hljóðfærum, verða þeir fæstir samir eftir. Fyrstu upplifun af því tagi má líkja við að verða heillað- ur af álfum, þ.e. bergnuminn. Heyri maður snjalla menn leika á þau hin gömlu hljóðfæri getur maður aldrei litið nútímahljóðfæri sömu augum þegar hin gamla músík á í hlut. — En, sé þess gætt, að íþyngja ekki blæ tónlistarinnar með tónmagni hljóð- færanna og séu grundvallaratriði lif- andi pólýfóníu í heiðri höfð, er ekk- ert því til fyrirstöðu að koma megi auðmjúkum glæsileika verka Bachs til skila með hljóðfærum nútímans. En fram hjá þeim skilyrðum verður heldur ekki gengið EM Nauðungaruppboð sem auglýst var i 92., 94. og 96. tbl. Lögbirtingablaðsins á fasteigninni Flókalundi, Djúpavogi, talinni eign Hcrmanns Björns Haraldssonar, fcr fram á eigninni sjálfri, mánuaginn 25. janúar 1982 kl. 14.00. Sýslumaðurinn í Suður-Múlasýslu Nauðungaruppboð sem auglýst var í 92., 94. og 96. tbl. Lögbirtingablaðsins 1981 á Skólavegi 34 Fáskrúðsrtrði, þinglesinni eign Jóhanns Árnasonar.l.r tram á eigninni sjálfri þriðjudaginn 26. janúar 1982 kl. 11 árdegis. Sýslumaðurinn í Suður-Múlasýslu Nauðungaruppboð sem auglýst var í 92., 94. og 96. tbl. Lögbirtingablaösins 1981 á fasteign inni Botnabraut 1 A, F.skifirði, þinglesinni eign Sigrúnar Ó. Snorradótt- ur, ferfram á eigninni sjálfri föstudaginn 29. janúar 1982 kl. 14.00. Bæjarfógetinn á Eskifirði Nauðungaruppboð sem auglýst var í 71., 73. og 76. tbl. Lögbirtingablaös 1981 á hluta í Hraunbæ 60, þingl. eign Jóns S. Pálssonar, fer fram eftir kröfu Gjald- heimtunnar í Reykjavík á eigninni sjálfri föstudag 22. janúar 1982 kl. 13.30. Borgarfógetaembættið í Reykjavik. Nauðungaruppboð sem auglýst var í 72., 75. og 77. tbl. Lögbirtingablaðs 1981 á hluta í Mið- stræti 3, þingl. eign Birgis Harðarsonaro.fl., fer fram eftir kröfu Lifeyris- sjóðs verzlunarmanna og Jónasar A. Aðalsteinssonar hrl. á eigninni sjálfri föstudag 22. janúar 1982 kl. 11.30. Borgarfógetaembættið í Reykjavík. Nauðungaruppboð sem auglýst var I 71., 73. og 76. tbl. Lögbirtingablaðs 1981 á hluta í llraunbæ 118,þingl. eign Brynjars Þórs Jakobssonar o.fl., fer fram eftir kröfu Gjaldheimtunnar í Reykjavik á eigninni sjálfri föstudag 22. janúar 1982 kl. 14.15 Borgarfógetaembættið í Rcykjavik. Nauðungaruppboð sem auglýst var í 72., 75. og 77. tbl. Lögbirtingablaðs 1981 á húseign á Reykjavíkurflugvelli, talinni cign Flugstöðvarinnar hf., fcr fram eftir kröfu Gjaldheimtunnar í Reykjavík á eigninni sjálfri föstudag 22. janúar 1982 kl. 10.45. Borgarfógetaembættið í Reykjavik. FREEPORTKLUBBURINN Aöatfundur Freeportklúbburinn heldur aðalfund sinn fimmtudaginn 21. janúar nk. kl. 20.30 í Safn- aðarheimili Bústaðakirkju. Stjórnin.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.