Dagblaðið Vísir - DV - 20.01.1982, Qupperneq 30
30
DAGBLAÐIÐ & VÍSIR. MIÐVIKUDAGUR 20. JANÚAR 1982.
Heildarvelta fimmtíu stærstu fyrir-
tækja landsins samkvæmt lista
Frjálsrar verzlunar er rétt rúmlega
1.327 milljarðar gamalla króna árið
1980
Athygli vekur að réttur þriðjungur
þeirrar veltu er hjá fyrirtækjum Sam-
bands íslenzkra samvinnufélaga, kaup-
félaganna eða fyrirtækjum undir stjórn
þeirra eða í eigu sömu aðila. Hlutur SÍS
og kaupfélagavaldsins í veltu hinna
fimmtiu stærstu er 431 milljarður
gamalla króna. Auk þess munu Sam-
bandið og kaupfélögin eiga itök í
nokkrum öðrum fyrirtækjum, sem
komast á listann yfir fimmtiu stærstu
fyrirtæki á íslandi. Má þar nefna til
dæmis Sölusamband ísl. fiskframleið-
enda sem er alfarið ráðandi á saltfisk-
markaðinum og Slippstöðina hf. á
Akureyri en þar er KEA hluthafi.
Sambands- og kaupfélagafyrirtæk-
in eru þrettán í hópi hinna fimmtíu
stærstu en þar trónar Samband ís-
lenzkra samvinnufélaga efst með 163
milljarða gamalla króna veltu eins og
áður hefur komið fram.
Starfsmannafjöldi er nær því í sama
hlutfalli og veltan hjá Sambands- og
kaupfélagafyrirtækjum og síðan
öðrum á listanum yfir fimmtíu stærstu
fyrirtæki. 32,5% veltunnar eru hjá
hinum fyrrnefndu en 33,8% starfs-
mannanna. Heildarfjöldi starfsmanna
hjá þessum fimmtíu fyrirtækjum er rétt
tæplega þrettán þúsund og þar af rúm-
lega 4.300 hjá SÍS, kaupfélögum og
fyrirtækjum tengdum þeim.
Erlendur Einarsson forstjóri Sambands
ísl. samvinnufélaga.
Valgeir Ásgeirsson
framkvstj. Sœnsk-
íslenzka
Valgeir Ásgeirsson tók síðla lið-
ins árs við starfi framkvæmda-
stjóra Sænsk ísl. verzlunarfélags-
ins hf. Þar áður hafði hann verið
innkaupastjóri hjá Hagkaupum
um fimm ára skeið. Fyrri eigandi
Sænsk isl. var Óli Kr. Sigurðs-
son en núverandi eigendur félags-
ins eru Ólafur Már Ásgeirsson,
Valgeir Ásgeirsson, Ásgeir Valur
Einarsson, Camilla Hallgrímsson
og Hafdís Stefánsdóttir. Fyrir-
tækið verzlar einkum með
fatnað.
Stefán Reynir Kristjáns-
son Fjármálastj. ísl. járn-
blendifólagsins
Stefán Reynir Kristjánsson við-
skiptafræðingur tók sl. haust við
starfi fjármálastjóra íslenzka járn-
blendifélagsins hf. Hann lauk
prófi frá viðskiptadeild Háskóla
íslands árið 1971. Starfaði siðan
hjá Rafmagnsveitu Reykjavíkur
til 1974, þá hjá borgarhagfræð-
ingi til 1978 og þá hjá Flugleiðum
hf. til 1980. Stefán Reynir var við
sjálfstæð ráðgjafarstörf til sl.
hausts er hann tók við hinu nýja
starfi.
Sig. Friðriksson aðal-
framkvstj. fjármálasviðs
Iðnaðardeildar SÍS.
Sigurður Friðriksson viðskipta-
fræðingur hóf sl. haust störf sem
aðstoðarframkvæmdastjóri Iðn-
aðardeildar SfS á Akureyri.
Hann lauk prófi frá viðskipta-
deild Háskóla íslands í janúar
1971. Sigurður starfaði hjá Hag-
deild Landsbanka íslands þar til
hann tók við hinu nýja starfi, að-
stoðarframkvæmdastjóri — fjár-
málasvið.
Egill Thorarensen fröm
kvsfj. Sfldarrótta hf.
Egill Thorarensen niðursuðu-
tæknifræðingur hefur nýverið
tekið við starfi framkvæmda-
stjóra fyrirtækisins Síldarrétta
hf. Hann lauk námi í grein sinni í
Vestur-Þýzkalandi árið 1967.
Starfaði síðan hjá Norðurstjörn-
unni hf. í Hafnarfirði í sex ár eða
þar til hann tók við starfi fram-
kvæmdastjóra Siglósíldar á Siglu-
firði. Því starfi gegndi Egill fram
á árið 1980. Síldarréttir voru áður
í eigu Sveins og Ævars
Guðmundssona og var þá til húsa
við Súðarvog í Reykjavík. Fyrir-
tækið hefur nú flutt allan rekstur
sinn að Smiðjuvegi 36 í Kópavogi
þar sem Reykiðjan var áður til
húsa.
Viltu reka
veitingastað
íHúsiverzl-
unarinnar?
Hús verzlunarinnar trónar nú
yfir nýja miðbænum í Reykjavik
og ekki er annað að sjá en þarna
sé komin hin föngulegasta bygg-
ing. Að sögn Hjartar Hjartar-
sonar framkvæmdastjóra, sem er
formaður hússtjórnar eru eig-
endur byrjaðir að innrétta sina
hluta hússins og búast má við að
fljótlega verði farið að flytja inn.
Næstu daga verður auglýst eftir
tilboðum í að reka veitingastað á
jarðhæð Húss verzlunarinnar.
Þar verður einnig í framtíðinni
útibú Verzlunarbanka íslands.
Hugmyndin er að veitingastaður-
inn þjóni starfsfólki og gestum
hússins auk næsta nágrennis.
Eigendur Húss verzlunarinnar
eru Verzlunarmannafélag
Reykjavíkur, Lífeyrissjóður
verzlunarmanna, Verzlunarbanki
fslands hf., Kaupmannasam-
tökin, Félag ísl. stórkaupmanna,
Verzlunarráð íslands og Bíl-
greinasambandið.
Tómas Jónsson fulttníi
VéladeildarSÍS
Tómas Jónsson hefur tekið við
starfi fulltrúa framkvæmdastjóra
Véladeildar SÍS. Hóf hann störf
um áramótin síðustu. Tómas lauk
prófi frá viðskiptadeild Háskóla
íslands 1974 og var síðan við
framhaldsnám við Verzlunar-
háskólann í Kaupmannahöfn. í
april 1977 hóf hann störf hjá
Skipulagsdeild SÍS og var þar
til loka siðasta árs, er hann tók
við hinu nýja starfi.
Sölumiðstöðin með
kvikmyndir, bækling
og bók í undirbúningi
Sölumiðstöð hraðfrystihús-
anna hefur látið gera kvikmynd,
sem er tilbúin til sýninga, um
frystihús á Llandi. Klipping og
lokavinna við aðra kvikmynd um
Coldwater Seafood, fyrirtæki
Sölumiðstöðvarinnar í Banda-
rikjunum, stendur nú yfir.
Einnig er verið að leggja síð-
ustu hönd á kynningarbækling
um Sölumiðstöðina. Er hann á
islenzku. Auk þess hefur DV
fregnað að verið sé að vinna að
bók um Sölumiðstöð hraðfrysti-
húsanna. Mun það verk vera í
umsjón Guðmundar H. Garðars-
sonar blaðafulltrúa samtakanna.
Mestur
spamaður
i Sviss
—hafa haldið titlinum í níu
ár eða frá upphafi
Góð lífskjör og góð afkoma fólks í
Sviss hefur lengi verið rómuð. Einnig
hafa þeir lengi verið miklir eignamenn.
Ekki verður annað séð en orðtakið —
sparnaður er upphaf auðs — sannist á
Svisslendingum. Samkvæmt könnun
sem fram fer á vegum alþjóðlegra
bankasamtaka (Intemational Savings
Bank Institute) spara engir eins og þeir.
Svisslendingar hafa haldið titlinum
Viðskipti
(Jmsjón:
Ólafur Geirsson
— mestu sparendur heims — undan-
farin níu ár en þá hófu starfsmenn
bankasamtakanna að kanna sparnað
meðal einstakra þjóða.
Að meðaltali átti hver Svisslendingur
jafnvirði 14.461 dollara á bankareikn-
ingi árið 1980. í öðm sæti voru Belgíu-
menn með jafnvirði 9.043 dollara,
Japan 8748 dollara, Vestur-Þýzkaland
7.931, Austurríki 5.913, Svíþjóð 5.604,
Bandaríkin 5.583, Frakkland 5.285 og
Noregur 5.273.
í könnuninni var aðeins tekið með
það sem sparað var og lagt fyrir með
innleggjum í banka. í mörgum ríkjum er
hins vegar algengt að almenningur og
aðrir fjárfesti sparifé sitt í formi líf-
trygginga eða í ýmiss konar
verðbréfum.
S/S og kaupfélaga-
valdið með þríðjung
—af veltu f immtíu stærstu fyrirtækja landsins