Dagblaðið Vísir - DV - 26.03.1982, Side 3

Dagblaðið Vísir - DV - 26.03.1982, Side 3
DAGBLAÐIÐ & VlSIR. FÖSHJDAGUR 26. MARZ 1982. 3 „VIUUM FRAMLENGJA SAMNINGANA ÓBREYTTA TIL SEX MÁNAÐA” —segir Páll Sigurjónsson, formaður VSÍ Páll Sigurjónsson var endurkjörínn formaður Vinnuveitendasambandsins. „Það er alveg ljóst að við höfum ekkert að bjóða í samningunum í vor. Við ieggjum til að siðustu samningar verði framlengdir óbreyttir til skamms tíma, til dæmis sex mánaða/'’ sagði Páll Sigurjónsson, formaður Vinnu- veitendasambands íslands í samtali við DV, en aðalfundur VSÍ var haldinn nú í vikunni. ,,Eina leiðin til að ná fram einhverj- um bótum er að allir leggist á eitt um að ná niður verðbólgunni á sem skemmst- ur tima. Það eru einu raunverulegu kjarabæturnar. Og stórt skref í þá átt væri að halda óbreyttum samningum, sleppa vísitölu og grunnkaupshækkun- um alveg. Slíkt myndi fljótt skila árangri,” sagði Páll. Hefurðu trú á að launþegasamtökin kyngi slíkum röksemdum? „Þetta eru bara staðreyndir. At- vinnuvegirnir eru svo aðþrengdir að þeir hafa ekki svigrúm til að bjóða neinar hækkanir. Það er algjör grund- vallarforsenda til að launþegar beri Boeing 720 jiota verður notuð til flugsina. ÁÆTLUN ARNAR- FLUGS TIL EVRÓPU HEFST 20. JÚNÍ Arnarflug hefur gefið út flugáætl- un til þriggja borga í Evrópu, Amsterdam, Diisseldorf og Zúrich, með fyrirvara þó um samþykki þar- lendra yfirvalda sem reyndar þykir liklcgt að komi, Amsterdamflugið hefst 20. júní næstkomandi. Þangað verður flogið tvisvar í viku, sunnudaga og mið- vikudaga, fram til 12. september. Þá tekur við vetraráætlun en hún hljóðar upp á tvö' flug í viku, á þriðjudögum og föstudögum. Flug til Zúrich hefst 3. júlí. Þangað verðureitt flugi viku, á laugardög- um. Um vetrartímann verður flogið á föstudögum. Um vetrartímann verð- ur flogið á föstudögum, um Amster- dam. Flugið til Dússeldorf verður á mið- vikudögum, um Amsterdam. Ekki verður hins vegar flogið þangað næsta vetur. Fargjöldin verða í samræmi við lATA-fargjöld. Auk þeirra verður boðið upp á APEX-fargjald og sér- stakt hópfargjald. Boeing 720 þota, sem tekur 149 farþega, verður notuð til flugsins. -KMU. Vattarnesskriður: lllfært vegna hruns Frá Ægi Kristinssyni Fáskrúðsfiröi: Loksins, loksins, mikið var. Núna 24. marz, er loksins verið að hefla veginn milli Reyðarfjarðar og Fá- skrúðsfjarðar en það hefur ekki verið gert siðan i september sl. Kannski óhægt um vik þar sem umhleypingar hafa verið miklir. Undanfarið hefur vegurinn verið stórhættulegur farar- tækjum vegna þess hversu holóttur hann hefur verið og illfær af þeim sök- um. Það má segja að leiðin frá Reyðar- firði suður i Berufjörð sé einn alversti þjóðvegur landsins'. Þar skiptist á moldardrulla og stórgrýti enda kemur það fram á dekkjum og viðhaldi. Ekki væri ósanngjarnt að taxtar atvinnubif- reiða væru 20—30% hærri hér en á Reykjavikursvæðinu vegna þessa. í umhleypingum, eins og undan- farið, fellur alltaf töluvert af grjóti á veginn í Vattarnesskriðum og þar sem vegagerðin opnar aðeins tvisvar í viku hér á milli, þ.e. þriðjudaga og föstu- daga, kemur fyrir- að vegurinn um skriðurnar sé illfær vegna grjóts. ÞóráSetfossi: Steimillina íÞorlákshöfn Svohljóðandi tillaga var samþykkt samhljóða á fundi í Verkalýðsfélaginu Þór á Selfossi. „Fundur i Stjórn og trúnaðarmanna- ráði Verkalýðsfél. Þór, haldinn á Sel- fossi mánudaginn 22. marz 1982, átelur harðlega þá ákvörðun iðnaðarráð- herra að ákveða steinullarverksmiðju stað á Sauðárkróki, þar sem öll rök sýna að hagkvæmara væri að reisa verksmiðjuna í Þorlákshöfn.” meira úr býtum, að atvinnuvegunum verði sköpuð betri og frjálsari starfs- skilyrði og auknu fjármagni veitt til þeirra. Því betra sem fyrirtækin hafa það, þeim mun meira fær starfsfólk- ið.” En mundi aukin velmegun fyrirtækj- anna raunverulega skila sér til starfs- fólksins? Yrði ekki fjármagnið bundið í einhverju öðru, svo sem fjárfesting- um? „Ég held að atvinnurekendur hafi fullan vilja á að láta starfsfólk njóta bættra skilyrða. Það hefur s\-nt -ie að þegar vel árar hjá atvinnuvegunum, nást bezt kjör fyrir launþegana. En við erum ekki tilbúnir að skrifa undir á- byrgðarlausa verðbólgusamninga, skrifa upp á krónuhækkanir sem laun- þegar greiða svo jafnóðum til baka með gengislækkunum og verðhækkunum.” „Efnahagsástandið hér er orðið mjög alvarlegt umhugsunarefni. Það sannast bezt þegar skoðaðar eru athug- anir hlutlausra aðila, eins og OECD, á iífskjörum hér. Þeirra tölur sýna að okkar þjóðartekjur á mann hafa lækk- að til muna, eða úr 5. i 8. sæti á nokkr- um árum. Við erum á hraðri leið niður og því verður að snúa við sem fyrst,” sagði Páll Sigurjónsson. -JB Fyrir námsfólk jafnt og aöra sem við vinnu sína sitja er mikilvæg • undirstaða árangurs að sitja rétt og þægilega. Stóll frá Stáliðjunni er því góð gjöf handa & fermingarbarninu, góður ^ stuðningur áður 0P— STALIÐJANhf SMIÐJUVEGI 5, KÓPAVOGI, SÍMI 43211 VIÐ TEUUM að notaðir VOLVO bílar séu betri en nýir bflar af ódýrari gerðum Volvo 345 GLS árg. '82 ekinn 4.800 km sjálfsk. 150.000 Volvo 244 GL árg. '80 ekinn 33.000 km sjálfsk. 160.000 Volvo 244 GL árg. '79 ekinn 75.000 beinsk. 140.000 Volvo 244 GL árg. '79 ekinn 16.000 km beinsk. 145.000 Volvo 245 GL árg. '79 ekinn 27.000 km sjálfsk. 160.000 Volvo 343 DLárg. '78 ekinn 41.000 km sjálfsk. 88.000 Volvo 244 DL árg. '78 ekinn 73.000 km beinsk. 113.000 Volvo 144 DL árg. '73 ekinn 113.000 km beinsk. 60.000 w 35200 VELTIR SUÐURLAIM DSBR AUT 16 Opið laugardag kl. 10—16.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.