Dagblaðið Vísir - DV - 26.03.1982, Side 8

Dagblaðið Vísir - DV - 26.03.1982, Side 8
[ Okkur vantar stúlku | til afgreiðslustarfa ■ ekki yngri en 20 ára eftir hádegi. Upplýsingar hjá verzlunarstjóra Bonaparte, 5 Austurstræti 22. Ath. ekki i síma. ^KARNABÆR Vcgna þcss að nývcrið hcfur komið upp gin- og klaufavciki í Danmörku cr hcr mcð bannað að flytja til landsins hvcrs konar fóðurvörur, afurðir af dýrum, jarðávcxti og blóm frá Danmörku. Þcim cindrcgnu tilmælum cr bcint til fcrðafólks að heimsækja ckki svcitabæi á Fjóni og að þeir scm þar hafa dvalið á svcitahcimilum taki ckki mcð sér óhrein vinnuföt og vinnuskó til íslands. Landbúnaðarráðuncytið, 25. marz 1982. Athugið, miðar eru seldir á skrifstofu S.Á.Á., Síðumúla 3—5, og einnig sendir ef óskað er. Símar 33370 og 82399. Opið virka daga. ki. 9-5. Qpjð laugardag Tökum á með S.Á.A. kl. 10—16. Byggingarhappdrætti S.ÁÁ aa.oo TIMBUR BYGGINGAVÖRUR Flísar • Hreinlætistæki • Blöndunartæki • Málningarvörur • Verkfæri • Baðteppi • Baðhengi • Baðmottur. Harðviður • Spónn • Spónaplötur • Viðarþiljur • Einangrun ‘Þakjárn • Saumur • Fittings Ótrúlega hagstæðir grciðsluskilmálar allt niður í 20% útborgun og cftirstöðvar allt að 9 mánuðum. Mánudaga til fimmtudaga dj>*. frá kl. 8-18 0» Föstudaga frá kl. 8—22. Laugardaga kl. 9—12. HRINGBRAUT119, SIMAR10600-28600: Munið aðkeyrsluna frá Framnesvegi DAGBLAÐIÐ & VÍSIR. FÖSTUDAGUR 26. MARZ 1982. Útlönd Útlönd Útlönd Bezta afmælisgjöf er f lokkurinn fékk — sagði Roy Jenkins eftir kosningasigur í Hillhead — Sigur minn táknar nýja tíma skyn- semi, hófsemi og og vonar, sagði jafn- aðarmaðurinn Roy Jenkins eftir kosn- ingasigur sinn í Hillhead-kjördæminu í Glasgow í gær. Kjördæmið hefur í sl. 60 ár verið vígi íhaldsmanna og hylltu stuðningsmenn Jenkins hann sem IRoy Jenkins: Hin nýja von brezku þjóðarinnar. fyrsta leiðtoga hins unga Jafnaðar- mannaflokks sem fæddist fyrir ári. í kosningunum hlaut Jenkins 2.038 atkvæðum meira en frambjóðandi íhaidsflokksins. Stóðu bæði jafnaðar- menn og frjálslyndir að baki framboði Jenkins. Er Jenkins var spurður að því hvort hann langaði í forsætisráðherrastólinn svaraði hann: — Mig langar til að gefa brezku þjóðinni nýtt að velja um og nýja von. Ef ég þarf að vera forsætisráðherra til þess mun ég ekki neita því embætti. Dr. David Owen, flokksbróðir hans, sagði: — Það er eins og hann sé fæddur til að sameina þá tvo flokka er að kosn- ingabandalaginu standa og eðlilegt að hann verði forsætisráðherraefni þess. Kosningasigur Jenkins var mikið áfall fyrir Margaret Thatcher og íhaldsflokkinn en jafnvel enn meira áfall fyrir Verkamannaflokkinn. Fram- bjóðandi hans varð í þriðja sæti með 7.846 atkvæði og munaði 2.260 al- kvæðum á honum og Jenkins. Verkamannaflokkurinn, en í honum fer fram mikil barátta vinstrisinna og hægrimanna, hefur ekki unnið neinar aukaþingkosningar síðan í maí 1971. Sagði Jenkins að kosningasigurinn væri sú bezta afmælisgjöf sem Jafn- aðarmannaflokkurinn hefði getað fengið á eins árs afmælinu en talið er að hann sæki aðalstuðning sinn til hægfara fólks í borgarastétt sem ekki hefur áður látið neitt til sin taka í stjórnmálum. r i i ■ i i i i i i i i i i i i Klukkunni flýtt Flest Evrópulönd, austan tjalds og vestan, flýta klukkunni um eina klukkustund þessa helgina og fara öll í senn á sumartíma. Átta ár eru nú síðan tekinn var upp sérstakur sumartími i Evrópu til orkusparnaðar en tímabreytingin hefur aldrei snert jafnmarga og nú, eða um 400 milljónir manna í 25 löndum. Nokkur ríki fara sínar eigin koppa- götur með klukkuna. Sovétríkin fara ekki á sumartíma fyrr en 1. apríl. ísland, Tyrkland, Albanía og Júgó- slavía breyta ekki klukkum sínum. En þegar Sovétríkin hafa breytt sinni klukku verða fjórar mismun- andi klukkur í Evrópu. EBE-löndin að fráskildum Bretlandi og írlandi verða 2 klst. á undan Greenwich- klukkunni. Bretar og írar verða 1 klst á undan. A-Evrópulönd verða flest 3 stundum á undan GMT, en Sovét- ríkin4stundum. Þetta hringl með klukkuna gerist hjá öllum löndunum samtímis til þess að komast hjá ruglingi í millirikja- samskiptum. Sums staðar kemur fyrir ruglingur, eins og á Kýpur, þar sem gríski hlut- inn tekur upp sumartímann (3 klst. á undan Greenwich) en tyrkneski hlut- innekki. — Að auki hefur ekki náðst eining um það meðal Evrópulanda hvenær klukkunni skuli seinkað aftur og sumartíminn enda. EBE hefur reynt að fá menn til þess að Ijúka sumartímanum 23. september, en Bretar og írar vilja hafa sinn sumar- tima4vikuríviðbót. 1 I I I I I I I I I I I I I I Eitraður lax í dósum Nokkur þúsund dósir af niðursoðn- um laxiCfrá Alaska, sem seldar hafa verið utan Bandaríkjanna, kunna að vera gallaðar og valda matareitrun, eftir því sem heilbrigðisyfirvöld i Bandaríkjunum segja. í febrúar lét matvæla- og lyfjaeftirlit USA innkalla lax í dósum frá Nefco- Fidalgo niðursuðuverksmiðjunum í Alasaka, eftir að maður hafði dáið í Belgíu af matareitrun, sem rakin var til dósalax. Á dósunum voru smágöt, sem sköp- uðu skilyrði fyrir eitrunina. Þær voru seldar undir ýmsum vöru- merkjum og til margra landa. Verða dómar ræn- ingjanna mildaðir? Fyrir ítalska þinginu liggur nú frum- varp til laga um mildari refsingar í dómum yfir Rauðu herdeildarmönnum sem séð hafa að sér og ganga í lið með lögreglunni. r— — — — — — — — i ■ Mubarakstað- j ifestirdauðadómai ■ i I i i i Hosni Mubarak, forseti Egyptalands, hefur staðfest 5 dauðadóma í sambandi við morð- iðáSadatíoktóbersl. Mennirnir mega þó áfrýja á ný og lendir ákvörðunin þá aftur hjá forsetanum. Er búizt við að það sé þýðingarlaust og aftaka þeirra séóumflýjanleg. I I I I I Ef samþykkt verður gæti þessi laga- breyting komið til góða þeim sjö hryðjuverkamönnum sem dæmdir voru í Verona í gær fyrir ránið á bandariska hershöfðingjanum James Dozier. Alls voru 17 menn og konur úrskurð- uð sek um hlutdeild í ráninu en 8 þeirra ganga ennþá laus og fara huldu höfði. Búizt er við því að allir sakborningar áfrýi en um þær mundir sem áfrýjunar- málið kemur fyrir rétt má búast við þvi að nýja frumvarpið verði orðið að lög- um. Þyngstan dóminn fékk Cesare di Lenardo, einn þeirra sem handtekinn var um leið og Dozier var frelsaður. Hann hefur neitað lögreglunni um nokkra samvinnu og var dæmdur í 27 ára fangelsi. Foringi ræningjanna, Antonio Sav- asta, fékk 16 ára fangelsi og 6 mánuði. Hann hefur verið lögreglunni mikil upplýsingalind viðrannsókn málsins. Fjöldagröf i Guatemala Pyndingar í Guatemala 29 lík hafa fundizt á ýmsum stöðum í Guatemala sl. sólarhring. Skotsár fundust á líkunum og öll báru þau glögg merki pyndinga. Lík 13 indíána fundust í fjöldagröf í djúpu gili. 12 önnur fundust er sýndu að fólkið hafði verið skorið á háls að loknum pyndingum. Auk þess báru fjögur lik vitni um hnífsstungur auk skotsáranna.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.