Dagblaðið Vísir - DV - 26.03.1982, Qupperneq 13
DAGBLAÐIÐ & VlSIR. FÖSTUDAGUR 26. MARZ 1982.
13
Kjallarmn
Friðjón Þórðarson
vegna brota og möguleiki á að vista
þar hættulega geðsjúklinga sem hin
almennu geðsjúkrahús eiga í erfið-
ieikum með að vista. Ráðuneytið
telur þetta með brýnustu úrlausnar-
efnum á sviði fangelsismálanna. Um
vistun geðsjúkra fanga er einnig
fjallað i þingsályktun um geðheil-
brigðismál, skipulag og úrbætur, sem
nýverið hefur veriðsamþykkt.”
Samkvæmt síðastnefndri þings-
ályktun er nefnd starfandi undir
forystu Ingvars Kristjánssonar
geðlæknis. — í fyrra sendu Ólafur
Ólafsson landlæknir og Jón Thors
deildarstjóri frá sér tillögur að beiðni
dómsmálaráðherra og heilbrigðisráð-
herra, sem ganga í þá átt, að reist
verði og rekin sérstök sjúkrastofnun
fyrir geðsjúka fanga. Ljóst er þó, að
þetta verður dýr lausn. í fjárlögum
þessa árs er veitt heimild til þess að
greiða kostnað við undirbúning bygg-
ingar eða kaupa á húsnæði til
vistunar fólks í öryggisgæzlu að
fengnum tillögum heilbrigðis- og
dómsmálaráðherra.
Lausn á grunni
mannúðarstefnu
Það skal tekið fram og þakkað, að
á liðnum árum hafa frændur okkar á
Norðurlöndum iðulega hlaupið undir
bagga með dómsmálayfirvöldum hér
á landi og tekið við geðsjúkum
föngum til vistunar á sérstofnunum
og sjúkradeildum um lengri og
skemmri tíma. Hefur þessi aðstoð oft
leyst úr brýnum vanda, þó að ekki sé
hægt að treysta á slíka lausn til
frambúðar.
Að því er varðar almennar úrbætur
í fangelsismálum i náinni framtíð
skal þess getið, að unnið er að því að
fá fé til þess að halda áfram byggingu
gæzluvarðhaldsfangelsis við
Tunguháls, sem leysa á af hómi
hegningarhúsið við Skólavörðustíg
og fangelsið í Síðumúla, en bæði
þessi hús eru óhentug orðin til
þeirrar þjónustu, sem þau eru ætluð,
þ.e.a.s. til vistunar gæzluvarðhalds-
fanga og móttöku fanga, sem eru að
hefja afplánun. Nokkru fé er veitt á
fjárlögum þessa árs i Tunguhálsbygg-
inguna. Þar er einnig gert ráð fyrir
kvennafangelsi í framtíðinni, þó að
málefni kvenfanga hafi tekizt að
leysa um sinn á viðunandi veg. Mörg
fleiri vandamál munu leysast, þegar
byggingin við Tunguháls verður tekin
í notkun. En það veltur að sjálfsögðu
á fjárveitingu hins opinbera, hvenær
sú stund rennur upp. Eitt og annað
mætti nefna, sem horfir til bóta, svo
sem stóraukna læknisþjónustu við
vistmenn í vinnuhælinu að Litla-
Hrauni og aðstöðu, sem þar er veitt til
náms og mennta, einkum í sambandi
við Fjölbrautaskólann á Selfossi.
Nefnd, sem skipuð var í fyrra til að
endurskoða menntun fangavarða,
hefur lokið störfum og sent frá sér
skýrslu. Verður efni hennar rætt á
Alþingi bráðlega og jafnframt borið
fram frumvarp til breytinga á lögum
frá 1973 um fangelsi og vinnuhæli.
Unnið er að því að hraða meðferð
dómsmála.
Að því er sérstaklega tekur til hins
stóra vanda, er lýtur að vistunar-
málum geðsjúkra fanga, og rætt var
hér að framan, skal þess að lokum
getið, að það mál er í vandlegri
athugun, m.a. á grundvelli tillagna,
sem landlæknir hefur lagt fram og
greinargerðar, sem fangalæknar í
Reykjavík hafa nýlega tekið saman.
En það er sannast að segja, að mál
þessi verða að leysast á grunni
mánnúðarstefnu í góðri samvinnu
dóms- og heilbrigðisyfirvalda.
Friðjón Þórðarson
dómsmálaráðherra.
í báðum risaveldunum
ráða öfl sem eru háð
vígbúnaðarkapphlaupi
Á síðastliðnu ári vaknaði til lifsins
friðarumræða í Evrópu sem á sér
enga hliðstæðu á seinustu áratugum.
Hundruð þúsunda manna tóku þátt í
fundarhöldum og starfi til að mót-
mæla staðsetningu nýrra og fullkomn-
ari gjöreyðingarvopna í Evrópu. Á
tímum nýs kalds striðs, sem valdhaf-
ar stórvelda kynda ákaft undir, er
þetta vonarglæta í myrkrinu og for-
mælendur vígbúnaðarkapphlaups
kippast við af undrun og ótta.
Þessi friðarumræða hefur ekki náð
þeirri breidd hérlendis sem í sumum
löndum Vestur-Evrópu, á Bretlands-
eyjum, í Hollandi og Þýskalandi. Eru
ástæður fyrir því margar og sú helsta
að við höfum öll eftirstríðsárin haft
skipulagða fjöldabaráttu gegn út-
lendum her, herstöðvum og
hernaðarbandalögum. En vert er hér
að kynna hugmyndir eins aðalfor-
göngumanns þessarar friðarumræðu,
Edward P. Thompsons, þar sem
hann mun væntanlegur hingað til
landsins í boði Samtaka herstöðva-
andstæðinga. Óhætt er að fullyrða
að án þessa manns væru þessar
fjöldahreyfingar ekki það sem þær
eru í dag. Með skrifum sínum og eld-
móði hefur hann rifið starfið áfram
og þeir sem verða vitni að ræðu-
flutningi hans munu seint gleyma því.
Hver er E.P. Thompson?
Edward P. Thompson (fæddur
1924) er sagnfræðingur. Fræðistörf
hans hafa mótast af sósíaliskri um-
ræðu og eftir hann liggur fjöldi rann-
sókna. Má þar nefna William
Morris. Frá rómantíkursinna til bylt-
ingarsinna; Tilurð ensku verkalýðs-
stéttarinnar og Viggar og veiðimenn.
Thompson er ekta „bresk týpa”, hár
og grannur með lifandi grátt hár i all-
ar áttir eins og breskur fjárhundur.
í fræðistörfum sínum á hann það
sameiginlegt með fieiri breskum
sósíalistum að þeir gleyma ekki í hug-
myndafræðiumræðu að hún á að
þjóna manninum, manneskjan á að
sitja í fyrirrúmi.
Thompson hefur alla sína tíð verið
þátttakandi í pólitískri umræðu.
Hann sagði sig úr breska
kommúnistaflokknum 1956 eftir at-
burðina í Ungverjalandi en var áfram
starfandi á vinstri vængnum. í dag er
hann meðlimur í breska verkamanna-
flokknum, ekki af brennandi áhuga
heldur vegna þess að það er „eins og
að vera hluti af mannkyninu” eins og
hann segir sjálfur.
Á sjötta áratugnum starfaði
Thompson í friðarhreyfingum þess
tíma og hefur verið óslitið starfandi
þar síðan — þótt þær gleymdust
Erling Ólaf sson
flestum þangað til á seinni hluta
áttunda áratugarins.
í dag er Thompson önnum kafinn i
friðarstarfinu. Hann var einn af
stofnendum END, Samtaka um
kjarnorkuvopnalausa Evrópu, hann
skrifar, heldur ræður, er stöðugt á
faraldsfæti — einn daginn í Briissel
— annan í Frankfmt og þann þriðja í
Newscastle.
Ein af ræðum hans, Helstefnan,
síðasta stig siðmenningarinnar,
hefur orðið grundvöllur að umræðu
og stefnu fjölmargra friðarsamtaka.
Hvað er helstefna?
Hver er þessi helstefna sem
Thompson hefur svo mikið rætt um?
Með helstefnu á Thompson við þá
þróun sem átt hefur sér stað á tímum
kalda stríðsins. Myndast hefur
ástand sem enginn fær stjórnað —
stjórnmálamenn stórveldanna fá
engu ráðið um framvinduna i víg-
búnaðarmálum og þótt samið sé um
takmörkun í vígbúnaði og vopna-
framleiðslu Ieiðir það aðeins til enn
hraðara kapphlaups. Allt þjóðfélags-
kerfið, bæði í Sovétrikjunum og
Bandarikjunum, er háð þessari
þróun. Vopnin ganga inn í stærri
heild, vopnakerfi, og vopnakerfin
eru stór liður í efnahagslífi sem hefur
staðnað á flestum sviðum nema i
vopnaframleiðslunni. Vísindi og
þekking gera þessa þróun mögulega
og helmingur allra vísindamanna í
heiminum vinna á einn eða annan
hátt við vígbúnaðraframleiðslu. Þessi
þróun leiðir okkur æ lengra fram á
heljarbrún — í átt til gjöreyðingar
alls lífs á jörðinni.
í Bandarikjunum stjórnast þessi
þróun af einkafjármagni og vopna-
framleiðsluhagsmunum og i Sovét-
ríkjunum af skrifræði og hernaðar-
mafiu. í báðum risaveldunum ráða
öfl sem eru háð áframhaldandi víg-
búnaðarkapphlaupi. Haukar í öðru
ríkinu geta af sér hauka í hinu. Því er
kominn timi til að reyna aö snúa við
Edward P. Thompson sagn-
fræðingur.
þessari þróun, mannkynið lifir í dag
sitt hættulegasta skeið. Ástæðan er
fyrst og fremst kjarnorkuvopnin
Þau eru að áliti Thompsons fremsta
tákn fyrir mannlega villimennsku og
heimsku. Með því að nota þau út-
rýmir maður sjálfum sér.
Friðarhreyfingarnar hafa vaxið
upp úr þessum jarðvegi. Evrópubúar
hafa vaknað upp við það að risaveld-
in eru með hugmyndir um að fórna
þeim. Gera lönd Evrópu að leiksvið-
fyrir gjöreyðingarstyrjöld kjarnorku-
vopna. Hlutverk þessara friðarhreyf-
inga er að berjast gegn þessu og
fyrsta skrefið er að koma á kjarn-
orkuvopnalausum svæðum i Evrópu.
Eitt af þessum svæðum eru kjarn-
orkuvopnalaus Norðurlönd: En það
er ekki nóg að vinna að kjarnorku-
vopnalausum svæðum i Vestur-
Evrópu heldur hljóta friðaröflin að
vinna að því að ná sambandi og sam-
vinnu við sams konar hreyfingar í
Austur-Evrópu — að reyna að koma
á fót sem flestum upplýsingaleiðum
milli austurs og vesturs.
Helstef na og ísland
Eftir að hafa kynnt helstefnuna og
höfund hennar þá hlýtur sú spurning
að hvarfia að okkur hvernig ísland
komi inn í þessa mynd. Er okkar land
ekki svo fjarri þessum Evrópuvígvelli
að við þurfum ekki að hafa neinar
áhyggjur?
Svo er ekki. Meðaldrægar eld-
flaugar í Mið-Evrópu geta náð alla
leið til íslands. Á íslandi höfum við
herstöð og hernaðarútbúnað sem
mun óhjákvæmlega dragast inn í
Evrópustyrjöld. Því hlýtur okkar
stærsti skerfur að vera að vinna að
því að minnka hættu á gjöreyðingu.
Við þurfum ekki að vera sammála
um alla hluti í þessum efnum. Breið
samstaða ætti að geta myndast um
kjarnorkuvopnalaust ísland í stríði
og friði, ennfremur um almenna bar-
áttu gegn vígbúnaði og fyrir friði i
heiminum.
En við getum unnið að okkar
málefnum á mörgum vígstöðvum?
Við herstöðvaandstæðingar munum
ekki gefa upp okkar baráttumál sem
er herstöðvalaust ísland.án þátttöku í
hernaðarbandalögum. Aldrei hefur
þörfin verið brýnni fyrir þá baráttu.
Við sjáum fram á nýtt tímabil kalds
stríðs. Höfin í kringum íslands verða
æ þéttsetnari af vígbúnaðartólum og
risaveldið „okkar” virðist setja fram
æ meiri kröfur um vígbúnaðarupp-
byggingu hérlendis og valdamenn
hermangs hneigja sig í kór.
Því verðum við að vinna — vinna
að því að opna sem augu flestra fyrir
jsessari þróun. Það gerum við ekki
með því að neita að starfa með öðr-
um sem hafa ekki nákvæmlega sömu
skoðun og við. Það gerum við með
því að fá sem flesta til samstarfs gegn
vigbúnaði, kjarnorkuvopnum og
gjöreyðingu. Þar er Thompson góð
fyrirmynd. Þrátt fyrir að ástandið í
heiminum gefi ekki tilefni til bjart-
sýni þá gefumst ekki upp. Tökum
undir með Thompson. hann segir:
.„Sá, sem framkvæmir hann er ekki
svartsýnismaður.”
Erling Ólafsson,
kennari.
^ „Evrópubúar hafa vaknað upp við það að
risaveldin eru með hugmyndir um að
fórna þeim. Gera lönd Evrópu að leiksviði fyrir
gjöreyðingarstyrjöld kjarnorkuvopna,” segir
Erling Ólafsson í grein sinni þar sem hann
fjallar um stórveldin og kjarnorkuna.