Dagblaðið Vísir - DV - 10.05.1982, Síða 1
„SAMFWTt) ER
bandsins: UPP í LOFT’
—Búast má við átökum á nef ndaf undum ASÍ í dag. ASÍ að
tapa forystuhlutverki sínu, segir Þorsteinn Pálsson
„Samflotið er upp í loft, það er
enginn í því,” sagði heimildarmaður
DV innan Verkamannasambandsins í
morgun. Verkamannasamband
Islands kynnir í dag nýjar kröfur og
hættir samÐoti með ASI í kröfugerð
yfirstandandi samninga. Verka-
mannasambandið hafði fariö fram á
13% flata kauphækkun, auk nokkurrar
launaflokkahækkunar, sem meta má á
3%. Nú er dregið úr flötu prósentu-
hækkuninni, en áherzla lögð á þriggja
flokka launahækkun.
Verkamannasambandiö verður
áfram aðili að öðrum kröfum aöildar-
félaga ASI, sérstaklega er varða samn-
inga fyrir konur og vísitalan verður
áf ram á sameiginlegu boröi.
Talsmenn Verkamanna-
sambandsins telja hið stóra samflot úr
sögunnL Byggingamenn séu þegar
búnir aö kijúfa, sömuleiðis rafvirkjar
og málmiðnaðarmenn lausbeiziaðir.
Með hinni nýju kröfugerð telur Verka-
mannasambandiö hina lægst launuðu
fá meiri k jarabætur.
Búast má við átökum innan
Alþýðusambandsins í dag vegna
hinnar breyttu stöðu. 20 manna
nefndin þingar í hádeginu og 72 manna
nefnd ASI kemur saman kl. 14 í dag.
,,Eg hef ekki séö þessar kröfur og get
því ekkert sagt um þær efnislega,”
sagði Þorsteinn Pálsson, fram-
kvæmdastjóri Vinnuveitenda-
sambandsins, i morgun. „En allar
ný jar kröfur eru jafnfáránlegar og þær
semlegið hafa fyrir.
Þetta bendir til verulegrar
upplausnar ASI og að sambandiö sé aö
tapa forystuhlutverki sinu í þessum
samningum. En megináhrif þessarar
nýju kröfugerðar eru þau að lengri
tími mun líða þar til von er á samn-
ingum og að þetta mun torvelda samn-
inga. Þessar nýju kröfur eru ekki
aðgengilegri fyrir VSI. Það skiptir
engu máli í hvaða formi kauphækkunin
er. Hún hefur sömu efnahagsáhrif. ”
-JH.
Vaxtarræktar ■
par til íslands
Hrafnhildur Valbjörnsdóttir (Þorlákssonar) var í gœr kosin
vaxtarrœktarkona íslands. Gudmundur Sigurdsson hlaut
titilinn vaxtarrœktarmaður íslands. Keppni um þessa titla
fór fram á Broadway í gœrdag. Fjöldi karla og kvenna tók
þar þátt í undankeppni í gœrdag. í gærkvöldi fór síðan
úrslitakeppnin fram. Greinilegt var að áhugi var mikill því
fullt var út úr dyrum í Broadway.
DS/DVmynd GVA.
Lyftmgamenn
börðu dyraverði
Þrír dyraveröir i Hollywood og
fjórir lyftingakappar úrKR lentu
í slagsmálum í og fyrir utan
skemmtistaðinn siöastliðiö föstu-
dagskvöld. Fóru dyraverðirnir
allir á slysavarðstofuna, meira
og minna meiddir; tveir stokk-
bólgnir í andliti og þriðji með
bakmeiðsli. Meiðsli voru hins
vegar ekki sjáanleg á lyftinga-
köppunum, að sögn lögregl-
unnar.
Dyraverðimir halda þvi fram
að lyftingakapparnir hafi verið
búnir að skipuleggja árás áður en
þeir mættu á skemmtistaðinn.
Arásin hafi verið gerð í hefndar-
skyni vegna þess að bróður eins
lyftingakappans hafði verið
varpað út af skemmtistaönum
helgina áður fyrir að vera að
þjarma aðgestum.
Lyftingakapparnir segja á
mótiaðdyraverðirnir hafi byrjað
slagsmálin.
Einn lyftingakappanna hefur á
sumrin starfað sem lögreglu-
maður. .rmu.
Kosninga-
sjóðnum stolið
Brotizt var inn á kosningaskrif-
stofu Framsóknarflokksins að
Lindargötu 9 í Reykjavík í nótt.
Kosningasjóðnum var stolið og
töluvert ruslað í skjölum.
Að sögn Hauks Ingibergssonar,
starfsmanns á kosningaskrifstof-
unni, var kosningasjóöurinn dig-
ur eftir helgina. Hann vissi þó
ekki hve miklir peningar voru í
honum en taldi líklegt að það
væru nokkur þúsund krónur.
___________________-KMU
Tugmilljóna-
farmarán
bankaábyrgðar
„Það er rétt, aö verulegur hluti
af þeim förmum sem hafa verið
sendir af stað til Nígeríu undan-
farnar vikur er ekki með banka-
ábyrgðum á greiðslum,” sagði
Sigurður Jóhannesson forstöðu-
maður gjaldeyriseftirlits Seðla-
bankans í morgun. Síðustu birgð-
ir af framleiðslu fyrra árs eru nú
allar famar af stað til Nígeríu.
Verðmæti þeirra er um 120
milljónir króna og skiptir það, að
sögn Sigurðar, tugum milljóna
sem ekki eru bankaábyrgðir fyr-
ir.
Er þetta ekki áhættusamt? var
Sigurður spurður. „Ef svo væri
taliö, býst ég við að þessar send-
ingar hefðu ekki farið af stað,”
svaraði hann, „þær eru eingöngu
til stórra framleiðenda, sem hafa
verið okkur Islendingum tryggir,
jafnvel í áratugi, gegnum þykkt
og þunnt og hafnað kaupum af
öörum, sem þeim hafa staðið til
boöa.” Þess má geta aö sá út-
flytjandi, sem mun vera með
stærstan hluta af ábyrgðarlausu
förmunum, haröneitaði þvi að
hafa nokkru sinni sent svo mikið
sem einn balla án bankaábyrgö-
artilNígeríu.
Þá bar þeim útflytjendum sem
blaðið ræddi við i morgun saman
um að Nigeríumenn væru jafnvel
þegar í dag að hefja útgáfu inn-
flutningsleyfa vegna skreiðar og
hausakaupa nýbyrjaös innflutn-
ingsárs. Þaö hófst 1. maí. Þeir
vöktu athygli á þeim misskiln-
ingi, sem vaðið hefur uppi undan-
farið, að Nígeriumenn hafi bann-
aö skreiðarinnflutning i bili. Þeir
lokuðu einungis á frjálsan inn-
flutning og tóku uppleyfakerfí.
-HERB