Dagblaðið Vísir - DV - 10.05.1982, Page 2

Dagblaðið Vísir - DV - 10.05.1982, Page 2
2 DAGBLAÐIÐ & VISIR. MÁNUDAGUR10. MAI1982. Stýrimannafélag íslands: Gagnrýnir stjómvöld og siglingamálastjóra A dögunum boöaöi Stýrimannafélag Islands til fundar fulltrúa frá öllum stéttarfélögum sem hafa farmenn innan sinna vébanda. A fundinum voru rædd öryggismál farskipa i ljósi hinna tíðu skipstapa sem orðið hafa í farskipaflotanum á síðustu mánuðum. A fundinum kom fram hörö gagn- rýni á stjórnvöld og silgingamála- stjóra fýrir aö Island skuli ekki enn hafa fullgilt alþjóðasáttmála um öryggi mannslifa á hafinu frá 1974 (SOLAS). Krefst fundurinn þess að úr þessu verði bætt hiö bráöasta. Fundarmenn voru á einu máli um aö aldur farskipanna væri of hár en sam- kvæmt skrá Siglingamálastofnunar- innar um íslenzk skip var meðalaldur skipanna 12,2 árum sl. áramót. Miklar umræður urðu um björgunar- tæki skipanna. Fram kom sú skoöun að mikilvægi hinna hefðbundnu björgun- arbáta hafi á undanf örnum árum verið vanmetin. Töldu fundarmenn að hér þyrfti aö verða breyting á. Nokkuö var rætt hve illa Islendingar væru í stakk búnir til að takst á við bjarganir á rúmsjó sé litiö til þeirra stórkostlegu aöferöa og björgunar- tækja sem notuö voru viö bjarganir á áhöfnum Tungufoss og Suöurlands. Fundarmenn létu í ljós áhyggjur yfir þvi að reyndir sjómenn skuli hafa séð sig knúna til að ganga af skipi sinu þar sem þeir töldu öryggi sínu ekki hittast aftur og bjóða þá fulltrúa þeirra borgið. stofnana og samtaka sem vinna að Fundarmenn voru ákveðnir í að öryggismálumsjómanna. Nefnd kannar kjör einstæðra foreldra Slippfélagið íReykjavíkhf Málningarverksmiðjan Dugguvoqi Símar33433og33414 itmt Nýju litakortin okkar hitta alveg í mark. Á þeim finnurþú þinn draumalit. árm VITRETEX Sandmálning er hæfilega gróftil aö regn nái að þrífa vegginn og litirnir njóta sín í áraraöir, hreinir og skinandi. iwm Góö ending VITRETEX Sandmálningar er viðurkend staöreynd. Reynslan hefur þegar sannað hana, sem og ítarlegar veðrunarþolstilraunir. V£RÐ Hlutfafl verðs og gæða VITRETEX Sandmálningar teljum við vera hið hagstæðasta sem býðst á markaðnum <© og er það líklegasta skýringin á sífeldri aukningu sölunnar,-auk þess auðvitað hve litirnir eru fallegir. Ný litakort á fimm sölustöðum í Reykjavík og fjölda sölustaða út um land allt. ammnmim vmcnx m mms pchvr önnur eykur endinguna. Félagsmálaráöherra hefur skipaö nefnd sem á aö kanna sérstaklega kjör og félagslega aöstöðu einstæðra foreldra í landinu. I nefndinni eiga sæti: Björn Þórhallsson viöskiptafræöingur, til- nefndur af Alþýðusambandi Islands, Jóhanna Kristjónsdóttir blaðamaður, tilnefnd af Félagi einstæðra foreldra, Jón Guðmundsson viðskiptafræðingur, tilnefndur af f jármálaráðuneytinu, og Ingólfur H. Ingólfsson félagsfræð- ingur, tilnefndur af heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytinu, en hann hefur jafnframt verið skipaöur for- maður nef ndarinnar. Þessi nefndarskipun felur í sér fram- hald af starfi nefndar, sem skipuö var á árinu 1980 til að kanna skattamál ein- stæðra foreldra en í kjölfar þess nefndarstarfs var skattalögum breytt og færðu þær skattbreytingar ein- stæðum foreldrum með miðlungs- tekjur talsverða lagfæringu á síðast- liðnuári. Ýta undir umræður um húsnæði aldraðra Sýning á teikningum og ljósmyndum af dvalarheimilum, íbúðum og þjónustustofnunum fyrir aldraða, ýmist þegar byggðum eða fyrirhuguð- um, er nú í Byggingaþjónustunni á Hallveigarstíg 1 í Reykjavik. Verður hún opin klukkan 10—18 virka daga og 14—18 á laugardag og sunnudag en lýkur þá. Tilgangurinn er að vekja umræöur um aöbúnaö og húsnæði aldraðra á því ári, sem tileinkað er öldruöum. Þeir sem standa að sýningunni eru Húsnæðisstofnun, Samband sveitarfé- laga ogöldrunarráð. HERB Missagnir leiðréttar Vegna mistaka var í Helgarblaði DV á laugardaginn birt óleiörétt handrit blaöamanns meö frásögn af starfsemi Rannsóknastofnunar land- búnaðarins og viðtali viö forstjóra hennar. Eru margar villur í frásögn- inni og ummæli dr. Björns eru ekki höfð rétt eftir og viöa mjög brengluð. Fyrirsagnir eru allar á ábyrgð blaöamannsins og átti aðalfyrirsögn greinarinnar aðeins við um ný efna- greiningatæki sem veriö er aö kaupa en ekki um landbúnaðarrannsóknir almennt. Eru hlutaöeigendur beönir velvirð- ingar á þessum mistökum. Ekki er gerlegt að birta allar leiö- réttingar sem gerðar höfðu verið á handritinu en stofnunin hefur beöið DV að birta eftirfarandi leiðrétt- ingar: Styrkir frá WJC. Kellogg stofnun- inni hafa numið nær 900.000 dollurum (ekki 90.000). Þetta er ekki „góðgerðarstofnun” og það eru tæki á Keldnaholti frá fleiri stofnunum, þ.á.m. frá Sameinuðu þjóðunum og íslenska ríkinu. Þótt mörg tækjanna séu fullkomin eru þau ekki „full- komnustu tæki sem völ er á”. W.K. Kellogg stofnunin styrkir ekki iðnað heldur landbúnað, læknisfræði og fræðslustarfsemi. Ummæli um getu okkar í landbúnaðarrannsóknum, sem tekin eru upp í aðalfyrirsögn, voru höfð um afköst hinna nýju efnagreininga- tækja sem verið er að kaupa fýrir styrk frá Kellogg stofnuninni. Rannsóknastofnunin leiðbeinir ekki bændum um áburðarnotkun, heldur eru niðurstöður áburðarrann- sókna notaðar af ráðunautum í leiðbeiningastarfi þeirra. Það er jafngóöur grundvöllur fyrir ræktun korns til súrsunar og vot- verkunar eins og fyrir gras og kartöflur (ekki til fullþroskunar kornsins eins og af þessu mátti skilja). Innlendur fóðurbætir er ekki hugsaður sem ein allsherjar blanda af öllu hugsanlegu og nýtanlegu eins og fram kemur í frásögninni heldur ýmiss konar samsetning hentugra innlendra fóðurefna. Þaö er í Noregi sem gert er hrökkbrauð úr byggi en engar tilraunir þar aö lútandi hafa verið gerðar á stofnuninni. Ekkert vírus-laust útsæöi af kartöflum er komiö á markaðinn hér á landi en þaö er veriö aö þróa aðferöir til þess og þær lofa góöu. Þá er Ingvi Þorsteinsson deildar- stjóri gróðurnýtingardeildar en ekki EinarGíslason. Jarðvegsdeild rannsakar mi. næringarþörf plantna, ekki næringargildi, það gerir fóðurdeild. Rannsóknir fóðurdeildar beinast fyrst og fremst að rannsóknum á heyfóðri og öðru vetrarfóðri, þ.á m. graskögglum en ekki öfugt eins og fram kom. Frásögn blaðamannsins af beitartilraunum er mjög villandi. Beitartilraunin á Auökúluheiöi er hvorki ný eða gerð vegna Blöndu- virkjunar heldur er hún liöur í Landgræðsluáætlun og hófst 1975. Engin slík tilraun er á Eyvindar- staðaheiði. Korpa er ekki, ,býli’ ’ í Mosf ells- sveit heldur tilraunastöð í landi Reykjavíkurborgar og Sámsstaðir í Fljótshlíð eru að sjálfsögðu í Rangárvallasýslu en ekki í Arnessýslu. Tilraunastöö Háskóla Islands á Keldum er óháð Rannsóknastofnun landbúnaðarins, þótt þar á milli sé góö samvinna. Þaö eru landgræöslu- rannsóknir sem fara fram í náinni samvinnu viö Landgræöslu ríkisins í Gunnarsholti en ekki dreifðar tilraunir sem gerðar eru víða um land. DV vonar að þessi mistök hafi ekki orðið til þess að spilla mjög fýrir þessari annars fróðlegu frásögn og viðtali um Rannsóknastofnun landbúnaöarins.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.