Dagblaðið Vísir - DV - 10.05.1982, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 10.05.1982, Blaðsíða 4
4 DAGBLAÐIÐ & VlSIR. MÁNUDAGUR10. MAl 1982. Ungfrú Útsýn krýnd með glæsibrag Feröaskrifstofan Utsýn hefur í vetur sem endranær lagt drjúgan skerf í að lífga upp á skemmtanalif höfuðborgarinnar með reglulegum feröakvöldum. Hafa þau verið viku- legur viðburður nú seinni hlutann og farið fram í veitingahúsinu Broadway. Hápunktur vetrarins var í lokahófi á föstudagskvöldið þar sem fram fóru úrslit í keppninni um ungfrú Utsýn 1982. Ellefu stúikur tóku þátt í keppninni en dómnefnd var skipuð þeim Ragnari Th. Sigurðssyni, frú Unni Arngrimsdóttur og Baldvin Jónssyni. Sú sem sæmdina hlaut aö þessu sinni er Elísabet Bjömsdóttir og fær hún að launum veglegan ferðavinn- ing. Hinar voru aldeilis ekki óbættar þvi allar fengu þær titia sem bera nöfn hinna mismunandi staða sem ferðaskrifstofan Utsýn selur ferðir til og feröavinning aö auki. Það var ungfrú Utsýn 1981, Inga Bryndís Jónsdóttir frá Akureyri, sem krýndi drottningu kvöldsins og óskaöi henni allra heilla. Skemmtunin var að öðru leyti öll hin glæsilegasta. Fram komu margir skemmtikraftar, þar á meðal dansarar og gítarleikari frá Kanari- eyjum sem gerðu mikla lukku. Sumarstúlkur Útsýnar ásamt for- stjóranum, Ingó/fi Guöbrandssyni og ungfrú Útsýn 1981. Nöfnin eru annars, taiiö i efri röö frá vinstri: Anna Karen Sverrisdóttir, ungfrú Mallorka, Ragn- hildur Ragnarsdóttir, ungfrú Sikiley, Jónína Kristjánsdóttir, ungfrú Lign- ano, Ingólfur Guöbrandsson, forstjóri feröaskrifstofunnar Útsýn, Þuriöur Steinarsdóttir, ungfrú Torremolinos, Bergljót Ylva Hjaltested, ungfrú Mar- bella, Jóhanna Guömundsdóttir, ung- frú Mexico og Sigriöur Þóra Magnús- dóttir, ungfrú Portoroz. Fremri röö: Maria Siguröardóttir, ungfrú Florida, Elisabet Björnsdóttir, ungfrú Útsýn 1982, Inga Bryndis Jónsdóttir, ungfrú Útsýn 1981, Hendrikka Waage, ungfrú Brasilia og Hiidur Hauksdóttir, ungfrú Portúgai. Matargestir voru i kringum 600 sem mun það mesta sem verið hefur i þessum stærsta skemmtistað lands- ins til þessa. Skemmtanir Utsýnar hefjast væntanlega aftur meö haust- inu, en i vetur hafa yfir 300 manns tekið þátt i framkvæmd þeirra með einum eða öðrum hætti. -JB Forstjórínn Ingólfur Guóbrandsson, fagnar drottningunni. Svo mælir Svarthöfði Svo mælir Svarthöfði Svo mælir Svarthöfði Silfur Egils í glatkistunni Enn elnu sinnl þurfa rithöfundar að halda út i nokkra þrautagöngu út af samskiptum innbyrðls, sem þó varð gerð. tOraun til að hindra með sameinlngu tveggja félaga í eitt samband vorið 1975. Fljótlega eftlr að þessu sambandi var komið á tóku menn tll við að breyta lögum féiags- skaparins, og miðuðu þcr breyting- ar við að leggja niður eða drepa á dreif stofnunum og ákvcðum, sem sett höfðu verið i sambandslögin og áttu að tryggja nokkurt félagslegt jafnræði á meðan meðllmir voru meira og minna bundir fyrri upp- skiptingu félagsmanna. Mátti fljótt greina, að i krafti meirihlutavalds og undir stjóm formanns sambandslns, sem á jafnframt sæti i miðstjóm Al- þýðubandalagsins, skyldu borgara- legir höfundar settir tll hliðar fyrir utan fáeina einstaklinga, sem tengjast Morgunblaðlnu með einum eða öðrum hætti. Hafa töiulegar upp- lýslngar um þetta verið raktar í út- varpinýlega. Við sameiningu félaganna mun hafa borið á góma að taka upp hlut- fallskosnlngar i sambandl rithöf- unda, en þvi var eytt eða þá að þelrri hugmynd var ekki ansað, enda er komlð á daginn að sambandlð átti að nota tU að afla fjár þvi opinbera í nafni allra féiagsbundlnna rithöf- unda til að hægt væri að úthluta þvi tll fárra verðugra. Haldlð hefur verið fast við að sambandlð tllnefndi jafn- an þá einstaklinga sem með úthlutun úr Launasjóði fara, og hefur tekist svo hörmulega til um þá úthlutun nú i nokkur siðustu skipti, að öilum má vera ljóst hvert stefnir. Endurskoð- un á þéssu fyrirkomuiagl hefur verið í athugun en þar hafa fulltrúar Framsóknar og Alþýðuflokks gengið erlnda Alþýðubandalagsins, og hefur engum leiðréttingum verlð viðkom- ið. Þegar um það vltnaðlst munu borgaraleglr höfundar hafa séð, að jafnvel borgaraleglr flokkar, eða fulltrúar þeirra, voru orðnir á móti þeim, og þvi ekki um annað að ræða en efla það gamla Félag islenskra rithöfunda sem stéttar- og hags- munafélag að nýju. Auðvitað hefðí verið eðlilegast að sambandið hefði starfað áfram sem eini hagsmnnaaðill rithöfunda, en borgaralegum höfundum, að undan- skildu Morgunblaðsliðlnu, finnst ekki vera vlð rithöfunda að eiga, svo ótæpQega hefur vinstra fólki í rit- höfundastétt verið hyglað á liðnum árum. Nú siðast hefur heyrst að fé úr bókasafnssjóði, sem er alfarið aflafé rlthöfunda hafi verið úthlutaö íil þriggja manna i þvi skynl að þeir fiyttu erindl um islenskar bókmennt- ir á Norðurlöndum. Þeir sem þekkja til vlta að þar verður annað tveggja þagað um stóran hluta rithöfunda, eða þeir affluttir. Til þess þykir hæfa að eyða aflafé rithöfunda almennt. Það ömurlega við þessi mál er, að hér er ekkl um að ræða deilur út af bókmenntastefnum, heldur bein- harða pólltik, sem þeir hjá Alþýðu- bandalaginu kalla stundum menningarpólitik. Innan þessara stefnumlða telur mlðstjóraarmaður Alþýðubandalagsins, sem veltir sambandlnu forstöðu, mögulegt að taka einn mann i mestalagi i vara- stjórn sem fulltrúa borgaralegra böfunda. Sá maður hefur um sinn verið Þorvaldur Helgason, en í fram- haldi af þvi samkomulagi hefur Jóhann Hjálmarsson verið valinn til trúnaðarstarfa bæði af menntamála- ráðherra og stjóra sambandsins. Þó fær hvoragur þessara manna að koma nálægt Launasjóði, og mundl kannsU ekU miUu breyta. Launasjóður var stofnaður á sín- um tima fyrir fé sem fæst af sölu- skatti af bókum. Þar eiga allir höfundar skylt mál, þótt mismun- andi mUdð sé, og hefur út af fyrir sig ekU verið ágreiningur út af skyn- samlegri jöfnun við úthlutanlr. Aftur á mótl unlr ekU stór hluti borgara- legra höfunda Innnn sambandslns að vera settur tll hliðar ár eftir ár, og leitar nú nýrra leiða. Launasjóður er að vissu leyti eins og silfur Egils. Það hefur aldrel tekist að láta höfunda sjálfa úthluta fé sin i milli. Rithöfundar Uofnuðu fyrir fjörutíu árum út af samskonar sjónarspili og láta nú sem svo að það sé höfuðglæp- ur að fá ekU að rifast áfram út af peningum þess vegna kref jast þelr Alþýðubandalagsmenn að reglugerð um úthlutun skuli óbreytt standa. Svarthöfði

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.