Dagblaðið Vísir - DV - 10.05.1982, Page 12

Dagblaðið Vísir - DV - 10.05.1982, Page 12
12 DAGBLAÐIÐ & VlSIR. MÁNUDAGUR10. MAl 1982. BIAÐIÐ* O, ' frjálst, óháð dagblaú Útgófufólag: Frjáls fjölmiölun hf. Stjómarformaður og útgáfustjóri: Sveinn R. Eyjólfsson. Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: Hörður Einarsson. Ritstjórar: Jónas Kristjánsson og Ellert B. Schram. Aðstoðarritstjóri: Haukur Helgason. Fróttastjóri: Sæmundur Guðvinsson. Auglýsingastjórar: Páll Stefánsson og Ingólfur P. Steinsson. Ritstjóm: Síðumúla 12-14. Auglýsingar: Síðumúla 8. Afgreiðsla, áskriftir, smáauglýsingar, skrifstofa: Þverholti 11. Sími 27022. Sími ritstjórnar 86611. Setning, umbrot, mynda- og plötugerð: Hilmir hf., Slðumúla 12. Prentun: Árvakur hf., Skeifunni 10. Áskrlftarverð á mánuði 110 kr. Verö (lausasölu 8 kr. Helgarblað 10 kr. Þinglausnir Þinglausnir fóru f ram á föstudaginn eftir allsnarpa lotu í lok þinghaldsins. I rauninni má segja aö þessir síöustu dagar hafi veriö þeir einu sem eftirminnilegir veröa frá þinghaldi vetrarins. Elstu menn muna ekki tíðindalaus- ara og svipminna þing. Nú á auövitaö ekki að dæma alþingi eftir hávaðanum sem þaðan heyrist, en engu aö síður hefur það pólitíska þýðingu, þegar alþingismenn takast á í ræðustóli alþingis. Almenningur fylgist alla- jafna með þeim skylmingum, og dregur sínar ályktanir í pólitíkinni eftir því hver vígstaðan er. Yfirleitt getur eng- Inn búistviðþví hér á landi að stjómarandstaðan velti ríkisstiórn með orðum einum, en snörp ádeila og réttlát gagnryni getur vissulega gra ið undan trausti og fylgi við ríkisstjóm og stefnu hennar, alveg eins og samtaka ráð- herrar og skynsamlegar ráðstafanir hverrar ríkisstjóm- ar geta orðið henni til framdráttar. I rauninni hefur hvomgt gerst. Stjórnarandstaðan hef- ur aldrei komist almennilega á flug og ráðherramir hafa sloppið fyrir horn án þess þó að vinna umtalsverð afrek. Satt að segja hafa þeir verið sjálfum sér verstir. Fjár- málaráðherra lagði fram frumvarp um skyldusparnað, sem dagaði uppi. Samgönguráðherra heimilaði skipa- kaup til landsins en sagðist síðan hafa ,,verið plataður”. Iðnaðarráðherra hefur staðið í látlausu basli með virkjunarmálin 1 vetur, og haföi í lokin litla stjórn á at- burðarásinni eða samþykktum þingsins. Forsætisráðherra hrósar sér af árangri í baráttunni gegn verðbólgunni í skjóli niðurgreiðslna á nokkurra mánaða fresti og Svavar Gestsson sendir ólafi Jóhannes- syni tóninn. Þannig mætti áfram telja og það eru þessar oröahnippingar og minniháttar vandamál, sem varða veg þessa þinghalds, en alls ekki mál af þeirri stærðargráöu sem velt geta ríkisstjórn úr sessi. Gunnar Thoroddsen hefur reynst laginn við að draga úr ýfingum, enda er hon- um meira í mun að halda ríkisstjórninni saman, hvað sem líður skoðunum og stefnu. I skjóli þessarar vitnesku er alveg ljóst, að ráðherrar Alþýðubandalagsins ganga á lagið, eins og málatilbúnaður Hjörleifs Guttormssonar í álmálinu sannar best. I því máli virðist Alþýðubandalagið hafa tekið þá stefnu, að æsa upp ágreining við Alusuisse í nafni þjóö- rembings, og stendur þá ekki á landráðabrigslum í garð andstæðinganna. Svo ómerkilegur sem slíkur málflutn- ingur er, þá er hann sprottinn af örvæntingu Alþýðu- bandalagsins vegna sveitarstjómarkosinganna eftir tvær vikur. Alþýðubandalagið hefur á undanförnum misserum breyst ur róttækum verkalýðsflokki í makindalegan stjómsýsluflokk, sem hefur jafnvel forystu um að kveða launakröfur í kútinn. Einhvem tíma hefði það þótt saga til næsta bæiar, að Ragnar Amalds stæði í hatrömmu stríði við hjúkrunarfræðmga og slægi verkfallsaðgerðum þeirra á frest. En svona er komið fyrir Alþýöubandalag- mu og fylgishmnið blasir viö. Ef gengi flokksins reynist jafnslæmt og spár segja til um í kosningunum eftir hálf an mánuð, þá eru dagar þess- arar ríkisstjómar senn taldir. Alþýðubandalagið mun ekki sitja í ríkisstjórn með allt niður um sig. Því er ann- ara um eigið skinn en metnað Gunnars Thoroddsen. Þannig munu kosningar til sveitastjórna hafa meiri áhrif á stjórnarsamstarfið heldur en þinghaldið í vetur. Það er af þessum ástæðum, sem kjarasamningar munu ekki ráðast fyrr en eftir kosningar, og Hjörleifur mun halda öllu opnu í álmálinu. Nú er verið að safna í vopna- búrið og þá er allt hey í harðindum. ebs „Félagsstarf aldraöra á vegum borgarinnar hefur smám saman fært út svið sitt í vaxandi fjölda dvalarheimila víðsvegar um borgina.” UM ÞJÓNUSTU VK>ALDRAÐA I grein er Steinunn Jóhannesdóttir leikari og leikritahöfundur skrifar 28.aprílsl. íDagblaðiöogVisi hefur hún áhyggjur af því hvað veröi m.a. um þjónustu við aldraða ef spáin um meirihluta sjálfstæðismanna i borg- arstjóm rætist. — Hún veit ekki að sjálfstæðismenn hafa bæði þegar þeir voru i meirihluta svo og á síð- asta kjörtímabili verið í forustu fyrir byggingamálum í þjónustufyrirtækj- umfyriraldraöa. Það skeði í byrjun þessa kjörtima- biis að skipan byggingarnefndar stofiiana fyrir aldraða var óbreytt iátin standa frá fyrra kjörtímabili, en þar voru 4 sjálfstæöismenn á móti 3 fulltrúum minnihlutaflokkanna. Formaður alian tímann hefur verið Albert Guðmundsson og ritari Markús Om Antonsson. Það hefur því ekki verið um pólitiskan ágrein- ing aö ræða í skipan þessara máia, né um röð framkvæmda og fram- kvæntdahraöa. Stefna sjálfstæðismanna Steinunn gerir lítiö úr framlagi ein- staklinga og félagssamtaka („happ- drætti”) til mála aldraðra. Að Grund og Hrafiiistu hefur verið unnið mikið og óeigingjarnt starf fyrir aldrað fólk í Reykjavík um langt skeið sem ber að virða og þakka. Þegar öldruðu fólki fór svo að fjölga meir hér í Reykjavík hóf borgarstjóm fram- kvæmdir við byggingu íbúða fyrir aldraöa bæði við Norðurbrún, Aust- urbrún og i Furugeröi. Arið 1973 samþykkti borgarstjóm tillögu sjálfstæðismanna fyrir for- ustu Alberts Guðmundssonar borg- arfulltrúa að 7 1/2% af útsvörum Reykvíkinga skyldi ganga til Bygg- ingasjóðs stofnana fyrir aldraða. Sérstök byggingamefnd var þá skip- uð og hefur hún verið undir for- mennsku Alberts eins og áður er sagt. Kjallarinn Páll Gíslason Byggöar hafa veriö ibúöir fyrir aldraöa af mismunandi gerð í Löngu- hlíð, Dalbraut, Snorrabraut og nú er veriö að hanna slíka byggingu i Seljahverfi i Breiöholti. Auk þessa hefur byggingarsjóðurinn lagt fram fé til Hafiiarbúöa og B-álmu Borgar- spítalans til að flýta gangi mála þar. Það er stefna sjálfstæðismanna, sem hér hefur ráðið ferðinni. B-álman Fyrir 6 árum tókst að ná sam- komulagi viö ríkið um byggingu og fjármögnun B-álmu Borgarspítalans og hófust framkvæmdir en þegar kommamir, sem Steinunn treystir best fyrir málum aldraöra, tóku viö völdum 1978 var hætt við þessar ianglegudeildir og tafðist málið í 2 ár þar til látiö var undan þrýstingi meö að hefja framkvæmdir aö nýju. Erfiðleikar aldraðs, sjúks fólks og aöstandenda þess eru miklir og þvi slæmt aö þetta hefur dregist svona. Viö sjálfstæðismenn lögöum aftur á móti megináherslu á aö koma bygg- ingunni áfram með þvi að tryggja framkvæmda- og fjármögnunaráætl- un viðurkennda af ríkinu. öryggi í ellinnil A vegum frjálsra félaga, samtaka og borgarinnar eru í gangi margs- konar aðgerðir til að létta eldri borg- urum ellikvöldið. Þaö er aö sjálf- sögðu ósk flestra hinna öldruöu að geta sem lengst dvaliö á heimilum sínum. Heimllishjálp er veitt mörg- um heimilum aldraðra eða 1075 (1980), en 543 fengu heimahjúkrun með 25000 vitjunum. Var um helm- ingur síöari hópsins fólk yfir 80 ára aldri. Dagdeildir fyrir aldraða hafa tekið til starfa og njóta vaxandi vin- sælda. Kvenfélög safnaðanna hafa veitt margháttaða þjónustu og Rauði krossinn ætlar aö auka starf sitt á þessu sviði. Félagsstarf aldraðra á vegum borgarinnar hefur smám saman fært út svið sitt í vaxandi fjölda dvalar- heimila víðsvegar um borgina. En augljóst er að það þyrfti að auka tQ að rjúfa þá einangrun, sem margt gamalt fólk býr við. Fleira fólk nær nú hærri aldri en áður var. 1970 voru 1238 Reykvíkingar 80 ára og eldri, en 1980 voru þeir orðnir 2373. Þaö er því ástæða til að benda á að þrátt fyrir margvíslegar fram- kvæmdir og aukna þjónustu í þágu hinna öldruðu þá verður að halda vel áfram á þessari braut þar sem þörfin fer vaxandi. En eitt stórt atriði má ekki gleym- ast og það er skipulag og stjórnun þessara mála, sem þarf að vera markviss og þekkja vel til gangs mála hjá einstaklingum þeim sem á aö þjóna, svo að hægt sé aö veita rétta þjónustu á réttum tbna, þegar á henni þarf aðhalda. Það skapar um leiö öryggi fyrir þá öldruðu og tryggingu aö ekki skapist vandræði þó aö á bjáti. Þetta öryggi myndi ekki aöeins skapa meiri lífs- hamingju hinna öldruðu, heldur líka tryggja aö hin besta nýting fengist af þeim miklu fjármunum, sem varið er til þessara mála. Við sjálfstæðismenn í borgarstjóm munum halda áfram að vinna aö þessum málum af fullum krafti og þarf Steinunn Jóhannesdóttir ekki að hafa svona miklar áhyggjur af þeim þegar viö náum meirihlutanum aftur 22. maí Páll Gíslason læknir £ ,,Hún veit ekki að sjálfstæðismenn hafa bæði þegar þeir voru í meiri- hluta svo og á síðasta kjörtímabili ver- ið í forystu fyrir byggingamálum í þjónustustofnunum fyrir aldraða,” segir Páll Gíslason í grein sinni, þar sem hann svarar Steinunni Jóhannes- dóttur.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.