Dagblaðið Vísir - DV - 10.05.1982, Page 18
18
DAGBLAÐIÐ & VISIR. MÁNUDAGUR10. MAl 1982.
Rafsuðuvélar og vír
Haukur og Ólafur
Ármúla 32-Sími 37700.
VANTAL. FRAMRUÐU?
fTT
Ath. hvort við getum aðstoðað.
ísetningar ú staðnum.
BÍLRÚÐAN
Megrunarnámskeið
Vcgna mjnj; mikiliar eftirspurnar hcfst nýtt meprunarnámskeið 13. mai.
(bandarískt meprunarnámskcið sem hefur notið mikilla vinsælda op jjefið
mjöt: fjóðan áranpur).
Námskciðið veitir alhliða fræðslu um hollar lífsvenjur oj> vel samsett
mataræði, sem getur samrýmst vel skipulögðu venjulegu hcimilismatar-
aí>’’ Námskeiðiðerfyrirþá:
• sem vilja grennast
• sem vilja koma i veg fvrir að vandamálið cndurtaki sig.
• sem vilja forðast offitu og það scm henni fylgir.
l'pplýsingar oj> innritun í síma 74202.
Kristrún Jóhannsdóttir
manneldisfræðingur
Multi — powerglerm
GLERA UGNADEILDIN
Austurstræti 20 — Sími 14566
caV,totnia
stv'c
Sól-lúgur
Takmarkað
magn
T-P0RT
gnausl: k(
Síðumúla 7—9, sími 82722
Bæjar- og sveitarstjórnarkosningarnar
Ráðhús Bolungarvíkur er falleg bygging og reisuleg og gæti vel sómt sér í nvaoa notuóborg sem er.
DV-myndGVA
Bolungarvík er
mikið uppgangspláss
og það er að þakka samstöðu bæjarbúa, segja bæjarf ulltrúar
Við þessar kosningar verður bæjar-
fulltrúum í Bolungarvik fjölgaö úr 7 í 9
og við það kunna að raksast þau hlut-
föll sem verið hafa milli framboöslista.
Að þessu sinni býður Alþýðubandalag-
ið fram í fyrsta sinn. En ósennilegt er
að þetta hafi nokkrar breytingar í för
með sér á stjóm bæjarins. Bæjarfull-
trúar voru nokkuð sammála um að
mikil samstaða væri innan bæjar-
stjómarinnar um þau mál sem þar
kæmu á dagskrá og litill ágrenningur
milli flokka.
Bolungarvík ber meö sér á flestan
hátt að þar hefur verið mikill uppgang-
ur undanfarin ár. „Eg vil þakka mikla
uppbyggingu í bæjarfélaginu þeirri
samstöðu sem hér hefur verið,” sagöi
bæjarfulltrúi jafnaðarmanna og
óháðra, en þeir mynda meirihluta
bæjarstjómar ásamt sjálfstæöismönn-
um. Bæjarfulltrúi sjálfstæðismanna
tók undir það: „Þetta hefur verið
mikið uppgangspláss og það er að
þakka traustu atvinnulífi, duglegu
fólki og því að bæjarbúar hafa haft
samstöðu um sín mál.”
Sem dæmi um samstöðuna milli
flokka nefna menn aö sjálfstæðismenn
misstu í siðustu kosningum meirihlut-
ann sem þeir höföu áður haft í bæjar-
stjóm. En andstæðingamir fóru fram
á það að bæjarstjórnin yrði óbreytt og
töldu sjálfetæðismenn það persónuleg-
ursigur.
Ibúar í Bolungarvik em nú um 1270,
en vom við síðustu kosningar 1215.
Gefum engin kosningaloforð
— segir efsti maður á lista Framsóknarflokks, Benedikt Kristjánsson
„Við framsóknarmenn höfum ekki
sett nein sérstök baráttumál á oddinn
í þessum kosningum. Við viljum vinna
að þeim málum sem em til hagsbóta
og framdráttar fyrir byggðarlagið og
aö þvi marki erum við tilbúnir til að
vinna með hverjum sem er,” sagði
Benedikt Kristjánsson, fyrsti maður á
lista Framsóknarflokksins.
„Eg er þeirrar skoðunar að það sé
ekki heiliavænlegt að setja eitt mál á
oddinn án þess að vita hver staða
flokksins verður eftir kosningar. I
svona litlu bæjarfélagi hefur enga
þýðingu að vera að setja fram sérstök
kosningamál. Þetta er okkar heima-
byggð og við eigum að vinna sameigin-
lega að framgangi hennar.
Það er stórmál að atvinna hefur far-
ið minnkandi hér í vetur. Þegar loðnan
bregzt verða bæjarbúar fyrir miklum
tekjumissi og bæjarsjóður einnig. Það
vita allir að atvinnulíf er hér mjög ein-
hæft og ég held að til þess að efla
atvinnulífið þurfum við að auka fjöl-
breytnina. Þar mætti nefna til
iðngarða. Við gætum tekið aðra staði
okkur til f yrirmy ndar í þeim efnum, til
dæmis Vestmannaeyjar.
Eg er ekki talsmaöur þess að bæjar-
félagið standi i atvinnurekstri. En þeg-
ar atvinna fer minnkandi verður að at-
huga hvemig bæjarfélagið geti stuðlað
að aukinni fjölbreytni atvinnulífsins.
Eg hef engan sérstakan iðnað í huga
það getur verið um atvinnustarfsemi
af öllum toga að ræða. Það þarf að
kanna þetta mál frekar.
Annars munum við framsóknar-
menn taka afstöðu til mála hverju
sinnL Það eru ekki okkar vinnubrögð
að setja fram kosningaloforö, — það
næst enginn árangur með þvi,” sagöi
BenediktKristjánsson. OEF
Benedikt Kristjánsson kjötiðnaðar-
maður
Samgöngur við Isa-
fjörð þarfað bæta
— segir Olaf ur Kristjánsson, efsti maður á lista Sjálfstæðisf lokksins
,,SjálfstæðisfIokkurinn leggur
áherzlu á að halda samstöðu meðal
bæjarstjórnarmanna til að þeir geti
unnið saman að þeim málum sem til
heilla horfa,” sagði Olafur Kristjáns-
son, efeti maöir á lista Sjálfstæðis-
flokksins.
„Það var tekin ákvörðun árið 1978
um að byggja iþróttahús og sundlaug
og þeim framkvæmdum þarf að ljúka.
Það þarf einnig að ljúka byggingu leik-
skóia og ibúöa fyrir aldraða.
Persónulega legg ég mikla áherzlu á
aö bæta vegarsamband milli Bolungar-
vík og Isafjaröar. Vegurinn um Oshlíð
er hættulegur, bæði vegna grjóthruns
og snjóflóöa, og það hafa komið fram
hugmyndirumaöbyggjaþar vegsval-
ir sem myndu kosta 60 milljónir króna.
En ég tel að betra væri að gera jarð-
göng. Samkvæmt áætlun Vegagerðar-
innar myndu jarðgöng sem væru 4,2
kflómetrar að lengd kosta um 140 millj-
ónir, en þau yrðu öruggari og myndu
bæta mjög samgöngur milli bæjanna
og auka samgang sem væri báðum í
hag.
Bæirnir hafa sameiginlegan flugvöll,
sjúkrahús og skóla og mikil verzlun er
þeirra á milli. Þaö verða aö vera góðar
samgöngur við þann kjama sem Isa-
fjörður er fyrirVestfirði.
En hvaö um atvinnumálin?
„Við höfum verið í samráði við
Framkvæmdastofnun um að gera
athugun á greiningu manna i störf hér í
bænum. Hér er vissulega um einhæft
atvinnulíf að ræða. En það er þungt
undir fæti hjá atvinnufyrirtækjum,
einkum vegna þess hve við búum við
dýra orku. Fyrsti möguleikinn sem við
komum auga á til aö efla atvinnulifið,
hlýturaðveraí tengslumviðsjávarút-
veginn. Þar gæti til dæmis verið um að
ræða fullvinnslu s já varafla.
En það þarf líka að auka hér félags-
og menningarlif því að fólk lifir ekki af
brauði einu saman. Annars hefur veriö
hér gott tónlistarlíf og það má nefna að
fjóröi hver maður grunnskólans er
nemandi í Tónlistarskólanum,” sagði
Olafur Kristjánsson, skólastjóri
Tónlistarskólans, að lokum.
OEF
Olafur Kristjánsson gkólastjóri