Dagblaðið Vísir - DV - 10.05.1982, Side 20
20
DAGBLAÐIÐ & VlSIR. MÁNUDAGUR10. MAl 1982.
Bæjar- og sveitarstjórnarkosningarnar
Bæjar- og sveitarstjórnarkosningarnar
Brú yfir Dýrafjörð er helzta
áhugamál Þingeyringa
Það er að hejra á Þingeyringum að
mesta kappsmál þeirra sé að fá brú
yfir Dýrafjörð vegna þess að vegurinn
sem liggur fyrir botn fjarðarins lokast
oft um lengri tíma á vetrum. Telja þeir
að fé sem lagt væri í brúargerð væri
betur varið en því sem lagt yrði í end-
urbætur á veginumfyrir fjarðarbotn.
Ut í fjörðinn gengur eiði er gerir það
aö verkum að ekki eru nema um 400
metrar yfir fjörðinn þveran um stór-
straumsfjöru. Engu að síður er brúar-
gerð framkvæmd sem myndi kosta
tugi milljóna króna en Þingeyringar
benda á aö hún myndil koma fleirum
en þeim einum til góða.
Ibúar á Þingeyri eru nú um 400 og
hefur þeim lítiö fjölgaö á undanfömum
árum. Atvinnuástand er þó gott og með
haustinu kemur nýr togari, i eigu
kaupfélagsins, á staðinn.
Ekki var mikill kosningahiti í mönn-
um er blaöamenn DV litu þar við.
Frambjóðendur töldu ólíklegt aö
nokkur kosningafundur yröi haldinn og
einn viðmælanda svaraöi spurning-
unniþannig: „Neei, ætli maður haldi
nokkurn kosningafund. Þá yrði bara
litið svo á að maður væri aö trana sér
fram.”
Atvinnulífið
er of einhæft
— segir Guðmundur Valgeirsson, efsti maður
á lista óháðra
„Við stefnum að þvi að hér verði
byggð sundlaug en það tókst ekki aö
gera á síöasta kjörtimabili vegna
fjárskorts. Einnig leggjum við mikla
áherzlu á að vatnsveitukerfið verði
endurbætt í sumar því það er orðið
mjög ófullkomiö,” sagði efsti maöur
á lista óháðra, Guðmundur Val-
geirsson.
„Við leggjum einnig mikla áherzlu
á dagvistunarmálin. I dag fáum við
afnot af húsnæði hjá kaupfélaginu
undir bamaheimiii en við stefnum aö
þvi að þessi mál komist í betra horf.
Við getum verið þakklát fyrir góöa
atvinnu og hún verður enn betri eftir
að annar togari kemur hingað. En at-
vinnulífið er of einhæft. Hér eru
engin atvinnutækifæri fyrir þá sem
vilja vinna viö annað en fiskvinnu og
þessu þarf að breyta.
Það er mikið atriði að byggja brú
yfir Dýrafjörð, bæði vegna sam-
gangna og læknisþjónustu. Vegurinn
fyrir Dýrafjörð lokast oft á vetri og
Guðmundur Valgeirsson sjómað-
ur.
stundum eina til tvær vikur í senn. ”
Guðmundur sagöi að óháðir væru
mótfallnir því að draga fólk í póli-
tíska dilka í bæjarmálum á svo
smáum stað sem Þingeyri og væri
það ástæðan fyrir framboöi þeirra.
OEF
Framboðslistar
Viö hreppsnofndarkosningar i Þingeyrarhroppi, sem fram fara 22. mai 1982,
veröa oftirtaldir listar i kjöri:
B-listí. Ustí Framsóknarfiokksins: H-listí. Listí óháöra.
1. Guömundur Ingvarsson, stöövarstjóri 1. GuÖmundur Vaigoirsson, sjómaður
2. GuÖmundur Grétar Guðmund&son, bóndi 2. Kristjén E. Björnsson, bóndi
3. Gunniaugur Sigurjónsson, bifreiðorstjóri 3. Sigmundur E. Þórðarson, husasmiður
4. Ebt 'rsdóttir, húsmóðir 4. Kristján Gunnarsson, vótvirki
5. Ui ' > ioos Sigurðsson, rafvirkjameistari 5. Raynfr Gunnarsson, sjómaður
6 Óla’u. _ uarson, veniunarstjóri 6. Magnús Sigurösson, verkamaöur
7. AðaL^inn Gunnarsson, vólsmiður 7. Jovina Svainbjörnsdóttir, starfstúlka
8. E/ias Kjaran Friöfinnsson, vinnuvólastjóri 8. Hai/dórJ. Egilsson, sjómaður
9. Ari V. Pótursson, verkamaður
10. Jens Andrós Guðmundsson, vorkamaður.
9. Andrós Jónesson, verksmiöjustjóri
10. Valdimar Þórarinsson, bóndi
D-Hsti. Listi sjó/fstœðismanna og
stuðningsmanna þeirra:
1. Jónas Ólafsson, sveitarstjóri
2. Sigríöur Harðardóttir, húsmóðir
3. Bjarni Einarsson, verkstjóri
4. Tömas Jónsson, sparisjóðsstjóri
5. Anton Proppó, fiskmatsmaður
6. Guðmundur Sigurðsson, skipstjóri
7. Gunnar Proppó, kaupmaður
8. Erla Sveinsdóttír, skrifstofustúlka
9. Gunnar Sigurðsson, húsasmiðameistari
10. Leifur Þorbergsson, skipstjóri
V-listi. Listi vinstri manna.
1. ÓlafurÞ. Jónsson, kennari
2. Guðrún /ngibjörg Halldórsdóttir, verkamaður
3. Guðm. Friðgeir Megnússon, sjómaður
4. Hormann Guðmundsson, vólgæz/umeður
5. Daviö H. Kristjánsson, flugvallarvörður
6. Má/friöur Vagnsdóttír, verkemaöur
7. Edda Þórðardóttir, skrifstofumaður
8. Gunnar Benedikt Guðmundsson, veghefilsstjóri
9. Höskuldur Ragnarsson, verkamaður
10. EUas Þórarinsson, bóndi.
ViOsýslunefndarkosningar i Þingeyrarhreppi, sem frem fara 22. mai 1982, verOa
eftirtaidir listar i kjöri:
BB-listi. Listi Fromsóknarflokksins
1. Gunnar Jóhannosson, hroppstjóri
2. Gunnar Friðfinnsson, kennari
DD-Usti. Listi sjálfstæðismanna og stuðningsmanna þeirra:
1. Jónas Ólafsson sveitarstjóri
2. Tómas Jónsson, sparisjóðsstjóri
HH-Hsti. Listí óhéðra: '
1. Jens Andrós GuOmundsson, verkamaður
2. Megnús SigurOsson, verkamaöur
VV-Hsti. Listi vinstri manna:
1. Davið H. Kristjánsson, flugvallarvörður
2. Guðm. Friðgeir Magnússon, sjómoður
Úrslitin 1978
Við síðustu hreppsnefndarkosningar í Þingeyrarhreppi voru úrslit
þessi:
atkvæðl fulltrúar
63
2
FRAMSOKNARFLOKKUR (B)
SJÁLFSTÆÐISMENN OG
STUÐNINGSMENN (D)
ÓHÁÐIR (H)
VINSTRIMENN (V)
Hreppsnefndina skipuðu:
Sigurbjörn Sigurðsson rafvirki (B), Olafur V. Þórðarson verzlun-
arstjóri (B), Jónas Ölafsson sveitarstjóri (D), Kristján Gunnarsson
vélsmiður (H), og Guðmundur Valgeirsson sjómaður (H).
48
67
26
1
2
0
SigHOtr HarOardótdr húamóOir
„Eg held aö ailir listar séu sam-
mála um hvað þurfi aö gera en
ágreiningurinn stendur aðeins um
niðurröðun verkefnanna og hvaö eigi
að gera fyrst,” sagði Sigríður
Harðardóttir sem skipar 2. sætiö á
lista sjálfstæðismanna.
„Hinir listamir vilja helzt gera allt
i einu en við verðum að fara rólega í
sakimar því þaö er ekki hægt að gera
allt á sama tíma.
Sjálf hef ég mestan áhuga á aö
koma hér upp bamaheimili. Barna-
heimiliö er nú i sláturhúsinu og því
Hef mestan
áhuga á
barnaheimili
— segir Sigríður
Harðardóttirsem skipar
2. sætið á lista
sjálfstæðismanna
er lokað meöan sláturtiðin stendur
yfir. Það er að koma hingað nýr tog-
ari og þá vantar vinnuafl i fiskvinnsl-
una. Þá er mikilvægt að til sé bama-
heimili sem geti tekið við börnunum.
Næst á eftir barnaheimilinu vil ég
leggja áherzlu á að byggð verði sund-
laug.
Þaö stendur til að byggja hér elli-
heimili og heilsugæzlustöð sem nú
eru á teikniborðinu. Þá vil ég nefna
að brú yf ir Dýraf jörð yrði mikil sam-
göngubót fyrir Þingeyringa,” sagði
Sigríður Harðardóttir aðlokum.OEF
Aukið vald til
vinnandi fólks
r
- segir Olafur Þ. Jónsson,
efsti maðurá lista
vinstri manna
„Stefnumál okkar eru í grund-
vallaratriðum svipuð og hjá vinstri
mönnum almennt en sérstaða okkar
miðað við aðra lista í þessum kosn-
ingum felst í því að við stefnum að
grundvallarbreytingum á þjóðfé-
lagskerfinu,” sagöi Olafur Þ. Jóns-
son, efsti maður á lista vinstri
manna.
„Aukið vald til vinnandi fólks er
eitt af okkar stefnumálum og við vilj-
um hlynna að þeim samtökum sem
vinnandi fólk hefur séð sér hag að
ganga í — bæði verkalýðsfélögum og
samvinnufélögum.
A næstu misserum fær kaupfélagið
nýjan togara og þaö þýðir miklar
breytingar hér í bænum. Það veltur á
miklu að gott samstarf sé milli
bæjarstjómar og kaupfélagsstjómar
og við viljum vinna að því að svo
verði.
Það verður að sinna dagheimilis-
Ólafur Þ. Jónsson kennari
málum hér betur. Það er kominn upp
vísir að dagheimili fyrir framtak for-
eldra en bæjarfélagiö verður að
styðja við bakiö á þeim. Þá verður
einnig að halda áfram með gatna-
gerð því mikið vantar upp á að götur
hérséufuilgerðar.
Samkvæmt lögum um verka-
mannabústaöi eiga sveitarstjómir að
tilnefna menn í stjórn er sæi um
byggingu verkamannabústaöa. Þaö
hefur ekki verið gert hér en við vilj-
um aö svo verði til að lögunum verði
framfylgt. Þetta er mikilsvert atriði
með fyrirhugaöa aukningu umsvifa
hér á staðnum í huga,” sagöi Olafur
Þ.Jónsson. OEF
Brýnt að fá brú
yf ir Dýrafjörð
— segir Guðmundur
Ingvarsson, efsti
madurálista Fram-
sóknarflokks
„Eg vil nú ekki gefa stór kosninga-
loforð sem oft reynist erfitt að efna
þráttfyrir góðan ásetning,” sagði Guð-
mundur Ingvarsson sem skipar efsta
sætið á lista Framsóknarflokksins.
, Jiér er mikil atvinna við útgerð og
fiskveiðar og nýr togari er væntanleg-
ur í haust sem mun færa byggðarlag-
inu aukna atvinnu og aukið fjármagn.
En atvinnulíf er hins vegar of einhæft
og við þurfum að hugsa um að koma
upp léttum iðnaði þótt i smáu sé. Það
hefur þó ekkert verið ákveðið hvaða
iðnaður þaö gæti orðið.
Hvað samgöngumálin varðar er
brýnast að fá brú yfir Dýrafjörð. Vega-
gerðin hefur gert áætlun um kostnaö
við brúna en hann þótti það mikill að
ekki væri álitlegt að ráðast í fram-
kvæmdir. En þetta er mikið kappsmál
Guðmundur Ingvarsson stöðvar-
stjóri
heimamanna, ekki bara af okkar lista,
heldur alls fólksins i héraðinu. Það
hefur komið fram tillaga um að leggja
veg fyrir Dýrafjarðarbotn en ég held
að því fé væri betur varið í brúargerö.
Hér var byggður læknisbústaður
fyrir stuttu >en við verðum að gera
meira til að bæta heilbrigðisþjónust-
una. Þá má einnig nefna að hér verður
að byggja upp dagvistunarheimili og
fá aðstöðu fyrir löggæzlu,” sagði Guð-
mundurlngvarssonaðlokum. OEF
Spurningin
Hverju spáir þú um úrslit
kosninganna og hverjir held-
ur þú að mundi mynda
meirihluta að þeim loknum?
(Spurt á Þingeyri).
Bjarni Einarsson útgerðarstjóri:
Eg spái þvi að Framsókn fái 2, Sjálf-
stæðisflokkurinn 2 og Oháðir 1 mann.
Það er útilokað að gera sér grein
fyrir hverjir mynda meirihluta enda
óvíst hvort nokkur meirihluti verður
myndaður.
Erla Sveinsdótör skrifstofumaður:
Ætli Sjálfstæðisflokkur og Framsókn
fái ekki 2 menn hvor, Oháöir 1 en
vinstri menn engan. Eg býst við að
Sj álfstæöisflokkur og Framsóknar-
flokkur myndi meirihluta.
Hulda Friðbertsdóttir húsmóðir:
Eg reikna með að það verði eins og
siðast.
Kristján Bjarnason trésmiðnr:
Framsóknarflokkurinn fær 2 menn,
Sjálfstæðisflckkurinn 2 og óháðir
einn.
Olafnr Þórðarson verzlunarstjóri:
Framsóknarflokkurinn fær ótviræða
yfirburði. Hann fær 2 menn en hinir
einn hvor. Ekki veit ég hverjir
mynda meirihlutann.
Davis Kristjánsson flugvailarvörð-
ur:
Þaö eru fjórir listar i framboði og
þeir fá sinn manninn hver og senni-
iega fær Framsókn eða Oháðir
fimmta manninn. Eg get engu spáö
um hverjir mynda meirihluta.