Dagblaðið Vísir - DV - 10.05.1982, Blaðsíða 34
42
DAGBLAÐIÐ & VlSIR. MÁNUDAGUR10. MAl 1982.
Huey Lewis.
HueyLewis And The News - Picture This
Hljómsveit sem á
góða möguleika
í framtíöinni
Jona Lewie—HeartSkips Beat
Skrýtinn náungi með
enn skrýtnarí lög
Jona Lewie er skrýtinn náungi. Hann
semur ekki einvöröungu sérkennileg
lög, heldur er hann lika einlægt að
buröast meö einhverskonar húmor a la
BA.Robertson, sem því miður fer oft
fyrir ofan garö eöa neðan. Eitt undar-
legasta lagiö á þessari nýju plötu hans
heitir til aö mynda , Jtearranging the
Deckchairs on the Titanic” — lag-
fsring á sólstólum Titanic i lauslegri
snörun. Fyrsta sólóplatan hans hét
„On the Other Hand There’s A Fist”
sem er útúrsnúningur á oröatiltæki.
Skrýtinn náungi.
Sennilega er Jona Lewie næstum ein-
göngu kunnur hér heima fýrir lagiö sitt
„Stop The Cavalry”, upphaflega sam-
ið meö jól í huga en náði miklum vin-
sældum um alian heim i fyrra; gullfall-
egt lag. Aöur hafði nafni hans þó lítil-
lega brugöiö fyrir í heimspressu
poppsins, þá vegna lagsins „You’ll
Always Find Me At The Kitchen at
Parties”, annaöskrýtiö lagmeökostu-
leguheiti.
Jona Lewie er samt enginn nýliöi á
tónlistarsviöinu. Snemma á skólaárum
sinum tróö hann upp ásamt Dave
Brick (sem síöar stofiiaöi Hawkwind)
og siöar lék hann á píanó meö ýmsum
blúsurum ásamt því að troða sjálfur
upp á ýmsum klúbbum sér til viður-
væris. Um tima var hann liösmaður
hljómsveitarinnar Brett Marvin &
the Thunderbirds, sem meöal annars
lék meö Eric Clapton á Derek & the
Dominos timabilinu. Eftir það lét hann
rokkið afskiptalaust i nokkur ár, en ár-
ið 1977 gekk hann til liðs viö nýstofnaö
hljómplötufyrirtæki, Stiff Records.
Fyrst gaf hann út smáskífu meö lag-
inu „The Baby She’s On the Street” og
breiöskifan „On The Other Hand
There’s AFist” fylgdi á eftir ári síðar.
Hún var níu mánuöi i vinnslu, — og nú
fýrst fjórum árum seinna er Jona
Lewie búinn aö leggja siðustu hönd á
nýja plötu,, Jleart SkipsBeat”. I milli-
tíöinni komu út smáskífumar tvær vin-
sælu sem áöur eru nefndar.
Þaö er erfítt aö átta sig á Jona
Lewie. Sumt af þessum lögum hans er
svo undarlega samanskrúfaö aö
heymarmiöstöðvarnar senda bara
spumingarmerki upptil heilans. Lögin
em innbyrðis mjög ólík og manni dett-
ur fyrst í hug aö leiksviðið sé einhvers-
konar kokteilkeppni þar sem tónlistar-
stefnum er hrært saman og í staö
ismola sé skrýtilegri spaugsemi slett
saman við. Það merkilegasta viö lög
þessarar plötu er það aö maður getur
fellt sig viö búta úr öilum lögunum eöa
þvi sem næst, en alls ekki neitt lag í
fullri lengd! Eg hef aldrei á ævi minni
heyrt undariegri plötu.
Jona Lewie er uppátækjsasamur
gaur, hér skýtur hann þó oftast yfir
markið. Þó margt gott megi um þessa
plötu segja eru slæmu hliöarnar anzi
áberandi, — nema maður eigi bara eft-
ir aö venjast geggjuninni!
-Gsal
Huey Lewis er nýtt nafn i poppinu og
þótt hann hafi stofnað hljómsveit sína
„Huey Lewis And The News” árið
1979, er það fyrst nú meö annarri plötu
þeirra félaga ”Picture This” sem þeir
slá í gegn, en áður en hann stofnaði
„Fréttirnar” sínar haföi hann verið
lengi að ströglast í hljómsveit sem bar
nafniö „Glover” og reyndi meðal ann-
ars fyrir sér í Englandi, en flúði þaðan
þegar punkiö hélt innreið sina, eins og
hannsegirsjálfur.
Það er laginu „Do You Believe In
Love” að þakka, að nú hefur rætzt úr
fyrir Huey Lewis, en þaö trónar þessa
dagana hátt á vinsældalistum, jafnt
hérlendis og vestan hafs.
Huey Lewis hefur ágæta rödd, sem
minnir stundum á kempuna Bob
Seger, rám, en kemur textum vel til
skila.
Tónlistin sem þeir félagar spila
flokkast undir softrock og er ekki ann-
að hægt að segja en að vel hafi tekizt
með lagavalið. Sex laganna eru eftir
þá félaga í hljómsveitinni, en fjögur
eru fengin úr ýmsum áttum. Eitt
þeirra, „Buzz, Buzz, Buzz” var mjög
vinsælt á þvi herrans ári 1957, nú vin-
sæla lagið þeirra „Do You Believe In
Love” er skrifað af Robert John
Lange, þeim sama sem pródúseraði
„4” plötur Foreigner og „For Those>
About To Rock” meö AC/DC.
,J)o You Believe In Love” er viö
fyrstu heym þaö lag sem grípur mest,
en eftir að hafa hlustaö á plötuna oftar
eru það lög þeirra félaga sem koma á
óvart og venjast einna bezt og er ég
viss um að eftir aö vinsældir „Do You
Belive In Love” fara aö réna, eiga lög
eins og „Working For A Living”,
„Change Of Heart” og „The Only
One”, sem eru hröö rokklög, og róleg
eins og , Jlope You Love Me Like You
Say You Do” og „Is It Me” eftir að
heyrast meira og ná vinsældum.
Allur hljóöfæraleikur og útsetningar
eru fyrsta flokks og greinilegt er aö
þama eru engir nýgræðingar á ferð-
inni, þótt óþekktir haf i veriö til þessa.
„Picture This” er ágætis plata og má
búast við því að Huey Lewis And The
News láti aö sér kveða í framtíðinni.
HK.
IMauðungaruppboð
sem augiýst var í 108. tölublaði Lögbirtingablaðsins 1979 og 1. og 5.
tölublaði Lögbirtingablaösins 1980 á eigninni Álfaskeið 44, kjailari,
Hafnarfirði, þingl. eign Katrínar Valentinusdóttur, fer fram eftir
kröfu innheimtu rikissjóðs og Hafnarfjarðarbæjar á eigninni sjálfri
fimmtudaginn 13. maí 1982 kl. 13.30.
Bæjarfógetinn í Hafnarfirði.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 105. og 108. tölublaöi Lögbirtingablaðsins 1981 og 2.
tölublaði Lögbirtingablaðsins 1982 á eigninni Hjallabraut 3, 2. h. m, 4,
Hafnarfirði, tal. eign Stefáns Hermanns, fer fram eftir kröfu Hafnar-
fjarðarbæjar og Lífeyrissjóðs verziunarmanna á eigninni sjálfri
fimmtudaginn 13. maí 1982 kl. 13.00.
Bæjarfógetinn í Hafnarfirði.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 103., 106. og 110. tölublaði Lögbirtingablaðsins 1980 á
eigninni Sjávarhólar, Kjalameshreppi, þingl. eign Helga Haraldsson-
ar o.fl., fer fram eftir kröfu Innheimtu riklssjéðs á elgninni sjálfri
fimmtudaginn 13. mai 1982 kl. 15.00.
Sýslumaðurinn í Kjósarsýslu.
Nauðungaruppboð
sem augiýst hefur verið i Lögbirtingablaðinu á fasteigninni Hátúni 6,
efri hæð í Keflavik, þingi. eign Kristins S. Pálmasonar, fer fram á
eigninni sjálfri að kröfu Jóns G. Briem hdl., Tryggingastofnunar ríkis-
ins, veðdeildar Landsbanka ísiands, og innheimtumanns rikissjóðs,
miðvikudaginn 12. mai 1982 kl. 11.30.
Bæjarfógetinn í Keflavík.
Ahöf nin á Halastjörnunni—Ur kuldanum
Ágæt til síns brúks
Um mánaðamótin síöustu sendi
Geimsteinn frá sér þriðju plötu
Ahafnarinnar á Halastjörnunni og ber
platan sú nafnið Ur kuldanum. Ahöfn-
ina þarf vart að kynna fyrir lands-
mönnum, en maðurinn á bak við allt
saman er eins og alþjóö veit Gyifi
Ægisson. Sem endranær á hann öll lög
og alla texta á Ur kuldanum. A plöt-
unni nýju er að finna tólf ný lög, sex á
hvorri hlið. Meðlimir Ahafnarinnar
eru sjö að tölu; Gylfi, Rúnar Júl,
María Baidursdóttir, Hemmi Gunn,
Ari „Roof Tops” og Viðar Jónssynir og
loks Ingibjörg Guðmundsdóttir. Sjö-
menningarnir fá allir að spreyta sig á
söngnum og meðalmennskan hlýtur að
teljast helzta einkennið.
Tónlist Gylfa á plötunni er déskoti
létt og melódísk og fer inn um annað
eyrað og út umhitt án nokkurra undan-
tekninga. Hljóöfæraleikur er allur
hnökraiaus og vel það enda þaulvanir
menn við stjóm þar sem eru þeir
Rúnar Júlíusson og Þórir Baldursson.
Þeir eru líka skrifaðir fyrir öllum
útsetningum á lögum Gyifa. Þar ber
mjög mikiö á hljómborðsleik Þóris
sem er óspar á notkun allskyns hljóð-
gerva. Utsetningamar eru nokkuö ein-
hæfar þannig aö lögin vilja renna
saman sem verður til þess aö platan
virkar mjög flöt og keimlík út í gegn.
Sumstaðar má heyra bregða fyrir ný-
rómantískum áhrifum en íslenzki dæg-
urstíllinn er þó ávallt við st jóm.
Um textana er lítið að segja. Hafið
og sjómennskan eiga hug Gylfa allan,
en Bakkus fær þó sendingu og dans-
gólfið aðra. Textarnir em ekki þeir
innihaldríkustu sem heyrzt hafa og oft
er anzi ódýrt kveöiö. Eg get þó ekki
stillt mig um að geta sérstaklega lags-
ins A Halló þar sem fer saman ömur-
legur texti og enn hörmulegri söngur
Rúnars Júliussonar.
Nokkur lög em líkleg til vinsælda, í
það minnsta í óskalagaþáttum útvarps-
ins. Hemmi Gunn syngur hressan
slagara (að sjálfsögðu með sinu nefi)
sem heitir Ut á gólf ið sem þegar er far-
in að heyrast á öldum ljósvakans. Auk
þess má nefna lagið Ut á haf við höld-
um enn (arftaki Stolt siglir fleygið
mitt?) og A frívaktinni og Vertu sadl
herra Bakkus þar sem höfuðpaurinn
GylfieríforsætL
Ur kuldanum er plata „a la” Gylfi
Ægisson. Þægileg tónlist og oft bregöur
fyrir grípandi laglínum. En platan sú
kemur ekki til með að sitja lengi á fón-
um landsmanna, til þess er hún of ein-
hæf og auðmelt. En þeir sem hafa haft
gaman af þættinum A frívaktinni og
fyrri plötum Ahafiiarinnar verða lík-
lega ekki sviknir. Ur kuldanum er
nefnilega ágæt til síns brúks.
-TT.
Hljómplötur
Gylfi Ægisson er skipstjórí á Halastjörnunni.
Guðmundur Rúnar Lúðvíksson — Vinnaográðningar
Tilgangslaus plata
Vinna og ráöningar heitir plata er
barst blaöinu fyrir skömmu. A bak við
plötuna (í óeiginlegum skilningi)
stendur maöur að nafni Guðmundur
Rúnar Lúöviksson sem ég veit engin
deili á. Nema hvað, á plötunni er aö
finna tólf lög, þar af tíu eftir nefndan
Guömund en tvö eftir Bjartmar
nokkum Guðlaugsson. Textamir koma
úr ýmsum áttum, meöal annars úr
smiöju tvímenninganna fyrrnefndu og
höf uðskáldanna Jóhannesar úr Kötlum
og Daviös Stefánssonar.
G. Rúnar Lúðviksson eins og hann
kallar sig syngur öll lög plötunnar og
hann verður vist að flokkast í ætt við
vísnasöngvara. Söngurinn er að visu
stundum framinn af veikum mætti en
undirspilið er fyrst og fremst á kassa-
gítar og siðan er kryddað meö bassa,
munnhörpu og ýmiskonar áslætti. Lög-
in eru'sem fyrr segir öll í ætt við vísna-
söng og ekkert þeirra er sérlega
athyglisvert. Mér segir svo hugur um
aö viöa um land sitji tónlistarmenn og
fremji svipaðar tónsmíðar og söng og
skemmti sér og sinum hiö bezta. En
Guðmundur Rúnar hefur ósköp lítið að
gera með tónsmiðar sínar á breiðskífu
þótt að sjálfsögðu megi á vissan hátt
virða framtakið.
Að ööru leyti er lítið um plötuna
Vinnu og ráöningar að segja. Nema
kannski aö á henni er að finna hljóðrit-
un á þeirri merku athöfn „að pissa”.
Hvað sem hún á nú aö tákna. Kannski
verður sá hluti hennar til þess að
platan komist á spjöld sögunnar. A
öðrum sviðum á hún allavega ekki
möguleika.
-TT.