Dagblaðið Vísir - DV - 10.05.1982, Qupperneq 40
Uppsagnir hundruða hjúkrunarfræðinga taka gildi á laugardaginn:
„ÞAD HÆTTA ALUR
SEM GETA HÆTT’
— segir formaður Hjúkrunarf élagsins
,,Nei þaö var ekkert rætt viö okkur
um helgina. Enda svo sem ekkert viö
þvi aö búast. Bæði þurfa menn aö
hafa sína helgi og eins er ekki orðið
nógu stutt í þetta. Ætli veröi nokkuð
rætt við okkur fyrr en tuttugu mínút-
ur fyrir tólf eöa svo á föstudags-
kvöldið,” sagði Svanlaug Arnadóttir,
formaöur Hjúkrunarfélagsins.
Hjúkrunarfræöingar í stórum hóp-
um hafa sagt upp störfum sinum.
Koma uppsagnir þeirra til fram-
kvæmda ýmist á laugardaginn eöa
um mánaöamótin. Hyggjast hjúkr-
unarfræöingar þá ganga út og hætta
vinnu sinni þrátt fyrir aö ríkið megi
samkvæmt lögum framlengja upp-
sagnarfrestinnum mánuöi.
I Landspítalanum hætta flestir,
um 200 manns. Þá hætta 90 á Landa-
koti og töluverður fjöldi á sjúkrahús-
unum á Akranesi, í Keflavík og á
Sankti Jóseps spitalanum í Hafnar-
firði. Um mánaöamótin hætta svo
um 130 á Borgarspítalanum. „Það
hætta allir sem geta hætt. Þeir sem
ekki eru í barnsburöarfríi, námsleyfi
eöa ööruslíku,” sagöi Svanlaug.
Hún sagöi að nokkrum deildum
yrði haldið opnum. Aö ööru leyti
verður bara starfrækt neyöarþjón-
usta. Búiðeraðskipuleggja hana.
Hjúkrunarfræöingar krefjast 5
launaflokka hækkunar til þess aö
taka aftur upp vinnu. Þeir eru nú í 11.
launaflokki. Kjaranefnd hefur úr-
skuröaö tveggja launaflokka hækkun
sem hjúkrunarfræðingunum finnst
ekki nóg. Byrjunarlaun í 11. launa-
flokki eru kr. 8.176, í 13., sem
hjúkrunarfræöingar hafa fengiö,
8.757 og í 16., sem þær fara fram á,
10.708 kr.
Þröstur Olafsson, aöstoöarmaður
fjármálaráðherra, sagöi að þetta
gæfi auövitað litla mynd af raun-
verulegum launum því aö hjúkrunar-
fræðingar hækkuöu fljótt eftir að
störf væru hafin.
„Eg er hræddur um aö ef þeir
fengju 11—13% ofan á þau 7% sem
þeir hafa þegar fengiö og þau 3,70%
sem þeir fengu í fyrrahaust aö tæki
aö heyrast í öðrum launþegum,”
sagöi hann.
Hann sagöi hafa farið fram 3 við-
ræðufundi í deilunni. Hjúkrunar-
fræðingar stæðu hins vegar fast á
sínu og yrði þeim ekkert þokaö.
Þröstur haföi ekki í morgun fengiö
samþykkt hjúkrunarfræðinga um aö
ganga út á laugardag og gat þvi ekki
tjáösigumhana. DS
Fyrsta ralf kros?keppni
BÍKR á þessu ári:
Þórður Vald
sigraði á
Volkswagen
Bifreiöaíþróttaklúbbur Reykja-
víkur hélt um síöastliöna helgi sína
fyrstu rall-kross keppni á þessu ári.
Fór hún fram í landi Móa á Kjalar-
nesi, þar sem gamla brautarsvæöi
félagsins var.
Keppendur voru ellefu aö þessu
sinni og sigurvegari varö Þóröur
Valdimarsson sem ók Volkswagen-
bjöllu. I öðru sæti varö Bragi
Guðmundsson á Lancer 1600. Páll
Grímsson hafnaöi loks í þriöja sæti,
en bíll hans er af Volkswagen-bjöllu-
gerð.
Þess má geta aö bíll Braga sem
hafnaði í ööru sæti aö þessu sinni,
hefur tekið þátt í öllum keppnis-
greinum BIKR sem hingað til hafa
verið haldnar, yfirleitt með mjög
góöum árangri. Er meö ólíkindum
hve bíllinn virðist þola slæma
meöferð í þessum keppnun.
Sigurvegari mótsins, Þóröur
Valdimarsson, kom meö sinn bíl frá
Svíþjóö þar sem hann var smíöaður,
og mun hann vera um hundað sjötíu
ogfimmhestöfl.
Bæöi Þóröur og Jón SHalldórsson,
sem varð Islandsmeistari í þessari
grein bifreiðaíþrótta áriö 1980, eru
staöráönir í því aö taka þátt í
Noröurlandameistarakeppninni í
rall-krossi sem verður haldið í
júníbyr jun skammt utan viö Malmö í
Svíþjóö.
Að sögn Ama Bjarnasonar hjá
BIKR tókst mótiö aö þessu sínni meö
ágætum, miðað við þann stutta
undirbúningstíma sem var fyrir
keppnina. Sagöi hann aö næsta
keppni BIKR í þessarí grein bif reiða-
íþrótta yrði haldin þriöja júní.
Einnig væri í bígerð að halda slíkar
keppnir á Húsavík og Akureyri síöar
í sumar, á vegumklúbbanna nyröra.
Mætti búast við mikilli og fjölmennri
keppni í þessari íþrótt í sumar, því
greinilegt væri að hún nyti meiri vin-
sælda meöal Islendinga með ári
hverju.
Skák:
Reykjavík vann
landsbyggðina
Reykjavík vann landsbyggðina í
skákkeppni sem fram fór um helgina
með 19 1/2 vinningi gegn 16 1/2.
Keppnin var haldin í húsi Taflfélags
Reykjavíkur viðGrensásveg. A laug-
ardaginn var telft á 20 boröum og
sigraði Reykjavík þá meö 11 1/2
vinningi gegn 8 1/2. A sunnudag var
telft á 16 boröum og fékk hver sveit
þá 8 vinninga. I þessarí keppni töld-
ust nágrannabyggöarlög Reykjavík-
urtillandsbyggðarinnar. -OEF
Ungfrú Otsýn krýnd á Broadway
,,Ég vona ad þessi titill færi þér jafnmikla heill og hamingju og hann hefur fært mér, ” sagdi Itiga Bryndís Jónsdóttir,
ungfrú Vtsýn 1981, um leid og hún krýndi arftaka sinn, Elísabetu Björnsdóttur, sem bar sigur úr býtum í úrslitakeppni
um ungfrú Vtnýn 1982, haldinni á Broadway sídasttidid föstudagskvöld. Pad voru ellefu stúlkur sem komust í úrslit og
var dómnefndin ekki öfundsverd af hlutverki sínu.
frjálst, nháð dagblað
MÁNUDAGUR10. MAÍ1982.
Frímerkjauppboð Hlekks:
Hópflugið
á 9.200 kr.
Góö aösókn var aö frímerkjauppboði
Hlekks sem fram fór á Loftleiða-
hótelinu í gær. Heildarsala nam 180
þúsund krónum fyrir utan söluskatt.
Ekki hefur áður verið selt fyrir jafn-
háa upphæö á einu frímerkjauppboði
hérlendis.
Dýrasta númeriö var Hópflug Itala,
en þaö var slegið safnara einum á 9.200
krónur. Ofan á þá upphæð leggst 23,5%
söluskattur. Á miðvikudagskvöldið
gengst Hlekkur fyrir myntuppboöi í
Templarahöllinni. -SG.
Gunnar styður
f lokkinn í
borgarstjórn
— fór lofsamlegum
orðum um Davíð
Oddsson
I útvarpsþættinum Þinglausnir á
laugardaginn lýsti Gunnar
Thoroddsen yfir stuöningi viö framboö
Sjálfstæöisflokksins til borgarstjórnar
Reykjavíkur og fór lofsamlegum
oröum um Davíð Oddsson borgar-
stjóraefni.
Þegar forsætisráöherra var spuröur
um afstööu sína til borgarstjórnar-
framboðs flokksins svaraöi hann á þá
leiö aö varla þyrfti aö spyrja sig um
stuðning viö Sjálfstæðisflokkinn sem
hann hefði starfaö í frá stofnun
flokksins og væri enn í. Þá var Gunnar
ítrekað spuröur um álit sitt á Davíö
Oddssyni sem oddvita borgarstjómar-
framboðsins og svaraöi hann á þá lund
aö Davíð væri dugandi maður.
Spyrjendur í þættinum voru frá dag-
blöðunum og var fulltrúi Morgun-
blaösins áhugasamastur um afstööu
forsætisráðherra í þessum efnum og
færði honum kærar þakkir fyrir svörin.
____________________HERB.
AðalfundurSÍR:
Virkjanamál
tilumræðu
Aöalfundur Sambands íslenzkra raf-
veitna hófst á Hótel Sögu í morgun meö
ávarpi formanns, Aðalsteins Guðjohn-
sen. Kjörleifur Guttormsson iönaöar-
ráöherra flutti einnig ávarp.
Fram aö hádegi voru virkjunarmál-
in til umræöu en eftir hádegi átti að
ræöa þróun og markmið í gjaldskrár-
gerö. Aðalfundinum veröur fram hald-
ið á morgun og lýkur annað kvöld. -SG
Sofnaði út f rá vindlingi
Kona brenndist talsvert eftir aö
eldur kom upp á heimili hennar viö
Yrsufell á laugardaginn. Tahö er aö
konan hafi sofnað út frá vindlingi og
eldurinn náð fötum hennar. Konan var
flutt á sjúkrahús og mun líðan hennar
eftiratvikum. .jqjj
LOKI
Er það rótt að einhver hafí
viljað taka aftur framlag sitt
tfí kosningasjóðs Framsókn-
ar eftir sjónvarpsþáttinn í
gær?