Dagblaðið Vísir - DV - 07.06.1982, Page 5

Dagblaðið Vísir - DV - 07.06.1982, Page 5
DAGBLAÐIÐ & VISIR. MÁNUDAGUR 7. JUNI1982. 5 Menning Menning Menning ALUR í ÓPERUNA Þjóöleikhúaiö: Silkitromman úpera byggö 6 japönsku Nó-leikriti eftir Atla Heimi Sveinsson Texti: ömótfur Árnason Hljómsveitarstjóri: Gilbert Levine Danshreyfingar: Nanna Ólafsdóttir Lýsing: Ámi Baldvinsson Búningar: Helga Björnsson Leikmynd: Sigurjón Jóhannsson Loikstjóri: Sveinn Einarsson Islenska óperan tekur víst ekki þátt í listahátíð. Samt sem áður er það íslensk ópera sem fyrst og hæst ber á hálíðinni. Það fer ekki á milli mála hvar frumkvæðið er í óperumálum. Eins og áður er það í Þjóðleikhúsinu. Þaö held ég að frumsýning Silki- trommunnar á listahátíð 1982 verði lengi í minnum höfð — þegar sögð verður íslenzk leiklistarsaga, óperu- saga, eða saga Þjóðleikhússins sér í lagi. Ekki bara vegna óperunnar, tónverksins sjálfs, svo mikils sem um það er vert og á áreiöanlega mikla framtíð fyrir sér, heldur einnig vegna yfirburða túlkunar nokkurra okkar fremstu söngvara á hlutverkum leiksins, og vegna sýningarinnar í heild, sviðsetningar Sveins Einarssonar. Einhvern veginn hefur mér aldrei fundist Sveinn njóta til hlítar réttar síns sem leikstjóri í Þjóðleikhúsinu, þess réttar sem hann sýndi svo ótvírætt fram á leikhússtjóraárum sínum í Iðnó. En það gerðist á laugar- daginn. Siikitromman er sannarleg veisla fyrir skilningarvitin, augað ekki síður en eyrað, einhver fegursta og áhrifamesta sýnmg sem ég man í Þjóðleikhúsinu um ár og dag. „Allsherjarleikhús” er þetta kallað. Og aldrei slíku vant á slíkt slagorð rétt á sér. Jafnvel áhorfandi sem eins og undirritaður er að jafnaði daufur og tregur á óperum komst ekki hjá því að undrast og hrífast af hinni annarlegu tónlist og atburðarás. Efinið í leiknum er sótt til Japan, í forna leiksögn (og hefði að vísu verið tillitssemi við áhorfendur að prenta hina upprunalegu sögu í leikskránni, mér skilst hún rúmist á tveimur blaðsiöum) en færð á burt frá sínum upprunalega stað og tíma, sett niður í tímalausu og alþjóðlegu umhverfi tísku og frama. Ekki heyrði ég betur en texti Ornólfs Árnasonar væri mjög svo hagalega saminn til sinna nota, orðaði skýrlega hugmyndir sem umfram allt birtist í sýn og söngleiknum. Sagan snýst í stystu máli sagt um ástina — ástina sem tilfinningalega reynslu og skapa- dóm. Hér er engin hversdagssaga sögð um samdrátt og sundurlyndi, en tilfinningalegri reynslu lýst sem Leiklist ölafur Jónsson hefur líf manns upp yfir hvers- daginn, samdráttinn og sundur- lyndið. Og það undraverða er að þetta tekst í orði og verki, söng og leik, hljómi og mynd, að gæða efnis- atriði hinnar fornu frásagnar myndrænni og skáldlegri merkingu sem hæfir áhorfanda beint i h jartað. Sagan lýsir tveimur heimum, tvenns konar lífi, segir frá gömlum manni, öreiga sem hrífst af ungri stúlku, tískudrós og heimskonu. Af fundum þeirra getur ekki leitt nema tortímingu. En tortímingin ber jafn- harðan í sér sáluhjálp hins úrætta, örbirga lífs sem lýst er í leiknum. Silkitromman, dauf og dumb, hljómar um síðir, i því að leiknum lýkur, og í hljómi hennar er frelsi falið. Guömundur Jónsson fer með hlut- verk gamla mannsins, og segja mætti mér að þetta hlutverk verði þegar frá líður talið hámark á frægum ferli söngvarans — þar sem látleysi og einlægni persónulýsingar- innar bar uppi, ef unnt er að taka svo til orða, hina mikilfenglegu söng- rödd. Allt í einu skildi ósöngvinn maður hugtakið „dramatísk tónlist” af því að hlusta á Guðmund. Tísku- drósin er tvískipt hlutverk — danskona, Helena Jóhannsdóttir, lýsir hinu ytra gervi hennar, en söng- kona, Olöf Kolbrún Haröardóttir, innra manni. Olöf Kolbrún er áreiðanlega mikilshæf dramatísk söngkona: Það er svo augljóst mál af til dæmis hlutverki hennar í Sígauna- baróninum, hvernig hún sker sig úr þeirri annars skemmtilegu sýningu. Þess vegna kann hlutverk hennar í Silkitrommunni að virðast van- þakklátt fram eftir öllum leik, haft til hliðar en ekki í frammi. En seinni hluta leiksins fær söngkonan sinn dramatíska rétt í tvísöng þeirra Guörnundar Jónssonar í Niflheimi, einhverju fegursta leikatriði sem ég hef lengi séð á sviði. Það er engin ástæða að orðlengja þetta: aldrei slíku vant sat maður heilshugar hrifinn í leikhúsinu, kom allshugar glaður heim að leik loknum. Svona á að ganga á lista- hátíðum. Ásamt AtlaHeimi og Sveini Einarssyni, Gilbert Levine og Sin- fíníuhljómsveitinni ber um síðir að þakka Sigurjóni Jóhannssyni og Helgu Björnsdóttur: leikmynd og búningar eiga sinn rikulega þátt í þeirri veislu sem hér var fram reidd fyrir sjón og heym og hug manns allan. Ég fór með undrun og áhuga í leik- húsið, hlakka reglulega til að sjá sýninguna aftur, og hef í rauninni aðeins eitt orð að segja við þá sem heyra vilja: farið nú öll í óperuna! Við vekjum athygli á því að auk þess að bjóða upp á landsins mesta úrval íslenzkra hljómplatna og kassetta, erum við með allar nýjustu erlendu hljómplöturnar ásamt kassettum. Einnig eldri erlendar plötur og kassettur. Dagana 14.—19. júní bjóðum við viðskiptavinum sérstakan sumarafslátt 10—80%. Nú ættu allir að nota tœkifærið og byrgja sig upp af kassettum og plötum fyrir sumarið. Lítib inn — verið velkomin Gallery Lœkjartorg m <g>alkn> £ækjartora Sími 15310 Hafnarstrœti 22. MEIRIHÁTTAR SUMARAFSLÁTTUR Á ÍSLENSKUM OG ERLENDUM KASSETTUM OG HUÚMPLÖTUM DAGANA 14.-19. JÚNÍ. Á 10 60S SUMAR- AFSLÁTTUR NÚ ER TÆKIFÆRIÐ AÐ BIRGJA SIG UPP AF HLJÚMPLÖTUM OG KASSETTUM FYRIR SUMARIÐ Á FRÁBÆRU VERÐI GALLERY LÆKJARTOR VIÐSKIPTAVINIR VERIÐ VELKOMNIR Ath. Kassettu- ogpfötutöskur ísumarfríið. LOKSINS eru sérsniðnar hlífar fyrir borðstofu- borð fáanlegar á íslandi. Verndið vandaða borðstofuborðið yð- ar með ,,Decorator color range” hlíf- um sem þola hita, vökva og alkóhól. Hlífarnar eru sérsniðnar til þess að passa á allar stœrðir og gerðir borða. Aukþess að vernda borðið eruþœr til- valdar til hvers konar nota, t.d. spila- mennsku o.s.frv. Pantið tíma og fáið reyndan sérfrœð- ing okkar til þess að koma og mœla borðplötuna ykkar á ykkar eigin heimili. A. HANSEN OG CO. Sími 46120

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.