Dagblaðið Vísir - DV - 07.06.1982, Page 9
DAGBLAÐIÐ & VISIR. MANUDAGUR 7. JUNI1982.
9
Útlönd Útlönd Útlönd Útlönd
200 ísraeiskir skriðdrekar ráðast inn f Líbanon:
BEAUFORTVÍGIFALUD
IHENDUR ÍSRAELSHERS
—Ætlum að hrekja skæruliða 40 kflómetra inn í Libanon, segir Begin
Sýrland lof-
araðverja
Líbanon
Hafez AI-Assad, forseti Sýr-
lands, hefur skýrt Y asser Arafat,
leiðtoga Palestínuskæruliöa, og
Elias Sarkis, forseta Líbanon, frá
því að Sýrland muni gera allt
sem í þess valdi standi til að
vemda Líbanon frá árásum
Israelsmanna.
Hann skýrði þeim Arafat og
Sarkis frá þessu í símtölum á
sama tíma og fréttir bárust af því
að átök væru hafin á milli Israels-
manna og hersveita Sýrlands í
Líbanon.
Sýrlendingar hafa 30 þúsund
manna herlið í Líbanon til þess að
halda uppi friði þar. Umboö þetta
fengu Sýrlendingar frá Araba-
bandalaginu eftir að stjómin í
Damaskus ákvað að skerast í
leikinn í borgarastyrjöldinni í
Líbanon 1975—76.
Palestínskar heimildir sögðu
að slegið hefði í brýnu á milli
Israelsmanna og Sýrlendinga í
Bekaadalnum í Suður-Líbanon.
Palestínska fréttastofan Wafa
treysti sér þó ekki til að staðfesta
þetta.
Öryggisráð
SÞ þingar
öryggisráð Sameinuðu
þjóðanna samþykkti í gærkvöld
að krefjast þess að Israelsmenn
drægju hersveitir sínar frá
Libanon þegar í staö og án
skilyrða. Jafnframt var þess
krafizt i samþykktinni að aliir
deiluaðilar hættu þegar í staö
hernaðarátökum i Libanon og á
landamærum Israles og Líbanon.
Israelski herinn tilkynnti í morgun
að hann hefði náð Beaufort-víginu á
sitt vald. Það hefur á undanfömum ár-
um verið höfuðvigi Palestínumanna í
Suður-Líbanon.
I yfirlýsingu hersins, sem var birt
klukkan sex i morgun að staöartíma,
sagöi að ísraelska herliðiö hefði náð
fjölmörgum búöum skæruliða Pale-
stínuaraba á sitt vald i nótt, þar á
meðal Beaufort-virkinu.
Israelsmenn hafa litiö á Beaufort-
virkið sem alvarlega ógnun við sig á
liönum árum. Virkið stendur á hæð
sem gnæfir yfir Litani ánni í um 400
metra hæð. Þaöan hafa Palestínu-
skæruliðar oft haldið uppi eldflauga-
árásum á norðurhluta Israeis.
Beaufortvirkið féll þannig í hendur
Israelsmönnum innan við tuttugu
klukkustundum eftir að ísraeiski her-
inn réðst inn í Líbanon með um 200
skriðdrekum og þúsundum landgöngu-
liöa.
Bardagar stóðu í alla nótt í Suður-Lí-
banon er ísraelski herinn hélt áfram
för sinni lengra inn í landiö i samræmi
við það markmið sem Begin forsætis-
ráðherra Israels hefur lýst, að skæru-
liðar Palestínumanna skuli hraktir 40
kilómetra inn í Libanon. Herförina
kalla Israelsmenn ,,Frið fyrir Galí-
leu”.
Talsmaður israelska hersins vildi
ekki tjá sig um fréttir frá Damaskus
þess efnis að slegið hefði í brýnu á milli
ísraeiska innrásarliðsins og sveita úr
sýrlenzka hernum við Jarmaq, Berg-
hoz og á vegamótum nærri bænum
Hasbaya.
Sveitir Israelsmanna í Golan-hæðum
' ; ' | ■■
hafa fengið fyrirmæli um að vera í við-
bragðsstööu ef bardagar kynnu að
brjótast útá landamærumSýrlands.
Israelska innrásaliðið var stutt af
öflugum loftárásum ísraelska flug-
hersins á búðir skæruliða i Suður-
Líbanon. Vitni sögðu að ísraelsku her-
sveitimar heföu farið yfir Litaniána á
fjölmörgum stöðum. I innrás Israels-
manna 1978 héldu hersveitir þeirra að
Litaniá og virðist því sem innrás
þeirra nú sé stærri í sniðum en þá.
Talsmenn Israelshers hafa ekki viljaö
lýsa gangi innrásarinnar fram til
þessa og ekki skýrt frá því hversu
margir hafi faliiö.
Ibúar í norðurhéruðum Israels hafa
dvalizt í loftvarnabyrgjum siöastliön-
ar þrjár nætur enda hafa hundruð
sprengikúlna sprungið þar yfir helg-
ina.
Israelska ríkisstjómin kom saman í
gærkvöldi til að hlýða á skýrslu Ariels
Sharons varnarmálaráðherra af gangi
mála. Begin forsætisráðherra var ekki
á fundinum. Hann var á landamærun-
um við Líbanon til að fylgjast með
átökunum.
Umsjón:
Gunnlaugur
A. Jónsson
Israelskar skriðdrekasveitir í Lfbanon. Begin, forsætisráðherra tsraels, sagði að
markmiðið væri að hrekja sksrnliða Paiestinumanna 40 kQómetra inn í Libanon
svo þeir gætu ekki haldið uppi órásum á norðurhéruð tsraels.
DATSUN LAUREL
Frábœr bíll á frábœru verði.
Bjóðum Datsun Laurel SGL
semt
Laurel bensín, sjálfsk
Verö ca kr. 157.000
Tilboðið stendur aðeins út þessa viku
Ingvar Helgason
Vonarlandí .Sogamýri 6 simi 33560
Varahlutaverslurt Rauðagerði Símar: 84510 & 84511