Dagblaðið Vísir - DV - 07.06.1982, Blaðsíða 11
DAGBLAÐIÐ & VlSIR. MÁNUDAGUR 7. JUNI1982.
11
„Ég er alæta
á alla myndlist”
segir Guðmundur Björgvins-
son myndlistarmaður
Hann heitir Guömundur Björg-
vinsson og er myndlistarmaður af
yngri kynslóðinni. Hann er ólærður í
listinni, fyrir utan nokkur námskeið.
sem hann sótti í Bandarikjunum, er
hann dvaldist þar um skeið. Siðustu
„Geysileg gróska í myndllst á tslandl f dag,” Guðmundur Björgvinsson
myndlistarmaður. (DV-myndBj. Bj.)
fjögur ár hefur hann helgaö sig
myndlistinni og „svona skrimtir” að
eigin sögn. Hann hefur haldið
nokkrar sýningar, bæði í Reykjavík
og úti á landi. Aö undanfömu hefur
hann sýnt 57 verk, unnin með bland-
aðri tækni í Gallerí Lækjartorgi.
„Viðbrögðin? — Þau hafa veriö
ágæt. Annars er geysileg gróska í
myndlist á Islandi í dag, næstum
annar hver maður sem titlar sig
myndlistarmann. Samkeppnin erþví
býsna hörð. Áður fyrr voru mynd-
listarsýningar viðburður og menn
lögöu land undir fót til að sækja þær,
en nú verða menn að velja og hafna.
Inn í þetta kemur að blöðin beina
fólki inn á vissar brautir,” sagði
Guðmundur.
— Hvar stendur þú sjálfur í þeirri
baráttu?
„Eg er einhvers staðar í miðjunni,
hvorki lof aður né úthrópaöur. ’ ’
— En hvað eru „góð” viðbrögð í
þínumhuga?
„Það er auðvitað bezt fyrir
budduna að allt seljist, hins vegar
finnst mér skipta mestu máli að
myndir mínar höfði til fólksins, að
ímyndunaraflið fari úr böndunum,
aöfólkiðlifisig innímyndirnar.”
— Hvaðerþað semþúfæstvið?
„Mínar myndir eru mitt á milli
raunsæis og abstrakts.”
— Hvaða myndlistarmenn
meturðu mest?
,,Ég er hrifnastur af Picasso,
Matisse og Francis Bacon af erl-
endum vettvangi, reyndar hefur
verið sagt að í verkum mínum gæti
vissra áhrifa frá þeim siðastnefnda.
Af innlendum myndlistarmönnum
er ég hrifnastur af Flóka, Gunnari,
Emi og Hringi Jóhannessyni.
Annars er ég alæta á alla myndlist og
ligg mikið yfir listaverkabókum af
öllutagi.”
— Nú ertu ekki langskólagenginn á
myndlistarsviðinu og hefur ekkert
próf. Hvernig hefur þér verið tekið af
öörum myndlistarmönnum?
„Eg hef verið tekinn gildur, en er þó
utangarösmaöur að vissu leyti. Ég
fór ekki þessa hefðbundnu leið í
gegnum Myndlistarskólann og er
ekki inni í neinni svoleiðis „klíku”.
Hins vegar fylgist ég vel með því,
sem aðrir eru að gera og fer mikið á
my ndlistarsýningar. ”
— Fæstu viö eitthvert annað
'.istform?
„Já, ég hef skrifað smásögur í
ýrnis tímarit og á tvær skáldsögur
tilbúnar. önnur þeirra fjallar um
bankastarfsmann, sem lifir mjög
fábreyttu og einangmðu iífi, og er
bókin saga þessa manns. Hin er
nokkurs konar uppgjör mitt við
trúarbrögð ýmiss konar, dulspeki,
jógaogandakukl. Eg vareinusinniá
kafi í slíku og þvílíku, þótt ég hafi
aldrei „dottið í það”, eins og þar
stendur. Reyndar byrjaði ég á að
gera myndir um þetta leyti, þetta
voru einskonar táknmyndir sem svo
þróaðist út í hreint raunsæi.”
— Ertu afkastamikill listamaður?
„Já, ég býst við því, ég er svo-
kallaður skorpumaöur. Vinn eins og
brjálæðingur og slappa af þess á
milli, en þaö verður að segjast eins
og er aö ég held ég sé meiri mynd-
listarmaður en rithöfundur,” sagði
Guðmundur Björgvinsson.
-KÞ.
Ferðamála-
fulltrúi
Vesturlands:
„Þetta er í fyrsta sinn sem sérstakur
feröamálafulltrúi er ráöinn fyrir
ákveðinn landshluta. Hlutverk
ferðamálafulltrúa er að samræma
starfsemi þeirra sem vinna að
ferðamálum á Vesturlandi og safna
upplýsingum um ferðamannaþjónustu
á svæöinu”, sagði Benedikt Jónsson,
nýráöinn ferðamálafulltrúi Vestur-
lands, í samtali við DV.
HAKI—\
íram)
Vinnupallar
tíísölu og ieigu
Einfaidir — traustír
— hagkvæmir.
'B
BREIÐFJÖRÐS
BLIKKSMIÐJA HF
Leitiá rtánari upplýsinga
oó Sigtúni 7 Simii20022
Saf nar upplýsingum
um alla ferðaþjónustu
Starf Benedikts var stofnað að
tilhlutan Samtaka sveitarfélaga á
Vesturlandi og þeirra aðila sem sjá um
þjónustu við feröamenn á svæðinu.
Benedikt tók við starfi ferðamála-
fulltrúa þann 1. júní og framundan eru
mörg verkefni. Hið fyrsta verður ferð
um allt Vesturland í þeim tilgangi að
safna skipulega upplýsingum um
feröamannaþjónustu í þessum lands-
hluta. Að upplýsingasöfnun lokinni
verður gefinn út bæklingur með fróð-
leik um hótel, tjaldstæöi, sumarhús,
sögufræga staði, laxveiðiár, sam-
göngur á sjó og landi og hvað annaö
sem ferðamannshjartað kann að
girnast. Bæklingur þessi mun svo
liggja frammi á ölium stööum sem
ferðamennsækja á Vesturlandi.
Benedikt sagði að öllum væri
hjartanlega velkomið að ferðast um
Vesturland, en í fyrstu yrði
upplýsingadreifing miðuð við innlenda
feröamenn. Astæðuna fyrir þessu kvað
hann vera að starfið við upplýs-
ingamiðlunina væri í mótun og íslenzki
markaðurinn væri hæfilegur biti í
byrjun.
Benedikt kvaðst fullur áhuga á nýja
starfinu og vonaðist til að sumarið 1982
yrði gott ferðaár á Vesturlandi.
Góðæris væri líka að vænta ef tekið
væri tillit til þess hve margt þessi
landshluti hefði upp á að bjóða.
Opinbert aðsetur ferðamálafulltrúa
Vesturlands veröur á skrifstofu Sam-
taka sveitarfélaga í Vesturlands-
kjördæmi.
-SKJ.
@ VÉIADEILD SAMBANDSINS
Armúla 3Reykjavk 'ÚXX£<i.lSími3890Q
BUICK SKYLARK
jecyl.Ltd. '81, 280.000
OLDSM. CUTLASS
BROGHAM DlSIL
■79,150.000
ALFA-SUD
'78 55.000
GALANT
1600 GL. '80,105.000
CHRYSLER LE BARON 4D
79, 205.000
CH. MALIBU SEDAN
79,140.000
FORD FUTURA
sjólfsk. 78,115.000
M AZDA 929
'80,115.000
DATSUN CHERRY
'80,85.000
OPEL ASCONA
sjólfsk. 78,100.000
OPELMÁNTA
sjólfsk., 77,95.000
FORDESCORT
78, 70.000
CHEVROLET
DATSU N 280 C
dísil '81.170.000
iTOYOTA COROLLA ST.
'80,95.000
HONDA CIVIC
sjðlfsk. '81,120.000
CH. Malibu CL
ST. 79,170.000
RANGEROVER
76,170.000
CH. CAPRICE CLASSIC
79.220.000
TOYOTA CROWN
1 disil, '80,150.000
M. BENZ300
5 cyl., '80,250.000
MAZDA 929
78,80.000
DATSUN DÍSIL
'80,160.000
CH. MALIBU 2D CL
78,140.000
CH. MALIBU CLASSIC
79,170.000
CH. NOVA6CYL.
sjólfsk., 78,110.000
M. BENZ300D
79,220.000
□PEL
OLDSM: DELTA ROYAL D
78,140.000
CH. MAILBU
st. '81, 280.000
MAZDA121
7887.000
CH. MALIBU
7033.000
CH.CHEVETTE
79 90.000
OPELASCONA
'77.90,000
MAZDA929
76,67.000
CH. MONTE CARLO
79,210.000
SCOUT TRAVELLER
disil '80,350.000
LAND ROVER
disil, lengri gerð 5 d. 77,
130.000
SCOUTII
4 cyl., Pick-up, '80,160.000
SIMCA 1307
77,48.000
CH. SENDIFERÐA,
lengri gerð, 79,175.000
HONDA ACCORD
'81,4 d„ 135.000
MAZDA 323
5d.,'80,85.000
SUBARU 4x4
'80,120.000
CH. CAPRICE CLASSIC
78,180.000
OPIÐ LAUGARDAG
kl. 13-17
Beinn simi
39810
^ VÉLADEILD SAMBANDSINS
Ármúia 3 Reykjavik 'uuLAHtc+i i Simi38900