Dagblaðið Vísir - DV - 07.06.1982, Síða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 07.06.1982, Síða 12
12 DAGBLAÐIÐ & VlSIR. MANUDAGUR 7. JUNl 1982. MwiAÐaÆmm hjálst, aháð dughlad Útgáfufólag: Frjáls fjölmiðiun hf. Stjórnarformaður og útgáfustjóri: Sveinn R. Eyjólfsson. Framkvœmdastjóri og útgáfustjóri: Hörður Einarsson. Ritstjórar: Jónas Kristjánsson og Ellert B. Schram. Aöstoðarritstjóri: Haukur Helgason. Fróttastjóri: Sœmundur Guðvinsson. Auglýsingastjórar: Páll Stefánsson og Ingólfur P. Steinsson. Ritstjórn: Síðumúla 12—14. Auglýsingar: Síðumúla 8. Afgreiðsla, áskriftir, smáauglýsingar, skrifstofa: Þverholti 11. Sfmi 27022. Sími ritstjórnar 86611. Setning, umbrot, mynda- og plötugerð: Hilmir hf., Síðumúla 12. Prentun: Árvakur hf., Skerfunni 10. Áskriftarverð á mánuði 120 kr. Verð i lausasölu 9 kr. Helgarblað 11 kr. Stríðsglaðir virkisbúar Israelsmenn hafa dálæti á fjallavirkinu Massada viö Dauöahaf, þar sem flokkur gyöinga baröist til síðasta manns gegn óvígum her Rómverja. Gestum og ferða- mönnum í Israel eru sagðar þjóðsögur og ævintýri frá Massada. 1 viöskiptum við nágrannaríkin virðast Israelsmenn haldnir eins konar Massada-duld, þar sem allt Israel er eins konar virki, umkringt herskörum fjandsamlegra araba, er bíða færis að taka virkið og hneppa þjóðina í þrældóm. ísraelsmenn hafa ástæðu til grunsemda í garð ná- grannaríkjanna. Þau réyndu að kæfa Israel í fæðingunni og efndu síðan til ófriðar við það. En smám saman náðu Israelsmenn undirtökunum, svo sem bezt kom í ljós í sex daga stríðinu. Þeir hafa unnið stríðin, en hafa átt erfitt með að vinna friðinn. Þeir hafa ekki haft lag á að skapa sér friðsamlegt umhverfi með því að rækta bætta sambúð við araba. Þeir hafa ekki getað losað sig við Massada-duldina. Örlagaríkast var, að samsteypa hægri flokka undir for- ustu Menachem Begin tók við stjórnarforustu af verka- mannaflokki Ben Gurion og Goldu Meir. Áður hafði örlað á sáttfýsi í garð nágrannanna, en nú tók stífnin völdin. Begin fékk kjörið tækifæri, þegar Sadat Egyptalands- forseti hóf friðarsókn með heimsókn til Jerúsalem árið 1977. Henni lauk með friðarsamningi að undirlagi Carter Bandaríkjaforseta. Öflugasti nágranninn var ekki lengur svarinn óvinur. En samkomulagið í Camp David varð aldrei að grund- velli friðar og sáttfýsi á landamærum Israels. Begin skorti víðsýni og hugrekki til að koma út úr sínu sálræna Massada-virki og byggja á þeim grunni, sem Sadat og Carter höfðu lagt. I frelsisstríði Israels var Begin foringi f remur illa þokk- aðra skæruliða. Hann virðist ekki hafa getað losað sig við uppeldið þaðan. Ruddaskapur hans hefur komið skýrt fram í endurteknum og tilhæfulausum árásum á Schmidt Þýzkalandskanslara. Fyrir þingkosningarnar í fyrra var meirihluti Begins í bráðri hættu. Hann fann þá upp á því óþokkabragði að hefja loftárásir á nágrannana til að æsa upp þjóðemisvit- und heima fyrir og slá skjaldborg um þingmeirihlutann. Það er gamalt bragð óprúttinna ríkisleiðtoga að dreifa athyglinni frá innanlandsmálum með því að hefja ófrið út á við. Þetta gerði Galtieri hershöfðingi nýlega í Argen- tínu. Og þetta gerði Begin einmitt í Israel í fyrra. Með því að æsa upp frumstæðar hvatir heimamanna tókst Begin að halda forsætisráðherrastólnum. En jafn- framt eyðilagði hann áratuga viðleitni betri manna við að koma á eðlilegum samskiptum þjóða fyrir botni Miðjarð- arhafs. Innrás Begins í Líbanon um helgina er í samræmi við önnur vinnubrögð hans. Friðinn getur hann ekki unnið, heldur sáir hann eitrl haturs, hvar sem flugvélar hans og skriðdrekar fara yfir. Og þetta Massada hefur þjóð hans kosið yfir sig. Margið Vesturlandabúar hafa dáðst að dugnaði Israelsmanna við að byggja upp landið og breyta eyði- mörkum í aldingarða. Samúð heimsins var með Israel langt fram yfir sex daga stríðið. En á síðustu árum hefur Begin rifið hana í tætlur. Hið vígvædda og stríðsglaða Massadanútímans, Israel, er gífurlegur siðferðisbaggi á Vesturlöndum. Það heldur uppi óeðlilegri spennu milli arabískra og vestrænna ríkja, einkum Bandaríkjanna, sem hafa látið Begin teyma sig út í kviksyndið. NÝ HEFD: HJÓL- REIDADAGURINN Sunnudagurinn 23. maí sl. varö mörgum eftirminnilegur. Hinir mörgu eru þúsundir manna á ýmsum aldri, sem tóku þátt í Hjólreiðadeginum mikla í Reykja- vík og nágrenni. I fyrra var riðið á vaðiö með Hjólreiðadag í Reykjavík, en nú slógust fleiri í hópinn, nefnilega börn, unglingar og fullorðnir í Kópa- vogi, Garöabæ, Hafnarfirði, á Sel- tjamarnesi og í Mosfellssveit. Hjól- reiðadagurinn er haldinn á vegum Styrktarfélags lamaðra og fatlaðra, en driffjöörin við skipulagningu dagsins og formaður undirbúnings- nefndar er Sigurður Magnússon, framkvæmdastjóri styrktar- félagsins. Þennan góðviðrisdag var lagt af stað frá skólum í heimahverfum, 15 brottfararstöðum alls, og var hjólaö á Laugardalsvöll miskrókótt eftir nálægðskólans við völlinn, þannig að allir lögðu að baki svipaða vegalengd á áfangastað, 10—12 km. Giskað er á, að um 5 þúsund manns hafi tekið þátt í hjólreiðunum. Tilgangurinn með Hjólreiða- deginum er tvíþættur. I fyrsta lagi útivist, holl hreyfing og skemmtileg tilbreyting, en í öðru lagi stuðningur við gott málefni. I fyrra safnaðist mikiö fé til stuðnings málefnum lamaðra og fatlaðra, en að þessu sinni verður söfnunarfénu varið til styrktar öldruðum, gamla fólkinu. Hjólreiðamenn eiga því það mikilvæga erindi á völlinn að koma áleiðis fégjöfum, sem þeir hafa safnaö meöal fólks, heima, í ná- grenni sínu eða á vinnustað o.s.frv. Kynning og söfnun Allumfangsmikil kynning hafði farið fram í skólum og naut undir- búningsnefnd velvildar og aðstoðar skólastjóra og kennara, þrátt fyrir prófstemmningu í skólum um þessar mundir. Undirtektir nemenda voru góðar og mörg hundruö nemendur útveguðu sér söfnunarspjöld. Ein- sýnt var að þátttaka yrði góð. En þrátt fyrir góöar undirtektir í skólunum og myndarlegar aug- lýsingar í blöðum siðustu dagana, var nokkuö óvíst, hversu til tækist. Af eðlilegum ástæðum átti fréttin af væntanlegum Hjólreiðadegi bágt með að berast til almennings um blöð, útvarp og sjónvarp — blaöa- menn og aðrir höfðu öðrum hnöppum að hneppa: holskefla kosninga- leiksins f æröi allt annað í kaf. Það var því þeim mun ánægjulegra að sjá á Hjólreiöa- daginn, að kosningaglíman hafði ekki komið að sök. Fréttin um Hjól- reiðadaginn hafði borist frá skólun- um og þaðan frá manni til manns — og ekki ber að vanmeta þær mínútur og þá fersentimetra, sem fjölmiðlar höfðu aflögu, þrátt fyrir segulmagn kosninganna. Hvert hundraöið kom í slóð annars hjólandi inn á völlinn, flestir færandi hendi, og söfnuðust yfir 500 þúsund krónur. Margir höfðu safnaö og enn fleiri gefið, og ber hin háa upphæð vitni um ótal spor stigin í þágu málefnisins: látiö öldruðum líða vel. Hér má því mörgum þakka og mun dugnaður þeirra sem söfnuðu og rausn þeirra sem gáfu bera góöan ávöxt næstu mánuði. Dagurinn rennur upp Ýmislegt var til skemmtunar og afþreyingar ungu hjólreiðafólki á Laugardalsvelli Hjólreiðadaginn. Margir lögðust á eitt í fjölþættum undirbúningi, fórnuðu tíma og vinnu til stuönings Hjólreiðadeginum. Sér- staklega ber að nefna hlut umferðar- lögreglunnar í þátttökubæjunum, en án hennar væri ekki hægt að halda Hjólreiðadag. DV og önnur blöð hafa áður tilgreint marga aöra, sem hlupu undir bagga. Þaö yrði langur listi að öllum töldum, en þar á meðal voru t.d. Svölumar (félag flugfreyja), Kvennadeild Styrktarfélagsins, bíl- stjórar hjá Nýju sendibílastöðinni, en þeir síöasttöldu fylgdu á bílum sínum í humátt á eftir reiðhjóla- lestunum, einn sendibíll með hverri til að vera til taks, ef innbyrða þyrfti einstaka óheppinn hjólreiöakappa með sprunginn barða eöa þrotiö þrek. Bílstjóramir vom þarna í sjálf- boðavinnu eins og margir aðrir. Framhald? Margt fór betur en í fyrra, en sumt er enn í molum og í mótun. En auðséð er, að það verður ekki aftur snúið. Þúsundir manna, einkum unglingarnir, vilja Hjólreiðadaginn, — og söknuðu hans, ef hann yrði ekki haldinn þriðja sinnið næsta vor. Vel getur verið, að Hjólreiða- dagurinn verði með öðru sniði næst. Mikil örtröð var sums staðar á Laug- ardalsvelli á Hjólreiðadaginn. Að dómi Sigurðar Magnússonar fram- kvæmdastjóra virðist Hjólreiða- dagurinn hafa sprengt af sér Laug- ardalsvöllinn: Hann nægir ekki lengur og kannski væri því hentugast aö dreifa mannskapnum á fleiri á- fangastaði eða velja annað svæði, stærra, fyrirhátíðsemþessa. Þátttakendum mun fjölga, börnum, unglingum og fullorðnum — hjólreiðamönnum, og einnig þeim sem taka þátt með öörum hætti: gefa af tíma sínum eða af peningum sínum, mikið eða lítiö. Giskað hefur verið á, að um 40 þúsund manns hafi þannig átt hlutdeild í síðasta Hjólreiðadegi, beint eða óbeint. Minna bensín, betri heilsa Ekki sakar aö minna ráðamenn á, aö það yrði margvíslegur á- vinningur, ef íbúar bæjanna gætu farið feröa sinna á hjóli, þegar vel viðrar. Því miður hefur slikt allmikla hættu í för með sér nú og svo verður þar til yrðu gerðar sér- stakar hjólabrautir, engu síður en götur fyrir bíla. Almenn notkun A „Hjólreiðadagurinn virðist hafa sprengt w af sér Laugardalsvöllinn, ’ ’ segir Þór Jakobsson í grein sinni. Hjólbarði er ekki bara „hjóibarði” þeir væru bara úr gúmmíi myndu þeir blásast út eins og blöðrur og ekki halda neinu lagi. Gúmmíið í barðanum er steypt utan um eins konar burðargrind úr sveigjanlegum þráðum og fyrirkomulag þessara þráða í barðanum kallast byggingar- lag. Byggingarlag dekkja er í meginatriðum þrenns konar: 1. Diagonal (CrossPly-BiasPly) (Mismunandi nöf n á sama , byggingarlagi). 2. Bias Belted (Belted) 3. Radial — Belted (Radial). Elsta útgáfan og sú sem enn er al- gengust hér á landi er útgáfa 1, í slíku dekki liggja burðarþræöirnir skáhallt frá felgubrún, oftast 4 lög, 2; og 2 í kross. Þegar svo er veröur Þegar leikmenn heyra talað um hjólbarða ber ýmislegt fyrir eyru sem kann að hljóma eins og hebreska. Eitt dekk er „diagonal” annað „radial”, það þriöja „belted”, eða þá að dekkin eru heitsóluö, kald- sóluð eða heilsóluð, nú, sum eru „nælon” önnur „rayon” eða „polyester” og svomætti lengitelja. Er þetta einhver frumskógur eða hvað? Fyrir hvaö stendur allt þetta? Eg hélt að dekk væru úr gúmmíi. Já, það er von að menn spyrji. I raun er þettá alls ekki svo flókið mál heldur er hér aöeins verið að tala um byggingarlag og efni, annaö er það nú ekki. Byggingarlag Hjólbaröar eru úr gúmmíi, en ef Kjallarinn Árni Árnason Jónas Kristjánsson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.