Dagblaðið Vísir - DV - 07.06.1982, Page 15

Dagblaðið Vísir - DV - 07.06.1982, Page 15
DAGBLAÐIÐ & VlSIR. MANUDAGUR 7. JUNl 1982. 15 Menning Menning Menning Listahátíð í Reykjavík: SILKITROMMAN Tónlist Eyjólfur Melsted Hljómsveitarstjórinn Gilbert Levine og Atli Heimir Sveinsson, höfundur tónlistar í óperunni. „Sumir vinna erfiðustu verkin síðast, en óg treini mór ánægjuna þar til í lokin. Við þennan glugga lýkur hverjum vinnudegi. Bak við þennan glugga birtist sú sem hjarta mitt þráir." — syngur gamli maðurinn gluggapússarinn, höfuðpersóna Silkitrommunnar, óperu Atla Heimis Sveinssonar. Og hvers vegna er gamli maðurinn að horfa inn um gluggann og hvers vegna heillast hann af . glamúrveröld tísku- heimsins? Og hvers vegna ber hann ástarhug til gyðju þessa tískuheims, ungu stúlkunnar? Þvílíkum spurningum er ekki auðsvarað, en falla ekki flestir fyrir ofurvaldi aug- lýsingaflóðsins, jafnt þótt menn virðist tilheyra allt annarri veröld en sýnd er í auglýsingunni? Ekkirokk ogekkidiskó, en tískan samt Nú héldu víst margir að til að koma tískuveraldarblæ til skila þyrfti rokk eða diskó. En þannig þenkjandi fólki er einungis hægt að ráðleggja að fara að sjá og heyra hvernig Atli Heimir f er að. Og víst er það Atli Heimir og músik hans sem allt snýst um, þótt væntanlega yrði ekki nema svipur hjá s jón ef á vantaði f rábært f ramlag fulltrúa annarra listgreina. Og ekki er músík Atla Heimis af léttasta tagi. Hún er réttar sagt þræl- snúin, en þó um leið svo innilega eölileg. En hún var líka flutt af ein- valaliði. Óperusigur Fyrstan ber að nefna Guðmund Jónsson í hlutverki gamla mannsins. I þessu hlutverki held ég að Guð- mundur vinni sinn stærsta sigur á óperusviði. Flosmjúk barýtónrödd hans hljómar á móti sjálfri sér, margfaldri af tónbandi í langri og erfiðri aríu, hverrar upphaf er tilfært í byrjun þessarar greinar. Að öllum öðrum ólöstuðum er Guðmundur stj arna Silkitrommunnar. Unga stúlkan er í höndum Helenu Jóhannsdóttur og Olafar Kolbrúnar Harðardóttur. Hlutverkinu skipt í tvennt þar sem Helena er glamúrpían holdi klædd, en Olöf Kolbrún hugsun hennar og samviská í söng. Og aldrei bregst Olöf Kolbrún, sama hvaða tegund tónlistar hún syngur. Dándimannatríó Síðan koma þrír dándimenn tísku- veraldarinnar. Sigurður Bjömsson, Kristinn Sigmundsson og Jón Sigur- bjömsson. Makalausar týpur hver um sig og saman frábært tríó. Og ekki gaf Rut L. Magnússon þeim eftir í hlutverki konunnar. „Mömmunnar” sem sér um að reka stofnunina sem tiskuheimur nefnist. Einleikarahljómsveit Hljómsveitin, skipuð tuttugu og tveimur einleikurum, vann sitt verk með stakri prýði. Hver rödd er að stórum hluta einleikshlutverk, en þó reynir ekki síður á góðan samleik. Atli Heimir er ekki síður mis- kunnarlaus við hljóðfæraleikara en söngvara, en launin em líka mörgföld þegar snúinni en maka- láusri músíkinni er komið vel til skila. A stjórnpalli stóð Gilbert Levine. Hann þarf ekki að kynna fyrir íslenskum músikunnendum. Svo vel hefur hann unnið hér fyrr, en hér vinnur hann mikið afrek að halda saman svofrábærri ópemsýningu. HvUikt upphaf einn- arústahátíðar Nú mætti halda upptalningu og af- rekaskrá lengi áfram, en hér verður látið staöar numið. I raun nægöi að segja að verkið og sýningin er stór- kostleg og kannski rétt að láta eftir sér þann bamaskap að segja — á heimsmælikvarða. Hvílíkt upphaf einnar Listahátíöar. Þaö er skylda hvers sem tök hefur á að koma þessu stórkostlega verki á framfæri á al- þjóðamarkaði, sem ég efast ekki um að verði gert. Silkitromman, hljóð- færið þögla, lætur engan ósnortinn. Ég upplifði hana sem músíksjokk og skalfílokin. -EM. TEKUR WJ AHÆTT UNA? Þú þarft þess ekki lengur þvi nu getur þú fengiö eldtraust- an og þjófheldan peninga- og skjalaskáp á otrulega hagstæðu veröi. '&LK/NGCRaWN Lykill og talnalás= tvöfalt öryggi. Innbyggt þjófaviðvörunarkerfi. 10 stæröir, einstaklings og fyrirtækjastærdir. Japönsk gæðavara (JIS Standard). Viðrádanlegt veró. Eldtraustir og þjöfheldir. Japönsk vandvirkni i frágangi og stil. Því meiri kröfur, sem þú gerir til utanhúsmálningar því meiri ástæða er til að þú notir HRAUN HRAUN, sendna akrýlplastmálningin hefur allt það til aö bera, sem krafist er af góðri utanhúss- málningu: Mikinn bindikraft, frábæra endingu — dæmi eru til um meira en 17 ár. Þekur vel — hver umferð jafnast á við þrjár umferðir af venjulegri plast- málningu. Hefur fallega áferð — til bæói fín og gróf, og fæst í fjölbreyttu litaúrvali. HRAUN stenst allan verðsamanburð. HRAUN litakortið fæst í öllum helstu málningar- f vöruverslunum landsins. málning PA 460 eldavélin með gufugleypi Glæsilegirtiskulitir karry gulur, avocadó grænn mál: 60x60x85 (eöa 90) PA 460 eldavélin er ein fullkomn- asta og glæsilegasta eldavélin á markaönum. Til þess aö gera þér mögulegt að eignast þessa glæsilegu eldavél og gufugleypi bjóöumst viö til aö taka gömlu eldavélina þína upp í fyrir 500 krónur. Engar áhyggjur, við komum til þín meö nýju vélina og sækjum þá gömlu án tilkostnaðar fyrir þig (gildir fyrir stór Reykjavíkursvæð- ið). Sértu úti á landi. — Hafðu samband. Umboðsmenn okkar sjá um fram- kvæmdina. Dragðu ekki að ákveða þig. Við eigum takmarkað magn af þessum glæsilegu KPS PA 460 eldavélum á þessum kostakjörum. Verð PA 460 eldavél með gufugleypinum Kr. 10.890,- Mínus gamla eldavélin Kr. 500,- Kr. 10.390,- Útborgun Kr. 2.000,- Eftirstöðvar kr. 1.400,- á mánuði að viðbættum vöxtum. + 4 hellur, termostathella + Upplýst takkaborð + Tvöföld köld ofnhurð með barnaöryggislæsingu + Stór ofn að ofan með rafdrifnu griili, sjálfhreinsandi + Stórofn að neðan, sem Ifka má steikjaog baka i + Sterkur gufugleypir fylgir, með klukku og sjálfvirkni fyrir eldavélina + Kolasía ef gufugleypirinn á ekki að blása út fæst auka- lega. EINAR FARESTVEIT & CO. HF. Bergstaðastræti ÍOA-Sími 16995

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.