Dagblaðið Vísir - DV - 07.06.1982, Síða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 07.06.1982, Síða 16
16 DAGBLAÐIÐ & VISIR. MANUDAGUR 7. JUNI1982. Spurningin Hvern heldur þú mest upp á í myndaflokknum Löðri? Elisabet Steinsdóttlr búsmóðir: Burt að sjálfsögðu. Hann er alveg stór- skemmtilegur og bráöfyndinn náungi. Hreinn Magnússon verkamaður: Jessicu. Hún hefur sérstaka takta og er smellin. Kristbjörg Þórðardóttir hjúkrunar- fræðingur: Eg horfi nær aldrei á þátt- inn þar sem ég vinn mikið um helgar. Hólmfríður Ingimundardóttir af- greiðslukona: Mér finnst þau öll góð. Lázt þó einna bezt á Jessicu. Annars er áhuginn aðeins aö minnka á þættinum. Karl West Frederiksen, starfsm. hjá Hagkaup: Benson, á meðan hans naut við. Sakna hans mikið. Þórunn Ástþórsdóttir húsmóðir: Horfi aldreiáLöður. Lesendur Lesendur Lesendur Lesendur Húsnæðisvandinn: „Öðrum en landanum virðist ræður við, aö minnsta kosti ekki þeir sem eru að flytja frá öðru landi í sitt heimaland. En öðrum en landanum virðist vera hægt að bjarga. Ég vonast því til að einhver góðhjartaður íbúöar- eigandi lesi þessar línur minar og vilji hjálpa okkur Islendingum um húsa- skjól. vera hægt að bjarga” Agla Björk Roberts, 0093—5298: Eg skrifa vegna þess að mér ofbauð þegar ég heyrði að pólskir flóttamenn fengju landvistarleyfi hér á landi því að sjálfsagt geta þessar pólsku fjöl- skyldur, sem komu þann 28. f.m., fengið húsaskjól einhvers staðar. Það verða engin vandræði með það. Ég og eiginmaður minn, ásamt 9 mánaöa gamalli dóttur okkar, erum nýflutt heim frá Svíþjóð. Fyrir löngu auglýstum við eftir íbúð og höfum svarað öllum auglýsingum, en án árangurs. Alltaf er sama sagan: Okur- verð og fyrirframgreiðsla sem enginn Hvað olli „hruni” Sjálfstæðis- flokksins í Grundarfirði? Áhugamenn um hreppsmál skrif a: Þegar litið er á heildarúrslit kosn- inganna 22. maí sl dylst engum að Sjálfstæðisflokkurinn er ótvíræður sigurvegari. Bætti hann fylgi sitt víðast hvar, þó með örfáum undan- tekningum. Eru það aöallega litlir staðir úti á landi, en þar kom fyrir að hann missti örfá atkvæði. Okkur, nokkrum félögum, sem vorum aö velta úrslitum kosninganna fyrir okkur, kom þó einn staður ein- kennilega fyrir sjónir, og þá með tilliti til kosningaúrslitanna. Sá staður er Grundarf jörður. Þar varð hrun á fylgi Sjálfstæðisflokksins og hann missti meirihlutaaðstöðu sína. Hrun köUum við 12—14% fylgistap. Ekki erum við kunnugir þama. en þetta vakti ósegjanlega forvitni okkar. Fróðlegt væri ef einhver kunnugur gæti útskýrt hrun flokksins einmitt á þessum stað. Er það ef til vUl óánægja með störf meirihlutans á kjörtímabU- inu? Eða ef til vUl miklarpersónulegar óvinsældir einhvers einstaks eða ein- stakra á listanum? Hver veit? Hver getur svarað? „Okkur, nokkrum félögum, sem vorum að velta úrshtum kosninganna fyrir okkur, kom þó einn staður ein- kennilega fyrir sjónir, og þá með tUliti tU kosningaúrsUtanna. Sá staður er Grundarfjörður,” segú- í bréfi „áhuga- manna um hreppsmál”. Munurinn er 6,3% „Við vorum með 44% atkvæöa í síðustu kosningum en erum núna með 37,7%, svo að munurinn er nú 6,3%,” sagöi Ámi Emilsson, efsti maöur á lista Sjálfstæðisflokksins í Grundar- firði, og bætti við: „Annars hiröi ég ekki um að eiga skoðanaskipti við fólk segja á sér deUi og finnst mér það vera við DV að birta bréf af þessu tagi. ” sem ekki hefur manndóm tU þess að langt fyrir neðan virðingu blaðs á borð -FG.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.